Vísir - 10.04.1972, Qupperneq 3
3
ViSIR. Mánudagur 10. apríl 1972.
Norrœna sundkeppnin:
Fjöldi syndir daglega
Norræna sundkcppnin er i full-
um gangi og allir sem vettlingi
geta valdið þeysast i sund-
laugarnar dag eftir dag.
i Sundhöllinni i Reykjavik hafa
hátt á 5. þúsund manns tekið þátt
i keppninni, og á laugardag komu
til dæmis rúmlega 1000 manns til
þess að synda.
Segja þeir þar, að þetta sé
metaðsókn og áhugi fyrir keppn-
inni hafi aldrei verið meiri.
Það virðast einnig allir sund-
laugarstarfsmenn sammála um
alls staðar á landinu.
t sundlaug Vesturbæjar synda
um 80-90% af þeim sem i sund-
laugarnar koma 200 metrana, og
leggja menn mikið á sig til þess
að ná i gullmerkið, en það fá þeir
eftir að þeir hafa synt á hverjum
degi i 50daga. Bronsmerki fá þeir
eftir 1 skipti og silfurmerki eftir
20 skipti.
Úti á landi láta menn ekki sitt
eftir liggja, þvi að i sundhöllinni i
Keflavik var okkur tjáð að erfið-
leikar væru með að koma öllum
þeim að sem vildu. Það hafa 1400
manns tekið 'þátt i keppninni, og
er það meira en nokkru sinni áð-
ur.
Það er sama sagan með Akur-
eyringana, þar er einnig gifurleg
ÞRIÐJUNGUR HULL-
TOGARANA GAMLIR
GUFUKLÁFAR
— og nú hika togaramenn við endurnýjun
Hullmenn þurfa að endurnýja
nærri þriðjung af úthafsveiði-
skipum sinum á allranæstu árum,
segir blaðið Daily Mail, en þeir
hika. Astæðurnar eru útfærsla is-
lenzku landhelginnar og óvissa
um stuðning brezku stjórnarinnar
við endurnýjun.
Með siðustu fjárlögum brezku
stjórnarinnar fengu aðrir einnig
ýmis friðindi, sem útgerðarmenn
i Skotlandi höfðu notið. t staðinn
fengu útgerðarmenn fjárstyrk,
sem þeim þykir ekki nægiieg upp-
bót. Astandið er alvarlegt að sögn
blaðsins, þvi að 32 af tæpum 100
skipum llullmanna eru gufu-
togarar, sem eru að syngja sitt
siðasta. —HH.
aðsókn og
synt.
hafa um 2000 manns
- EA
BJÖRGUNARMENN
LOKS í EINA SÆNG?
F u 1 1 t r ú a r a 1 1 r a
björgunarsamtaka landsins,
sem og fulltrúar þeirra opin-
beru aðila, sem um
björgunarmál fjalla, mættu nú
um siðustu helgi til sins fyrsta
sameiginlega fundar um
björgunarmál. Þ a ð e r
ráðstefna að Ilótel I.oftleiðum
sem I.andssamband hjálpar-
sveita skáta boðaði til I þeim
tilgangi, að ræða skipulag og
stjórnun á björgunarað-
gerðum og samvinnu þeirra
við opinbera aðila, sem um
málin fjalla.
„Svo virðist, sem þær vonir
okkar ætli að rætast, að
ráðstefnan mætti verða til
þess að nánara samátarf
þessara aðila náist. Allir
aðilar mættu til ráðstefnunnar
og umræður urðu mjög
fjörugar og að lokum var ák-
veðið að þessir sömu aðilar
þyrftu að mæta sem fyrst
saman til fundar aftur, og var
mælst til þess, að dómsmála-
ráðuneytið boðaði til næsta
sameiginlega fundar”, sagði
Ólafur Proppe! formaður
Landssambands hjálparsveita
skáta i viðtali við Visi i
morgun. —ÞJM.
Sundkeppnin hól'st 1. april, og hala siðan 1. april synda sam-
22. mai eru fyrstu möguleikarnir vizkusamlega hvern dag, jafnvel'
á að fá gullmerkið. Þeir sem synt lasnir.
Siöe^srcw
Teppin, sem fljúga út
Sjógrasteppi eru gólfteppi sem fléttuð eru úr sérstak-
lega endingargóðum tágum og þvi mjög hentug fyrir þá
staði sem mikið mæðir á, svo sem
Skrifstofur
Fyrirtæki
Verzlanir
Ganga
Tröppur
Hall
Barnaherbergi
Svalir
Eldhús
Sumarbústaði
einnig allsstaðar utandyra, svo eitthvað sé nefnt.
Sjógrasteppin þola vel alla verðráttu og þá sérstaklega
vatn og þau má þrifia jafnt með vatni og ryksugu.
Ásetning er mjög einföld þar sem tiglarnir sem eru 30 X
30 cm má festa eftir eigin geðþótta og engum tilkostnaði.
Fæst aðeins hjá okkur
Skólavörðustig 8 og Laugaveg 11
kjallara (Smiðjustigsmegin)
FERAAINGJ ARGJ AFIR
Fjölbreytt úrval
SPEGLABUÐIN
Laugavegi 15 - Sími 19635
Stjórnunarkeppni
Stjórnunarfélag Islands mun gangast
fyrir stjórnunarkeppni i rafreikni Háskóla
íslands 14. og 15. april n.k.
Þátttakendum er skipt i 3-4 manna hópa
og hver hópur tekur ákvarðanir sem eitt
fyrirtæki um:
o einingarverð vörunnar
o framleiðslumagn
o auglýsinga- og sölukostnað
o rannsóknarkostnað
o stækkun verksmiðju
o úthlutun arðs
Rafreiknirinn skilar siðan ýmsum upplýs-
ingum um stöðu fyrirtækisins i lok hvers
ársfjórðungs og hvers árs.
Þátttaka tilkynnist i sima 82930.
KYNNIST ÞVI HVERNIG NOTA MÁ
RAFREIKNI SEM STJÓRNTÆKI