Vísir - 14.04.1972, Side 5
VÍSIR. Föstudagur 14. apríl 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND
Umsjón:
Haukur Helgason
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
I.itil stúlka stendur eftir i 5
nistum heiniilis sins i Suður-iran S
eftir jarðskjálftana, þar scm öll ■
fjölskyldan fórst nema hún.
■
Júgóslavía:
Rœninginn fékk að flytja
• r
avarp i sionvarp
Félagi í „svörtu húfunum" rœndi flugvél
til að skýra fró högum
mexíkanskra borgara i Bandarikjunum
Mexíkansk-banda rískur
f lugvélarræningi miðaði
byssu á áhöfn Boeing 737
farþegaflugvélar, meðan
hann flutti ræðu i útvarp
og sjónvarp. Ræða hans
fyrir framan sjónvarps-
upptökutækin stóð í 35
minútur, og þar bað ræn-
inginn um réttindi til
handa fólki af mexí-
könsku þjóðerni, sam-
kvæmt fréttaskeyti í
morgun.
Flugvélarræninginn lét lausa
27 farþega og fjögurra manna
áhöfn flugvélarinnar, eftir að
hann ræddi við tvo sjónvarps-
fréttamenn. Hann kvaðst siðan
mundu gefast upp fyrir lög-
reglu.
Áður hafði hann einnig krafizt
þess, að hann fengi tveggja
klukkustunda tima i sjónvarpi
til að segja ævisögu sina.
Ræninginn tók völdin i flug-
vélinni, er hún var á leið frá
Denver til Phoenix. Hann
neyddi llugmanninn til að lenda
i Los Angeles, og var fyrst talið,
að flugvélin færi siðan tií
Mexikó.
Ræninginn, Ricardo Chavez
Ortez, skýrði frá mörgu, sem
fyrir hann hafði borið og mis-
rétti, er hann taldi sig hafa verið
beittan.
Jafnskjótt og flugvélin hafði
lent i Los Angeles, krafðist
hann þess, að þekktur sjón-
varpsfréttamaður frá sjón-
varpsstöð, sem sendir út á
spænsku, fengi að koma um
borð i l'lugvélina með Ijós-
myndara og tæknimenn, svo að
sjónvarpa mætti ræðu hans og
viðtali við hann um kjör ban-
darisks fólks af mexikönskum
ættum.
Ræninginn er talinn vera
félagi i samtökum öfgamanna
„svörtu húfurnar” (black
berets), sem mun vera nokkuð
annars eðlis en „grænu
húfurnar”, sem eru þekktar af
umdeildri kvikmind með þvi
heiti og frá Vietnamstriðinu.
F/ögur
ný bólu
sóttar-
tilfelli
Júgóslavnesk heilbrigðis-
yfirvöld tilkynntu i gær-
kvöldi, að enn hefðu komið
upp fjögur ný tilfelli af
bólusott i Kosovo-héraði.
Alls hafa nú 172 tekiðveik-
ina og 33 týnt lifi að sögn
stjórnarínnar í Belgrad.
Stjórnvöld leggja áherzlu
á, að bólusöttar hafi ekki
orðið vart á þeim svæðum
landsins, sem ferðamenn
ferðist helzt til og sé sjúk
dómurinn takmarkaður við
einangruö svæði í Kosovo.
FÆR PERON
AÐ BJÓÐA
SIG FRAM?
Peron fyrrverandi ein-
valdur i Argentínu krefst
þess að fá borgaraleg
réttindi sín aftur. Hann
nýturenn mikils fylgis með
þjóðinni, og hafa valdhafar
látið í það skína, að hann
kunni að fá að bjóða sig
fram i kosningum, sem
eiga að fara fram i marz
næsta ár. övíst er, að við
það yrði staðið.
I gær benti ekkert til þess, að
Peron mundi verða i framboði i
kosningunum, enda þótt hann
sendi kröfur um endurheimtingu
réttinda frá bústað* sinum i
Madrid, þar sem hann er i útlegð.
Vegna fylgis perónista er þátt-
taka þeirra i kosningunum mikil-
væg fyrir framvindu þeirra og
hún getur ráðið úrslitum um,
hvort þær geti farið friðsamlega
fram ef herforingjar gera alvöru
úr að snúa aftur til lýðræðislegra
stjórnarhátta eftir sjö ára stjórn
hersins.
Fréttamenn telja óliklegt, að
herforingjar leyfi Peron að bjóða
sig fram i forsetakosningum.
Juan Peron var velt úr valdastáli
árið 1955.
Einnig er vafasamt, hvort
Peron getur fengið herforingja-
titil sinn að nýju. Lanusse her-
foringi, núverandi forseti, getur
veitt Peron titilinn og mun hann
þrufa að fá samþykki margra
ráðamanna i hernum til þess.
Margar ákærur voru á hendur
Perons, en þeirri siðustu, um
landráð, var hafnað af
héraðsdómstóli i siðustu viku, og
ætti Peron þvi að fá aftur
kosningarétt og kjörgengi.
Nixon hamlað að reka strfð
án stríðsyfírlýsingar
Öldungadeild Banda-
rikjaþings samþykkti i
gærkvöldi með 58 at-
kvæðum gegn 16 lög,
sem hafa viðtæk áhrif og
takmarka mjög heimild
forseta Bandarikjanna
til að taka þátt i striði án
sérstakrar samþykktar
þingsins.
Meirihlutinn i deildinni hefur
aldrei verið meiri i atkvæða-
greiðslu af sliku tagi.
Tillagan fékk stuðning bæði
repúblikana og demókrata, og
hún bindur töluvert hendur for-
setans að leggja fjármuni og
mannafla i strið eins og Vietnam-
striðið, þar sem engin striðsyfir-
lýsing hefur verið gefin.
Bandariskar sprengjuflugvélar
heldu i morgun enn áfram loftá-
rásum á heri Noröur-Vietnama,
sem sóttu inn i borgina An Loc, en
þar mun þjóðfreslishreyfingin
ætla að stofnsetja höfuðborg fyrir
þá stjórn, sem hún hefur myndaö.
iyiiiilíli
Æ fleiri herskip halda frá Bándarikjunum til Indó-Kina.
Hér er eitt að fara hjá Golden Gatebrúnni.