Vísir - 26.09.1973, Page 1
VÍSIR
63. irg. — IMiövikudagur 26. september 1973 —221. tbl.
FYRST TIL AÐ AUKA VIÐ LÍFIÐ í EYJUM
Það færðist meira lif yfir
Vestmannaeyjar þegar
nokkrir hestar voru fluttir
þar i iand, enda fer áhugi
fyrir hestainennsku vaxandi
meðal manna i Eyjum. Að
ininnsta kosti var svo fyrir
gos. Stjarna heitir hryssan á
þessari skemmtilegu mynd,
sem Guðmundur Sigfússon
tók i Eyjum, og hún var ein
af fyrstu hestunum, sem
komu aftur til Eyja. Og hún
var ekki lengi að fjölga
hestakyninu úti i Eyjum, þvi
hún átti þetta folald skömmu
eftir komuna. Um helgina
bættust við tvær hryssur
með tvö foiöid, þannig að nú
cr 9 hestar með folöldum i
Eyjum. En bæjarstjórn og
hestamenn eru ckki alveg á
sama máli, hvort levfa beri
hesta eða ekki. Sjá baksiðu.
Sundið er
líklega
bexta lyfið!
Það er álit Joseph Williams,
þeldökks sérfræðings i
félagslegri og sálfræðilegri
aðstoð við þá, sem þurfa
endurhæfingar við, aö t.d.
áfengissjúklingar hafi hvaö
bezt af ails konar iþrótta-
ástundun, trimmi. Sund er til
dæmis ákjósanlegasta lækn-
ing, segir hann i viötali viö
Visi, en Williams kom viö
hér á landi á dögunum, og þá
notuðum viö tækifærið tii að
ræða viö hann.
Sjá bls. 7
★
Þau hafa
drepið gœsina,
sem verpti
gulleggjunum
— Sjá íþróttir
í opnu
*
HEIMSKAN
— lífseigur fugl
Bretum væri nær aö sinna
sliku lifshagsmunamáli sem
200 miina auðlindalögsaga er
þeirra þjóð. Þess i stað gera
þeir sig aö ofbeldismönnum
og ræningjum hér noröur i
höfum. Heimskan er lif-
seigur fugl, segir i leiðara I
blaðinu i dag.
Sjá bls 6.
*
Komu til
jarðar úr
geimstöð-
inni í gœr
— Sjó bls. 5
UMRÆÐUR HAFA CKKI
FJÖLGAÐ FÓSTUREYÐINGUM
Segir Pétur H. J. Jakobsson, yfirlœknir og mótmœlir
kenningum starfsbróður síns í sjónvarpsþœttinum í gœrkvöldi
„Það er af og frá, aö i sumar hafi
orðið aukningar á löglegum fóst-
ureyöingum, sem rekja megi til
umræönanna um frumvarpiö um
frjálsar fóstureyöingar. Hins
vegar hefur oröiö stööug og jöfn
aukning á siöustu árum, i sam-
ræmi viö þróunina i nágranna-
löndunum”, sagöi Pétur H. J.
Jakobsson, yfirlæknir Fæöingar-
deiidar Landspitalans, en hann er
jafnframt formaöur nefndar
þeirrar, sem vann aö hinu um-
deilda frumvarpi um fóstureyö-
ingar, sem gert er ráö fyrir aö
veröi lagt fyrir Aiþingi i haust. t
umræðuþætti í sjónvarpinu i gær
var það staöhæft, aö frá þvi aö
frumvarpiö var kynnt i vor, heföi
orðið áberandi aukning á fóstur-
eyöingum hér á landi.
Þá sagði Pétur, að vandamálið
væri fyrst og fremst afskiptaleysi
karlmanna af þessum málum.
„Það veröur að gera kröfur til
beggja foreldranna, en karl-
mennirnir hafa til þessa sáralitið
skipt sér af þessu eða haft
áhyggjur af þvi, hvort konan
verður þunguð eða ekki. Það
verður að gera kröfur til einstakl-
inganna, þvi fóstureyðing er allt-
af neyðarúrræði, og það vita allar
konur, sem það hafa reynt.”
„Telur þú, að með tillögum
ykkar sé verið að taka ábyrgðiua
af læknunum, eins og sumir
læknar hafa haldið fram?”
„Nei, það er ekki hægt að
skylda lækna til þess að fram-
kvæma slika aðgerð. Það, sem
við viljum koma i veg fyrir,-er, aö
það sé litið á þessa aðgerð sem
glæp, en samkvæmt gömlu lögun-
um eru fóstureyðingar i flestum
tilfellum afbrot. Ég álit ekki, að
læknar séu almennt andstæðir til-
lögum okkar, en aö sjálfsögðu á
eftir að gera greinargerð um
framkvæmda laganna, þetta eru
aðeins tillögur.”
