Vísir - 29.03.1972, Page 20
Já, nýja simanúmeriö okkar er 8-66-11, eins og stúlkan á myndinni
hefur rækilega skráö á sér. Væntum viö þess aö lesendur og augiýs-
endur taki vei eftir þessari mynd og brenni hana i hugskot sér.
(Ljósmynd Ástþór)
MÖRG NÝ NÚMER
í FYRRAMÁLK)
— Vísir fœr 86611
VÍSIR
Miövikudagur 29. marz 1972.
SÍMAKERFI
FÍ SPRAKK
Annir voru þvilikar hjá Flug-
félaginu i gær, að sjaldan mun
annaö eins hafa verið að gera þar.
Hver einasta flugvél félagsins var
i förum. Mest var vitanlega flogiö
til Isafjarðar og Akureyrar, en
jafnframt var i gangi leiguflug til
útlanda, fólk á leiö i páskafri.
,,Þaö var þvilikt álagið á sim-
ann hérna”, sagði Sveinn Sæ-
mundsson, blaðafulltrúi i samtali
viö Visi, „að það sprakk stofn-
öryggi simans hér, og enginn náði
sambandi viö okkur i meira en
klukkutima i gærdag. Fólk varð
aö hendast úr um allan bæ með
skilaboö og annað slikt, og hefur
eflaust margur bölvað okkur há-
stöfum fyrir að svara aldrei i
sima — en kerfið þoldi bara ekki
álagiö”.
Og þaö er áfram mikið aö gera
hjá F.t. Mest er þetta skiðafólk
sem flutning þarf, en einnig
skólafólk á leið heim i páskafri. —
GG
„Hóf þegar
lífgunar-
tilraunir"
— segir sundlauga-
vörðurinn
Þaö er rétt, sem fram kom i
frásögn stúlkunnar i VIsi I gær, aö
ég hélt i fyrstu aö stúlkurnar
væru aöeins aö fiflast, enda var
ekkert aö drengnum aö sjá. Hann
haföi t.d. ekki blánaö. Ærsl i
börnum eru svo algeng, aö ekki
var unnt aö gera sér grein fyrir
þvi aö eitthvaö var aö, fyrr en þau
sögöu aö eitthvaö væri athugun-
arvert viö drenginn. Ég náöi þá
þegar i hann og hóf blástursaö-
geröir og rétt á eftir kom Guö-
mundur Haröarson, kennari
hlaupandi út og aöstoöaöi mig viö
lifgunartilraunirnar.
Þannig komst Erlingur
Jóhannsson, sundlaugavörður að
orði i viðtali viö Visi i morgun
vegna slyssins, sem varð i Vest-
urbæjarsundlauginni J fyrradag.
— Hann sagöi, að slysiö hefði orö-
ið um vaktaskipti og eftirlit með
börnum i iauginni hefði kannski
veriö minna en endranær vegna
þess, að engin börn áttu að vera i
lauginni nema skólabörn i sund-
kennslu. Litli drengurinn hefði á
einhvern óskiljanlegan hátt kom-
izt ofan i laugina framhjá starfs-
fólkinu.
Erlingur sagði, að ástæða þess,
að stúlkunni, sem hljóp inn til aö
tilkynna slysiö, hefði verið ýtt til
hliöar, hefði verið sú, að starfs-
fólkiö þar hefði gert sér grein fyr-
ir þvi að slys haföi orðið.
Drengurinn, sem er átta ára,
liggur enn mjög þungt haldinn á
gjörgæzlúdeild Borgarspitalans.
Hann hefur ekki komizt til með-
vitundar._____ —VJ
Berjast hetjubaráttu
við Bakkus konung
1 18 ár hafa AA-samtökin starfað
á tslandi, — á föstudaginn langa
fyrir 18 árum voru samtökin
stofnuð og á föstudaginn langa i
ár ber afmælið upp á að þessu
sinni. Engar tölur liggja fyrir um
þann mikla fjölda manna og
kvenna, sem leitað hafa bóta á
drykkjuskap sinum eftir leiðum
AA, enda engar félagaskrár'til.
Þar koma menn og fara að vild,
en algjör nafnleynd rikir um alla
þá, sem aðstoðar leita. A af-
mælisdaginn halda AA-samtökin
opinn fund i félagsheimili Lang-
holtssafnaðar og hefst hann kl. 21.
Þar geta þeir sem vilja og hafa
áhuga á, kynnst af eigin raun þvi
sem fram fer á AA-fundunum.
Samtökin haida annars fundi sina
i Tjarnargötu 3C flest kvöld vik-
unnar i hinum ýmsu deildum.
„Þaö eru geysimiklar breyting-
ar sem við verðum að gera núna.
Fjöldinn allur af fólki og fyrir-
tækjum sem fær núna ný sima-
númer”, sagði Bjarni Forberg,
bæjarsimastjóri i samtali við Vlsi
i morgun. „Þeir hafa veriö að
vinna i þessu núna að undan-
förnu, og nýju númerin komast
svo i gagnið i fyrramálið”.
