Vísir - 22.12.1972, Blaðsíða 11
íslenzkir stúdentar í fyrsta
skipti í HM í handknattleik!
liðið heldur utan 27.
—Viö höldum til Svi-
þjóöar til þátttöku i
heimsmeistarakeppni
stúdenta i handknattleik
27. desember. Við
leikum viö núverandi
heimsmeistara
stúdenta, Tékka, daginn
eftir, 28. desember —
siöan við Júgóslava 29.
desember og við Alsir-
búa 20. desember. Þegar
viö erum búnir að vinna
þessi lönd fáum við svo
aö vita um áframhaldið i
desember og leikur í riðli með Tékkóslóvakíu, Júgóslavíu og Alsír
Hinn kunni leikmaður,
Bjarni Jónsson, sem nú
stundar nám i Danmörku og
leikur meö KFUM-Árósa i
handknattlcik, er væntan-
legur lieim i jólafri. Mögu-
leikar eru á þvi, að hann leiki
með sínu gamla félagi hér,
Val, i 1. deildarkeppninni —
einn eða tvo lciki, þá gegn ÍR
og FH. Iiins vegar er ekki
alveg vist hve langt fri
Bjarni fær og nokkrar likur á
að 1. deildarkeppnin hefjist
ekki á tilsettum tima eftir
áramótin vegna utanfarar
stúdenta, svo þetta er i deigl-
un ni.
Bjarni átti stórgóðan leik
nýlega með liði sinu gegn
KFUM Fredericia og birtust
þá myndirnar hér að ncðan
af honum i BT. Árósaliðið
sigraði með 22-17 og skoraði
Bjarni þrjú af mörkunum. A
annarri myndinni reynir
Bjarni markskot — á hinni er
hann i vörn, en hann er jafn-
vigur á báðum sviðum.
általiöa úrslitakeppn-
iuni, sagöi Valdimar
Örnólfsson, iþrótta-
kennari viö Iláskólann,
og aðalí ararstjóri
stúdentaliösins, þegar
viö ræddum við hann i
gær, og var ekki alveg
laust við, að smá
glettnisglampa brigði
lyrir i auguin hans.
Þetta er i fyrsta skipti, sem
islenzkir stúdentar taka þátt i
heimsmeistarakeppni stúdenta i
handknattleik. En við höfum áður
tekið þátt i heimsmeistaramótum
i öðrum iþróttagreinum — til
dæmis körfubolta 1968, og ég man
eftir þvi, að ég keppti hér á HM-
mótum stúdenta i alpagreinum
héráðurfyrr, bætti Valdimar við.
Keppt er i fjórum riðlum i
keppninni i Sviþjóð nú og ísland
hefur greinilega lent i erfiðasta
riðlinum — með þjóðum, sem
voru i fyrsta og öðru sæti á sið-
ustu Olympiuleikum, Júgóslaviu
og Tékkóslóvakiu, og i landsliðum
þeirra þá léku nokkrir stúdentar.
En engin keppni er fyrirfram
vonlaus og íslendingar hafa oft
náð góðum árangri i keppni við
Tékka i handknattleik. Keppni i
úrslitum hefst 2. janúar og
mótinu i Sviþjóð lýkur 7. janúar.
tslenzka liðið hefur æft vel að
undanförnu undir stjórn Gunnars
Kjartanssonar. Það hefur leikið
nokkra leiki við sterkustu félags-
liðokkar, Fram, FH og Viking, og
náð góðum árangri. Þær reglur
gilda i sambandi við val á liði, að
þau lönd, sem hafa innan við 5000
stúdenta mega velja leikmenn,
sem eru nemar t.d. i menntaskól-
um og kennaraskólum og hefur
það verið notað hér i sambandi
við einn leikmann — Vilberg Sig-
tryggsson, Ármanni.
tslenzka liðið er sterkt og i þvi
margir kunnir landsliðsmenn
eins og Ólalur H. Jónsson, Val,
Vikingarnir Jón Hjaltalin
Magnússon og Einar Magnússon,
Birgir P’innbogason, markvörður
i FH, Jón Karlsson, Val, svo
nokkrir séu nefndir. Flestir ieik-
menn liðsins hafa leikið unglinga-
landsleiki.
