Vísir - 11.10.1972, Page 9
VtSIR Miðvikudagur 11. október 1972.
9
Krlendis er aðstaða einstæðra foreidra betri en hérlendis. 1 Danmörku og Sviþjóð er hún mun betri og Þjóðverjar og Hollendingar
standa nokkru framar. Verri virðist aðstaðan þó vera i Noregi.
„Draumur okkar ao
byggja f jö Ibýlishús"
Rœtt við Jódísi Jónsdóttur, ritara Félags einstœðra foreldra
r iimim i
I 5ÍÐAN I
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
r a
Ef einstæð móðir eða
einstæður faðir kemur
ekki barni fyrir á dag-
heimili getur hún /
hann komið því fyrir í
dagvist á einkaheimili,
sem þýðir hærra gjald.
Erlendis greiðir bæjar-
félagið þann mismun
sem þar er á.
Til tals hefur komið
hjá Félagi einstæðra
foreldra að byggja
f j ö I bý I i sh ús, þa r
sem fyrirfinndist öll
aðstaða svo sem dag-
heimili, skóladag-
heimili, aðstaða til
æskulýðsstarfa og
fleira.
V____________________J
An efa hefur stofnun Félags
einstæðra foreldra átt mikinn
þátt i þvi að staða einstæðra
foreldra i þjóðfélaginu, eins og
það er i dag, hefur orðið mun
betri en hún var áður. Félagið
var sett á stofn i nóvember-
mánuði 1969 og verður þvi
þriggja ára i haust. Vetrarstarf
féiagsins hefst næstkomandi
föstudag og e.innig hefur skrif-
stofa félagsins nýiega opnað
aftur að ioknum sumarleyfum.
Skrifstofan sjálf hóf starfsemi
á árinu 1970, og var fyrst til húsa
að Hallveigarstöðum i húsnæði
Kvenréttindafélagsins, en hún
hefur nú flutzt að Traðarkots-
sundi 6. Meðlimir i félaginu losa
nú um 2.000 og svo virðist sem
karlmönnum fjöigi, þó að konur
séu i mjög miklum meirihiuta i
félaginu.
1 tilefni af þvi, að félagið er
nú að hefja starfsemi sina
náðum við tali af Jódisi Jóns-
dóttur, sem starfar á
skrifstofunni og spurðum hana
um starfsemi félagsins, stöðu
einstæðra foreldra i þjóð-
félaginu og fleira.
— Hvernig er starfseminni
háttað nú?
„Starfsemin byggist nú á skrif-
stofunni eftir að við fengum
hana i ákaflega skemmtilegu
húsnæði. Það er ætlazt til að fólk
geti komið þangað og fengið
upplýsingar um allt varðandi
félagið sjálft, svo og réttarstöðu
sina. Það getur fengið upp-
lýsingar um hjúskaparmál,
barnsfaðernismál, barnagæzlu,
húsnæðismál og allt mögulegt.
Við visum siðan á staði, þar sem
fólk getur fengið úrlausn á
sinum málum, nema húsnæðis-
vandamálið, það virðist erfitt að
leysa.”
— Hefur komið til tals að reyna
að gera eitthvað i húsnæðis-
vandamálunum?
„Okkar draumur er sá að
byggja fjölbýlishús, þar sem öll
aðstaða fyrir einstæða foreldra
iyrirfinndist. Til dæmis barna
stofa fyrir öll stigin, skóladag-
heimili, aðstaða fyrir æsku-
lýðsstarfsemi, og einhver að-
staða fyrir barnið þegar það
veikist, þvi það er stórt vanda-
mál einstæðra foreldra. Við
höfum haft samband við hús-
næðismálastjórn og þar voru
þeir afskaplega jákvæðir. En
þetta er hugmynd sem við
viljum stefna að.”
— Eru einstæðir feður verr
settir en einstæðar mæður?
„Já, það er óhætt að segja það.
Þeir fá til dæmis ekki mæðra-
laun eða neitt hliðstætt þvi sem
mæðurnar fá. Setjum svo aö
hjón skilji og það verði úr að
faðirinn fái helming barnanna i
sina umsjá og móðirin annan
helming. Við getum haft dæmiö
þannig að börnin séu fjögur. Þá
virðist þaö mjög algengt að það
verði að samningsatriði að
faðirinn sem tekur að sér tvö
börnin verði einnig að borga
meðlag með hinum tveimur
börnunum sem móðirin hefur
tekið til sin. Þetta er að visu
aðeins samningsatriði, en ekki
lagalegt, en þettat ætti að
mætast. En það he'fur mikið
aukizt að fráskildir karlmenn
gangi i félagið og þá með börn
sin. Annars er alltaf smátt og
smátt að fjölga i félaginu, það
liður ekki sú vika að ekki bætist
við.”
