Vísir


Vísir - 17.09.1973, Qupperneq 17

Vísir - 17.09.1973, Qupperneq 17
Vísir. Mánudagur 17. september 1973 17 Hér eru Hljómar — Birgir Hrafnsson œfir með Gunnari, Berta og Rúnari Lengi lifir i gömlum glæðum — hljómsveitin Hljómar er um það bil að koma fram á sjónarsviðið aftur eftir nokkurra ára fjarveru. Við sögðum frá þvi i Pop-punktum fyrir viku siðan, að þeir Berti, Rúni og Gunni væru sagðir komnir saman á ný, þetta hefur nú fengizt staðfest: ljósmyndari fyrirtækisins POP-PRESS stóð piltana að verki og myndin sem hann færði okkur sannar sömuleiðis, að Birgir Hrafnsson er með i spilinu. Birgir Hrafnsson er sem kunnugt er einn fjögurra meðlima hljómsveitarinnar Change, en sú hljómsveit (Maggi og Jói) var einmitt á sama tima og Hljómar hófu sinar æfingar, að gera sig klára fyrir „hljómleika ársins”. Birgir Hrafnsson hefur þvi mátt hafa sig allan við til að geta stundað æfingar hjá báðum hljóm- sveitunum. Annars er Change aðeins ætlað það hlutverk að spila inn á hljómplötur og á hljómleikum, þannig að Birgir Hrafnsson ætti að geta komið þessu öllu heim og saman þegar fram i sækir.-ÞJM. Blood, Sweat and Tears í íslenzka sjónvarpinu: Ogþá slökkti ég... þeirra frábæru poppþátta sem sjónvarpið hefur ausið yfir okk- ur, þá get ég ekki orða bundizt. Af öllum þeim aragrúa hljóm- sveita, sem við höfum fengið að sjá eru mér tvær hljómsveitir hugstæðastar, fyrir utan Blood, Sweat and Tears. Fyrst vildi ég minnast á finnska hljómsveit, hverrar nafniég er þvi miður búinn að gleyma og var svo óheppinn að missa af að mestu. Það var nefnilega þannig að einmitt þetta kvöld kom M. Þrándur vinur i heimsókn. Sett- umst við niður til að fylgjast með þvi, sem fram fór á skerm- inum. Eftir nokkrar minútur lét gestur minn i ljós óhressleik nokkurn yfir þvi sem þar fór fram. Þar sem gestrisni er i hávegum höfð á minu heimili og M. Þrándur er stór og stæðileg- ur, sá ég mér ekki annars úr- kostar en slökkva á tækinu. Hin hljómsveitin sem ég vil einnig minnast á, er hin heims- fræga hljómsveit Pacific Gas and Electric, en þátt með þeim fengum við að sjá fyrr i sumar, eins og þið eflaust munið. Allir meðlimir þessarar stórkostlegu. hljómsveitar léku af mikilli elju. Einkum minnast menn trommuleikarans, en hinn sér- stæði trommusláttur hans mun stafa af þvi að maöurinn er fyrrverandi járnsmiður. Það er blóðugt að vita til þess að til skuli vera fólk, sem ekki kann að meta starf hinna fórn- fúsu forystumanna sjónvarps- ins. Hugsið ykkur alla þá svita- dropa, sem runnið hafa þegar þessir menn sitja dögum sam- an, horfa á poppþætti og vinza úr, aðeins það bezta fyrir is- lenzka æsku. Ég veit, aö þeir dropar eru mörgum sinnum meiri, en sá hafsjór gleðitára sem við poppunnendur grátum i hvert skipti sem við horfum á árangur starfs þeirra. Það lýs- ingarorð finnst ekki i islenzkri tungu sem lýst gæti hug minum I garð þessara manna. Ég segi þvi aðeins: Takk, takk, takk, þó þau fátæklegu orð nái engan veginn að lýsa hugarfari minu i garð þeirra. SB Ég ætla ekki að vera langorð- ur. Mig langar einungis að þakka forráðamönnum sjón- varpsins, hinn mikla skilning sem þeir hafa sýnt okkur áhangendum poppog rokktón- listarinnar. S.l. mánudag feng- um við t.d. að sjá hina geysivin- sælu jass-rokk hljómsveit, Blood, Sweat and Tears, en hljómsveitin sú mun vera ein hin vinsælasta i öllum „brans- anum”. Til marks um vinsældir þeirra hér á landi, hef ég það eftir áreiðaniegum heimildum, að sfðustu plötur þeirra hafi selst i um 20 eintökum á islandi. Og ég er sannfærður um að þessi þáttur hefur verið öllum hinum 20 aðdáendum þeirra mikið gleðiefni. Eins og ég sagði þá ætla ég ekki að vera langorður, en þeg- ar ég lit aftur og minnist allra 1. (2). Free electric band. Albert Hammond. 4. 91 2. (1). (Jenny, Jenny), dreams are ten a penny. Kincade. 4.88 3. (-). Saturday night. Bay city Rollers. 1. 81 4. (-). Brother Louie. Stories. 1.73 5. (3). I am a clown. David Cassidy. 2. 55 6. (4). l’m the leader of the gang. Gary Glitter. 2. 53 7 (5). Life on marz. David Bowie. 4.49 8. (-9. Give it to me. J. Geils band. 1. 48 9. (-). Standing on the insinde. Niel Sedaka. 1.41 10. (8). Young love. Donny Osmond. 8. 39 Ný lög. 11. Chine Grove. Dobbie Brothers. 12. 48 Crash. Suzi Quatro. 13. Music Makes my day. Marvin and Farrar. 14. Say has anybody seen my sweet Gypsy Rose. Dawn. 15. Free Ride. Edgar Winter group. Vika Stig Brautarholti 16 sími 25775 Prentmyndagerð — Offsetþjónusta RICOMAC VERD KR. 27.500.- RICOMAC rafreiknirinn hefur ýmislegt umfram vélar i sambærilegum verðflokki. Hentug til launaútreiknings, verðútreikn- ings, prósentureiknings o.fl. é- 'T&r % SKRIFSTOFUVELAR h.f. ^ 4- = - : X ' ' HVERFISGOTU 33 SÍMI 20560 - PÓSTHÖLF 377

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.