Vísir - 29.09.1973, Side 1
VÍSIR
(>:i. árg. — Laugardagur 29. september 1973 — 224. tbl.
Þrjár rollur úrskurð-
aðar „í varðhald"
— baksíða
Byrne lœrði
á Spasskí í
Reykjavík
— sjá skákfrétt
á bls. 14
☆
Hjartasjúkl-
ingur — ekki
drykkjumaður
MaOur sem liggur ósjálf-
bjarga á götunni, þarf ekki
endilega aö vera undir
áhrifum áfengis. Mats Wibe-
Lund, ljósmyndari, skrifar
lesendabréf f dag þar sem
hann greinir frá einu sliku
atviki. Maöurinn, sem menn
virtust ekki vilja skipta sér
oi mikiö af, var hjartasjúk-
lingur, ekki drykkjumaöur.
Maöurinn lézt þarna á
götunni.
— SJABLS. 2
☆
Með sumar-
stúlkum í
búðarúpi
- bls. 3
FJÖR í
POPPINU
Það er fjör i poppinu i dag,
eins og kemur fram i
skrifum Steinars Berg i
Popp-punktum blaösins. Þar
segir liann frá þvi nýjasta
frá liánk Williams, Stevic
Wonder og Nazareth. Og svo,
siöast en ekki sizt, nýju
hljómplötunni, sem Magnús
Kjartansson hefur sett á
markaöinn með frumsömd-
um lögum.
Sjá bis. 8.
Hér er blökkusöngvarinn
Stevie Wonder, sem fjallaö
er um i Popp-punktum i dag.
Fátt freistar meira
Ilvað er girnilegra i augum ungs manns en einmitt heljarstór
drullupollur cins og sá, sem hann er aö leika sér i, strákurinn á
myndinni? Liklega er þaö fátt, sem freistar eins og pollurinn. í
honum sér sá litli kannski heilt úthaf, þar sem hann siglir fleyi
sinu og vatniö hlandaö hæfilega meö sandi gctur oröiö aö bezta
byggingarefni i skýjakljúfa og draumaborgir.
l>aö er komiö haust og allra veöra von. Þrátt'fyrir frostiö
undanfarnar nætur iná þó gleöja liina ungu samborgara meö þvi,
aö trúlega eiga margir pollar eftir að myndast á næstunni, — og
vissulega eru það slæmar fréttir fyrir mæður snáöanna, sem sjá
um útgerðina á þeim.
Goslok haldin í
Eyjum í
Gostímabilið á enda.
Meira lif færist yfir miöbæinn i
Vestmannaeyjum, og nú er búiö
aö opna pósthúsiö þar. Pósthúsiö
og siminn voru i sama húsnæöi
fyrir gos en opnaðir vcröa 5 simar
eöa simabox. Þangaö geta menn
komiö og hringt út á land, ef þeir
vilja, cn simstöðin sjálf er ennþá
til húsa i gagnfræöaskólanum.
Goslok verða haldin i Eyjum á
morgun. Dansleikur verður
haldinn i Alþýðuhúsinu i
kaupstaðnum, og veröa sjálfsagt
kvöld!
Póstur og sími opna
fengnar hljómsveitir og
skemmtiatriði héðan.úr Reykja-
vík eða annars staðar að af
landinu. Svo hafa Eyjamenn
sjálfsagt eitthvað heimatilbúið
lika.
Fréttaritarinn okkar i Eyjum,
Guðmundur Sigfússon, sagði
okkur, aö meö þessu væri eigin-
lega veriðað kveðja gostimabilið.
Viðlagasjóð og fleira, og
mannlifið færðist nú i eðlilegra
horf.
-EA
SJÁLFSMORÐ JUKUST UJI/I
Þessar tölur koma fram i árs-
skýrslu heilbrigðismálaráðs fyrir
árið 1972. Þá kemur einnig fram,
aö yfir allt árið 1972 komu 31844
slysatilfelli á slysadeildina, en
árið áður 26290. Lætur þvi nærri
að 1/3 hluti ibúa Stór-Reykjavik-
ur hafi heimsótt slysadeildina á
siðasta ári, en að sjálfsögðu koma
sumir oftar en einu sinni. 1134
komu á deildina vegna fiknilyfja-
eöa áfengisneyzlu árið 1972, en
704 árið áður. Þá komu á deildina
á siöasta ári 44, sem hlotið höföu
mein af hita, kulda, hungri, bil-
veiki eöa sjóveiki, en áriö áður
aöeins 7 manns af sömu sökum. i
sumum tilfellum er um aö ræöa
fækkum á slysum, td. komu mun
fleiri á deildina vegna eitrunar
áriö 1971 en 1972.