— Hefur einhvern tima orðið
hjónaband innan félagsins?
„Nei, það hefur aldrei átt sér
stað. Að visu veit ég um hjóna-
band milli tveggja félagsmeð-
lima, en þar var orðinn
kunningsskapur áður en félagið
hóf starfsemi sina. Karl-
mennirnir hafa einnig verið hálf
óduglegir að mæta á fundum,
þeir eru liklega hræddir við
okkur, þvi við erum svo
margar.”
— Einstætt foreldri verður að
koma börnum eða barni sinu
fyrir á einhvern hátt. Getur það
ekki gengið illa?
„Hér á landi er ekki nóg dag-
heimilispláss. Félagið ásamt
bænum hefur leyst þetta vanda-
mál með þvi að koma börnunum
fyrir. Það er þá á heimilum
vandalausra. Það er mjög oft
hringt til okkar frá heimilum,
þar sem boðizt er til að hafa
barn i dagvist. En sá galli er á
þvi, að það er dýrara að hafa
barniö i dagvist á heimili,
heldur en að koma þvi fyrir á
dagheimili. Ég held þvi fram að
bærinn ætti að greiða þann mis-
mun sem er þar á milli, það er
til dæmis gert erlendis.
Reyndar er til i dæminu að þaö
sé gert hérna, en það er þá ekki
nema mjög illa standi á fyrir
foreldri.”
— En staða einstæðra foreldra
hefur breytzt til batnaðar hér-
lendis, er ekki svo?
„Jú mér finnst staða einstæðra
foreldra hafa breytzt til
batnaðar með tilkomu
félagsins,en húsnæðisvanda-
málið er allra verst, og sömu-
leiðis það að ungar stúlkur
hætta i námi, ef þær eignast
barn á meðan á námi stendur.
Þær mætti aðstoða meira. t
Danmörku til dæmis fá stúlkur i
námi námsstyrk. En hugsunar-
hátturinn hérna virðist vera
sá,að stúlkan geti gift sig. Ég er
á móti þeim þvingunum, en mér
finnst að stúlkan eigi að fá að
standa á eigin fótum.”
„En vissulega hefur margt
færzt i rétta átt. Meðlögin hafa
til dæmishækkaðgeysilega, þau
eru nú 3.700 krónur á mánuði.
Skattarnir hafa aðeins færzt i
áttina. Skóladagheimili fyrir
6-12 ára börn eru nú oröin tvö og
vonandi bætist eitt við bráðlega.
Skóladagheimili eru nú i
Skipasundi og Hliðargerði
og sennilega bætist eitt við i
Vesturbænum. Dagheimilis-
vistin hefur verið lengd á barna-
heimilum, en timinn þar dag-
lega var of stuttur. Og svo er
það tilkoma skrifstofunnar.”
„Við getum ekki kvartað yfir
mótlæti, þvi allir hafa verið
okkur jákvæðir.”
— Hvernig er aðstaða einstæðra
foreldra erlendis, til dæmis á
Norðurlöndum i samanburði við
aðstöðuna á Islandi?
„1 Danmörku og Sviþjóð er
óhætt að segja, að aðstaðan sé
mun betri, einnig standa Þjóð-
verjar og Hollendingar mjög
framarlega i þessum málum.”
„En þrátt fyrir það sem reynt
er að gera fyrir einstæðar
mæður, og feður, þá hlýtur það
alltaf að vera óheppilegt fyrir
börn að eignast börn. Svo ekki
sé talað um unga stúlku sem er i
námi og kýs að halda þvi áfram.
Oftast vill það verða svo aö hún
leitar til móður sinnar, sem
tekur að sér gæzlu barnsins
meiri hluta dagsins og óneitan-
lega fer það þannig að lokum að
amman verður móðir barnsins.
Margar standa ungu stúlkurnar
sig mjög vel, og gera allt fyrir
sitt barn, en þetta er þeim mikið
erfiði.” -EA
«-
D-
D
s-
«-
D
D
D
D
D
D
Dr
D
D
«-
«-
«-
«-
«•
MUNIÐ
VÍSIR VÍSAR
ÁVIÐSKIPTIN
visir
NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ VELJA
BORÐSTOFUHÚSGÖGNIN
&L
11 int
Siml-22900 Laugaveg 26