Vísir - 04.08.1973, Page 18
18
aUUWU
Umsjón: Jóhonn Örn Sigurjónsson
Stórmeisturum
mó ekki rétta
litla fingur
Almennur skákáhugi hefur
aukizt mjög eftir heimsmeistara-
einvfgiö og áhorfendur eru farnir
aö flykkjast á skákmótin. Sú varö
og raunin á þegar Evrópumeist-
aramótiö var haldiö i Eng-
iandifyrir skömmu, aögöngumiö-
ar seldut upp á svipstundu og fóik
stóö I löngum biörööum til aö
komast aö sýningarboröunum.
Sérstaklega var þaö Spassky,
sem dró aö sér athyglina, hann
tefldi i sinum gamla góöa stil og
fékk beztu útkomuna á 1. boröi
ásamt Gligoric. Þá þótti tafl-
mennska Karpovs áhugaverö og
hann hlaut flesta vinninga allra
keppenda á mótinu. Nú er vo
komiö aö Karpov skipar 2. sætiö á
heimslistanum á eftir Fischer og
hefur skotiö Spassky niöur i 3.
sætiö. t janúarmánuöi hefjast út-
sláttareinvigin I heimsmeistara-
kcppninni og þá cr aö vita, hvort
Karpov heldur áfram sigurgöngu
sinni, en á mótum undanfariö
hefur hann oröiö efstur, hvar sem
hann hefur teflt.
Eftirfarandi skák var talin ein
sú bezta á Evrópumeistarmótinu
og sýnir, aö ekki má rétta stór-
meisturunum nema litla fingur-
inn, þá taka þeir alla höndina.
Hvitt: Spassky Sovétrikin
Svart: Gheorghieu Rúmenia
Sikileyjarleikur.
1. e4 c5
2. Rf3 Rc6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 e5
6. Rd-b5 h6
(Sú leiö, sem svartur velur er tal-
in slæm, en Gheorghieu hefur án
efa ætlað sér að koma andstæð-
ingi sinum á óvart. Onnur leiö er 6. .. d6 7. Bg5a6 8. Ra3Be6 9. Rc4
Rd4 10. Bxf6 Dxf6 11. Rb6 og
hvitur hefur betra tafl.)
7. Rd6+ Bxd6
8. Dxd6 De7
9. Rb5!
(Endurbót á 9. Dxe—Kxe7 10. b3 d6 11. Ba3 Hd8, Zukerman: Sher-
win New York 1967).
9. Dxd6
10. Rxd6+ Ke7
11. Rf5+ Kf8
12. b3 d5
13. Ba3+ Kg8
14. exd5 Rxd5
15. Rd6 Hb8
16. Bc4 Be6
17. 0-0-0 Rf4
(Ef 17. ... Rc3 18. Bxe6 Rxdl 19.
Bxf7+ Kh7 20. Hxdl og vinnur.)
18. g3 Bxc4
19. Rxc4 Re2+
20. Kb2 b5
21. Hh-el bxc4
22. Hxe2 f6
23. He4 cxb3
24. cxb3 Kh7
25. Hc4
(Hvita staðan virðist tefla sig
sjálf, enda er svartur illilega á
eftir meö liðsskipan sina Og fyrr
eða siðar segir peðameirihlutinn
á drottningarvæng til sin.)
25. Hh-d8
26. Hxd8 Rxd8
27. Bc5 a6
(Eða 27. . ... Hb7 28. Ha4 Rc6 29.
Ha6 Hc7 30. b4 og svartur er
negldur niður.)
28. Kc3 Kg6
29. a4
(Lokin eru gottdæmium, hvernig
vinna ber unniö endatafl á sem
hreinlegastan máta.)
29. Kf7
30. Be3 Ke6
31. Hc7 Hb7
32. Hc8 Hd7
33. Bb6 Rb7
34. Ha8 Hd6
35. a5!
(Ekki 35 Hxa6? Rc5 og svartur
vinnur peðið aftur.)
35. Hc6+
36. Kb4 Rd6
37. Hxa6 Rc8
38. Kb5 Kd5
39. Ha8 Hc3
40. Kb4 Hc2
41. Be3 Gefiö.
Framhaldsdeildir gagnfræðaskóla.
Houstpróf 1973
Próftimi:
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Laugardagur
Prófgrein:
Þýzka
Danska, landafræði
Enska
20. ágúst kl. 9
21. ágúst kl.9
22. ágúst kl. 9
23. ágúst kl. 9
24. ágústkl.9
25. ágúst kl. 9
Stærðfræði
Efnafræði
Aðrar greinar
Prófin fara fram i Lindargötuskóla i Reykjavik.
Undirbúningsnámskeið hefjast i Lindargötuskóla mánu-
daginn 13. ágúst i þeim námsgreinum, sem næg þátttaka
verður i.
Innritun i próf og námsekiö fer fram i Lindargötuskólan-
um þriðjudaginn 7. og miðvikudaginn 8. ágúst klukkan 5-7
báða dagana, simi 10400 og 18368.
Menntamálaráðuneytið.