Þá kemur einnig fram i skýrsl-
unni, að á húð- og kvensjúkdóma-
deild Heilsuverndarstöðvarinnar
komu árið 1972 623 manns, þar af
497 vegna gruns um kynsjúk-
dóma. Voru 308 rannsakaðir
vegna gruns um kynsjúkdóma,
210 karlar og 98 konur. Reyndust
157 hafa lekanda, 4 sárasótt og 18
aöra kynsjúkdóma. Eru karl-
mennirnir i yfirgnæfandi meiri-
hluta i öllum tilfelium. 1 kona
reyndist hafa sárasótt en 35 konur
höfðu lekanda. Er hér um að ræða
nokkra aukningu á kynsjúkdóm-
um frá sfðasta ári.
Til samanb. má geta, að árið
1963 voru 132 með kynsjúkdóma,
en áriö 1971 143. Hæst varð talan
áriö 1966 en þá voru 203 meö
kynsjúkdóma. — ÞS.
Sjálfsmoröstilraunir voru 31
áriö 1972, en áriö 1971 voru skráö-
ar 23 sjálfsmoröstilraunir, hjá
slysadeild Borgarspitalans. Er
hér um aö ræöa nær þriöjungs
aukningu á einu ári, en i flestum
tilfellum var hægt aö bjarga Iffi
viökomandi. Þá voru á árinu 1972
skráö 5 manndrápstilfelli hjá
slysadeildinni, en ekkert áriö áö-
ur. Er hér um aö ræöa manndráp
af gáleysi.
SLIT STJÓRNMÁLASAMBANDS VIÐ BRETA:
SNERTIR ALMENNING LÍTIÐ
Almenningur ætti ekki aö
þurfa að verða teljandi var við
slit stjórnmálasambands viö
Bretland, nema til komi meiri
aðgerðir, sem ekki er ráð fyrir
gert á þessu stigi. Viöskipti öll,
samgöngur og önnur þau sam-
skipti, sem almenning varöa
beinlfnis, eiga aö geta haldiö
áfram óbreytt.
1 slitum á stjórnmálasam-
bandi, sem koma til fram-
kvæmda á miðvikudag, ef
ekkert óvænt gerist, felst ekki
annað en það, að sendiráðunum
verður lokað. Viðskipti Islend-
inga og Breta, verzlun og annað,
fara að jafnaði fram án þess að
sendiráð hafi afskipti af, og mun
svo verða áfram.
Auk þess munu ræðismanns-
skrifstofur bara taka við stærra
hlutverki en áður. Þá munu
tveir starfsmenn islenzka sendi-
ráðsins i London verða færðir
yfir i norska sendiráðiö og það
sendiráð annast fyrirgreiðslu
fyrir islendinga, þegar þarf.
Bretar munu fá eitthvert erlent
sendiráð i Reykjavik til að gæta
hagsmuna sinna, þegar þörf
gerist.
Þannig hafa slit á stjórn-
málasambandi engin teljandi
áhrif á viðskipti landanna. Þau
eru hins vegar mjög sterk for-
dæming á framferði Breta og
hafa mjög mikið pólitiskt gildi i
deilunni. Um þau verður fjallað
i fjölmiðlum hvarvetna i
heiminum.
Þau geta farið að koma viö
almenning, ef Bretar gripa til
dæmis til „hefndaraðgerða”.
Hins vegar munu forráðamenn
hér ekki gera ráð fyrir þeim aö
svo stoddu.
Þvert á móti héfur Heath for-
sætisráðherra Breta á elleftu
stundu reynt að draga úr
viðsjám með bréfi til ólafs
Jóhannessonar. Þar stingur
Heath upp á þvi, að floti Breta
athafni sig ekki innan 50 milna
gegn þvi að varðskip láti brezku
togarana þar afskiptalausa.
Heath lýsir einnig harmi sinum
vegna dauðaslyssins á Ægi, sem
hafi verið óbein afleiðing átaka
á miðunum. *HH