Vísir - 01.09.1973, Blaðsíða 5
Vísir. Laugardagur 1. september 1973
5
ERLEND MYNDSJA
Umsjón HAUKUR HELGASON
GRÆÐIR PALME Á ÖLLU SAMAN?
i Stokkhólmi lauk sex daga harm-
leik. sem allur heimurinn hafði
fylgzt með. Harmleiknum lauk
betur en á horfðist. Enginn týndi
lifi. Palme forsætisráðherra hafði
sætt mikilli gagnrýni fyrir það,
sem menn kölluðu vægð við ræn-
ingjana, en hann sagði, að öllu
skipti að bjarga gislum þeirra
ósködduðum. Þetta tókst Palme,
og nú má spyrja, hvort gagnrýnin
snúist við og hann græði á öllu
saman.
A myndinni eru ræninginn Jan Olsson, fyrir miðju, þar sem lögreglan fer með hann f handrjánum bui
úr bankanum.
BÆNIR
Edward Heath krýpur i dóm-
krikjunni i Belfast og ráðherra
Norður-írlands William White-
law biðst fyrir við hlið hans.
Þeir voru viö minningarguðs-
þjónustu Brookboroughs
lávarðar fyrrum forsætisráö-
herra Norður-trlands.
RUSTIR OG DAUÐI
Kista eins fórnardýrsins i jarðskjálftunum I
Mexikó borin burtu, meðan nágrannar hins
látna eru að grafa i rústunum. Þessi bær i
Pueblahéraðinu varð einna harðasX úti.
Clark Oloeson, ..aðstoðarmaður" bankaræningjans, f Stokkhólmi flutt-
ur burtu frá bankanum. Hann er i miðiö með skeggiö.
Það vorð af
Eflir mikla ásókn Libiumanna
tókst þcim að fá Kgypla til að
fallast á samciningu rikjanna i
citt. Anwar Sadat Egyptaforseti
til vinstri þrýstir hönd æðsta
manns Libiu, Moammer El
Khadafys.
Hver sigror?
Kosningar standa fyrir dyrum i
Noregi, og mikil spenna rikis. A
myndinni er Trygve Bratteli
formaöur Vcrkamannaflokks-
ins, sem gerir sér vonir um að
vinna aö nýju „sósialistiskan”
þingmeirihluta með flokki sín-
um og sósíalistum til vinstri við
hann.