Vísir


Vísir - 17.09.1973, Qupperneq 1

Vísir - 17.09.1973, Qupperneq 1
63. árg. — Mánudagur 17. september 1973 — 213. tbl. Sjö sigrar í húsi hjá Leeds Sjá íþróttir bls. 11, 12, 13 og 14 5-6 þús. undirskriftir gegn Seðlabankabyggingunni Sjá baksíðu Meisturunum nœgði ekki að skora 3 mörk á 3 mínútum! Sjá íþróttir bls. 11, 12, 13 og 14 Ölvaðir Rússar undir stýri við Kleifarvatn Sjá baksíðufrétt Margir Grmdvíkingar fíóðu jjf ■ • 7 7 u m ísólfsskálavegur lokaðist er margra rn% HAl Mf| #ff M I MAff tonna björg hrundu á veginn. - ■ ■ W' 1111 Wl ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ Jarðhrœringarnar fœrast á sjó út Jaröhræringarnar í nótt komu einna verst niður á Grindvíkingum, sem fengu ekki svefnfrið fyrr en birta tók af degi. Jarð- hræringamar reyndust þó vera nokkru minni en á föstudagsnóttu, en upptök- in höfðu þokazt öllu nær Grindavík. Samkvæmt upplýsingum Ragn- ars Stefánssonar jarðskjálfta- fræ&ings kom snarpasti kippurinn klukkan aö verða hálf tiu i gær- kveldi. Mældist hann 5 stig á Richter-kvarða og upptökin 150 til 60 km fjarlægð frá Reykjavik, eða helmingi fjær en á föstudaginn. Hafa upptökin færzt i vestur og eru nii aö mestu i sjó. „Nokkuð var um það, að fólk héðan úr Grindavik flýði til Reykjavikur i nótt þegar ekkert lát virtist ætla að veröa á jarð- skjálftanum,” sagði Guðfinnur J. Bergsson, varðstjóri i Grindavik i viðtali við Visi i morgun. Sömu- leiðis kvað hann fólkið af Krýsu vikurbænum hafa yfirgefið heimili sitt og sofið i Njarðvik i nótt. „Hingað til Grindavikur feng- um við svo heimilisfólkð úr ísólfs skála, en þvi leizt ekki á blikuna þegar það frétti, að ísólfskála- vegurinn væri að lokast,” sagði Guðfinnur. „Griðarlega mikil björg höfðu hrunið á veginn i um þriggja kilómetra fjarlægð frá Grindavik, og sprungur voru viða i veginum. Oviða höfðu 40 til 50 tonna klettar hrunið úr Festar- fjalli og oltið niður i fjöru og eitt bjargið, sem losnað hafði úr f jall- inu hefur ábyggilega veriö fleiri hundruð tonn,” sagði Guöfinnur ennfremur. Að minnsta kosti tvö hús i Grindavik höfðu sprungið litils- háttar og allsstaðar höföu innan- stokksmunir og annað lauslegt farið á hreyfingu. Aðkoman var ljót i verzlununum i morgun, en þar hafði söluvarningurinn hrun- ið úr hillum og var afgreiðslufólk- ið i óða önn við að þrifa upp af gólfunum þar sultu, hveiti, súpu- duft, hafragrjón og annað af þvi taginu, sem flaut i einum graut um gólfin. —ÞJM A meöan Keflavfkursiónvarpið varaöi fólk I gærkvöldi viö yfirvofandi'hættu og hvatti menn tii aö vera f viöbragöstellingu, ef verr kynni aö fara, þá var eina tilkynningin i islenzka útvarpinu þess efnis, aö isólfsskáiavegur væri lokaður. Þessi mynd, sem Ijósmyndari VIsis, Bragi, tók I morgun, sýnir einn „grjótmoianna”, sem lokuöu veginum. PALME VIRÐIST ÆTLA AÐ LAFA Á CINU SÆTI GÆTI ENN ORÐIÐ JAFNT MILLI SÓSÍALISTA- OG BORGARAFLOKKA—ÆSISPENNANDI TALNING Paime biöur spenntur. Þótt flokk- ur hans hafi tapab fylgi, virðist fylgisaukning kommúnista ætia aö nægja tii þess að stjórn hans haldi velli. Eftir einhverjar þær tví- sýnustu kosningar, sem Svíar muna eftir, virðist svo sem jafnaðarmenn Olof Palme haldi velli i stjórn. Með Vinstriflokkn- um ráða þeir yfir 176 þing- sætum eftir bráðabirgða- talningu meðan borgara- flokkamir hafa 174 þing- sæti. Við lestur fyrstu kosningatalna I nótt, kom i ljós, að Miðflokkur- inn og Hægri flokkurinn virtust ætla að auka mikiö viö sig.eins og átti svo eftir að koma á daginn. Jafnaðarmenn sýndust hins vegar tapa fylgi. Þótti þvi sýnt, að stjórnarskipti mundu verða. En þegar leiö á talninguna jöfnuðust hlutföllin og mátti siðan i alla nótt ekki á milli sjá, hverjir kæmu út með meirihluta. Enn er þó nokkuð af atkvæðum ótaliö, og þar sem munurinn er svona litill, er ekki talið óhugs- andi að eftir talningu utan- kjörstaðaatkvæöa og i kjördæm- um, þar sem talningu er óiokið, kunni úrslitin að breytast i 175 þingsæti gegn 175. Sem gæti leitt til kreppu við stjórnarmyndun. Ahuginn fyrir kosningunum var mikill meðal kjósenda.eins og sést á þvi, aö það var metkjör- sókn, þrátt fyrir spár um hið gagnstæða eftir fráfall Gústafs Adolfs konungs. Er taliö, að 91% kjósenda hafi neyttatkvæðisréttar sins, meðan aöeins 88,1% kaus i kosningunum 1970 og 89,3 i kosningunum 1968. Samkvæmt bráðabirgðatölum hafa jafnaðarmenn fengið 157 menn kjörna (höfðu 163). Mið- flokkurinn 89 þingmenn (hafði 71). Sameiningarflokkurinn 52 menn (hafði 41).Þjóðarflokkurinn 33 menn (hafði 58) og Vinstri- flokkurinn (kommúnistar) 19 menn (hafði 17) Sést á þvi, að jafnaöarmenn hafa tapað 6 þingsætum og fylgis- hrun varð hjá Þjóðarflokknum, sem tapar 25 þingsætum. Mið- flokkurinn, Sameiningarflokkur- inn og Vinstriflokkurinn bættu við sig — Sameiningarflokkurinn mest. Þaö sem gerði kosninganóttina æsandi hjá Svium, var ekki einungis tvisýnan I tölunum, heldur og ýmsir erfiðleikar, sem komu upp við talninguna. „Hneyksli” var orð, sem hraut oft af vörum Svia i nótt, þegar talninguna bar á góma I sumum þessara 28 kjördæma tók kjörstjórnin einfaldlega á sig náðir, án þess að skýra frá niður- stöðum talningar hjá sér. Höfðu menn misskilið fyrirmæli rikis- skattanefndar, sem hefur yfirum- sjón meö talningunni. Þvi er ekki búizt viö, aö endan- legar niðurstöður liggi fyrir eftir þessar kosningar núna i gær fyrr en á miðvikudaginn. -GP.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.