Vísir - 25.09.1972, Page 12

Vísir - 25.09.1972, Page 12
12 Visir Mánudagur 25. september 1972. Norski markvörðurinn setti stoppmerkið á Eyjamennina! — varði meðal annars þrívegis skot, sem „venjulegir" markverðir hefðu ekki getað stöðvað Norsku Víkingarnir frá oliubænum Stavangri halda áfram í Evrópu- bikarkeppninni, en Vest- mannaeyingar detta úr eftir 1. umferö. Á renn- blautum,hálum og sundur- lausum Laugardalsvell- inum börðust þessi tvö lið harðvítugri og oft skemmtilegri baráttu, en tókst ekki að skora. Klaufamarkið frá i fyrri leiknum i Stavangri fleytir Víking því áfram. En sú spurning vaknar hvort okkar beztu lið séu ekki nokkurn veginn sambærileg við beztu lið Noregs. Annað er ekki að sjá. Ef einhver munur er, þá eru okkar menn harðari og úthaldsbetri, þeir norsku hafa betri boltameð- ferð og leika af meiri yfirvegun. Það var greinilegt, þegar er leikvöllurinn var litinn augum i upphafi, að hér var um ákaflega erfiðan völl að ræða. Liklega hefur eftirlitsmaður Evrópusambandsins hver sem hann.nú er, bara kikt með öðru auganu á völlinn. 1 raun og veru var hann ekki neitt til að leika knattspyrnu á. Það furðulega var þó að hér fór fram tilþrifamikil knattspyrna á köflum, kraftur og hraði ásamt feikilegum sigurvilja beggja liðanna. Liklega hefur sigurvilji Eyjamanna þó verið einum um of. Stundum fannst manni sókn þeirra eins og hitasóttarkennd, of mikill kraftur, of litil hugsun. Þaó var strax augljóst að i báðum mörkunum stóðu súper- rnenn miklir þar sem þeir Páll Pálmason og Erik Johannesson voru. Það varð lika raunin að þrátt fyrir margar góðar til- raunir tókst ekki að koma knett- inum framhjá þeim. Um 4000 áhorfendur mættu til leiksins og það var ágætis stemmning rikjandi. Greinilegt að strax og lið okkar sýna ein- hverja getu, þá stendur ekki á áhorfendum, jafnvel þótt veður sé jafn leiðinlegt og var i gær. 1 heild má segja að Vikingarnir og þeir beztu sem maður hefur fengið að sjá. Sannarlega var það þessi eini maður, langbezti leikmaður vallarins i gær, sem varð þess valdandi að Eyjamenn fóru ekki með sigurinn, sem hefði allt eins verið eðlilegt eftir gangi leiksins, þvi hættulegu tækifærin voru öll við norska markið. Norskir áttu vitaskuld hættu- legar tilraunir, skot sem smugu framhjá og hörkuskot, sem Páll réð fullkomlega við, en hættulegri voru Eyjamenn þó. Ásgeir til Skotlands Asgeir Sigurvinsson, liinn snjalli, 17 ára leikmaður Vestmannaeyja, hélt til Skotlands i morgun, þar sem hann mun dvelja nokkra daga hjá skozka 1. deildar- liðinu 'Morton — hámark 10 daga. Hann mun ekki undir- rita neina samninga við félagið. Tómas Pálsson og Johannessen i viðureign, — en vallarskilyrðin sjást greinilega á þessari mynd, þvi leðjan þyrlast upp við átök kappanna. norsku hafi mátt vel við una að fara með sigur af hólmi. 1 þrjú skipti i leiknum var mark i stór- kostlegri hættu, en alltaf bjargaö af miklum meistarabrag, — i öll skiptin af Johannesson hinum norska. Á 30. minútu upp úr auka- spyrnu. Haraldur „gullskalli” sýnir áhorfendum hvernig skalla á að marki i bláhornið. En Johannesson ver alveg stórkost- lega og bægir boltanum frá markinu. 24. minúta i seinni hálfleik. örn Öskarsson kominn inn i vörn Norðmanna, hefur góðan tima, og velur sennilega rétta timann til skots. Skotið er fast og vel fram hjá Erik Johannesson. En hann liggur flatur i loftinu og slær framhjá markinu. Stórkostleg björgun! 40. minúta. 5 örlagaminútur eftir af leiknum. Þá skallar Haraldur fyrst aö marki og siðan örn Öskarsson mjög hættulegum bolta. — en Johannesson er samur við sig og eins og eldi- brandur upp i hornið og slær framhjá. Það var i þessi þrjú skipti sem norski markvörðurinn varði eins Drullan á vellinum eyðilagði eins og fyrr greinir mjög allan samleik, en samt voru tilraunir liðanna furðugóöar margar hverjar. ,,Þetta voru geysierfiðar aöstæður og langt fra þvi að liðin gætusýnthvað i þeim býr”, sagði Viktor Helgason þjálfariíBV eftir leikinn. Hann kvað úrslitin sann- gjörn eftir gangi leiksins. Sjaldan hefur maður séð leik- menn jafn ánægða eftir leikinn og þá norsku Vikinga. Greinilega höfðu þeir komið til landsins með blendinn hug, enda gaf fyrri leik- urinn þeim allt annað en góð fyrirheit. Beztu menn Eyjamanna i leiknum: Páll i markinu eins og fyrr segir. örn Óskarsson h. út- herji. eitilharður og maður sem aldrei gefst upp og stórhættulegur við markið, Óskar Valtýsson, ódrepandi dugnaðarmaður og út- sjónarsamur, Ásgeir Sigurvins- Pér lærió nýtt tungumál á 60 tímum! Linguaphone lykillinn að nýjum heimi ENSKA. ÞÝZKA, FRANSKA. SPANSKA. PORTUQALSKA. ITALSKA. DANSKA. SÆNSKA. NORSKA, FINNSKA. AÓSSNESKA, QRISKA. JAPANSKA o. (I. Verð aóeins hr. 4.500- AFBORGUNARSKILMRLAR Tungumálaiwimlieið á hljámplðtum cða tcgulböndum> Hljódfœrahus Reyhjauihur Laugauegi 96 simi> I 36 56 „ Hér bjargar Johannessen markvörður i fyrsta skipti á meistaralegan hátt. Geysifastur og snöggur skaliabolti llaraldar Júliussonar hlaut þau örlög að vera sleginn frá markinu. Hér voru menn nær búnir aðbóka mark.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.