Sagði Bjarni að þessar númera-
skiptingar stöfuðu mest af flutn-
ingum fólks milli hverfa, en einn-
ig viðbótum við simakerfið.
Og nú riður á að menn gleymi
gömlu simaskránni og taki þá
nýju i notkun. Til dæmis mun
mönnum litiö duga að hringja i
gamla númerið okkar hér á Visi.
Við kappkostum nú að gleyma þvi
og munum bara nýja númeriö,
sem er 8-66-11 — GG.
Forníslenzkunóm í 4 ór:
HEFÐI BORGAÐ SIG
AÐ LÆRA KÍNVERSKU
segir Nóbelsskóldið í viðtali viðtalsbók þeirra
Matthíasar Jóhannessen sem kemur út í dag
Það tók Nóbelsskáldiö okkar 4
ár að læra mál Þorgeirs
llávarssonar. „Frómt frá að
segja leiddist ég út f að skrifa
Gerplu á fornmáli móti vilja
minum, „segir Laxness I sam
talsbókinni við Matthias
Jóhannessen, sem kemur úr I
dag.
„Ég hélt það væri auðveldara
en er i raun og veru að skrifa
skáldsögu frá 11. öld”, segir
skáldið i bókinni, sem ber nafnið
Skeggræður gegnum tiðina.
„Hélt meira að segja að það
væri hægt að skrifa söguna á þvi
máli, sem við tölum i dag. En
svo sá ég að það var blátt áfram
hlægilegt að ætla að segja á nú-
timamáli sögu sem gerist á
sögusviði sigildra fornra bók
mennta. Hugsaðu þér, þó ekki
væri nema Þorgeir
Hávarsson segði: „Góðan
daginn, eða komdu sæll og
blessaður! Ég dauðsé auðvitað
eftir þvi að hafa ekki farið að
læra kinversku i staðinn” segir
Laxness um þetta sérstæða nám.
Þaö er Helgafell sem gefur út
viðtalsbókina, en eins og fyrr
var frá greint i frétt i blaöinu er
bókin gefin út i tilefni af 70 ára
afmæli Halldórs Laxness 23.
april n.k. Bókina myndskreytti
Hans Bendix með penna-
teikningum. —- Fjórar aðrar
bækur eiga eftir að koma út á
árinu i tilefni afmælisins,
Norðanstúlkan, leikgerð Atóm-
stöðvarinnar, þá Bjartur i
Sumarhúsum og blómið, leik-
gerðin af Sjálfstæðu fólki, sem
Þjóðleikhúsið frumflytur á af-
mælisdegi höfundarins. Fjórða
bókin er ný útgáfa Laxdælasögu
með nútima stafsetningu
Laxness og 30 nýjum teikn-
ingum eftir listamenn úr hópi
yngstu málara okkar. Lestina
rekur svo ný útgáfa af Kristni*
haldi undir jökli, ensk þyðing
Magnúsar Magnússonar i
Edinborg. Er bókin einkum
hugsuð sem gjafabók handa
enskumælandi fólki. —JBP—
Agreiningur um lenginguna:
KOMMAR MÓTI
FRAMSÓKN MEÐ
FV-MENN
Augljóst er, að tilboð Banda-
rikjastjórnar um að hún kosti
lengingu þverbrautar á
KeflavÍkurflugvelli mun valda
ágreiningi innan stjórnar-
flokkanna. Þjóðviljinn kallar
þetta „ógeöfellt tilboð Banda-
rikjastjórnar” „Það er óneitan-
lega ógeöfelldur keimur af
þessu tilboði Banda-
rikjastjórnar svo ekki sé fastar
að orði kveöið,” segir blaðið i
morgun. —- Afstaða fram-
sóknarmanna mun vera allt
önnur og vitað er að Hannibal
Valdimarsson er meðmæltur,
en hannibalistar eru klofnir I
afstöðu til málsins.
Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra, hafði tilkynnt það fyrr
i vetur, að hafizt yrði handa um
lengingu þverbrautar-
innar i vor án þess að gera
nánar grein fyrir þvi, hvernig
fjár til framkvæmdanna yrði
aflaö. Hann gaf i skyn að
fjársins yrði aflað innanlands og
hafa fjölmiðlanir ekki getaö
KLOFNIR
*
fengið hann til að lýsa yfir
skoðun sinni á tilboði Banda
rikjastjórnar. Hinsvegar
varð ljóst af ummælum
Halldórs E. Sigurðssonar, fjár-
málaráðherra, i sjónvarpinu i
gærkvöldi, að framsóknarmenn
munu samþykkja, að Banda-
rikjastjórn annist lenginguna og
aðrar framkvæmdir fyrir rúml.
500 milljónir króna.
Hannibal Valdimarsson,
samgönguráðherra, hefur lýst
þvi yfir opinberlega, að hann
telji, að Bandarfkjastjórn eigi
að annast þessa lengingu flug-
brautarinnar, en hannibalistar
almennt munu ekki allir vera á
sömu skoðun.
