Vísir - 14.04.1972, Síða 12

Vísir - 14.04.1972, Síða 12
12 VÍSIR. Föstudagur 14. aprll 1972 Umsjón: Þórarinn Jón Magnússon Betlað fyrir eitri! Myndin hér að ofan var tekin á Strikinu fyrir fáum dögum. Góð- hjartaður maður gaukar aurum að hippinu, svo það eigi fyrir ,,gott irii”. Algengt atvik á þessari margfrægu verzlunargötu Kaupmanna- hafnar. Betl getur verið ábatasöm iðja. Og það hafa allir þeir unglingar eða ungmenni, sem dag- lega hengslast um götur Kaupmannahafnar, ein- kum Strikið fræga, gert sér ljóst. Politiken sagði nýlega, að ung- menni, sem iðin eru við betlið, geti auðveldlega haft 12—15 hundruð krónur á dag með þvi að betla. Það þýðir kringum 7000 krónur á viku og þætti vist ekki mjög slorlega borguð vikulaun hér á landi fyrir erfiðisvinnu. 1 Kaupmannahöfn er bannað með lögum að betla, og var hér fyrr á árum oft refsað harðlega fyrir slika iðju. Nú hafa lög reglan og löggjafinn hins vegar slakað ofurlitið á, og löggan lætur sér nægja að aðvara þá, sem hún stendur að betli. Ef lögreglunni ofbýður hins vegar frámferði betlara, er hægt að dæma þá i allt að hálfs árs fangelsi. Lögreglan telur, að daglega séu á milli 30 og 40 ungmenni að betla á Strikinu i Kaupmannahöfn, fólk, sem lögreglan getur haft auga með. Hins vegar er og vist, að margfalt fleira fólk hefur gert betlið að aðalatvinnu sinni, en heldur sig á minna áberandi göt- um, og kannski fáfarnari. Langmest karlmenn. Ungmennin, sem betla, eru langmest karlmenn, þar sem stúlkurnar hafa yfirleitt önnur og arðbærari ráð til að verða sér úti um peninga. Peninga til hvers? Jú, vitanlega eiturlyfja. Og eitur- verzlunin er blómleg kringum Strikið. Ef menn geta skrapað saman nokkur hundruð danskar krónur á viku, þá þýðir það helgi i sælu og draumi, þar til vonzka hversdagsins hefst aftur á mánu- degi með betlinu á Strikinu. Simagabb? Þegar ljósmynd af föngulegri stúlku með tælandi augnaráð birtist i vestur-þýzku blaði með orðunum: ,,Nafn mitt er Bree — hringdu i mig i sima 231428”, hringdu meira en 3000 karlmenn samdægurs. Vissulega var þeim svarað disætri röddu, en svarið, sem þeir fengu, var ekki beinlinis það sem þeir höfðu vænzt. Simsvari fór þess á leit við þá, að þeir færu i bió og sæju amerisku kvikmyndina „Klute” sem færði JaneFonda Óskarsverðlaunin, en i myndinni leikur Fonda sima- vændisstúlkuna Bree Daniels. Það voru kvikmyndaframleið- endurnir sjálfir, sem stóðu að þessu — ja, hvað eigum við að segja....? — simaati. En það er ekki vitað, hversu margir af körl- unum 3000 sáu svo myndina eftir allt saman. FIMM MEÐ OSKARINN Það þarf ekki að hafa mörg orð um afhendingu óskarsverðlaunanna, sem fram fór I I.os Angclcs sl. mánudagskvöld, svo mörg orð hafa nú þegar verið höfð um þá miklu athöfn. Hér eru hins vegar fyrstu ljós- myndirnar frá vcrðlaunaafhendingunni. Hér að ofan gefur að lita Charlie Chaplin mcð óskarinn, sem honum var veittur fyrir mikilsvert framlag til kvikmyndalistarinnar. toskarinn hans er auðvitað sá minni). A myndinni hér fyrir neðan sjáum við svo hina óskarsverð- launahafana, þau Janc Fonda og Gcne Hackman (annar frá vinstri), sem hlutu verðlaunin fyrir beztan kvikmyndaleik, og svo þá Philip D’Antoi (frantleiðanda) og William Frekin (leikstjóra), sem báðir hlutu verðlaunin fyrir gerð myndarinnar „The French Connection”. „Þökk fyrir lífið" - orti hún - og dó Tami Hogan, 9ára, frá Sacramento f Kaliforniu, vissi fullvel, að dauðinn væri' á næsta leiti. Foreldrar hennar, sem misstu hana sl. föstudag, höfðu ekki hugmynd um, að Tami litlu væri það ljóst, að krabbamein væri að draga hana til dauða. Þegar telpan var látin, fundu foreldrarnir á meðal skólabóka hennar ljóð undir nafninu „Þökk fyrir lífið”. „Þökk sé þér guð, fyrir að þú hefur lofað mér að lifa þennan dag. Ég nýt þess að hjálpa allt hvað ég get. Þökk fyrir fjölskyldu mina, við erum hamingjusöm og skemmtum okkur ætið ánægð saman. Og þökk fyrir sól- skinsveðrið, sólskinsdaga er dásam| Iegt að lifa.” Tami hafði alltaf sýnt foreldrum sin- um skólaverkefni sin, en ljóð þetta hafði hún aldrei sýnt þeim.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.