Vísir - 25.09.1972, Page 3

Vísir - 25.09.1972, Page 3
Visir lYlánudagur 25. september 1972. 3 Eyfirzk fegurð volin — rauðsokkur mótmœla Enn ein feguröardrottningin var valin um helgina. Fór feguröarsamkeppni fram i Vikurröst á Dalvik — viö mót- mæli Rauösokka sem úti fyrir stóöu. Anna Linda Aðalgeirsdóttir heitir hin 18 ára gamla stúlka, sem hlaut titilinn „Ungfrú Eyjafjarðasýsla.” Hún er til heimilis i Ólafsfirði og vinnur þar við hárgreiðslustörf. En aðal áhugamál hennar eru tungumál. Augu Onnu eru græn að lit, en hárhennar dökkt ogsittmðura bak. Foreldrar Onnu eru Aðalgeir Jónsson og Petra Gisladóttir. Hafa nú verið valdar samtals sjö fegurðardrottningar úr sýslum landsins, en það mun taka aöstandendur keppninnar 'allar helgar fram til áramóta að velja drottningar úr öllum sýslunum. ÞJM Anna Linda Aöalgeirsdóttir kæröi sig kollótta um mótmælin utandyra á meöan feguröar- samkeppnin fór fram I Vikur- röst.. Mótmæli Rauðsokka eru að veröa fastur liöur fylgjandi feguröarsamkeppnunum. Hér sjást tvö spjöld á lofti úti fyrir Vfkurröst er feguröarsamkeppnin fór þar fram siöastliöiö laugardagskvöld. 300 HÆNSNI BRUNNU INNI 300 hænsni urðu eldi að bráð þegar kviknaði i hænsna- og geymsluhúsi á bænum Tjörn í Biskupstungum á föstudag. Enginn varö eldsins var, fyrr en húsfreyjan leit út um gluggann hjá sér um kl. 12.45 og sá þá reyk leggja frá hænsnahúsinu. Þótt hún geröi strax ráðstafanir til þess aö kalla til slökkvilið sveitarinnar, þá var þaö orðið of seint, og litlu sem engu varð bjargað. Meðal þess, sem brann i geymsluhúsinu var nýr 500 litra mjólkurkælitankur. Hvorugt var vátryggt, hænsnin eöa mjólkur- tankurinn. cn húsiö var tryggt. — GP Landhelgisgœzlan: Þyrlurnar ekki í notkun nœstu vikur Stööugt er unniö við þyrlurnar tvær, sem Landhelgisgæzlan keypti frá Bandarikjunum. Verk- iö mun taka nokkrar vikur i við- bót og litlar likur á aö þær komist i gagnið i næsta mánuöi. Þyrlurnar voru keyptar af bandariska sjóhernum og voru þær talsvert mikið notaðar. Þær voru fluttar hingað sundurteknar og þarf að yfirfara marga hluti um leið og þyrlurnar eru settar saman á ný. Skoðunarmenn frá Landhelgisgæzlunni skoðuðu þessar vélar ytra áður en kaupin fóru fram og töldu þeir hiklaust rétt að festa kaup á þeim. Enda var verðið mjög hagstætt, þvi þær kostuðu báðar minna en sem svaraði vátryggingafé þyrlunnar. sem Gæzlan átti og eyðilagöist fvrir nokkrum mánuðum. Þessar bandarisku þyrlur geta flutt 2 farþega. Geta þær lent á varðskipunum Óðni og Ægi. —SG Fékk 43 krónur í mánaðarkaup! Skatturinn hafði hirt hinn hlutann Margur þóttist hart leikinn, þegar skattskráin kom út í sum- ar, og er minntur á það á hverj- um útborgunardegi, eins og einn opinber starfsmaður i Keflavik, sem af 36 þúsund króna mánaöarkaupi sinu fékk borg- aða út siöast 43 króna ávisuo! „Það er þó þakkarvert, að þeir skyldu þó láta svona mikið eftir, svo að maður ætti fyrir nauöþurftum”, sagði maður- inn, þegar hann sýndi frétta- manni Visis mánaðarKAUPIÐ. „Enda fannst mér svo mikið til um mildina, að ég var fyrst að