Vísir - 26.09.1973, Blaðsíða 3
Vlsir. Mi&vikudagur 26. september 1973
3
GAMLA STJÓRNARRÁÐSHÚSIÐ
í UPPTÖKUSAL SJÓNVARPSINS
— eins og það var á árunum áður, þegar það var tugthús
Þá er gamla stjórnarráös-
luisið komið inn i sjónvarp i allri
sinni dýrð, eins og það leit út, á
meðan það var tugthús þjóðar-
innar á þvi herrans ári 1809.
Það er Björn Björnsson, leik-
myndateiknari, sem hefur gert
þessa veglegu leikmynd að
verki Gunnars M. Magnúss, „1
múrnum”, en upptökur á leik-
ritinu' standa nú yfir. ,,1
múrnum” var upphaflega
framhaldsleikrit fyrir útvarp.
byggt að miklu á sannsögu-
legum atburðum er gerðust
fyrri hluta siðustu aldar. Leik-
ritið er allmikið stytt fyrir sjón-
varp, en það endar árið 1814,
þegar tugthúsið var lagt niður.
Björn Björnsson sagði i viðtali
við blaðið, að leikmyndin væri
með þeim stærstu, sem byggð
hefði verið i upptökusal sjón-
varpsins. Kvaðst hann hafa
unniö leikmyndina út frá
lýsingum á húsinu frá 1819, en
það var að sjálfsögðu i allt öðru
ástandi þá en það er i dag. Leik-
stjóri að leikritinu er Helgi
Skúlason, og leikendur eru mjög
margir. Með nokkur helztu hlut-
verkin fara Róbert Arnfinnsson,
Jón Sigurbjörnsson, Gunnar
Eyjólfsson, Nina Sveinsdóttir,
Guörún Stephensen. Sólveig
Hauksdóttir, Guðmundur Páls-
son, Brynjólfur Jóhannesson,
Sigurður Skúlason, Steindór
Hjörleifsson, Jón Aðils og Valdi-
mar Helgason. Auk þess má
geta þess, að i gær kom nýstár-
legur leikari inn i upptökusal-
inn, en það var hestur, sem
tekur þátt i leiknum, og mun
það vera i fyrsta sinn, sem hross
stigur fæti i upptökusal sjón-
varpsins. Andrés Indriðason
stjórnar upptökunum, sem gert
er ráð fyrir að ljúki seinni hluta
næstu viku. Ekki hefur ennþá
verið ákveðið, hvenær verkið
verður sýnt. —l»S
Eitthvað likt þessu leit aðsetur forsætisráðherra út að innan fyrir svo sem cinni og hálfri öld, þegar það var tugthús landsmanna
Þarna inni eru nokkrir tugthúslimir i leikriti Gunnars M. Magnúss „í inúrnum”. A myndinni sjáum við m.a. Jón Sigurbjörnsson
Brynjólf Jóhannesson (á góifinu) Valdimar Helgason og Róbert Arnfinnsson.
Leiklistarskóli SÁL
hlýtur bróðabirgðastyrk
— og er eini leiklistarskólinn í dag
Leiklistarskóli SAL tekur nú til
starfa annaö árið i röð, og hefur
menntam álaráöuneytið veitt
bráöabirgöastyrk til skólans, sem
nú er eini leiklistarskólinn á
landinu. Kennt verður í vetur I
kjallara Tónabæjar, og hefur
Æskuiýðsráð séð skólanum fyrir
húsnæ&i. Skólinn er aö miklu leyti
byggður á hugmyndum og
reynslu, sem fengizt hefur á
Norðurlöndunum um leiklistar-
nám, og er umsjón skólans i
höndum nemenda og allar
ákvarðanir teknar á allsherjar-
fundum, þar sem bæði nemendur
og kcnnarar hafa atkvæðisrétt.
Próf eru cngin i venjulegu formi,
en kennarar gefa umsagnir.
Ennþá er allt óljóst um væntan-
legan ríkisleiklistarskóla, en i
haust hafa leikhús borgarinnar
rætt um hugsanlegan sameigin-
legan leiklistarskóla til bráða-
birgða, þar sem mikill skortur er
að verða á leikurum af yngstu
kynslóðinni.
—ÞS
ER ÞETTA NOG TIL STJORNMALASLITA?
Arekstur varöskipsins Ægis og
brezka herskipsins Lincoln varð
myndatökumönnum drjúgt efni
og búið er að senda kvikmyndina,
sem sjón varpsm enn tóku á
laugardaginn, tii sjónvarpsstööva
um aiian heim. Nú þegar er búið
aö sýna myndina i 158 sjónvarps-
stöövum.
Myndirnar hér aö ofan tók Jón
Friðgeirsson, þegar Lincoln
sigldi i veg fyrir Ægi i fyrra
skiptið á laugardaginn. Hafði
herskipið siglt samhliða Ægi nær
allan daginn og oft komið mjög
nærri að sögn Guðmundar
Kjærnested skipherra á Ægi fyrir
sjódómi i gær.
Sagði Guðmundur til dæmis um
nálægð skipanna, að um morgun-
inn hefðu Bretarnir gert sig lik-
lega til að varpa yfir til þeirra
whisky flösku með kastlínu, en
þeir þá siglt fram með herskipinu
og ekki þáð hinar brezku
guðaveigar.
A myndunum hér að ofan sést,
hvernig Lincoln kemur á mikilli
ferð fram með bakborðshliö Ægis
og sker stefnu þess.
Að sögn skipherrans i sjó-
prófunum haföi þetta oft gerzt
áður um daginn, en varðskips-
mönnum alltaf tekizt að koma i
veg fyrir árekstur.
I þetta skiptið rákust skipin
saman þrátt fyrir að Ægi var
beygt hart i stjórn og full ferð
tekin aftur á. Rann stefni hans
aftur með siðu herskipsins.
Guðmundur tók fram, að her-
skipið hefði einnig bakkaö, um
þaö bil sem skipin rákust saman.
—ÓG
Orðsending
fró Bjargróðasjóði
til sveitarstjórna
Sveitarstjórnir í þeim sveitarfélögum, þar
sem meiri hóttar tjón urðu í óveðrinu
aðfararnótt 24. þ.m., eru beðnar að
hlutast til um dómkvaðningu matsmanna
til að meta tjón af völdum óveðursins,
þar eð slíkar matsgerðir verða lagðar til
grundvallar umsóknum, sem berast kunna
um fjórhagsaðstoð úr Bjargróðasjóði.