Vísir - 17.09.1973, Qupperneq 5
Vísir. Mánudagur 17. september 1973 ..
5
í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í Umsjón Guðmundur Péturssrn
Fallinn frá
i hálfa klukkustund var
kirk juklukkum um Svf-
þjóð alla hringt í gær til
þess aðboða að gömlum
sið konungsskiptin í
landinu.
Hinn ástsæli
þjóðhöfðingi Gústaf VI
Adolf konungur fékk hægt
andlát á laugardags-
kvöldið eftir 4 vikna
sjúkralegu. Síðustu
dagana var mönnum
Ijóst, að lífi hans yrði ekki
bjargað.
Sex vikna sorg hefur verið
/yrirskipuð við hirðina, en
konungurinn verður borinn til
grafar 25. september.
Hinn nýi konungur Karl
Gústaf er yngsti konungur
heims, aðeins 27 ára. Honum
var fagnað með húrrahrópum,
þegar hann kom út af Helsing-
borgarsjúkrahúsinu á laugar-
dagskvöldog tiðindin voru
kunn.
bjóðin fékk aö heyra
tiöindin, þegar útvarp og sjón-
varp rufu dagskrárútsendingar
sinar hálfri klukkustund eftir
dauða Gústafs Adolfs. öllum
skemmtunum var aflýst,og um
10.000 manns söfnuðust saman
framan við konungshöllina.
Þegar Karl Gústaf birtist i
hallargluggum, hrópaði mann-
fjöldinn húrra fyrir honum, og
söng konungssönginn og
þjóðsönginn.
Formleg tilkynning um
konungsskiptin verður gefin á
fundi rikisráösins i Stokkhólms-
höll á miövikudaginn. Mun þá
Karl Gústaf gera kunnugt,
hvaða konungsnafn hann mun
bera. Hann hgfur um tvo kosti
að velja. Karl XVI eða Karl
Gústaf XVI.
Engin formleg krýningar-
athöfn verður höfð við, þvi að
Gústaf VI Adolf aflétti þeirri
hefð , þegar hann varð konung-
ur 1950. Við það tækifæri var
kórónan aðeins sett á borð
nærri hásæti hans.
1 sendiráði Svia hér i Reykja-
vik liggur frammi i dag milli kl.
14 og 16 minningarbók, sem öll-
um er velkomið að rita nafn sitt
i, sem votta vilja minningu hins
látna konungs virðingu sina.
Bókin liggur einnig frammi á
morgun kl. 10-12 og kl. 14-16.
Þessi mynd var tekin af Gústaf
VI Adolf skömmu fyrir níræðis-
afmæli hans i nóvember í fyrra,
en heillaóskirnar voru farnar að
berast hinum ástsæla þjóð-
höfðingja mörgum dögum áður.
Þegar fréttist, að liðan konungs
færi hrakandi, kallaði Karl
Gústaf (fyrir miðju) I skyndi
saman til rlkisráðsfundar á
Brommaflugvellinum, en þaðan
flaug hann til þess að vera við
sjúkrabeð afa slns.
Leiðtogi mótmœlenda
ó N-írlandi myrtur
Byssubófar skutu
Tommy Herron, leiðtoga
mótmælenda á N-írlandi, í
höfuðið og fleygðu likinu í
gryfju nærri bænum Lis-
burn, sem er um 12 km suð-
vestur af höfuðborginni
Belfast.
Herron, sem var varaformaður
i varnarsamt. Ulsters (UDA),
hvarf á föstudaginn að loknum
fundi i aöalstöðvum UDA i Bel-
fast. Hans var fljótlega saknað,
og leit hafin, en lik hans fannst i
gær af tveim ungum drengjum.
NTB-fréttastofan hefur það eft-
irheimildum innan UDA-samtak-
anna, að menn þar grunaði, að
Herron hefði verið myrtur af ein-
hverjum hinna öfgafyllri i sjálf-
boðaliðssveitum Ulster (UVF).
Hinar hófsamari skoðanir hans
miðað við þeirra höfðu bakað
honum óvild hinna róttækari, sem
siðustu mánuðina höfðu haft i
hótunum við hann.
