Vísir - 04.06.1973, Síða 5
Vfsir. Mánudagur 4. júni 1973.
5
AP/INITB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Verður forsetinn
sóttur til saka?
Æ meiri kröfur eru nú
gerðar tii þess, að rann-
sóknamefnd Bandaríkja-
þings kanni Watergate-
málið niður í kjölinn, og
einkanlega hafa þær hlotið
aukinn byr eftir síðustu
skýrslur, sem benda til
þess, að Nixon forseti sé
viðriðinn tilraunirnar til að
hylma yfir málið.
Margir öldungadeildarþing-
mannanna, sem starfa i nefnd-
inni, telja, að yfirheyra beri hið
bráðasta öll helztu vitni málsins
til þess að fá á hreint, hvar
Bandarikjaforseti stendur i
málinu.
Eitt aðalvitnið, John Dean,
fyrrum lögfræðilegur ráðunautur
Nixons, ku hafa sagt það við
Washington Post og (New York
Times flytur lika sömu söguna),
að forsetanum hafi veriö kunnugt
um það, -að mönnunum, sem
brutust inn i Watergatebygging-
una, hafi verið greitt fé til aö
þegja. — Dean heldur þvi fram,
að þessar tilraunir til aö hylma
yfir málið, hafi borið á góma á 35
fundum starfsliðs Hvita hússins á
timabilinu frá janúar til apríl, og
Nixon hafi setið þessa fundi alla.
John Dean var eins og kunnugt er
rekinn i aprilmánuði, en skömmu
áður hafði hann lýst þvi yfir, að
hann mundi ekki sætta sig við að
verða sektarlamb i málinu.
Hvita húss-liöið hefur marg-
sinnis visað á bug öllum að-
dróttunum um, að forsetinn væri
viðriðinn Watergatemálið, og er
þvi haldið fram, að þarna sé
markvisst unnið að þvi spilla
fyrir áliti forsetans innanlands
sem utan.
Paul McCloskey, fulltrúa-
deildarþingmaður demókrata,
hefur riðið á vaðið til þess aö
hefja umræður um Watergate-
máliö i fulltrúadeildinni.
Samkvæmt stjórnarskrá landsins
er það fulltrúadeildin, sem
ákveður, hvort sækja skuli
forsetann eða einhvern ráöherra
stjórnarinnar til saka.
McCloskey vill láta taka máliö
fyrir á miðvikudag. I bréfi segir
hann, að það sé ástæða til að
halda, að Nixon forseti hafi
hindraö rannsókn málsins, og er
það harðasta gagnrýnin, sem
Nixon hefur sætt af hálfu þing-
manns.
McCloskey vill, að fulltrúa-
deildintaki til umræðu, hvernig
hún eigi að bera sig að við að setja
nýja menn i embætti forsetans og
ráðherranna, ef til þess þyrfti að
koma.
John I)ean segir, að Nixon hafi setið fundi, þar sem Watergatemálið
var rætt.
Reif þökin af 10 húsum
Rússnesk þota hrapaði á sýningarflugi
Frönsk-rússnesk
samstarfsnefnd hóf i
morgun rannsókn á
flugslysinu i Gousain-
ville i Frakklandi i
gærdag.
Rússneska yfirhljóð-
fráa þotan Tupolev 144
hrapaði þar til jarðar i
sýningarflugi vegna
flugsýningarinnar i
Paris.
Ahöfnin, sex menn, beið bana
og niu manns fórust i ibúða-
hverfi i Gousainville, þar sem
flugvélarflakið kom niður. 28
slösuðust, þegar risaflugvélin
reif þökin af einum tiu húsum og
kom niður á auðum skóla.
Eitt málmstykkið úr flugvél-
inni, fleiri smálestir að þyngd,
lenti á oliubfl, sem sprakk i loft
upp, og kviknaði i nokkrum
húsum. Rafmagn fór af bænum.
Borgarstjórinn i Gousainville,
sem hafði veitt leyfi til fiug-
sýningarinnar yfir ibúða-
svæðum kringum flugvöllinn Le
Boujget, verður látinn svara til
saka fyrir slysið. Hann hefur þó
áður sett sig á móti slikum
sýningum. — Varnarmálaráð-
herra Frakklands, Robert
Galley, veitti leyfi til þess, að
flugsýningunni yrði haldið
áfram eftir slysið.
