Vísir - 15.05.1972, Síða 21
Vísir — Mánudagur 15. mai 1972
21
n □AG | D KVÖLD Q □AG | D KVÖLD | n □AG |
Sjónvarp kl. 21.25:
Endre Granot
Nýlega dvaldist hérlendis
ungverskur fiðlusnillingur, Endre
Granat og lék i nokkur skipti sem
einleikari með Sinfóniuhljóm-
sveitinni. Granat þessi, sem er
undrabarn að upplagi, fæddist i
Ungverjalandi i byrjun siðari
heimsstyrjaldarinnar. Við upp-
reisnina þar i landi 1956 flúði hann
til Þýzkalands og gerðist konsert-
meistari við Hamborgarsinfóniu-
hljómsveitina, þá aðeins 17 ára að
aldri. Þaðan fór hann siðan til
Sviþjóðar og varð konsertmeist-
ari i Sinfóniuhljómsveit Gauta-
borgar, en fluttist að þvi búnu ár-
ið 1965 til USA, tók upp banda-
riskan rikisborgararétt og er nú
um þessar mundir aðstoðar-
hljómsveitarstjóri við Sinfóniu-
hljómsveit Clevelandborgar.
Granat hefur m.a. numið fiðlu-
leik hjá Jasha Heifets, fiðlusnill-
ingnum heimsfræga. Af þessu
sést, að hér strýkur enginn
meðalmaður fiðluboganum um
strengina. Hljóðfærið hans i sjón-
varpinu i kvöld er itölsk fiðla af
gerðinni Montagnana frá árinu.
1721, hin mesta dvergasmiði að
sögn Árna Kristjánssonar pianó-
leikara. Endre Granat mun leika
i sjónvarpssal verk eftir Johann
Sebastian Bach og Eugene
Ysaye.
Sjónvarp kl. 21.00 í kvöld:
Það fer eftir veðri
Þessi mynd sem sjónvarpið sýnir
i kvöld er frá Sameinuðu þjóðun-
um og fjallar um eitt og annað
varðandi veðrið. Páll Bergþórs-
son veðurfræðingur fræddi okkur
nánar um dagskrárlið þennan, en
Páll er þýðandi og þulur myndar-
innar. ,,Ég hef skeytt þarna inn i
myndina smákennslustund um
loftstrauma á jörðinni, lægðir og
hæðir, og staðfært við okkar að-
stæður. Að öðru leyti leitast
myndin við að skýra hinar ýmsu
orsakir á veðurfari og loftslagi,
auk þess sem bryddað er á þvi að
taka upp nána alþjóðlega sam-
vinnu meðal veðurfræðinga hvar-
vetna i heiminum. Þá væri t.d.
hægt að gera spár sem spönn
uðu yfir stærra svið og jafnvel
fyrir lengri tima i senn, eins og
viku fram i timann eða svo”,
sagði Páll að lokum.
FYRIR ALLA ER
KRISTALL
VORUM AÐ TAKA UPP
SÉRSTAKLEGA
FALLEGA SENDINGU, VERÐIÐ ER
EINSTAKLEGA GOTT.
LÍTIÐ INN OG SKOÐIÐ
é, TÉKK - KRISTALL
Skólavörðustig 16 simi 13111
Styrkur til sérþjálfunar
í Bretlandi
Brezka sendiróðiö i Reykjavík hefur tjáð islenzkum
stjórnvöidum, að samtök brezkra iðnrekenda, Confedera-
tion of British Industry, ntuni gefa islenzkum verkfræð-
ingi eða tæknifræðingi kost á styrk tii sérnáms og þjálfun-
ar á vegum iðnfyrirtækja i Bretlandi. Umsækjendur skulu
liafa lokið fullnaðarprófi i verkfræði eða tæknifræði og
hafa næga kunnáttu i enskri tungu. Þeir skulu að jafnaði
ekki vera eldri en 35 ára. Um er að ræða tvenns konar
styrki: Annars vegar fyrir menn, er nýlega hafa lokið
prófi og hafa hug á að afla sér hagnýtar starfsreynslu. Eru
þeir styrkir veittir til 1 1/2 - 2 ára og nema 936 sterlings-
pundum á ári, auk þess sem að öðru jöfnu er greiddur
ferðakostnaður til og frá Bretlandi. Hins vegar eru styrkir
ætlaðir mönnum, sem hafa ekki niinna en 5 ára starfs-
reynslu að loknu prófi og hafa hug á að afla sér þjálfunar á
sérgreindu tæknisviði. Þeir styrkir eru veittir til 4 - 12
mánaða og nema 1140 sterlingspundum á ári, en ferða-
kostnaður er ekki greiddur.
Umsóknir á tilskildum eyðublöðum skulu hafa borizt
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir
15. júni n.k. Umsóknareyöublöð, ásamt nánari uppiýsing-
um um styrkinn, fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
9. mai 1972.
ÚTVARP •
MANUDAGUR 15. maí
14.30 Siðdegissagan: „Úttckt á
milljón" eftir P.G. Wodehouse
Einar Thoroddsen les (5).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 Miðdegistónleikar:
Hljóritanir frá norrænum út-
varpsstöðvum
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 Saga frá Afriku: „Njagwe”
eftir Karen Herold Olsen Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir leik-
kona les (3).
18.00 Fréttir á ensku
18.10 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Ilaglegt málSverrir Tómas-
son cand. mag. flytur þáttinn.
19.35 Um daginn og veginn
Halldór S. Magnússon við-
skiptafræðingur talar.
