Vísir - 21.10.1972, Blaðsíða 20

Vísir - 21.10.1972, Blaðsíða 20
Kynferðisfrœðsla böm í sjónvarpinu í Laugardagur 21. október 1972 TÝNDI BÍLLINN VAR BAK VIÐ HLÖDU Bílaleigubni, sem saknab hefur verið nú i nokkurn tfma, kom I leitirnar I gær. Reyndist hann vera bak viö hlöðu hjá bæ uppi i Mosfellssveit. Spurnir höfðu verið haföar uppi um bilinn og manninn, sem tók hann á leigu. Var sá skráöur til heimilis i Vestmannaeyjum. 1 fyrradag var svo lýst eftir bflnum i útvarpinu, og varð þaö til þess aö Jón á Reykjum í Mosfellssveit tilkynnti lögreglunni um grun- samlegan bil,sem stóö bak við hlööu á bænum Lundi. Reyndist þetta allt vera sami billinn. Leigutakinn haföi verið þarna á Lundi i vikutima. Framrúöan i bflnum var brotin, en annars var hann litið skemmdur. -LÓ í vetur verður sjón- varpið með þætti um kynferðisfræðslu fyrir börn i fyrsta skipti. Þetta eru þrir þættir, sem sjónvarpið hefur fengið frá BBC. Vetrardagskrá útvarps og sjónvarps er nú ákveðin og eru tölu- verðar breytingar á henni frá þvi sem var. Breytingarnar á dagskránni eru geröar með það fyrir augum að útvarp og sjónvarp séu með gjörólikt efni. Útvarpsfréttirnar kl. 3 og 5 falla niöur en i stað þeirra er éinn fréttatimi kl. 4 Kvöldfréttirnar verða styttar, verða þær aðeins tuttugu minútur aö lengd. Þá verða öll föstudagskvöld langir sinfóniutónleikar. Þátturinn lög unga fólksins hefur verið færður frá þriðju dagskvöldum og verður i vetur á föstudögum kl. 22.45. bá er nýr poppþáttur á föstudögum mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum, og fimmtudög- um, sem nefnist Popphorniö”. Alla daga er efni sem ætlað er börnum kl. 17.10. Kvöldsagan verður felld niður en i stað hennar verður útvarpssagan þrjá daga vikunnar á mánudög- um, miðvikudögum og föstu- dögum. Stuttir fræðsluþættir verða alla morgna kl. 10.25 sem standa i 15 minútur. Mikið veröur um nýja islenzka skemmtiþætti bæði i útvarpi og sjónvarpi i vetur. Sjónvarpið mun sýna meira af fyrir vetur islenzku efni á föstudögum en verið hefur hingað til. Einnig verður meira um islenzkt efni i sjónvarpi á laugardögum, sunnudögum og mánudögum, en verið hefur áður. Sú nýjung verður hjá sjónvarpinu að skákkennsla verður tekin upp og yfirlitsþættir um störf alþingis. Fjárhagur hljóðvarps og sjón- varps er heldur bágborinn og þess vegna ekki hægt að sýna eða gera efni af dýrara taginu. —bM Róðherra sniðgengur félög lyfjafrœðinga — heimilar flutning apóteks ón umsagnar félaganna sem skylt er samkv. lögum Magnús Kjartansson heilbrigð- ismálaráðherra hefur heimilað flutning á apóteki KEA á Akur- eyri, án þess að leita fyrst álits Apótekarafélagsins og Lyfja- fræðingafélagsins, eins og skylt er samkvæmt lögum. Kaupfélag Eyfirðinga er aö byggja mikiö verzlunarhús i mið- bænum á Akureyri. bangað á Stjörnuapótekið að flytja, en þaö er i eigu kaupfélagsins. Apó- tekið hefur verið hingað til i sömu byggingu og Hótel KEA. Verzlun- arhúsið nýja stendur skammt frá Akureyrar-apóteki, hinum megin viö götuna. Samkvæmt 6. grein lyfsölulaga veitir ráðherra heimild til stofnunar lyfjabúöa og um flutning á þeim. Leyfið á ráö- herra að veita að fenginni um- sögn Lyfjafræðingafélags fslands og Apótekarafélags íslands. begar KEA óskaði eftir leyfi tiiað flytja Stjörnuapótek i hið ný ja hús veitti Magnús Kjartansson hið umbeðna leyfi, án þess að nefna það við fyrrgreind félög. Sverrir Sigurðsson, formaður Apótekarafélagsins vildi litið ræða málið þegar Visir hafði tal af honum. Hann staðfesti þó að aldrei hefði verið farið fram á umsögn félagsins um flutninginn. Taldi hann það einsdæmi að apó- tek fengi að flytja starfssemi sina svo til gegnt öðru apóteki. Er urg- ur i apótekurum og lyfjafræðing- um vegna ráðrikis ráðherra. — SG Starfaði í sendiráðinu hér í R.vík — féll fyrir sprengjum sem féllu á franska sendiráðið í Hanoi Pierre Susini, sem lézt af völdum brunasára á sjúkrahúsi i Paris i fyrrinótt, hafði á 28 ára ferli sinum sem franskur diplómat m.a. starfað við franska sendiráðið hér i Reykjavik. Hann hafði starfað i Hanoi siðan janúar 1971, þegar hann særöist i sprengjuárás Banda- rikjamanna 11. okt., þegar ein sprengjan hæfði aðsetur frönsku sendinefndarinnar. Susini var formaður sendinefndarinnar. 