Vísir - 29.03.1972, Síða 6

Vísir - 29.03.1972, Síða 6
6 Visir. Miðvikudagur 29. marz 1972. vísm Otgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson y Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 15610 11660 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 11660 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 11660 ( 5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi inranlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaðaprent hf. Grunnur markaðsbúskapar Þjóðfélög markaðsbúskapar á Vesturlöndum, allt frá Sviþjóð til Bandarikjanna, eru sifellt að þróa hæfni sina við að eyða neikvæðum þáttum hag- kerfis sins. Ekkert hagkerfi er lausara við stirðnun og sýnir jafnmikinn sveigjanleika til stöð- ugra endurbóta. Hinn gamli grunnur er enn hinn sami, samkeppni, markaðssjálfvirkni, einkaeign, valddreifing og at- orkuhvatning. Það er þessi grunnur, sem Karl Marx lofaði á sinum tima i Kommúnistaávarpinu fyrir gifurlega efnahagslega uppbyggingu. Enn i dag er það þessi grunnur, sem gefur þjóðum heims hraðasta efnahagsþróun og bezt lifskjör. Félagsleg yfirbygging En margvislegar endurbætur hafa átt sér stað frá tima Marx. Ofan á grunninn hefur verið byggt vel- ferðarþjóðfélag, sem i þeim löndum, er lengst eru á veg komin, tryggir öryggi borgaranna frá vöggu til grafar. Viðamikil tekjujöfnun skattakerfa og trygg- ingakerfa fer ágætlega saman við markaðs- búskapinn. Hið sama er að segja um viðamikinn opinberan rekstur á sviði sameiginlegrar þjónustu, svo sem*skóla og sjúkrahúsa og nú siðast um- hverfisverndunar. Þessar endurbætur hafa mildað hörku og kulda markaðsbúskaparins og gert hann að mannlegasta efnahagskerfi, sem þekkist, án þess að virkni hans hafi minnkað. Endurbæturnar hafa breytt honum i félagslegan markaðsbúskap, svo að notuð séu orð Ludwig Erhards, fyrrum kanzlara Vestur- Þýzkalands. En þróunin heldur áfram. Á siðustu árum hafa verið þróuð ýmis gagnverkandi öfl, sem skapa aukið jafnvægi i samskiptum neytenda og framleið- enda. Þessi þróun einkennir i misjöfnum mæli öll lönd markaðsbúskapar, allt frá Sviþjóð til Banda- rikjanna. Þessi öfl eru barátta við einokun, villandi auglýsingar og hættulegar vörur, svo og aukin neyt- endamenntun og auknar neytendarannsóknir. r Osigrandi hagkerfi Þessar endurbætur munu slá i gegn, án þess að eðli og gildi markaðsbúskaparins breytist nokkuð. Hið sama verður sjálfsagt hægt að segja um ýmsar aðrar endurbætur, sem menn vita ekki um núna, en eiga eftir að þróast. Sveigjanleikinn i markaðsbú skapnum hefur gert hann að ósigrandi hagkerfi, sem skarar langt fram úr öllu öðru, sem við höfum þekkt og þekkjum i dag. Miðstjórnarhagkerfi Austur-Evrópu verkar aðeins i einum ákveðnum kringumstæðum betur en mark- aðskerfið. Það er þegar stjómvöld vilja og geta haldið niðri neyzlu almennings og lagt eingöngu áherzlu á eflingu efnahagslifsins, svo sem á styrj- aldartimum eða á harðstjórnartimum. Undir öllum öðrum kringumstæðum hefur reynslan sýnt algera yfirburði markaðsbúskaparins. Enda eru stjómir flestra rikja Austur-Evrópu nauðugar viljugar að feta sig hægt og hægt i átt til markaðsbúskapar. Gjörbreytt afstaða bandarískra kvenna til kvenfrelsishreyfingar: Konurnar frjálslyndari en karlmennirnir Kvenþjóðin hefur yfirleitt þótt ihaldssamari en karlþjóðin, aö minnsta kosti svona aö meðaltali. Skoöanakannanir i Bandarfkjun- um leiða hins vegar f ijós, að kvenfólk þar kýs fremur ,,til vinstri" i pólitíkinni, sem þar i landi þýöir, að þær hallast á sveif með demókratafloKknum, sem kalla mætti „frjálslyndan miö- flokk”. Þær reynast líka frjáls- lyndari á mörgum sviðum þjóö- mála öörum. En fyrst og fremst hafa oröið alger umskipti í af- stööu bandariskra kvenna til kvenfrelsishreyfingar. Skoöanakönnun Harris stofn- unarinnar sýnir, að alger kú- vending hefur orðið meðal kvenna á einu ári i afstöðunni til tilraunanna til að breyta stöðu konunnar i þjóðfélaginu. Konur styðja nú breytingar