Vísir - 14.04.1972, Blaðsíða 17
VÍSIR. Föstudagur 14. apríl 1972.
17
D □AG | D KVÖLD | Q DAG | D KVÖLD | Q □AG g
Sjónvarp, kl. 20.30:
VAKA
Þátturinn Vaka, dagskrá um
bókmenntir og listir á liðandi
stund, er eitt efnið á dagskrá
sjónvarpsins i kvöld.
Að þessu sinni sjá um þáttinn
Njörður P. Njarðvik, Björn Th.
Björnsson og Sigurður Sverrir
Pálsson.
Björn tekur til umræðu merki
þjóðhátiðarn., sem opinberuð
verða i dag, sýnir merkin og ræð-
ir við teiknarana Gisla B. Björns-
son og Kjartan Guðmundsson.
Njörður P. Njarðvik kynnir
nýja bók Ólafs Jóhanns Sigurðs-
sonar, sem heitir Hreiðrið, og
Sigurður Sverrir Pálsson kynnir
kvikmyndirnar Mach og frönsku
myndina Slátrarinn.
Mach verðurtekin til sýningar i
Nýja biói á næstunni, og Slátrar-
inn verður sýnd á almennum
sýningum i Háskólabiói. —EA
SJÚNVARP •
Föstudagur 14.apríl.
20.00 h’réttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Vaka Dagskrá um bók-
menntir og iistir á liðandi
stund. Umsjónarmenn Njörður
P. Njarðvik, Vigdis Finnboga-
dóttir, Björn Th. Björnsson,
Sigurður Sverrir Pálsson og
Þorkell Sigurojörnsson.
21.10 Adam Strange: Skýrsla nr.
1021 Draumsýn Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.æ
22.00 Erlend málefni Umsjónar-
maður Jón H. Magnússon.
22.30 Dagskrárlok
IÍTVARP #
FÖSTUDAGUR
14. apríl.
14.15 Létt lög.
15.30 Miðdegistónleikar: Rúss-
nesk tónlist.
16.15 Véðurfregnir. Þáttur um
uppeldismál (endurtekinn)
Tryggvi Þorsteinsson skóla-
stjóri á Akureyri talar um útilif
og skólastarf.
16.30 Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Leyndarmálið í skóginum”
eftir Patriciu St. John.
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöidsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Mál til nieðferðar. Árni
Gunnarsson fréttamaður sér
um þáttinn.
19.55 Kvöldvaka bændavikunnar,
gerð á vegum Búnaðarsam-
bands Austur-Skaftfellinga og
hljóðrituð á Höfn i Hornafirði.
Frásöguþætti flytja Aðalheiður
Geirsdóttir, Halldóra Hjalta-
dóttir, Rafn Eiriksson og Sævar
Kristinn Jónssson. Þorsteinn
Jóhannsson bóndi á Svinafelli
flytur frumort ljóð. Fluttur
kafli úr leikrítinu „Fastur i
istaðinu” eftir Hjalta Jónsson i
Hólum undir stjórn Hreins
Eiriksssonar. Kirkjukór
Bjarnanessóknar og karla-
kvartett syngja, einnig syngja
Ásgeir Gunnarsson og Skafti
Pétursson einsöng og tvisöng.
Umsjón og kynningar hafa Egill
Jónsson ráðunautur og Þor-
steinn Geirsson á Reyðará með
höndum. Lokaorð flytur Ásgeir
Bjarnason alþm., form.
Búnaðarfélags Islands.
21.30 Útvarpssagan: „Hinumegin
við heiminn” eftir Guðmund L.
Friðfinnsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
Endurminningar Bertrands
Russells.
22.35 Kvöldhljómleikar: Frá tón-
leikum Sinfóniuhljómsveitar
islands i Háskólabiói kvöldið
áður.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Dómnefnd þjóðhátiðarnefndar hafðiyfir 200 tiliögur til að fjalla um
Á myndinni eru þeir Indriði G. Þorsteinsson, frkvstj. þjóðhátfðar
nefndar, og Hannes Friðsteinsson, með tillögurnar.
Uin hverja helgi gefur að lita i
öllum dagblöðum, útvarpi og
sjónvarpi, yfirlit yfir dagskrá
næstu viku. Menn annaðhvort
hnussa fyrirlitlega yfir dag-
skránni cða þá kinka kolli
ánægjulega, aldrei er hægt að
gera öllum til hæfis.
En þaö væri nú nokkuð fróðlegt
að vita, á hvað fólk mest hlustar,
en það er nokkuö, sem tekur sinn
tima.
Við brugðum okkur þó niður i
útvarp og hittum þar að máli eina
af starfskonum stofnunarinnar og
báðum hana að renna augum yfir
dagskrána og segja okkur, hvað
hún hygðist hlusta á í útvarpinu
næstu viku.
Starfskona sú heitir Ingibjörg
Árnadóttir og er dyravörður
Rikisútvarpsins. Ingibjörg hefur
starfað við dyravörzluna i næst-
um 29 ár, eða frá þvi i april 1924.
Starfstimi hennar er frá 8.15-5
alla virka daga, en hún hefur við
hlið sér hátalara, þar sem hún
getur hlustað á útvarpið.
Og hún ætlar að hlusta á:
„Morguntónleikana á sunnu-
daginn alveg hiklaust. Ég er
nefnilega gifurlega mikið fyrir
músik, þó ekki þessa nýjustu,
maður er nefnilega að verða svo
gamall! En þessi sigilda, hún er
góð. Erindið um sjó og sjávar-
nytjar ætla ég að hlusta á, þetta
eru góð erindi. Ef við litum svo á
mánudaginn, þá er nú fyrst að
nefna morgunútvarpið, það
hlusta ég alltaf á, það er gott,
mjög gott. Kl. 20.30 er erindi um
starfsemi hjartarannsóknar-
deildar Landspitalans og á eftir
þvi tónlistarhátiðin i Dubrovnik,
ég verð að hlusta á það.