1 þau 28 ár, sem Pierre Susini hafði starfað við franska utan- rikisráðuneytið, hafði hann meðal annars verið við sendiráð Frakka i Ankara, Reykjavik, Belgrad, Beirut, Damaskus og Kairó. — Hann var fimmtugur að aldri. Noröur-Vietnamar fullyrtu aö þaö hefði veriö sprengja frá bandariskum sprengjuflugvél- um, sem hæft hefði dvalarstað frönsku sendinefndarinnar. Opinber tilkynning hefur nú verið send út frá Pentagon, aðalstöðvum yfirstjórnar Bandarikjahers, — að undan- gengnum yfirheyrslum yfir flugmönnum, sem þátt tóku i sprengjuárásinni: „Allar upplýsingar benda til þess, að það hafi verið banda- risk sprengja, sem hæfði frönsku sendinefndina”, segir i yfirlýsingunni. Talsmaður i Pentagon, Jerry W. Friedheim að nafni, sagði, að likur bentu allar til þess, að 500 punda sprengja úr einhverri af þeim 24 flugvélum, sem send- ar voru frá flugmóðurskipinu, Midway, hafi staöið á sér og ekki losnað við flugvélina, fyrr en hún tók snögga beygju frá skotmarkinu. —GP „Hann pabbi setti þennan stóra lista hérna af þvi það flæddi bara inn á gólf Ferjubakka 14. útskýrði þessi ibúi að BURT MED ASBEST-ÞÖK BLOKKANNA FIMM..." — Vísir birtir fyrsta lið samnings Framkvœmdanefndar og íbúanna í Breiðholts-blokkunum „bað væri gaman ef Fram- kvæmdanefnd byggingaráætlun- ar vildi svara þvi, hvers vegna hún setti ekki sömu fyrirmyndar- þökin á blokkina, sem byggð var fyrir borgina um leið og þær, sem byggðar voru yfir okkur. A öllum þeim blokkum, sem Fram- kvæmdanefndin hefur byggt frá þvi þá, eru járnþök”, segja þeir, sem eiga sæti i blokkaráði. „Við þykjumst raunar vita svarið: asbest-þökin á okkar blokkum gáfu alls ekki nógu góða raun, frekar en við var að búast. Reynslan af asbest-þökum hefur aldrei verið góð hérlendis”. Og það sem ibúar blokkanna fimm i Breiðholti hafa við þökin að athuga er það að þau leka. „Asbest-plöturnar á þökunum voru byrjaðar að springa áður en flutt var inn i blokkina. Og þá sýndi það sig lika strax, hvernig sú „tilraun” gafst, að fóðra ekki undir. bað lak inn á ganga og inn i ibúðir”, segir biokkaráðiö. Og þeir i ráðinu rifja jafnframt upp þegar fyrst snjóaði eftir að flutt var inn I blokkirnar: „bá fennti langt inn undir þakplöturn- ar, og það gefur auga leið, hvaða afleiðingar það hafði i för með sér. G.b. sendi þá vinnuflokk hingað uppeftir vopnaðan skófl- um, og var snjónum skóflað und- an þökunum og mokað i sorptunn- urnar. Og þvi næst var troðið svampi inn undir þakskeggin — og svo einhverju kitti um vorið”. „beir F.b.-menn kalla það „þumalfingurs-aðferðina”, sem beita þarf, þegar af og til reynist nauðsynlegt, að herða á skrúfun- um, sem festa plöturnar á þak- inu”, segir einn i blokkaráðinu næst. „bumalfingurs-aðferðin er það, þegar ekki má skrúfa of fast og ekki of laust, að þvi er F.b. út- skýrði fyrir okkur”. Ekki liggur ljóst fyrir, hver kostnaðurinn yrði við áð taka upp þökin á blokkunum. En þegar kostnaðartalan var áætluð fyrir liðlega tveim árum reyndist hún vera i það minnsta milljón við hvert þak, að þvi er blokkaráðið upplýsir. Halda hvorki í veöri né vindi „bað má segja að þessar blokk- ir okkar haldi hvorki i veðri né vindi”, tók einn blokkaráðs- manna til máls. „bannig er t.d. að gardinurnar i svefnherbergi okkar hjóna leika fyrir vindinum, þó svo aö glugginn sé vandlega lokaður. bað er svo óþétt með- fram gluggunum. Og viöa hefur vatnsstraumurinn inn meö glugg- unum farið illa með gólfin og gólf- ábreiður. Og það er ekki aðeins með gluggunum, svaladyrum og þak- inu, sem lekur — útveggirnir leka lika. Einkum vill vætla inn þar sem steinn og timbur mætist. Og sagginn er viða taisverður”. „Og hvað hefur Framkvæmda- nefndin gert til úrbóta?” „Ákaflega litið. Klistrað ein- hverju svörtu kitti hér og þar — en ennþá er langur vegur frá að ráðin hafi verið bót á lekanum. Og eins má minna þá á að skila gluggalistunum, sem þeir tóku með sér frá okkur i vor svo viða. Eigi ekki að ljúka verkinu viljum við heldur hafa listana en ekki neitt. bað bætir ekki úr skák að vera án listanna”. Málningin fór sina leiö Hér á undan hefur verið vikið litillega að þeim göilum, sem heyra undir fyrsta liðinn i samn- ingi þeim, sem F.b gerði við ibúðareigendurna i desember 1969 — svo fljótlega eftir að flutt var inn i blokkirnar. En fyrsta lið samningsins hefur ekki að fullu verið gerð skil i þessu fréttakorni. Enn er t.d. ó- nefnt sjötta atriðið, en þar er samið um að svalahandriðin verði máluð og þar sem málning hefur flagnað af. „brátt fyrir að um þetta atriði hafi verið samið, hefur málning eða penslar frá F.b. ekki sézt hér ennþá”, segir blokkaráðið. „Og við erum orðin geysilega leið á svalahandriðun- um og húshliðunum, þar sem málningin fauk bókstaflega sina leið á fyrstu mánuðunum”. — bJM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.