Vísir - 30.08.1972, Side 13

Vísir - 30.08.1972, Side 13
Visir Miðvikudagur SO. ágúst 1972 | í DAG | í KVÖLD | I DAG | I KVÖLP | í PAG 13 Sjónvarp kl. 20,40: Nútíma „trubador fró Þýzkalandi Carl Wolfram heitir Þjóðverji sem var hér á ferð i vor. Þetta er mað- ur á fertugsaldri og hef- ur unnið sér ýmislegt til frægðar i sinu heima- landi. Hann er nefnilega einn af örfáum mönnum i heiminum sem með réttu getur kallað sig „trubador”. „Trubadorar” voru þeir sem fyrr á öldum gengu á milli meö hljóðfæri sin, býsna fornfáleg og unnu sér inn mat og húsaskjól með söng sinum og skemmtan. Nú er þessi timi löngu liðinn en Wolfram hefur tekið þennan gamla sið „trubadoranna” upp og ferðast nú á milli sem eins konar nútima farandsöngvari. Og Wolfram fetar i fótspor fyr- irrennara sinna með þvi að leika á ævagömul hljóðfæri, forna hús- ganga og slagara frá fyrri timum. Hann leikur reyndar á öll hljóð- færi sem fyrirfinnast. Sjónvarps- menn gómuðu þennan lifsglaða Þjóðverja þegar hann var hér i yor og fengu hann til þess að leika listir sinar i sjónvarpssal. Þar spilar Wolfram á hin furðulegustu hljóðfæri og syngur af hárri raust. Þarna er 500 ára gömul bænda- lýra svokölluð, nokkurs konar strokhljóðfæri, undanfari lýru- kassans, þar sem tónarnir eru seiddir fram með sveif! Ennþá eldri er þó bassalútan, sérkenni- legt hljóðfæri með afbrigðilegum strengjafjölda. Það var vinsælt i kirkjum Þýzkalands á miðöldum. Carl Wolfram þenur þessi skritnu hljóðfæri sin i tæpan hálf- tima og verður áreiðanlega gam- an að hlusta á tónaflóðið sem hlýtur að koma úr þeim. GF Útvarp kl. 19,40: Ætlast ekki til þess að blaða- menn skrifi neitt gullaldarmál — segir Páll Bjarnason um „Daglegt mál" ,,Ég er ekki að halda þvi fram að málið sé neitt verra hjá blaða- niönnum. Hitter annað aö ábyrgö þeirra er svo mikil. Þeirra mál er mál þjóðarinnar”, segir Páll Bjarnason menntaskólakennari um þátt sinn dagiegt mál. Páll hefur einmitt i undanförn- um þáttum beint skeytum sinum að blöðunum og skrifum islenzkra blaðamanna. „Auðvitað er ég ekki að ráðast neitt á blaðamennina sjálfa. En það sem blöðin skrifa er spegill af daglegu máli þjóðarinnar og þess vegna er nærtækast að lesa blöð- in, þvi i þeim birtist þverskurðar- mynd af málfari íslendinga. Að sjálfsögðu er blaðamálið i mótun og breytist sifellt til hins betra, en ég tel það bara skyldu mina að veita blaðamönnunum aðhald. Það er allt og sumt sem ég hef verið að gera i þáttum minum. Ég ætlast ekki til þess að i blöðunum sé skrifað eitthvert gullaldarmál aðeins að þeir sem þar starfa vandi stil sinn betur og skrifi af smekkvisi en slái ekki slöku við með hreinni slangmállýzku. I blaðamannastéttinni eru til mjög góðir skribentar og óvönduð blaðskrif stafa liklega mest af þvi að blöðin geta ekki valið úr fólki. Fjölmiðlarnir, blöðin, útvarp og sjónvarp eru vissulega nr. eitt i þáttum minum „Daglegt mál”, segir Páll, „og þaöan læ ég sem sé gleggstu dæmin um daglegt mál”. „Annaö efni þáttarins byggi ég á aösendum bréfum og hringing- um frá fólki út um allt land. I kvöld er ég þó með dæmi úr blöð- unum, ég tek það ekki fram úr hvaða blaði né hver hafi skrifað þá klausu: „Getter hintaði að ýmsu i bréfi sinu.” GF. Páll Bjarnason: — Jú, jú blaðamálið er i mótun. UTVARP MIÐVIKUDAGUR 30. ágúst. