Vísir - 16.05.1972, Page 16
vísm
Þriðjudagur. 16. mal. 1972
Skin og skúrir
þesso dagana
Skin og skúrir. Þannig ætlar
veðrið hér i höfuðborginni liklega
að verða i dag. Eflaust sætta
flestir sig við það, þar sem i dag
er virkur dagur og allir viö vinnu.
Á Veðurstofunni búast þeir viö
mjög svipuöu veöri eins og verið
hefur i morgun. Suðvestan eða
sunnan átt og heldur svalt skúra-
loft. En sólskiniö hefur þó ekki al-
veg sagt skilið við okkur aö sinni,
það mun glitta f sólina öðru hvoru
á milli skýjaþykknanna.
Það má einnig geta þess, rétt til
þess að gera höfuöborgarbúa dá-
Htiö græna. A norðan- og austan-
verðu landinu veröur sennilega 8
stiga hiti, gott veður, bjart og
hlýtt. Þeir hafa veriö heppnari á
þeim hluta landsins að undan-
förnu, en þaö er vonandi aö viö
getum bliökað veöurguöina á ein-
livern hátt.
—EA
Jeppinn valt
með kornbarn
innanborðs
— en allir sluppu
ómeiddir
Jeppabifreið með manni og
konu og kornabarni innanborðs
valt á hiiðina á Nýbýlaveginum I
Kópavogi I gærdag. ökumaðurinn
hafði ekið of tæpt eftir vegar-
kantinuin og missti jeppann út af
og á hliöina.
Sem betur fer ók maöurinn ekki
hratt, og sluppu þau öll þrjú
ómcidd, og bíliinn óskemmdur.
Var honum ekið af staðnum,
strax og búið var að koma honum
aftur á réttan kjöl. — GP.
Bygging
skóla á
TRÖLLAFOSS
BRENNIVÍNSINS
VIÐ DREKKUM
MEIRA OG MEIRA
íslendingar viröast
sannarlega ekki slá slöku
viö áfengisneyzluna/ þrátt
fyrir miklar hækkanir á
veröi brennivins.
Fyrstu fjóra mánuði 1971
keyptum við af ATVR áfengi
fyrir 306,6 milljónir
króna. Fyrstu fjóra mánuði
þessa árs keyptum við áfengi
fyrir 404 milljónir. Við bættum
98,4 milljónum i kassa ATVR i
ár — og ef við tökum verð-
hækkanirnar með i reikninginn,
sem nú nema samtals um 32
prósentum og komu til haustið
1971 og i marz 1972, þá virðist
magnaukning áfengisneyzl-
unnar vera um 8 prósent.
011 þessi 32% háa verðhækkun
var ekki komin til fyrir allt
þetta fyrsta fjögurra mánaða
timabil. Meðaltalshækkun fyrir
mánuðina fjóra er kringum 24%
— og mismunurinn, um 8%, er
magnaukning.
Hvort menn almennt auka
áfengisneyzlu þegar guðaveigar
hækka, er ekki gott að segja og
kemur þarna sitthvað til, t.d.
fólksfjölgun, og svo er drykkju-
skapur kannski meiri fyrstu
mánuði ársins en seinni hlut-
ann, og óvarlegt að reikna meö
einhliða aukningu áfengisneyzl-
unnar — þótt óneitanlega freist-
ist maður til að halda, að menn
séu i góðum efnum að drekka
svo mikið.
ATVR gaf Visi upp fjárupp-
hæðirnar sem keypt var fyrir
frá 1. jan til 30. april árin 1971 og
1972, og virðist greinilegt af
þeim, að markmið rikisstjórn-
arinnar, þ.e. ,,að draga Ur
áfengisneyzlu”, eins og það var
orðað þegar brennivinið var
hækkað, hefur illu heilli mis-
tekizt hrapallega, en rikis-
kassanum liður vitanlega ögn
skár. -GG
PRINSESSAN
FRÁ KRÍT
Hér á landi er nú staddur leik-
flokkur frá sænska rikisleikhús-
inu, Friteatern, sá fyrsti I nær
aldarfjórðung.
Leikflokkurinn mun sýna hér I
Norræna húsinu verkið Goðsagan
um Minotauros, en Leikfélag
Reykjavikur hefur fengiö styrk
frá Norræna menningarsjóönum
til þess að bjóða leikflokknum
hingað til lands.
Höfundair verksins: Goðsagan
um Minotauros, eru þær systur
Frances og Martha Vestin, en hún
er jafnframt leikstjóri. Þær eru
sænskar og hafa vakið mikla at-
hygli i heimalandi sinu, Frances
fyrir bækur sinar, og Martha fyr-
ir leikstjórn, en hún hefur unnið
sem leikstjóri siðan hUn var 19
ára gömul.
A meðal þeirra leikrita, sem
hUn hefur stjórnað, eru Rómeó og
JUlia, Horfðu reiður um öxl og
Sem yður þóknast.
Goösagan er þriðja verkefni
þeirra systra, sem þær vinna
saman að, en það er sett upp á
hringsviði i Norræna hUsinu og er
eitt af þeim verkum sem hægt er
að feröast með um alla heima og
geima.
Goðsagan fjallar um ófreskj-
una Minotauros, hetjuna Þeseif
og Ariödnu fögru. Goðsaga þessi
er alþekkt og i hópi kunnustu goð-
sagna, sem varðveitzt hafa.
Minotauros er hinn mesti óvættur
og verður helzt haldið i skefjum
með mannáti, en sagt var að
Pasefaes drottning hefði getið
hann við nauti.