Svo eru nú þessar framhalds-
sögur og siðdegissögur, æ ég hef
ekki nokkra þolinmæði i þess
háttar. En hér sé ég þáttinn
Hljómplötusifnið, hann hlusta ég
alltaf á.
En litum á þriðjudag, jú, þar
gefur fyrst að lita hana Dagrúnu
Kristjánsdóttur. Ég hlusta yfir-
leitt á þættina hennar, og mér lik-
ar mjög vel við hana. Hún er sko
ekkert að klipa neitt af hlutunum,
segir bara það sem henni finnst.
Og ég sé ekkert fleira athyglis-
vert þann daginn, en á miðviku-
dag er þáttur kl. 13.15: Til þess
eru vitin. Ég býst við þvi að
hlusta á hann. Annað er ekki at-
hyglisvert heldur á miðvikudag,
ja, nema þá rauösokkurnar, þær
hef ég alltaf hlustað á, og finnst
mér sumt af þessu, sem þær
segja, ágætt, en svo aftur annað
fyrir neðan allar hellur.
Á sumardaginn fyrsta er fyrst
að nefna morgunútvarpið og svo
samsöng finnska stúdentakórsins
kl. 20.40. Einnig vil ég hlusta á
þáttinn Góð eru grösin kl. 21.25.
Á föstudag er einhver þáttur
um uppeldismál, almáttugur, ég
á ekkert til að ala upp, ekki einu
sinni páfagauk!
A kvöldvökuna ætla ég að
hlusta, og endilega hann Steinþór
Þórðarson, það er gaman að
karlinum, og svo er það Þetta vil
ég heyra.
Á laugardag er þátturinn Við-
sjá, mjög góður þáttur sá, og
einnig „Dagskrárstjóri i eina
klukkustund”. En svo er þarna
þátturinn um áfengismál, æ nei.
Það eru allir hrópandi á peninga,
og allir peningalausir, hvort sem
það eru einstaklingar eða rikis
stjórn. Og þetta er allt sem ég vil
heyra.”
— Hvað finnst þér annars um
dagskrána? —
„Hún er mjög góð og hefur ald-
rei verið betri. Það er reynt að
gera öllum til hæfis. Og það er al-
veg áreiðanlegt að ég tek ekki
sjónvarpið fram yfir útvarið.
—EA
S-
★
s-
X
s-
*
s-
X
s-
♦
s-
*
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
★
s-
*
s-
X
♦
s-
X
s-
X-
s-
X-
s-
X-
s-
X-
s-
X-
s-
X-
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
4-
X
X
X
X
X
s-
f
f-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s-
X
•S-
X
s-
X
s-
X
s-
X
s>
X
s-
X
s-
f4
m
.£»
r 'n
u
jÉ
Spáin gildir fyrir laugardaginn 15. apríl.
Hrúturinn, 21. marz—20. april.Allgóður dagur,
en þó geta lengri ferðalög haft nokkra erfiðleika
i för með sér. Skemmri ferðir geta reynzt mjög
ánægjulegar.
Nautið, 21. april—21. mai. Það verða að öllum
likindum fyrst og fremst þinir nánustu, sem
setja svip sinn á daginn og að öllum likindum á
mjög svo jákvæðan hátt.
Tvíburarnir,22. mai—21. júni. Það bendir allt til
þess að það verði gerðar til þin miklar kröfur á
næstunni, og þú verðir að hafa þig allan við til að
verða við þeim.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Það bendir allt til
þess að þú verðir i athafnaskapi og afkastir
miklu i dag. Eitthvert ferðalag eða mannfagn-
aður virðist á næsta leiti.
Ljónið,24. júli—23. ágúst. Svo getur farið að þig
hendi einhver skyssa vegna annrikis og fljót-
færni, sem getur haft nokkrar afleiðingar og þá
helzt i peningamálum.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Þú kemst varla hjá
þvi öllu lengur að taka afstöðu i viðkvæmu máli,
sem snertir einkum þina nánustu, en sýndu þar
ýtrustu varfærni.
Vogin, 24. sept,—23. okt. Þetta verður sennilega
annrikisdagur, en um leið einkar skemmtilegur.
Stendur það að öllum likindum annaðhvort i
sambandi við ferðalag eða mannfagnað.
Drekinn, 24. okt.—22. nóv. Þú hefur að þvi er
virðistalla ástæðu til að vera ánægður með gang
málanna að undanförnu, en það er eins og þér
finnist nokkuð á skorta.
Bogamaðurinn, 23. nóv.—21. des. Þér tekzt að
koma ár þinni sérlega vel fyrir borð i dag, ef til
vill fyrir góða aðstoð einhverra kunningja þinna.
Notadrjúgur dagur dagur i heild.
Steingeitin, 22. des,—20. jan. Segðu ekki hug
þinn allan i dag og hugsaðu þvi meira og hlýddu
á samtöl og fylgstu með þvi, sem er að gerast i
kring um þig þessa stundina.
Vatnsberinn,21. jan,—19. febr. Þetta getur orðið
mjög skemmtilegur dagur, einkum þegar á
liður. Farðu gætilega ef þú ert á ferðalagi og
reiknaðu með öllu.
Fiskarnir,20. febr,—20. marz. Þetta getur orðið
mjög notadrjúgur dagur og ættirðu að taka hann
snemma. Ferðalög geta reynst einkar ánægju-
leg, bæði lengri og skemmri.
¥
-k
<t
*
-íj
-k
-K
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
v
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
■tr
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
-ít
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