„Er mikið um það hér að konur
sæki um fóstureyðingu fyrst og
fremst af fjárhagsástæðum?”
„Það er alls staðar mikið um
það og einnig hér. Félagsleg að-
stoð fyrir t.d. einstæðar mæður er
hér sama og engin og sem stendur
er ákaflega litla hjálp hægt aö
veita i slikum tilfellum. Þetta
leggjum við höfuðáherzlu á, að
verði bætt, svo að kona þurfi ekki
að gangast undir fóstureyðingu af
fjárhagsástæðum. Þá leggjum
við lika mikla áherzlu á ábyrgö
karlmannsins og meðráðarétt
hans,” sagði Pétur að lokum.
Þess má geta, að nefndin hefur
lokið störfum, og er ekki gert ráð
fyrir, að hún geri frekari
breytingar á tillögum sinum, en
gera má ráð fyrir, að miklar um-
ræður verði um málið, þegar þaö
kemur fyrir þing i haust eða vet-
ur.
— ÞS
Kristján heilsaði hinum nýja
kóngi fyrstur þjóðhöfðingja
Fjöldi þjóðhöfðingja
var viðstaddur athöfn-
ina, meðal annars
Ólafur Noregskon-
ungur, Margrét Dana-
drottning, Júliana Hol-
landsdrottning.
Baldvin Belgiukon-
ungur, Kekkonen
Finnlandsforseti,
Ceausescu forseti
Rúmeniu, Kaunda
Sambiuforseti og dr.
Kristján Eldjárn.
Konungur var jarð-
aður i konungsgraf-
reitnum i Haga i
Stokkhólmi.
(NTB — Mynd)
inn, sem Karl Gustaf
konungur tók persónu-
Iega á móti, þegar
fyrirmenni kom
hvaðanæva til að vera
við útför Gustafs VI
Adolfs Sviakonungs.
Útförin var gerð i gær.
Forseti íslands, dr.
Kristján Eldjárn, var
fyrsti erlendi gestur-
Utanríkismálanefnd í dag
Ríkisstjórnin á morgun
*
Ætla að flytja
út skartgripi
frá íslandi
— baksíðan
Niðurstöður sjóprófa vegna
úrekstra varöskipsins Ægis og
brezka herskipsins Lincoln
siðastliðinn laugardag eru nú i
höndum dómkvaddra mats-
manna, sem láta eiga uppi álit
sitt um það hvaöa ályktanir
megi draga af sjóprófunum um
aðdraganda og orsök árekstr-
anna.
Ekki er venjulegt að slikir
matsmenn séu skipaðir, en
dómurinn tilnefndi þá núna
samkvæmt tilmælum dóms-
málaráðuneytisins.
Venjulega eru sjópróf haldin
til þess að kanna, hvort einhver
brot hafi verið framiná sigl-
ingareglum eða öðrum lögum
og reglum. Einnig er reynt að
komast að niðurstöðu á grund-
velli sjóprófa, hvernig krefja
megi um skaðabætur vegna
tjóns, sem orðið hefur. Niður-
stöður sjóprófa eru siðan sendar
til saksóknara, sem tekur
ákvörðun um framhald málsins.
Væntanlega lét dómsmála-
ráðuneytið skipa hina þrjá
matsmenn vegna þess að við
venjulega málsmeðferð mundu
úrslit koma mun seinna en
nauðsynlegt er i þessu sérstaka
máli, sem ráði$ getur úrslitum
hvort við slftum stjórnmála-
sambandi við Bretland eða ekki.
Matsmennirnir, þeir Jónas
Sigurðsson, skólastjóri Stýri-
mannaskólans, Andrés Guð-
jónsson, skólastjóri Vélskólans
og Jón Finnsson hrl., voru við-
staddir sjóprófin i gær, sem fóru
fram i Sjó- og verzlunardómi
Reykjavikur. Dómsforseti var
Emil Ágústsson, borgardómari.
Væntanlega munu mats-
mennirnir skila álitsgerð sinni i
dag til dómsmálaráðuneytisins,
þvi fundur hefur verið boðaður i
utanrikismálanefnd alþingis
klukkan þrjú i dag, og þar er
ætlunin að ræða málið. Mun
nefndin væntanlega segja álit
sitt á þvi, hvort slita eigi stjórn-
málasambandi við Bretland
vegna árekstra Ægis og Lincoln
og styðjast við niðurstöður sjó-
prófanna og álitsgerð hinna sér-
fróðu manna.
. Búizt er við, að rikisstjórnin
muni taka lokaákvörðun i
málinu á fundi sinum á morgun,
en blaðafulltrúi hennar vildi
ekkert segja um hvenær eða
hvort fundur yrði haldinn þá,
þegar rætt var við hann i morg-
un.
— ÓG