Sýningar á Goðsögunni verða I
Norræna hUsinu dagana 15. 16. 18.
19. og 20. kl. 8.30.
— EA
nýs tónlistar
nœsta óri
Hér er Ariaðna, prinsessa frá Krit, að visa Þeseifi til vegar i
völundarhúsinu. Það er Barbro Enberg, sem fer með hlutverk
prinsessunnar.
Tcikningar að nýju Tónlistar-
skólahúsi, scm risa skal i Sigtúni,
eru nú á lokastigi. Vart verður þó
hafizt handa við byggingarfram-
kvæmdir á þessu ári, en mjög
sennilega snemma á þvi næsta.
Það er Gestur Olafsson, arki-
tekt, sem unnið hefur að teikn-
Nýtt frímerki vegna afmœlis
sveitarstjórnarlaga
Eftir tæpan mánuð, þ.e. 14. jUni,
sendir póststjórnin á markaðinn
nvtt 16 krónu frimerki, vegna af-
mælis tilskipunar um sveitastjórn
á tslandi.
Gisli B. Björnsson,
Auglýsingastofan h.f. hannaði
merkið, sem er marglitt, og sést
það á myndinni, sem hér fylgir.
TIISKIPUN UM SVEITASTJÚRN A ÍSIANDI
ingu hússins, en hann hefur jafn-
framt unnið nokkrar tillöguteikn-
ingar að tónlistarsölum, ýmissa
stærða, i beinu framhaldi við
skólabygginguna. Jafnframt
gerir hann ráð fyrir biósal I
hUsinu og einskonar myndlistar-
sal, sem innrétta mætti i anddyr-
inu.
Að þvi er Visir aflaði sér upp-
lýsinga um i morgun, verður þó
aðeins tekið til við skólabygging-
una sjálfa i fyrsta áfanga og óráð-
ið hvað siðan verður hafizt handa
við.
Tónlistarskóli Reykjavikur er
sem stendur til hUsa i Skipholti 33
(næstu hæð fyrir ofan Tónabió),
en þar er orðið allþröngt um tón-
listarkennsluna og nýtt kennslu-
hUsnæði brýn nauðsyn. -ÞJM
GEYMDI HASS-
BIRGÐIR UM
ALLA BORGINA
Milljón króna fíkniefnadreifing
— Þrennt í gœzluvarðhald
Þrjár manneskjur, tveir menn úrskurðuð I gæzluvarðhald,
og ein stúlka, hafa veriö meðan rannsóknin yfir hass-
________________________ salanum stendur yfir.
„FER BEINT Á GÖTUNA"
Komiö er i ljós, að hér er um að
ræöa umfangsmikið fiknilyfja-
smygl og dreifingu og hefur
lögreglan komið höndum yfir nær
3 kg af hassi og milli 50 og 100
LSD-töflur.
— segir húsnœðislaus heimilisfaðir, sem verður að víkja fyrir borginni
„í sjö mánuði hef ég
leitaö ibúöar án árangurs
og á nú fyrir höndum aö
veröa borinn út á hlað
með konuna og barnið,"
sagði ungur iönverka-
maður, Sveinn Magnús-
son — einn af mörgum,
sem stríöir i húsnæðis-
vandræðum.
„Eigandi hUssins hafði selt
Reykjavikurborg hUsið og átti
að vera bUinn að rýma það fyrir
14. mai, og nU knýja borgaryfir-
völd á. Þau neita að greiða
kaupverðið, nema ég verði lát-
inn rýma hUsið, og maður hefur
ekkert að fara nema beint á göt-
una.” sagðiSveinn, sem kom að
máli við okkur i von um., að við
vissum um ibUðir á lausu eða
þekktum einhverja Urlausn.
Hann hefur rætt við Félags-
málastofnun borgarinnar og
lýst raunum sinum þar, og sótt
um að bUa áfram i hUsnæðinu,
en....
„Við erum með fólk I stórum
hópum, sem við berum ábyrgð
á, og þetta er fólk, sem sannan-
lega er á götunni. Það er önnur
fjölskylda, sem á að flytja
þarna inn,” sagði Helgi Helga-
son, deildarstjóri i Félagsmála-
stofnunni. „Það er fjölskylda,
sem býr i hUsi, er stendur i vegi
fyrir gatnagerð. Það hUs á að
rifa, en framkvæmdirnar tefj-
ast og vélarnar biöa, meðan
fjölskyldunni er Utvegað annað
hUsnæði.”
Fjöldi fólks mun eiga i hUs-
næðisvandræöum um þessar
mundir, og þótt jafnan hafi ver-
ið skortur á leiguhUsnæði á
ibUðarmarkaðnum, þá mun
sjaldan fyrr hafa verið jafnfátt
um ibUðir, sem að losna á far-
dögunum — eins og aö þessu
sinni. —GP.
Hass-salinn hefur viöurkennt
sölu og dreifingu á efninu og skýrt
frá þvi,að það hafi hann fengið
sent frá Kaupmannahöfn. Visaði
hann lögreglunni á birgðirnar,
sem hann geymdi hér og þar I
borginni.
Þegar eitt gr af hassi er selt I
lausasölu á kr 250 sést, að hér er
um að ræða milljón króna fíkni-
lyfja-dreifingu.
Lögreglan í Reykjavík, svo og
á Keflavikurflugvelli og i Kópa-
vogi, vinna að rannsókn málsins,
sem stendurenn sem hæst. -Gp.