Vísir - 29.03.1972, Síða 5
Vfsir. Miðvikudagur 29. marz 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Múrinn verður „opinn"
| Umsjón: ■
I Haukur Helgason :
■ ■
Hermdarverk
í Stokkhólmi
sem fór yfir mörkin kiukkustundu
eftir að opnað var, sagði frétta-
mönnum, að formsatriði væru i
lágmarki við hliðin, biðraðir
ekki langar og nokkuð hratt gengi
að afereiða fólkið.
Austur-Þjóðverjar mega ekki
fara yfir til Vestur-Berlinar nema
fólk, sem er komið á eftirlaun,
segir i fréttum i morgun.
Hólf milljón Vestur-Berlínarbúa heimsœkjavini og œttingja austan megin
Berlínarmúrinn var „opn-
aður" í morgun fyrir fólk i
Vestur-Berlín í fyrsta sinn í
sex ár. Átta hlið voru opn-
uð. Strax klukkan sex í
morgun tóku Vestur-Ber-
linarbúar að streyma til
Austur-Berlinar til að
heimsækja vini og ættingja
eftir hinn langa aðskilnað.
Austur-þýzkir lögregluþjónar
með labb-rabb-tæki voru á verði,
en verkefni þeirra verður ekki
sizt að koma i veg fyrir, að fólk
frá Austur-Berlin komist vestur
yfir.
Stjórnvöld telja, að um hálf
milljón Vestur-Berlinarbúa muni
fara yfir mörkin um páskahelg-
ina. Leyfi til heimsókna verða
felld niður 5. april.
Samkomulagið um heimsókn-
artima var undirritað af fjórveld-
unum, Bandarikjunum, Bret-
landi, Sovétrikjunum og Frakk-
landi, i september siðastliðnum.
Samkomulagið hefur ekki tekið
gildi, þar sem Sovétmenn vilja,
að þing V-Þýzkalands samþykki
fyrst samning V-Þjóðverja og
Sovétmanna og Pólverja, en
mjótt er á munum i vestur-þýzka
þinginu um það mál.
Hins vegar féllst stjórn Austur-
Þýzkalands á að leyfa heimsóknir
um páskahelgina sem „tákn góð-
vildar.” Stjórnin lét það koma
fram, að með þessu vilji hún auka
likurnar á, að þing Vestur-Þýzka-
lands samþykki samkomulagið.
Aðeins eftirlauna fólk
vestur yfir.
Tvitugur Vestur-Berlinarbúi,
Stokkhólmsskrifstofur júgóslavn-
esku ferðaskri f s t ofunnar
Yogotours voru i morgun
eyðilagðar með sprengju.
Sjónarvottur segir, að ungur
maður hafi kastað hlut gegnum
hurðina inn i skrifstofuhúsnæðið
og siðan hlaupið burt. Litlu siðar
varð öflug sprenging.
Eldur kom upp, en slökkvilið
kom fljótt á vettvang og slökkti
eldinn á skömmum tima.
Fólk sakaði ekki.
Skömmu eftir sprenginguna
fékksænska fréttasLupphringingu
manns, sem talaði sænsku illa, og
sagði hann, að samtök, sem
nefndust „sósialistísk skæruliða-
hreyfing Króatiu” stæði að
verkinu. „Við ætlum að sprengja
upp alla þá staði, þar sem eru
fulltrúar ' stjórnarinnar i
Belgrad,” sagði maðurinn.
Sjálfstæðishreyning Króatiu
lætur mikið til sin taka og hefur
hún, og hálffasistiskur félags-
skapur hennar, staðið að herm-
darverkum viða um lönd, ekki
sizt i Sviþjóð, þar sem nokkuð er
um Júgóslava. Króatia er nú hiuti
Júgóslaviu, en heimamenn hafa
gert tilraunir til að fá meiri sjálf-
stjórn og komið hefur til verkfalla
stúdenta og brottrekstrar em-
bættismanna út af þessu.
Þúsundir dœmdar
Stjórnin í Bangladess
hefur stofnsett 73 sérdóm-
stóla til að fjalla um mál
þúsunda manna, sem eru
sakaðir um samvinnu við
Vestur-Pakistani í fyrra.
1 höfuðborginni Dacca eru tiu
þúsund manns sagðir sitja i fang-
elsum fyrir þessar sakir, og viða
um landið munu þeir vera marg-
ir, sem biða dóms vegna sam-
vinnu við herstjórn Jaja Kans og
V-Pakistana.
Það voru einkum menn af Bi-
haristofni sem unnu með her-
stjórninni, en þeir hafa talið
Bengali, yfirgnægandi meirihluta
landsmanna, beita sig ofriki. Bi-
harimenn eru sagðir haf'a tekið
þátt i ýmsum morðum og of-
beldisverkum ásamt V-Pakistön-
um.
Svona lokar múrinn i Berlin Brandenborgarhliði. Austur- Berlin er á ofanverðri myndinni.
Mœtti
bjarga
flestum
Tveimur af hverjum þremur af
þvi fólki, sem deyr af völdum
krabbameins, mætti bjarga, að
sögn forseta krabbameinsfélags-
ins bandariska, dr. A. Hamblins.
Hann segir, að væru notaðar til
fulls þær aðferðir, sem læknavis-
indin ráða nú yfir, i stað þess að
menn væru alltaf að leita að ein-
hverri algildri „töfralækningu” á
krabbameini, þá væri unnt að
bjarga lifi miklu fleiri manna en
gert er.
ALLTAF FJOLCAR
VOLKSWAGEN
Landssalan mikla afstaðin
Flugu getið þér drepið
en VOLKSWAGEN ekki
Margir hafa reynt
... en ekki fekist
HVERSVEGNA?
Vegna. þess að VOLKSWAGEN er ekkert
tízkufyrirbæri . . . Árviss reynsla og tækni-
þróun, án útlitsbreytinga hefir gert hann
að öruggri fjárfestingu og þeim bíl . . . sem
jafnvel afi og amma þekkja, pabbinn vill
eignast, mamma vill keyra og börnin kalla
ekki bíl, heldur
.. . VOLKSWAGEN . ..
Kynnið yður verð varahluta-
og viðgerðaþjónustu.
VOLKSWAGEN er einmitt
framleiddur fyrir yður
Dom Mintoff forsætisráðherra
hefur fengið fram mest af kröfum
sinum um greiðslur fyrir her-
stöðvar. Bretar og Atlantshafs-
bandalagsmenn borga um þrjá
milljarða íslenzkra króna á ári
fyrir stöðvarnar. Á myndinni eru
Mintoff (til vinstri) og Bretinn
Carrington lávarður að skrifa
undir samninginn.
Sími
21240
HEKLA hf
Laugavegi
170-172