Um 300.000 áhorfendur á flug-
sýningunni voru vitni að þvi,
Þessi mynd var tekin af TU-144, rússnesku yfirhljóðfráu þotunni, þegar hún var að lenda á Boujget-flug-
vellinum fyrir llugsýninguna.
þegar TU- 144 þotan hrapaði.
Flugstjórinn var á leið til lend-
ingar, en skyndilega hækkaði
þotan flugið i stað þess að lækka
það i átt til vallarins. í nær 500
metra hæð ofreis vélin allt i
einu, vinstri vængurinn rifnaði
af og siðan fylgdi sá hægri á
eftir og flugvélin stóð skyndi-
lega i ljósum logum.
Ekkert liggur fyrir, sem
varpað gæti ljósi á, hvað slysinu
olli. Lögreglan hefur leitað i
brakinu og rústunum að „svarta
kassanum”, sjálfritanum, sem
skráir niður staðreyndir um
flug vélarinnar, en hann hefur
ekki fundizt.
Stríðsföngum
hœtt við
sjólfsmorðum
Bandariskur flugliðsforingi,
sem látinn var laus i febrúar eftir
að hafa setið 7 ár i striðsfanga-
búðum i Norður-Vietnam, fannst
látinn á sunnudag.
Lögreglan fékkst ekki til að
skýra frá þvi, hvort um sjálfs-
morð heföi verið að ræða, en
upplýsti, að hjá lfkinu hefðu
fundizt fleiri bréf, sem hinn
látni hefði skilið eftir sig.
Aðeins tveim dögum áður hafði
einn yfirmanna þeirrar deildar
varnarmálaráðuneytisins, sem
vinnur að endurhæfingu og aðstoö
við heimfengna striðsfanga, skýrt
frá þvi, að fyrrverandi striðs-
fangar gætu átt við slik vandamál
að striða, að knúið gæti þá til
sjálfsmorðs.
Hver keppir
við
Fischer?
Wolfgang Uhlmann frá
V-Þýzkalandi, Bent Larsen frá
Danmörku og Viktor Korchnoi frá
Sovétrikjunum unnu allir sinar
skákir i fyrstu umferð alþjóðlegs
skákmóts, sem hófst i Leningrad
á sunnudag.
Þrir efstu menn þessa móts
munu hljóta rétt til áfram-
haldandi keppni um, hver skora
muni heimsmeistarann Bobby
Fischer til einvigis 1975.
Uhlmann vann Cuellar frá
Colombia, Larsen vann Rukavina
frá Júgóslaviu og Korcnoi vann
Tukmakov. — Byrne gerði jafn-
tefli við Gligoric, Huebner jafnt
við Taimanov og Jan Smejkal frá
Tékkóslóvakiu gerði jafntefli við
heimsmeistarann fyrrverandi,
Mihail Tal. — Aðrar skákir fóru i
bið.
Teflir Fischer aftur?
Vinir hans óttast, aö trúarhiti og einræna einangri Fischer frá
skákinni.
Vinir heimsmeistar-
ans i skák, Bobby
Fischers, hafa þungar
áhyggjur af þvi, hvort
hann muni nokkurn tima
tefla aftur, segir stór-
blaðið ,, New York
Times” i dag.
Blaðið hefur það eftir vinum
Fischers, að hann lifi einsetulifi i
ibúð i Pasadena i Kaliforniu.
Hann hittir fáa og neitar öllum
viðtölum. 011 fyrri loforð hans um
að verja fljótlega og oft heims-
meistaratitilinn eru horfin út i
veður og vind.
Hann hefur ekki þegið tilboð um
1 milljón dollara fyrir einvigi i
Las Vegas, —þar sem and-
stæðingur hans átti að fá 400
þúsund dollara). Hefur Fischer
ekki svarað þessu tilboöi Hilton-
samsteypunnar, sem hafði gefið i
skyn, að andstæðingur hans kynni
að verða Rússinn Boris Spassky,
sem tapaði titlinum I hendur
Fischer i haust sem leið.
Vinir Fischers eru bornir fyrir
þvi, að Bobby sé'með hugann við
trúmál og einangri sig af þeim
sökum.
„Bobby er ekki með sjálfum
sér. Hann er orðinn einrænn og
tortrygginn, og sérstaklega þá i
garö dagblaðanna. Hann hreint
og beint óttast blöðin.— Það er
ills viti, að hann les ekki skákritin
og fylgist ekki með nýjungum i
skáklistinni”