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar, 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Siðdegissagan: „Þrútið loft” eftir P. G. Wodehouse. Jón Aðils leikari les (13). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 íslenzk tónlist. 16.15 Veðurfregnir. Ræktun- artilraunir Magnúsar Ket- ilssonar sýslumanns. Ingi- mar Oskarsson flytur er- indi. 16.40 Lög leikin á gitar. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 Nýþýtt efni: „Æskuár min” eftir Christy Brown. 18. Fréttir á ensku 18.10 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Frá Olympiuleikunum í Miinchen. Jón Asgeirsson talar. 19.40 Daglegt mál. Páll Bjarnason menntaskóla- kennari flytur þáttinn. 19.45 Álitamál. Stefán Jóns- son stjórnar umræðuþætti. 20.10 úr ,,Norðurlandstró- inet"Jagaflokki op. 13 eftir David Monrad Johansen við texta eftir Peter Dass i þýð- ingu dr. Kristjáns Eldjárns. Guðrún Tómasdóttir syng- ur. Ölafur Vignir Albertsson leikur á pianó. 20.30 Sumarvaka. 21.30 Handknattleikslýsing frá Olvmpiuleikunum. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Maöurinn sem breytti um andlit" eftir Marcel Ay- mé. Kristinn Reyr les (16). 22.35 Nútimatónlist: Tónlist eftir Vagn Holmboe. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. SJONVARP MIDVIKUDAGUR 30. ágúst 1972. 18.00 Frá Olvmpíuleikunum. Illé 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 The Living Sea. Ný kvik- mynd, gerð að tilhlutan rik- isstjórnarinnar i tilefni af útfærslu landhelginnar, og sýnd i ýmsum sjónvarps- stöðvum viða um heim um þessar mundir. Kvikmynd- un Sigurður Sverrir Páls- son. Hljóðsetning Marinó O- lafsson. Þulur Magnús Magnússon. Umsjónarmað- ur Eiður Guðnason. 20.40 Carl Wolfram. Þýzki söngvarinn Carl Wolfram kynnir gamla söngva og gömul hljóðfæri i sjónvarps- sal. Hljóöfærin sem hann leikur á eru bassalúta og meir en 500 ára gömul lira. Þýðandi Óskar Ingimars- son. 21.05 Valdatafl. Brezkur framhaldsmyndaflokkur. 10. þáttur. Eftirköst. Þýð- andi Heba Júliusdóttir. t siðasta þættigreindi frá þvi, að Kenneth Bligh hafði milligöngu um viðamikla framkvæmdasamninga. Wilder og Straker, sem einnig er við þessar fram- kvæmdir riðinn, eru á nál- um um að samningarnir hafi stórfellt fjárhagstjón i för með sér. En að lokum kemur i ljós að Kenneth hef- ur snúið á þá báða. 21.50 Afreksmenn á öld hraða. Bandarisk mynd um hrað- akstur og tilraunir manna, til að setja hraðamet i akstri bifreiða. Greint er frá þróun hraðaksturs og tilraunum, sem geröar hafa veriö um árabil á saltsléttum Utah- rikis. Þýðandi og þulur Ell- ert Sigurbjörnsson. 