Vísir - 30.08.1972, Síða 4

Vísir - 30.08.1972, Síða 4
4 Visir Miðvikudagur 30. ágúst 1972 BARUM BREGZT EKKI. Umsjón: Edda Andrésdóttir Reynzla undanfarinna ára á íslandi tryggir ótvíræð gæði. Kynnið ykkur þessi ótrúlegu verð. Stærö Kr. 550-12/4 1.475.00 600-12/4 1.690.00 560-13/4 1.590.00 590-13/4 1.745.00 640-13/4 2.075.00 155-14/4 1.695.00 155-14/4 1.975.00 165-14/4 2.275.00 560-14/4 1.760 00 700-14/8 3.390.00 50 -15/4 1.670.00 560-15/4 1.775.00 590-15/4 1.895.00 600-15/4 2.160.00 640-15/6 2.440.00 670-15/6 2.870.00 600-16/6 2.370.00 600-16/6 2.865.00 650-16/6 2.970.00 750-16/8 4.770.00 SENDUM hjólbarðana út á land. Gjörið svo vel og tryggið yður BARUM með einu simtali. SHODfí ® BÚDIN Auðbrekku 44-46, Kópavogi — Simi 42606 SÍÐUSTU 10 DAGAR ADOLFS HITLERS í Shepperton,' rétt fyr- ir utan London standa nú yfir upptökur á kvik- Sir Alec (iuinness fer með hlut- verk Ilitlers. myndinni „The last ten days”, sem fjallar um Hitler, og eins og nafnið bendir til 10 siðustu daga hans.Það er Sir Alec Guinnes sem leikur Hitl- er i kvikmyndinni, og það gegnir furðu hve lik- ur hann er foringjanum i þessu hlutverki. En það urðu margar stjörnur fyrir vonbrigðum þegar þýzk leikkona, Doris Kunstmann, var ráöin til að fara með hlutverk, ástkonu Hitlers, Evu Braun. Kunstmann er lítið sem ekkert þekkt fyrir utan Þýzkaland, en þar hefur hún þó farið með nokk- ur hlutverk. Þær kvikmyndir sem hún hefur leikið og sem hvað mesta athygli hafa vakið, er „Trotta”, sem sýnd var á kvikmyndahátföinni i Cannes fyrir nokkru, en þar fór hun með hlutverk kynvilltrar stúlku. I nýjum sjónvarpsþætti sem bráðlega verður sýndur i Þýzkalandi um rithöfundinn Oscar Wilde, fer hún með hlut- verk kynvillts karlmanns, sem verður yfir sig ástfanginn af Wilde: Kunstmann er 26 ára gömul, og er eini Þjóðverjinn sem fer með eitthvert hlutverk i þessari mynd um foringjann. Það er ef til vill engin furða þó að hún hafi verið valin til þess að fara með þetta hlutverk, þvi að hún er mjög lik sjálfri Evu Braun. Jafnvel móðir hennar hafði margsinnis sagt það við hana, löngu áður en hún fékk hlutverkið. „Eva hefur án efa verið óskap- lega ástfangin af Hitler”, segir Kunstmann. „Til dæmis reyndi hún að láta setja systur sina i fangabúðir, þegar hún eitt sinn gagnrýndi Hitler litillega.” „Það sést einnig vél þegar Hitl- er ætlaði að reyna að koma henni undan i lokin, þá kaus hún heldur að deyja með honum, en flýja.” En Kunstmann lætur lika hafa það eftir sér, að Eva Braun hljóti að hafa verið óttalega einföld, næstum heimsk, — en indæl. I)oris Kunstmann fer með hlut- verk Evu Braun, en það er Eva, sem við sjáum á litlu myndinni. 3 detta úr sundsveit Breta ó Olympíu leikunum.