Vísir - 04.06.1973, Síða 9

Vísir - 04.06.1973, Síða 9
Visir. Mánudagur 4. júni 1973. 9 cTVIenningarmál Börn í bókum EINN OG SAMI EINAR? 2: • Eftir Ólaf Jónsson Einar Þorgrimsson: ÓGNVALDUR SKIÐASKALANS Bókaútgáfa Einars Þorgrimsson- ar 1972. 124 bls. Guðjón Sveinsson: ÖRT RENNUR ÆSKUBLÓÐ Bókaforiag Odds Björnssonar 1972. 194 bls. Einar nefnist sögu- hetjan i þessari bók Ein- ars Þorgrimssonar, en útgefandi er samnefnd bókaútgáfa. Ætli það sé ekki allt einn og sami Einar? Allténd er sagan sögð i fyrstu persónu. Einar Þorgrimsson er kornung- ur höfundur, ekki hálfþritugur, en hefur þó gefið út tvær skáldsögur EINAR ÞORGRÍMSSON á undan þessari árið 1970 og 1971. Leynihellirinn og Leyndardómur eyðibýlisins nefnast þær sögur. Án þess að ég viti neitt um það finnst mér engu að siður óhætt að geta sér þess til að þessar sögur séu allar samstæðar eftir þeirri algengu formúlu drengjabóka að segja margar i röð frá sömu söguhetju eða söguhetjum, einu ævintýri þeirra i hverri bók. En þótt svo væri ekki er Ógnvaldur skiðaskálans til marks um bók- menntasmekk og rithátt sem augljóslega hefur mótazt af al- gengum aðferðum unglinga-reyf- aranna sem ár hvert fljóta i strið- um straum yfir barnabóka- markaðinn. Sögur sem selja hver aðra A þessum markaði er það sem sagt algengur háttur að sémja heila sagnaflokka, oft mjög lang- vinna, um sömu söguhetjurnar. Þetta stafar vafalaust einkum af markaðsástæðum, af þvi að hinir ungu lesendur taka tryggð við söguhetjur, sem þeir eitt sinn hafa kynnzt og fallið vel við og vilja þá gjarnan fylgjast lengur með þeim, en þar með selja slikar sögur hver aðra með næstum sjálfvirku móti. En þvi er ekki að neita að þessi aðferð veitir lika ýmsa listræna úrkosti. Barna- og unglingasögur eru jafnan stuttar og þvi ekki unnt að koma nema takmörkuðu söguefni við i hverri þeirra. I seriusögum er kynningu söguhetjanna aflokið i eitt skipti fyrir öll I fyrstu bók og siðan unnt aö ganga umyrðalaust á söguefn- in hvert af örðu meðantil vinnst Þar sem söguhetjurnar eru jafn- an börn og unglingar virðist llka tilvalið að láta þær taka út vöxt og þroska bók fyrir bók, nokkurn- veginn jafnóöum lesendum þeirra. Það er þannig algengt i stúlknasögum af þessu tagi, en seriusögurnar eru langoftast stranglega kynbundnar, að þær fylgi söguhetjunum eftir frá þvi aö þær eru blautabörn eða þvi sem næst unz þær eru einum sjö, átta b'ókum siðan uppkomnar, fullþroska meyjarkomnar fast að fullsælu hjónabands. En þá eru lika úti ævintýri! Það kann að vera að ýmsar al- varlega stilaðar barnabækur not- færi sér að einhverju leyti þessa og aðra bókmenntalega úrkosti sem seriuformið veitir. En hitt er enn algengara að það sé einungis haft til vinnusparnaðar, slikar sögur notfæri fjarska einhæfar mannlýsingar, rétt svo að hægt sé að þekkja hetjur þeirra i sundur, bók fyrir bók, sem jafnframt endurtaka með sama mekaniska hættinum sömu eða svipuð frá- sagnarefni, oftast þá af saka- málatagi. Sá er að minnsta kosti háttur hinna erlendu unglinga- reyfara sem hér ganga jafnan margir I senn i serium á bókamarkaðnum og hafa lengi gengið. Vaskir piltar og veru- leikinn 1 seinni tið eru að koma upp hér á landi höfundar sem leggja stund á þessa sagnagrein, að nafninu til með innlendum söguefnum, hetj- um og umhverfi. Þó aldrei nema Ógnvaldur skiðaskálans sé kannski sjálfstæð saga finnst mér hún tilvalið dæmi um slikar sög- ur, fjarska frumstæður reyfari að allri sinni gerð. Efnið er viður- eign við strokufanga á fjöllum uppi, sagan gerist á meðal skóla- bekks i skiðaferð sem lendir þá i tæri við þessa þokkapilta, sögu- hetjur þrir vaskir piltar i bekkn- um, Einar, Gummi og Tóti. En hér er aldrei um að tala eigin- legar mannlýsingar, hvorki drengjanna sjálfra né óbóta- manna i sögunni, aöeins tillærðar manngervingar til að framfleyta öldungis ólikindalegri atburðarás að reyfarhætti,ritháttur sögunnar að sinu leyti jafn frumstæður og söguefnið. Annar ungur höfundur, Guðjón Sveinsson, svo sem tiu árum eldri en Einar Þorgrimsson, hefur á undanförnum árum birt einar fjórar skáldsögur af þessari gerð, sakamálasögur