Vísir - 16.05.1972, Side 7

Vísir - 16.05.1972, Side 7
VÍSIR. Þriðjudagur. 16. mai. 1972 7 cTVIenningarmál Ekki hlessa ó tíðinni fyrir leikstjórann, Mariu Kristjánsdóttur enda veigamesta verkefni hennar til þessa að ég hygg. gætt að væma ekki kúnstner Hansen né gera hann úr hófi spekingslegan, furðu snaggara- legan karl i meðförum Júliusar Oddssonar. Leikfélag Akureyrar: STROMPLEIKURINN eftir Halldór Laxness Leikmynd og búningar: Iván Török Tónlist: Erlingur Ingvarsson Hörður Askelsson og Guðmundur Bárðarson Leikstjóri: Marla Kristjánsdóttir. Að tíu árum liðnum leggur maöur leið sina til Akureyrar til að rifja upp Strompleikinn að nýju. Og hvað hefst nú upp úr þvi? Það hefst upp úr því að sjá loks reynda nýja aðferð að leikritum Halldórs Laxness — aðferð sem er í sjá Ifri sér líkleg að leiða til lifvænna sýninga. Og jafnframt er að henni blessuð tilbreytni eftir allan undanfarinn afmælis-hátiðleik. Fyrirfram væri þaö ætlandi að sami háttur hentaði leik ritúm Halldórs Laxness og i seinni tið hefur gefizt vel við leik- gerðir eftir skáldsögum hans: að leggja allt kapp á raunsæislegan efniskjarna málfars og mannlýsinga, leitast við að gæða leikina efnisfestu og innra sam- hengi alþýðlegs raunsæis i þeirra stilfærðu, öfgafengnu sniðum Það leikrit Halldórs sem langbezt hefur lánazt á sviðinu til þessa, Dúfnaveizlan, naut einmitt þvilikra mannlýsinga i sjónar- miðju leiksins, hlutverkum pressarah jónanna. Þvi miður man ég ekki sýningu Þjóðleikhússins á Strompleiknum fyrir tiu árum nógu vel til að gera grein fyrir henni i einstökum atriðum. En hræddur er ég um að þessi háttur leiks hafi ekki lánazt þá fremur en á Prjónastofunni Sólinni siðar meir. Og margur maðurinn mun hafa snúið heim af sýningunni aldeildis hlessa á tiðinni: þá upphófst sá siður, sem siðan hefur loðað við, að geta tákngátur i leikritum Halldórs Laxness, sjálfum honum til hins mesta ama. „Það er ekki ætlazt til að maður komi i leikhúsið með logaritmatöflur upp á vasann til að fá botn i það sem gerist á sviöinu,” sagði hann siðast i Skeggræðum þeirra Matthiasar Johannessens i vor. Blöff eða ekta? Maria Kristjánsdóttir leikstjóri velur allt áðra aðferð aðStromp- leiknum á Akureyri, aðferð sem einmitt kemur mætavel heim við þá áherzlu sem Halldór kveðst leggja á „sjálfan sjónleikinn” i leikverkum sinum. Nú er engum blöðum um það að fletta að i Strompleiknum er æðimiklum raunsæisleifum fyrir að fara i einstökum mann- lýsingum leiksins, og þar eru gleggst tengsl . i hinum seinni leikritum Halldórs við þjóð- félagslegt efni og ádeilu Silfur- túnglsins og þar á undan Atómstöðvarinnar. „Þó heimur- inn sé blöff þá eru kjaftshöggin ekta,” segir i Strompleiknum. Gallínn á þessu máli er sá að ekki getur heitið aö neinum sé ærlegt kjaftshögg greitt i leiknum, svo einfaldað og stilfært sem samtíðarefnið er þar orðið, en áhorfandinn fær hins vegar ekki varizt sterkum grun um að anda- spekin i leiknum, zen-ex-machina i leikslokin, sé — bara blöff. Um þessi efni er ekki mikið skeytt i meðförum Leikfélags Akureyrar, og svo mikið er vist að ekki þarf á neinum lógaritma- reikningi að halda til að ráða i merkingu leiksins. Hún er einvörðungu fólgin i þeirri skemmtun, hugljómun sem af leiknum stafar jafnharðan sem hann ber fyrir á fjölunum, stilfærður allt að hreinum og beinum farsa i likingu við farsa- leiki Dario Fo. Þessi stilstefna mótar allan ytri umbúnað leiksins, gervi og förðun leikenda, hina einföldu leikmynd Iváns Török, og minnsta kosti sum hlut- verkin alfarið, svo sem eins og innflytjandann og útflytjandann. Með þessum hætti fæst lika heil Jóhann ögmundsson sem saungprófessorinn og Guölaug Hermanns- dóttir I hlutverki Ljónu I pakkhúsinu hjá Fiskhausi