Vísir - 04.06.1973, Qupperneq 11
EIHTRBIIISKII REIKHIKEI
prentar a venjutegan papft/r
konstant
geymsfuverk
ftjótandi komma
f/fit 09 tétt
»erd kr, 33,800
RICflMAC ÍB RHKNIVfl fYRIfl YIUR
SKRIFS TOFUVEL AR H f~
•% + =x-^- ~
Hv*rfi»flötu:
i33 Slmi 20560
Frjálsar í USA
Heimsmethafinn A1
Feuerbach varpaði
kúlunni 21,26 metra á
bandariska meistara-
mótinu, sem haldið er i
Wichita i Kansas. Önnur
helztu úrslit voru, að A1
Lanier sigraði i lang-
stökkinu, stökk 8,04, Jeff
Bennet hlaut 8040 stig i
tugþrautinni, Gary
Ordway kastaði
kringlunni 61*39 Dwight
Stones stökk 2.22 metra
i hástökki og i þristökk-
inu sigraði John Craft
með 16,81 metra stökki.
Brian Oldfield sigraði
i kúluvarpi í keppni at-
vinnumanna, sem fram
fór i Louisville i
Kentucky á laugar-
daginn, hann kastaði 21
metra. Jim Ryan sigraði
i einnar milu hlaupi en
timinn var ekki neitt til
að hrópa yfir „aðeins”
4,01.9., þetta var þó
þriðji sigur hans yfir
Eþiópiumannimum
Keino. Lee Evans vann
440 yarda hlaupið á 47,8
og stangarstökkið Bob
Seagren, með þvi að
stökkva 5,26 metra.
Stjörnuleikur Ársœls
og jafnt við Belga
— Það var snilldarleikur
Arsæls Sveinssonar, sem
tryggði jafntefli i leiknum
við Belgíumenn í Evrópu-
keppninni á laugardaginn.
— „Þetta er einhver bezta
markvarzla, sem ég hef séð
fyrr og síðar" sagði Hregg-
viður Jónsson fararstjóri,
þegar við ræddum við hann
símleiðis.
Belgíumennirnir eru
flestir atvinnumenn og til
dæmis leika fjórir þeirra
með hinu þekkta liði And-
erlecht. Belgíumennirnir
þykja mjög sterkir hér og
hafa ítölsku blöðin mikið
rætt um þá sem líklega sig-
urvegara í Evrópukeppn-
inni.
Nýlega léku þeir við Luxem-
burg og unnu þá með hvorki
meira né minna en 8 mörkum
gegn engu en það var einmitt
Luxemburg, sem Islendingarnir
léku gegn i undankeppni Evrópu-
keppninnar og sigruðu á hagstæð-
ari markatölu.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn, þó Belgiumenn væru nokkuð
meira i sókn, en Islendingarnir
áttu þó nokkur tækifæri. Ottó
skaut laglega á mark Belgiu-
manna, en það var varið. Gunnar
Orn átti skot, sem fór rétt við
stöng og rétt fyrir lok hálfleiksins
komst Stefán i skotfæri, en
belgiski markvörðurinn varði.
Leikar voru jafnir i hálfleik, en
ekkert mark hafði verið skorað.
Belgar áttu meira i leiknum i
byrjun siðari hálfleiks, en þó náði
islenzka liðið nokkrum sóknarlot-
um. Þeir fengu til dæmis
aukaspyrnu á fyrstu minútum
siðari hálfleiks við vitateig Belga
og var þvi skoti naumlega bjarg-
að i horn.
Það byrjaði að rigna svolitið i
byrjun hálfleiksins og siðan kom
skýfall á 18. minútu og i nokkurn
tima eftir það höfðu Belgiumenn
töluverða yfirburði, enda gekk
Islendingunum illa að fóta sig i
hálkunni, og var vöilurinn eins og
rennibraut.
Þeir ná þó sókn á 20. minútunni
og þá var Gunnari brugðið við
vitateig Belga. Asgeir tók auka-
spyrnuna og lenti knötturinn i
vörn Belga — aftur til íslendinga,
sem skjóta aftur — aftur fer
knötturinn i belgisku vörnina og
aftur út og enn er skotið — en
boltinn þýtur rétt við markstöng-
ina.
A 25. minútu skora svo Belgar
mark.'Desmedt miðherji þeirra
fékk boltann eftir varnarmistök,
rétt við vinstra horn vitateigsins
og þaðan skýtur hann þrumuskoti
i gagnstætt horn marksins, sem
var gjörsamlega óverjandi fyrir
Arsæl.
Siðan kemur kafli Arsæls i
leiknum. Hann ver mjög glæsi-
lega skot á 27. minútu. Tvisvar
sinnum ver hann snilldarlega,
þegar Belgar eru komnir einir inn
fyrir vörnina eftir mistök og
bjargar i bæði skiptin. A 30.
minútu ver hann þrumuskot úr
þvögu og siðan á næstu minútu,
þegar einn Belginn er kominn i
gott færi og skýtur þrumuskoti,
þá gerir Arsæll sér litið fyrir og
kastar sér eins og tigrisdýr og ver
— stórglæsilegt. —
Eftir þetta fór heldur að glaðna
yfir islenzku piltunum og þeir fót-
uðu. sig betur á hálu grasinu.
Mark tslendinganna kom á 38.
minútu og bar það þannig að:
sóknarlota tslendinganna var
runnin út i sandinn og Asgeir var
um það bil 3 metra fyrir innan
vörn Belga, annar markvörður
þeirra ætlaði aö spyrna knettin-
um, en hittir hann svo illa, að
hann fer til Asgeirs, sem fer sér
að engu óðslega, leikur nokkra
metra að marki Belga, og þegar
hann er kominn að vitateig, þá
vippar hann knettinum yfir
markvörðinn, sem kemur hlaup-
andi út á móti — og markið var
staðreynd.
Eftir þetta var mikið fjör, og
meðal annars átti Leifur Helga-
son gott skot, sem var varið.
Leiknum lauk þvi með jafntefli 1
mark gegn 1, og óneitanlega mjög
ánægjulegur árangur og tvimæla-
laust einhver sá mesti i fjöl-
breytilegri sögu samskipta okkar
við útlönd á knattspyrnusviðinu.
Orslit i öðrum leikjum urðu
þessi:
England—Sviss 2-0
ttalia—Noregur 1-0
Rúmenia—A -Þýzkal. 1-0
Rússl.—Danmörk 1-0
trland—Búlgaria 0-2
V-Þýzkaland—Skotland 3-1
Austurriki—Tékkósl. 1-1
Við spurðum Hreggvið, hvað
hann héldi um horfurnar i leik ts-
lands við Sviss, en hann fer fram i
kvöld og er siöasti leikurinn i
ferðinni, en ef við vinnum hann,
þá eiga tslendingarnir góðar von-
ir með að ná 2. sætinu i riðlinum
og fara þá beint i lokakeppni
næstu Evrópukeppni, sem verður
i Sviþjóð á næsta ári.
Sama lið og lék á móti Englandi
lék á móti Belgunum, nema að
Leifur Leifsson fór útaf i hálf-
leik og nafni hans Helgason kom i
staðinn, einnig fór Logi útaf i
siðari hálfleik, en Guðmundur
Ingi kom i hans stað.
Liðið mun koma heim 6. eða 7.
júni, og hafa þeir allir það gott, og
er allur aðbúnaður til fyrirmynd-
ar.
m-----------►
islenzka unglingalandstiðið, sem
stendur i baráttunni á italiu þessa
dagana.
tít ad eignast