Vísir - 16.06.1972, Side 11
VÍSIR. Föstudagur 16. júní 1972
11
Listahátíð slitið í Höfða i gsrkvöldi:
„Nú skil ég bara ekki neitt"
— sagði Ashkenazi með nýja
íslenzka vegabréfið upp á vasann,
þegar borgarstjóri hóf rœðu
v sína á íslenzku______________________
Með hófi i móttökusal borg-
arstjórnar Reykjavikur i gær-
kvöldi um kl. 11 lauk Listahátið i
Reykjavik, — aðeins standa enn
málverkasýningar, svo á sjón-
varp og útvarp eftir að sýna og
láta heyra það sem þar gerðist,
fyrir þá sem ekki gátu fylgzt með
öllu þvi sem þar var á boðstólum.
Þaö var sannkölluð stemning
meðal veizlugesta og það var ekki
sizt þvi að þakka að heimsstjarna
i menningarheiminum, Vladimir
Ashkenazy gekk til veizlunnar
sem islenzkur rikisborgari með
islenzkt vegabréf upp á vasann.
Borgarstjóri sagði m.a. i ræðu
sinni: „Ég vona að Ashkenazy
verði hreykinn af að bera islenzkt
vegabréf vitt um lönd og sjái
ekki eftir ákvörðun sinni”, og
óskaði um leið honum, konu
hans og börnum hamingju og vel-
gengni i framtiðinni. Borgarstjóri
sagði og i ræðu sinni að listahátið
fyrir 1974 hlyti að verða undirbúin
þegar frá og með deginum á.
morgun, svo vel hefði tilraunin
gefizt.
Meðal gestanna i Höfða i gær
voru þau hjón Andre Previn, kona
hans Mia Farrow, André Watts og
ýmsir þeir sem staðið hafa að
Listahátiðinni miklu undanfarna
daga.
Þegar borgarstjóri hóf að tala á
islenzku snéri Ashkenazy sér
kiminn á svip að Previn og sagði i
hálfum hljóðum: ,,Nú skil ég bara
ekki neitt.”
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra, ávarpaði
samkvæmið og kvað það skyldu
sina að hlaða Ashkenazy ýmsum
borgarlegum skyldum, þar sem
hann væri nú orðinn islenzkur
þegn. Kvaðst hann vilja gera
Ashkenazy aö „Sendiherra
Islands i hinum mikla lýðveldi
listarinnar”. Fór ráðherra viður-
kenningarorðum um listamann-
inn og framlag hans til Lista-
hátiðarinnar, sem hann hefði gert
að veruleika með þvi að nota
áhrif sin til að útvega hina fær-
ustu listamenn. Var Ashkenazy
og konu hans færð að gjöf bók
mikil, teikningar úr ferð Paul
Gaimard um tsland.
„Ég er bara eins og eftir tiu
konserta”, varð listamanninum
svo að orði, þegar hann þakkaði
fyrir sig, og benti um leið á að
hann liti fremur á Listahátiðina
miklu sem geysimikla vinnu
hinna nýju landa sinna en sitt
afrek. -JBP
Menntamálaráðherra, Magnús Torfi ólafsson, i góðum félagsskap.
Frá vinstri Mia Farrow, þá kona André Watts og Þórunn Jóhannsdóttir
Ashkenazý.
Vladimir og Þórunn viröa fyrir sér gjöf rikisstjórnarinnar.
„Nú verður þú sendiherra tslands i lýðveldi listarinnar” Borgarstjóri, Ashkenazý, Þórunn og mennta-
málaráðherra skeggræða.
K STUTTAR OG
SÍÐAR BLÚSSUR
ÚR DENIM
* BUXURÚR
DENIM
* BOLIR,
KÖFLÓTTIR 00
EINLITIR
* JERSEY
SKYRTUR
Á BÆÐI KYNIN