22.40 Dagskrárlok. RAKATÆKIN — auka rakann í loftinu, sem þýðir aukinn vellíðan. — cru með síu, sem hreinsar óhreinindi úr loftinu, — hægt að hafa mismunandi mikla uppgufun úr tækinu, — taka loftið inn að ofan en blása þvf út um hliö- arnar — og má láta það standa, hvar seni er, — stærð 26 x 36 x 25 sm, tekur 10 litra af vatni, — með tækinu er fáanlegur sjálfvirkur klukku- rofi, sem kveikir og siekkur sjálfkrafa á tækinu. Raftœkjaverzlun H.G. Guðjónsson Suðurveri, Reykjavík, sími 37637. «■ « « «■ «■ «■ «■ «■ «■ «■ «■ «- «- «- « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « « Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 31. ágúst: & m m é' 1» Hrúturinn,21. marz—20. april. Það litur út fyrir að hætt sé við einhvers konar misskilningi i dag, nema þú gerir þér far um að fyrirbyggja það, einkum ef þú skrifar eitthvað. Nautið,21. april—21. mai. Farðu gætilega i dag, einkum þegar kemur fram yfir hádegið. Gæti- lega yfirleitt, bæði i umferöinni og eins i ákvörð- unum, sem þú þarft að taka. Tviburarnir, 22. mai—21. júni. Þetta kann að verða mikill annrikisdagur. Jafnvel aö þú verðir aö gæta þess sérstaklega aö flaustra ekki neinu af þess vegna. Krabbinn,22. júni—23. júli. Það getur kostaö þig nokkurt þras aö leiðrétta einhvers konar mis- skilning — eitthvað sem túlkað er á allt annan veg en þú ætlaöist til. Ljónið, 24. júli—23. ágúst. Góður dagur, margt sem gengur mjög vel, annað allsæmilega. Ef þú litur i kringum þig, býðst þér tækifæri hvað snertir peningamálin. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Þú þarft ekki að kvarta yfir seinagangi i dag að þvi er virðist. öllu sennilegra að þér finnist þig skorta tóm til umhugsunar er á liður. Vogin, 24. sept.—23. okt. Taktu ekki nærri þér þótt þú sætir nokkurri gagnrýni i sambandi við eitthvert visst starf, en athugaðu hvaö muni liggja á bak við hana. Drekinn, 24. okt,—22. nóv. Likast til verður þú tilneyddur að taka þann kost i einhverju máli, sem þú hefðir viljað komast hjá. Athugaðu samt enn allar leiðir. Bogamaðurinn, 23. nóv.—21. des. Margt virðist ætla að ganga á afturfótunum i dag, að minnsta kosti fram eftir. Svo er að sjá sem skarpskyggni þinni geti skjöplast eitthvað. Steingeitin, 22. des,—20. jan. Helzt er aö sjá aö þú verðir að velja um eitthvað i skyndi, og að þér verði það á að taka lakari kostinn, nema þér tak- ist að fá frest. Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr. Farðu gætilega i öllum ákvörðunum, einkum i sambandi við pen- ingamálin. Þaö litur út fyrir að þú fáir góðar fréttir af kunningjum þinum. Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Flanaðu ekki aö neinu i peningamálunum. Gættu þess að eyða ekki meiru en aflast og miða áætlanir þinar viö það á næstunni. -Ct -ft •Ct -ú -» -» -Ct -Ú -Ct -Ú -vt ■Ct -Ct •ct -Ct -Ct -ct -ct -Ct -ct -ct -ct -ct -ct -Ct -Ct -ct -Ct -ct -Ct -ct -Ct ■Ct -Ct -Ct -ct -Ct -Ct I -ct -ct -Ct •ct -ct -ft ■Ct ■Ct •Ct ■ct -ct -Ct -Ct -Ct -Ct -ct -ct -Ct •Ct -ct -ct -ít -ct -Ct -ct -Ct -ct -ct -Ct -ct -Ct ■ft ■ct -ct ■Ct -Ct -Ct -Ct -ct -ct -ct -ct ■ft -Ct -Ct -ct -ct -Ct -ct -ft -Ct -Ct -ct -ct -Ct -Ct -ct -Ct •Ct -ct -ct -ct Verksmiðjuvinna Karlmaður óskast til vinnu i verksmiðju okkar. Pappirsver h.f. Simi 36945. Laus staða Staða verðlagsstjóra er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launaflokki B 1 í launa- kerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, skulu sendar viðskiptaráðuneytinu fyrir 1. október 1972. Viðskiptaráðuneytið, 28. ágúst. 1972.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.