á stöðu kvenna með meirihlutanum 48% með og 36% á móti, en 16% eru óákveðnar. Fyrir einu ári var meirihlutinn andvigur breytingum á stöðu konunnar i þjóðfélaginu frá þvi, sem nú er. Þá vildu 42% óbreytt ástand i stöðu kynjanna i þjóð- félaginu, en 40% vildu breytingar. Styðja aðalatriðin i baráttu „rauðsokka" Breytingin kemur skýrast fram meðal giftra kvenna. Giftar konur voru i fyrra andvigar breytingum að miklum meiri- hluta, 45% gegn 38%. Nú styðja þær breytingar með meirihlutan- um 46% gegn 38%. Konur, sem búa i útborgum stórborganna, það er að segja millistéttin og hinar efnaðri, voru andvigar breytingum i fyrra. Nú styðja þær baráttu kvenfrelsishreyfingar að verulegu leyti, með 51% gegn 35%. A sama hátt jókst mikið stuðningur kvenna með háskóla- menntun og ungra kvenna við breytingar á stöðu konunnar. Þessi miklu umskipti urðu á að- eins einu ári. Illlllllllll Umsjón: Haukur Helgason Kvenfrelsisbarátta i núverandi mynd sinni er fremur ný af nál- inni. Róttækustu útgáfur kven- frelsishreyfingar, sem samsvara islenzkum „rauðsokkum”, njóta enn ekki beips fylgis meirihluta kvenna. Af hverjum 100 konum segjast 40 ekki styðja þessa flokka, en 39 segjast fylgja þeim, og 21 er óákveð- in. Hins vegar eru svör kvenn- anna túlkuð svo, að þær styðji aðalatriðin i baráttu kvenfrelsis- hreyfingar, og telur skoðana- Nixon kðnnuðurinn Louis Harris, að sá vilji komi fram i afstöðu til einnar spurningar sérstaklega. Kon- urnar voru spurðar, hvort „rétt- mætt væri af konum að vera óánægðar með stöðu sina i banda- risku þjóðfélagi, en þær beiti röngum aðferðum i andmælum sinum.” Við þannig orðaðri spurningu sögðu 51 prósent kvenna „já” og 34 prósent „nei”. Nixon var kosinn á atkvæöum karla. Meirihlutanum finnst enn, að það sé „ókvenlegt” af konum að taka þátt i mótmælaaðgerðum á götum og torgum. Með þvi sé „börnum einnig gefið slæmt for- „dæmi”, segir meirihluti banda- riskra kvenna. Konurnar hafa gerzt róttækari i afstöðu til „stöðu” sinnar i þjóð- félaginu yfirleitt samkvæmt framansögðu. Hins vegar stendur frjálslynd afstaða þeirra til ýmissa einstakra þjóðmála á gömlum merg. 1 seinustu forsetakosningum fékk frambjóðandi demókrata meira fylgi kvenna en repúblik- aninn Nixon. Nixon vann þó á at- kvæðum karlmanna. 46 af hundraði kvenna studdu Hubert Humphrey, en Nixon fékk 43 af hundraði atkvæða kvenn- anna. Af körlum fékk Nixon hins vegar 44%, en Humphrey aðeins 40%. Þótt Edmund Muskie, sem enn þykir liklegastur til að verða frambjóðandi demókrata. sé nokkuð á eftir Nixon samkvæmt seinustu skoðanakönnunum, hafði Muskie meirihlutafylgi kvenna i siðustu könnunum. Harris telur, að konur muni neyta kosningaréttar sins i rikari mæli en siðast, vegna þess að áhugi þeirra hafi aukizt á þvi, að meira kveði að konum i þióðfélaesmál- um. Konur eru meirihluti kjós- enda i Bandarikjunum eins oe viðar, 51% fólks á kjörskrá eru konur. Meiri áhugi kvenna á kjörum fátækra en karla. Vietnammálið ræður miklu um litlar vinsældir Nixons meðal meirihluti kvenna. Þær segjast hins vegar helzt styðja hann i til- raunum til að semja frið við kommúnistarikin. Konur sýna einnig i skoðana- könnunum i Bandarikjunum meiri áhuga en karlar á umbótum á kjörum gamals fólks, svert- ingja og fólks i fátækrahverfum og hinna soltnu i landinu. Flestar konur segjast búast við, að sam- drátturinn i efn(ahagslifi Banda- rikjanna verði ekki úr sögunni við kosningarnar i haust. En kvenfólkið er andvigt akstri skólabarna milli hverfa, sem hefur verið einn þáttur i tilraun- um til að draga úr kynþáttamis- rétti og kynþáttahatri i Banda- rikjunum. 1 þvi kemur fram uggur mæðra um börn sin i fjar- lægum hverfum, þar sem fyrir eru börn af öðru sauðahúsi, og gildir þetta einnig um meirihluta svertingjakvennanna. Frægust „kvenna” er frelsisgyðjan, og hérna hafa kvenfrelsiskonur fest á styttuna borða, þar sem segir „Konur allra ianda, sameinizt”.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.