Nú er talin hætta á þvi, að
morðið á Herron leiði til blóðugra
átaka milli hinna striðandi afla
innan samtaka mótmælenda á N-
Irlandi.
Öflugar
varnir
vegna
Heaths
Yfirvöld á irlandi hafa
gripið til einhverra þeirra
umfangsmestu öryggisráð-
stafana, sem nokkurn tima
hafa verið viðhafðar þar í
landi, — vegna komu
Edwards Heath, forsætis-
ráðherra Breta, sem
þangað er væntanlegur í
dag.
Þvi hefur veríð haldið leyndu
hvenær forgætisráðherrann kem-
ur til Dublin, en þar ætlar hann að
hitta að máli Liam Cosgrave, for-
sætisráöherra Irska lýöveldisins.
— beir munu ræða ástandið á N-
Irlandi.
Kínaheimsókn
Pompidou lokið
George Pompidou
Frakklandsforseti, fór
dag frá Shanghai og með
því lauk sex daga heimsókn
hans í Kina.
Forsetinn, sem er fyrsti þjóð-
höfðingi Vestur-Evrópu, er heim-
sækir Kina, sagði i kveðjuhófi,
sem haldið var i Shanghai, að þær
vonir, sem hann hafði gert sér um
heimsóknina fyrirfram, hefðu all-
ar rætzt.
Heimsóknin einkenndist allan
timann af óvenjulegum innileik,
en að mati fréttaskýrenda hefur
afraksturinn af viðræðunum ekki
verið eins mikill.
Franskar heimildir halda þvi
fram, að aðaltilgangurinn með
heimsókn Frakklandsforseta hafi
verið sá, að hann og leiðtogar
Kina skiptust á skoðunum. En
hvorki Frakkar né Kinv^rjar
væntu neinna stórtiðinda af, segja
Frakka.
I Lundúnum gera menn sér
miklar vonir um þennan fund for-
sætisráðherranna. Það verður
fyrsti fundur brezks og irsks
ieiðtoga, siðan Irland öðlaðist
sjálfstæði fyrir 50 árum.
Félagar i hinum útlæga irska
lýðveldisher (IRA), sem fara
huldu höfði I trlandi, hafa hótað
að láta til skara skriða gegn
Heath. öll leyfi innan lögreglu og
hers hafa verið afturkölluð, þar
til heimsókn Heaths er yfirstaöin.
** ' y.
Forsætisráöherrarnir, Chou En Lai og George Pompidou, hlýða á kin-
verska og franska þjóösönginn.
Herinn œtlar að
stjórna sjólfur
Augusto Pinochet hers-
höfðingi, leiðtogi her-
foringjaráðsins í Chile,
hvatti í gær þjóðina til
einingar, og sagði, „að fá-
einar ruglaðar sálir héldu
enn uppi andstöðu við her-
inn."
Hann sagði ennfremur.að
herinn mundi sjálfur annast á-
fram stjórn landsins og ekki fela
hana i hendur borgaralegum öfl-
um, fyrr en ástandið væri orðið
eðlilegt.
Skömmu fyrir dögun i gær-
morgun sáu menn orustuþotur á
sveimi yfir Santiago og er gizkað
á, að þeim hafi verið beitt gegn
stuðningsmönnum Allendes
Skriðdrekar fara um götur
Santiago á leið til forsetahallar-
innar.
Þetta cr siðasta myndin, sem
tckin var af Allende forseta, en
hann sézt vcifa af svölum for-
setahallarinnar I þann mund,
sem hermennirnir voru að um-
kringja hana.
heitins, þeim fáu, sem enn veita
viðnám.
Fréttir af mannfalli byltingar-
innar eru enn á huldu, en
Pinochet hershöfðingi gizkar á,
að um 100 manns hafi falliö og 300
særzt.
Hann sagði, að byltingin hefði
verið nauðsynleg ,,til þess að
bjarga landinu, þvi eins og á-
standið var orðið, þá stefndi Chile
i átt til algers öngþveitis.”
Ekkja Allendes forseta og tvær
dætur þeirra komu með flugvél til
Mexikóborgar i gær, og með þeim
einir 50 Chilebúar aðrir, pólitiskir
flóttamenn. — Hún hefur staðfest
i fréttum, að maður hennar hafi
framið sjálfsmorð.