i islenzku um- hverfi sem allar snúast um sömu piltana sem sýna sig sögu eftir sögu hina slungnustu spæjara og uppljóstrara alls konar afbrota. Guöjón Sveinsson er i þessum sögum leiknari höfundur en Einar Þorgrimsson er enn orðinn: þær sem ég þekki eru hreint ekki illa geröir réyfarar eftir simum hætti. Þeir eru að sönnu öldungis firrtir efnivið veruleika, kveikju skáldskapar. En visast er að sög- ur þessar veiti ungum og óreynd- um lesendum þokkalega afþreyf- ingu á meðan þær vara við. Gera þær þá nokkrum neitt til? Það held ég nú fráleitt. En þær gera svo sem ekkert gagn, ekki heldur þó stundum sé reynt að klistra einhvers konar siðalærdómi við svona lagaðar sögur. Notagildi þetta felst einvörð- ungu I spennu atburða á meðan maöur les, forflótti frá veru- leikanum. Lifsflótti slikra sagna verður reyndar enn tiltakanlegri en ella þegar þær eru komnar hingað heim og reynt að fella formúlur reyfarans að efnivið dagsdag- legra staðhátta, heimamanna- legra mannlýsinga. En þótt margt sé talað um okkar eigin unglingavandamál dettur engum unglingabókahöfundi i hug, svo vitaö sé, að sem ja sögur sinar um þau, til dæmis, gjarnan sakmála- sögu, reyfara með öllu sem þvi tilheyrir — en reyna þó til að handfjalla efnivið veruleikans sjálfs. Unglingar eiga vissulega rétt á reyfurum við sitt hæfi eins og aörir. En reyfarar eru lika bókmenntir. Byrjað frá byrjun Ný saga Guðjóns Sveinssonar frá i haust, ört rennur æskublóð, er á hinn bóginn tilraun til að brjótast út úr vitahring unglinga- reyfaranna — „skáldsaga, ætluð unglingum og æskufólki, vinum þeirra og vandamönnum”, eins og segir á titilsiðu. Eitt af því sem eftirtekt vekur við söguna er, þvi miður það hversu litla starfs- þjálfun sagnagerð af þvi tagi sem nú var lýst virðist fela i sér. Guðjón Sveinsson er þrátt fyrir allt uppkominn höfundur með fjórar frumsamdar skáldsögur að baki. En þegar kemur að annars konar efnum koma tillærðar for- múlur unglingareyfarans að svo sem engu gagni. Það verður að byrja alveg frá byrjun. ört rehnur æskublóð segir frá ungum pilti i sjávarþorpi, Loga, sem orðinn er leiður á skólanum, þráir siglingar og svaðilfarir, honum sinnast við félaga og for- eldra sina, ræður sig i skiprúm á fiskibát, mannast á sjónum og lendir i ýmsum ævintýrum heima og erlendis, skiptapa siðast, en bjargast heill af og reynslunni rlkari. Hér er óneitanlega um söguefni að ræða, og bókin ber það að ýmsu leyti með sér að höfundin- um er létt um að segja frá. En mest minnir sagan á ólokið upp- kast þar sem sifelldlega stangast á þörfin á skáldlegri úrlausn söguefnisins og þörf barnasög- unnar fyrir einfalda, helzt nokk- uð krassandi atburði, og einfaldar svart-hvitar menngervingar i mannlýsinga stað, auðnuminn siðferðisboðskap. í rauninni veltur sagan öldung- is á lýsingu Loga, hans innra manns frekar en nokkurs sem fyrir hann ber, að hún verði trú- verðugur miöill atburðarásar og annarra mannlýsinga I sögunni. Ótvlræð söguefni, frumatriði vel- virkra atburða, umhverfis, mannlýsinga i þessari bók, fara meira og minna forgörðum af þvi að þetta tekst ekki að svo komnu. Þá er siðapredikun, tilfinninga- semi, einföld sögubrögð reyfar- ans brátt á næsta leiti — eins og sjá má til dæmis á lýsingu Jörundar, félaga Loga, og sam- skiptum þeirra i sögunni annars vegar, hins vegar foreldra hans og hins ógæfusama eldra bróður. En þessleg er sagan að með miklu meiri ögun og yfirvegun efnisins meiri verklegri kunnáttu að segja sögu rétt og slétt, hefði hún getað orðiö prýðilega nothæf skáldsaga. Þá er bágt ef rikjandi smekkur og viðhorf á markaði unglingabók- mennta veröa beinllnis til aö spilla fyrir silkum vinnubrögð- um. Allt um það má vel vera að Guðjón Sveinsson sé kominn á rétta leið með þessari sögu. Hún vill að minnsta kosti veröa eitt- hvaö annað en venjulegur iönaö- ar- og verzlunarvarningur á markaöi afþreyingar. ]\EI, I\t ÞARFTU adidas i‘othoi;iask'o llverúi meira úrval: WORLII CIJP MEXICO CITY 3000 IXTER REAL WEMRLEY S.L. LAPLATA JUAIOR STAIÍ PORTVAL HLEMMTORGI sími 14390 POSTSENDUM

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.