og Kó. ^ brú i þá félaga sem torvelt kynni að reynast með öðrum hætti. Hitt má vera að önnur tiltæki leik- stjórans þyki i hótfyndnara lagi, t.a.m. aðláta þrjú „sjógörl” leika eina og sömu Ólu vinnukonu, þótt ekki verði heldur séð aö það spilli neinu. En það er vitaskuld mest álitaefni hvort þeim Ólfers- Fólkið og farsinn A Akureyri virðist vera lokið, a.m.k. I.bili, þeirri tilraun sem gerð var undanfarin tvö ár með vísi að fastráðnum leikhóp, leik- húsrekstur sem a.m.k. sé stefnt i atvinnu-snið. Verkefni félagsins i vetur eru lika færri og léttvægari en undanfarin ár. Hitt er visast aö En helzta álitaefni er sem fyrr segir hvað varð úr ólfers- mæðgum, Lamba i þungamiðju leiksins. Væri e.t.v. vert að gangá enn lengra i stilfærslu en hér var gert, t.a.m. siðastnefnda hlut- verksins? Þráinn Karlsson lýsti, eins og textinn mælir fyrir um, ungum vasklegum manni, og.kom að sönnu vel fyrir i hlutverkinu. Hópatriði úr þriðja þætti Strompleiksins hjá Leikfélagi Akureyrar. (Ljósmyndir Páll A. Pálsson) mæðgum, Lamba, kúnstner Hansen verði gerð réttmæt skil með þessum hætti og umræðu leiksins um þaö sem ekta sé og hvað blöff. Og satt að segja verður ekkert séð þvi til fyrirstöðu. Það varðar mestu um sýningu Leikfélags Akureyrar að furðu gaman var að horfa á hana, hún er föst i sniðum mótuð einfaldleik og kátínu, sýnilega unnin með smekkvisi og fyrirhyggju. Ekkert virðist þvi til fyrirstöðu að með leiknari,mikilhæfari áhöfn en hér var til að dreifa mætti gera enn meira úr leiknum eftir sama hætti og hafður var á þessari sýningu. Og maður hlýtur að spyrja hvort efnismeira og fjöl- skrúöugra leikverk eins og Prjónastofan Sólin gæti ekki einnig notið góðs af viðlika aðferð að efninu. Þannig séð er Strompleikurinn á Akureyri ótviræður og umtalsverður sigur áhugahópur félagsins njóti góðs af starfi undanfarinna ára, einkum skipaður ungu fólki i þessari sýningu. Og farsasnið leiksins virtust henta leikhópnum vel: Aðalsteini Bergdal, Gesti Ólafur Jónsson skrifar um leiklist: Einari Jónassyni, Sögu Jóns dóttur i hlutverkum út- og inn- flytjanda og útflytjandafrúar, söngprófessor Jóhanns Ógmundssonar kom sömuleiðis réttskapaður fyrir sjónir, og söngprófessorsynjan, Sigurveig Jónsdóttir, var aldeilis útmetin skopgerving. Þess var vandlega Og þær Guölaug Hermannsdóttir, Kristjana Jónsdóttir drógu upp alveg skýrar útlinur þeirra mæðgna — þótt reyndari leikkona en Guðlaug mundi án efa megna að fylgja hlutverki Ljónu, veiga- mestu i leiknum, fram til meiri hlitar. En heildarsvipur og stefna sýningarinnar, hin lifvænlegu vinnubrögð leikhópsins varða satt að segja meiru en meðferð einstakra hlutverka i þetta sinn. Skrýtið á Akureyri En skrýtnir eru Akureyringar. A frumsýningu á laugardags- kvöld var leikþús þeirra ekki nema hálfsetið. Og það hef ég fyrir satt að þá hafi enginn einasti miði enn verið seldur á aðra sýningu leiksins, kvöldiö eftir. Undirtektir þeirra sem komu voru að sönnu góöar. En við slikar aðstæður hlýtur að vera örðugt að koma á fót leikhús- rekstri til frambúðar. Anægjan endist aHa leið ef forsjá er með í ferðum í langferðina bjóðum við m. a. eftirtalinn búnað í flestar tegundir bifreiða: Platínur, kveikjuhamar, kveikjulok, Champion kerti, háspennukefli og þéML OMmjm loku, viftureim, pakkdóair, pakkningar og pakkningalim, vatnsdælu, vatnskassaþétti og vatnskassahreinsivökva, hemla- vökva, benzindælu, fjaðrablöð, lím, bætur, loftdælu og lyftu, Trico þurrkublöð, startkapla, þurrkvökva fyrir rafkerfið, ryð- olíu, einangrunarbönd, hemlavökva, verkfærasett, 5 litra benzínbrúsa, þvottakúst og farangursgnHdur. Allt á sama Stað Laugaue9TtB-S*i2SNB EGILL VILHJALMSSWHR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.