—Ákœrðir fyrir hassnotkun. TyroneTozer, einn af þeim þrem- ur sundköppum, átti að synda 200 metra og 400 metra á Olympiu- leikunum. Ilann er stundum kall- aður Tar/.an. Tyrone Tozer, einn af þeim þremur sundköppum, átti að synda 200 metra og 400 metra á Oly m piuleikunu m . Hann cr stundum kallaður Tarzan. Þrir cnskir sundkappar, sem áttu að keppa á Olympiuleikunum i Miinchen, hafa verið dæmdir úr lcik og fá ekki að taka þátt i kcppninni, þar sem þeir cru ákærðir fyrir hassnotkun. Þessir sundkappar eru þeir, Ray Terr- ell, Rowland Jones og Tyrone To xcr. Þeir voru ekki aðeins ákærðir fyrir hassreykingar heldur var einn af þeim ákærður fyrir að hafa stolið skyrtu i einni af verzl- unum þarlendis. Það kom þó i ljós við rannsókn þess máls, aö þar hafði aðeins orðið misskilningur á milli afgreiðslumanns og sund- kappans, sem var Ray Teller. Það mál datt úr sögunni, en það sama er ekki að segja um hass- málið. Eftir þeim upplýsingum sem frá Miinchen hafa komið, er þvi haldið fram að þeir félagar hafi haldið hasspartý i æfingamið- stöðinni. Fimm aðrir Ur $und- sveitinni fengu ávitu-r. Rannsókn fer nú fram i málinu, og heldur lögreglan þvi fram að „eitthvert” efni hafi fundizt i sömu æfingabúðum. Leiðsögu- maður sundmannanna Joh. Verr- ier segist ekki hafa haft hugmynd um að hassreykingar tiðkuðust meðal sundmannanna, og kom þetta honum þvi mjög á óvart. SER UM 12.000 MANNA FJÖL- SKYLDU Þreyttar og uppgefnar hús- mæöur alls staöar i veröldinni finna örugglega til samúðar meö honum Ilans Gobes, sem aldrei eöa aö minnsta kosti sjaldan get- ur leyft sér að fara út úr eldhús- inu. Gobes þarf að sjá um og liugsa fyrir nokkuð stórri fjölskyldu. Hinum vel byggðu gestum sem búa i Munich, Ólym- piuleikaþorpinu, en þeir koma frá 120 þjóöum. Satt að segja þarf hann aö bera á borð fyrir 12.000 iþróttamenn og þaö þrisvar á dag. „Til allrar hamingju þarf ég ekki að hafa áhyggjur af upp- þvottinum lika”, segir hann þessi ungi Þjóöverji. „Starfslið mitt sem er allt i allt 971 maður, inni- heldur 130 uppþvottamenn.” Það er langt siðan hann var út- nefndur stjórnandi matstaðarins i Munich, og hann þarf að verzla fyrir tvær milljónir dollara fyrir þrjár vikur. Þannig litur inn- kaupalistinn út: 54 tonn af kjöti, 630.000 flöskur af öli og annarri drykkjarvöru. ein milljón af eggj- um, 880.000 pund aí nýjum ávöxt- um og 850. OOOpund af ýmis konar kjötmeti. Og úr þessu og kannski ein- hverju fleiru, þarf Gobes ásamt starfsliði sinu að gera 36. 000 mál- tiðir fyrir mismunandi þjóðir á hverjum degi. En allt er þetta vel undirbúið og kokkar þeir sem eru i starfslið- inu, 250 að tölu, þurfa ekki svo mikið að hugsa við matartilbún., allt fer eftir settum reglum. En það verður að gæta þess vel að gera öllum iþróttamönnum frá hinum ýmsu þjóðum vel til hæfis, sumir vilja kjötið mikið steikt eöa vel soðið. aðrir vilja það næstum hrátt. eða svo litið steikt að blóðið rennur úr þvi. HEILBRIGÐI ÞIÐ GETIÐ SJÁLF BÆTT LIKAAAA YKKAR TRIMMÆFINGAR MEGRUN STYRKÆFINGAR VÖÐVAÆFINGAR SAUNABAÐ Komið i reynslutima yð ur að kostnaðarlausu. Opið fyrir konur: Mánud., miðvikud. og föstud. kl. 10—20.30. Frá 1. sept. Opiöfyrirkarlmenn: Þriöjud. og fimmtud.kl. 12—14og 17—20.30og laugard.kl. 10—16. Hringið i sima 14535 eða litið inn. HEILSURÆKTARSTOFA EDDU

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.