Auk þeirra, sem áður eru
nefndir, fara þessir leikmenn til
Sviþjóðar. Björn Jóhannesson,
Ármanni, Þórarinn Tyrfingsson,
ÍR. Steinar Friðgeirsson, KR,
Geir Friðsteinsson, KR, Gunr.ar
Gunnarsson, Þrótti, Hilmar
Sigurðsson, tR, og Geir
Thorsteinsson, markvörður i tR.'
Með i förinni verður Karl
Jóhannsson, dómari, sem dæma
mun leiki i mótinu, auk þess, sem
hann verður Valdimar til halds i
sambandi við liðið ytra. Gunnar
þjálfari Kjartánsson kemst ekki
með liðinu af persónulegum
ástæðum, og Hilmar Björnsson,
fyrrum landsliðsþjálfari, sem
stundar nám i Sviþjóð, er kominn
heim i jólafri og mun þvi ekki
annast liðið ytra eins og fyrir-
hugað hafði verið.
Standa einhuga með
stjórn Manch. Utd!
_ . . . ® . »_• iu.. i:i «n/ib IMrl óöni
—Stjórn Manch. Utd.
skipti sér aldrei af at-
höfnum Frank O'Farrell
þá 18 mánudi, sem hann
var framkvæmdastjóri
félagsins, sagöi Sir Matt
Busby á fundi meö leik-
mönnum félagsins í gær.
Þá var fundurog æfing hjá
félaginu og mættu
stjórnarmenn og leikmenn
Þetta var i lyrsta skipti, sem
Busby kom á æfingu hjá félaginu
siðan O'Farrell tók þar við
störfum. Hann sagði leik-
mönnum, að stjórnin mundi velja
liðið og hann hefði þar aðallega
hönd i bagga. Þeir Billy Foulkes
og Pat Crerand, áður kunnir leik-
menn með liðinu og báðir EM-
meistarar með þvi 1968, annast
þjálfun þar til nýr íramkvæmda-
stjóri verður ráðin.
Þá sagðist Busby vonast til að
sjá góða leiki hjá liðinu i Iram-
tiðinni — oftáður hefði hann verið
ánægður með leiki þess, jafnvel
þótt það hefði tapað.
Á æfingunni sagði Bobby
Charlton, lyrirliði Manch. Utd. á
leikvelli, að leikmenn liðsins
stæðu einhuga að baki stjórninni i
sambandi við aðgerðir hennar
lyrr i vikunni.
Sá orðrómur gengur nú meðal
blaðamanna i Fleet Street i
Lundúnum, að Tommy Docherty,
. þjálfari skozka landsliðsins, verði
kominn i hinn ,,heita” stól lram-
kvæmdastjóra Manch. Uld, áður
en árið er á enda.
t gær keypti Aston Villa —
Birmingham-liðið i 2. deild —
hinn kunna bakvörð Derby
County, John Robson, fyrir 90
þúsund sterlingspund. Robson
hefur leikið sex sinnum i enska
landsliðinu,leikmenn 23ja ára og
yngri, og auk þess i úrvalsliði
deildarinnar ensku Hann helur
hins vegar litið leikið með Derby
siðan David Nish var keyptur frá
Leicester. Robson er 22ja ára og
hefur oft sézt hér i sjónvarpinu i
leikjum Derby — velbyggður, há-
vaxinn, dökkhærður piltur.
Austurrísku kvenkuldaskórnir fró
PANZEL
úr vönduðu svörtu
og brúnu leðri
með hlýju fóðri og
sólum sem
eru góðir í hólku
loksins komnir
Gjöf sem örugglega
vekur ónœgju
Ath. Kragann ó
skónum mó hvort
heldur hafa uppi
eða brjóta niður
Póstsendum SAMDÆGURS
EGILSGÖTU 3
SÍMI 18519 -
Pósthólf 5050
DOMUS MEDICA,
Munið þœgindi í allri umferðinni.Nœg
bílastœði og fyrir utan umferðarhnútana