Bandarikjastjórn tilkynnti i
gær, að hún mundi annast
þessar framkvæmdir, ef
islenzka rikisstjórnin sam-
þykkti þær. Rikisstjórnin mun
taka formlega afstööu til
málsins eftir páska. Það var
látið svo heita, að ekki heföi
gefizt timi til að taka afstöðu til
málsins i gær „vegna anna.”
-VJ.
„SKIPTING HAGNAÐ-
AR KEMUR EKKI TIL
ii
GREINA
„Ég get alls ekki fallizt á
tillögur um, að hagnaðinum af
einviginu verði skipti með ein-
hverjum hætti milli keppenda og
sambandanna, sem halda mótið.
Við höfum boöiö keppendum góða
skilmála, ellefu milljónir i verö-
laun, 60% af sjónvarpstekjum og
margs konar fyrirgreiðslu, svo
sem góða vasapeninga og fleira
að
„Þetta er greinilega peninga-
mál fyrir Fischer, og það ereinnig
peningamál fyrir okkur. Mér
finnst að sjálfsögðu fráleitt aö
ætlast til þess aö við tökum
kannski 70% áhættu á tapi en
yrðum að láta keppendur hafa
hagnað, ef hann yröi. En skipting
hagnaöar er lika óraunhæf”
Þyrfti gífurlegt eftirlit
Þannig fórust Guðmundi G.
Þórarinssyni orð i morgun, þegar
blaöið spurði um álit hans á skák-
stöðunni.Guðmundursagöist vilja
minna á þann vanda, sem skípt
ing hagnaðar hefði i för með
sér, til dæmis allt þaö eftirlit, sem
mundi þurfa með útgjöldum sam-
bandanna til hvers konar hluta.
Til dæmis yröi það gifurleg skrif-
finnska og kostnaður, ef kepp-
endur þyrftu að kafa ofan i hvern
kostnaðarlið við keppnina i
Belgrad og Reykjavik. Meðal
annars af þessum sökum væri sú
leið ófær, en þó fyrst og fremst
vegna þess, aö Islendingar teldu
sig hafa boðið góð kjör og mundu
ekki sætta sig við neina
„nauðungarsamninga”, sagði
Guðmundur.
Skáksamband Júgóslaviu fékk i
gær skeyti frá Fischer, þar sem
hann setur fram sams konar
kröfur og gagnvart tslendingum,
sem sé hluta af hagnaði. Skák-
sámband Júgóslaviu hafði áður
lýst yfir samstöðu með tslend-
ingum gagnvart kröfum
Fischers, og þvi fyrirfram hafnað
þessum kröfum hans.
FIDE bíöur enn.
Alþjóðasambandið, FIDE, biður
enn átekta og hafði i morgun ekki
látið frá sér fara neinar sam-
þykktir um kröfur Fischers.
Guðmundur telur, að kröfur
Fischers „ættu ekki að valda
deilum milli skáksambands
tslands og keppenda (Fischers).”
„Samningarnir voru gerðir undir
„Sœtti mig ekki við
nauðungarsamninga".
Viðtal við Guðmund
G. Þórarinsson um
„skókstöðuna"
handarjaðri FIDÉ”, segir
Guðmundur. FIDE veröi þvi að
finna lausn á þvi eða bandariska
skáksambandið. Guðmundur
segir, að vafasamt sé, hversu
mikið eigi að leggja upp úr yfir-
lýsingu Edmondsons um stuðning
við mál Fischers. Edmondson
muni fyrst og fremst vilja, að ein-
vigið verði haldið þvi að það sé
honum hjartansmál, að Ban-
darikjamaður geti náð heims
meistaratigninni.
—HH.
Passía Atla Heimis
aö veröa „tradisjón"
Undanfarin tvö ár hefur Passia
Atla Heimis Sveinssonar verið
flutt um bænadagana af Dóm-
kórnum i Reykjavik, og svo verð-
ur einnig að þessu sinni. Verður
Passian flutt á föstudaginn langa
kl. 5 siðdegis. Guðfræðinemar
munu annast upplesturinn úr
Passiusálmum Hallgrims
Péturssonar, Gústaf Jóhannesson
leikur á orgel og stjórnandi er
Ragnar Björnsson, dómorganisti.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Finnskir sönggestir
um bænadagana
Sextiu manna karlakór verður i
heimsókn um bænadagana,
Brahe Djaknar heitir kórinn, sem
kemur hingað á vegum Norræna
Hússins og Stúdentakórsins i
Reykjavik. Er þetta endurgjald
fyrir heimsókn Stúdentakórsins
til Aabo. Kórinn syngur i Reykja-
vik á laugardag, á Flúðum á
páskakvöld og i Keflavik á annan
i páskum. Kórinn hefur farið
viða, m.a. sungið i Hamborg,
Prag, Leningrad og Paris og hef-
ur hann unnið verðlaun i söng-
keppnum, t.d. i keppni BBC, „Let
people sing”, sem er alþjóðleg
keppni. Stjórnandinn heitir Gott-
frid Grasbeck og verða verk eftir
hann m.a. á hljómleikunum.