hugsa um að gefa þetta ALLT SAMAN i Landhelgis- sjóðinn. En svo timdi ég þvi ekki. Ég ætla heldur að rampia þessa ávisun inn, og hengja upp á vegg hjá mér til minningar um sæludagana”, bætti hann við. Tíð hundsbit í borginni — en versti bitvargurinn er þó apinn í Sœdýrasafninu i-gærkvöldi var komið með litla stúlku á Slysavarðstofuna, og hafði hún oröiö fyrir hundsbiti. Ekki voru meiðsli hennar alvar- leg. að sögn Hauks Arnasonar læknis. „Þetta er allt of algengt i borg þar sem hundahald er bannað. Við fáuin oft krakka hingað. sem hundar hafa bitiö, þau eru venjulega á aldrinum 4 ára og upp i 12. En hundarnir eru ekki versti bitvargurinn", sagði Haukur. „Það er apinn I Hafnar- firði. Hann hefur meira að segja bitið fingur af börnum”. Guðmundur Hermannsson lög- regluvarðstjóri sagði, þegar Visir innti hann eftir hundsbitum i morgun, að þetta væri þvi miður nokkuð algengt og kæmi þá til kasta lögreglunnar. „Venjulega er þetta skaðabótarmál gegn hundeiganda. I flestum tilfellum gefum við viðkomandi hund- eiganda tækifæri til að koma hundi sinum fyrir úti á landi, og ef það er ekki hægt, þá verðum við a’uðvitað að lóga dýrinu. Yfirleitt reynum við þó að fara þessa samningaleið, ef hún er þá mögu- leg". Guðmundur sagði aðlokum.að hundsbitum færi þó fækkandi hér i borginni og að langt væri siðan lögreglan hefði þurft að skipta sér af þeim málum. GF UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ FLYTUR í NÆSTA MÁNUÐI Vonir standa til að utanrikis- ráðuneytið flytji starfsemi sina úr gamia stjórnarráðshúsinu i nýju lögreglustööina i næsta mánuöi. Er unnið af krafti við að innrétta hið nýja húsnæði og cr verkiö langt komið. Pétur Thorsteinsson, ráðu- neytisstjóri utanrikisráðuneytis- ins. sagði i samtali við Visi að það yrði mikill aðstöðumunur að koma i þetta nýja húsnæði. Þó mætti það ekki minna vera, en það er um 600 fermetrar að um- máli brútto. Hins vegar að frá- dregnum veggjum er húsnæðið ekki nema um 350 fermetrar. Þrátt fyrir það sagði Pétur að viðbrigðin yrðu mikil frá þrengsl- unum i stjórnarráðshúsinu. Á sinum tima urðu miklar deil- ur, þegar tilkynnt var að ráðu- neytið fengi þetta húsnæði undir sina starfsemi, þar sem áður hafði verið ákveðið að Land- helgisgæzlan fengi þarna inni. En hið umdeilda húsnæði er sem sagt litið stærra en rúmgott einbýlis- hús. —SG Góð fyrirgreiðsla til flugvirkja segir Sigurður Magnússon hjá Loftleiðum „l.oftlciðir hafa alltaf reynt að greiða götu flugvirkja sagði Sigurður Magnússon hlaðafulltrúi Loftleiða, þegar Visir innti hann eftir atvinnuleysinu i flugvirkja- stéttinni. „Loftleiðir hafa á undanförnum árum styrkt 75 flugvirkja til náms i Bandarikjunum. Þessir flug- virkjar hafa siðan fengiö vinnu hjá okkur og nú vinna 53 flug- virkjar á okkar vegum auk 30 flugvélstjóra. „Samkvæmt þess- um upplýsingum Sigurðar viröast horfurnar i flugvirkjamálum ekki eins slæmar og af er látið. Þó er liklegt að til verkfalls komi hjá flugvirkjum þegar samningar renna út i jan. n.k. GF

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.