20.00 Útvarp frá Alþingi: Al-
inennar stjórninálaumræður:
eldhúsdagsumræður — siðara
kvöld. Hver þingflokkur hefur
45 minútna ræðutima, sem
skiptist i þrjár umferðir, 20,15
og 10 min. Röð flokkanna:
Framsóknarflokkur, Samtök
frjálslyndra og vinstri manna,
Sjálfstæðisflokkur, Alþýðu-
flokkur, Alþýðubandalag.
Fréttir og veðurfregnir. Dag-
skrárlok nálægt miðnætti.
SJÓNVARP •
MANUDAGUR 15. mai
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Misskilningur. Sænskt sjón-
varpsleikrit eftir Arne Lund-
gren. Leikstjóri Per Arne
Ehlin. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson. Leikritið gerist i sum-
arhúsi og umhverfi þess, þar
sem f jölskylda hefursetztað um
stundar sakir, og lýsir sam-
skiptum og árekstrum foreldr-
anna og stálpaðra barna þeirra.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
21.00 Það fer cftir veðri. Mynd
frá Sameinuðu þjóðunum um
athuganir á veðurfari og lofts-
lagi, veðurspár samvinnu veð
urfræðinga viða um og margt
fleira. Þýðandi og þulur Páll
Bergþórsson.
21.25 Endre Granat Ungverski
fiðluleikarinn Endre Granat
leikur i sjónvarpssal verk eftir
Johann Sebastian Bach og
Eugene Ysaye.
21.45 Úr sögu siðmenningar
Brezkur fræðslumyndaflokkur.
6. þáttur. Skoöanamiðiun og
mótmæli. Þýðandi Jón O. Ed-
wald. I þessum þætti greinir
meðal annars frá frumþróun
prentlistar og andðfi gegn ofur-
valdi kaþólsku kirkjunnar.
22.35 Dagskrárlok.
r*
m
w
Ni
•h
ít
-s
-ft
-h
-h
■h
-h
-h
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-ít
■tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
•tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
■tt
-tt
-tt
•tt
-tt
■tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-t:
■tt
-tt
-tt
-ít
-tt
tt
-tt
-tt
-tí
-tt
' -tt
-tt
-tt
*tt
■tx
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-ít
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-ít
-tt
-tt
-tt
-tt
-tt
-ít
-tt
-tt
-tt
-»
*tt
-tt
-tt
-tt
•ti
*yí
-Þ
■Þ
#
&
•ÍX
••Þ
vX
•JL
U
Spáin gildir fyrir þriöjudaginn 16. mai.
Hrúturinn, 21. marz—20 april. Heldur aðgeröar-
litill dagur. Flest mun ganga sæmilega en
heldur hægt, og ekki er vert að fitja upp á nein-
um nýjum framkvæmdum að ráði.
Nautiö,21. april—21.mai. Einhver seinagangur
liklegur að minnsta kosti fyrri hluta dagsins.
Einhver vandamál i sambandi við peninga geta
krafizt bráðrar úrlausnar.
Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Það litur út fyrir
að dagurinn verði affarasæll, en ekkert sérlega
merkilegt gerist að kalla, aö minnsta kosti ekki
á yfirborðinu.
Krabbinn, 22. júni—23. júli. Farðu gætilega i
orði, einkum við þina nánustu, og ef til einhvers
misskilnings kemur, ættirðu aö leiðrétta hann
strax og rækilega.
Ljóniö,24. júli—23. ágúst. Það litur út fyrir að þú
getir náð góðum samningum i dag, og að mörgu
leyti verður dagurinn þér góður, þó svo aö ekki
verði neinn asi á hlutunum.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Farðu gætilega i
dag, og taktu helzt ekki neinar mikilvægar
ákvarðanir i þvi sambandi, ef þú kemst með
góðu móti hjá þvi.
Vogin,24. sept.—23. okt. Mjög sæmilegur dagur
til margra hluta, en ekki samt vel til þess fallinn
að litja upp á neinu nýju, eða taka mikilvægar
ákvarðanir yfirleitt.
Drekinn, 24. okt.—22. nóv. Það litur út fyrir að
undirbúningur að einhverju ferðalagi, þinu eða
einhvers nákomins, krefjist mikils hluta af þeim
tima, sem þú hefur ráð á.
Bogmaðurinn, 23. nóv.— 21. des. Heldur þung-
lamalegur dagur, að minnsta kosti fram eftir, en
allt bendir samt til að flestu miði nokkuð i rétta
átt ef þú beitir lagi og þolinmæöi.
Steingeitin, 22. des.—20. jan. Sómasamlegur
dagur, en margt sem krefst þó talsverðrar ihug-
unar. Ekki óliklegt að gamall kunningi birtist
óvænt á sjónarsviðinu.
Vatnsberinn,21. jan.—19. febr. Farðu þér rólega
i dag, enda veröur allt heldur rólegt i kring um
þig, aö þvi er virðist. Fremur notadrjúgur
dagur, litið á heildina.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Heldur þung-
lamalegur dagur, en ef þú héfur taumhald á
óþolinmæði þinni, ætti samt allt að mjakast
nokkuð áfram i þá átt, sem þú kýst.
Frá vöggu til grafar
Fallegar skreytingar
Blómvendir i rniklu
úrvali.
Daglega ný blóm
Mikið úrval af
nýjum vörum. —
Giórið svo vel að lita
inn.
Sendum um allan bæ
GLÆSIBÆ, simi
23523.