Vísir - 29.09.1973, Síða 7
Visir. Laugardagur 29. september 1973
7
Kjörorðid er:
IIMIM
SÍÐAN
ALVEG LJOMANDI
##
##
— vonast eftir þótttöku karlmanna í smórétta-samkeppni Smjörlíkis h.f. —
limsjón Þórunn Sigurðardóttir
Nú geta konur
kannað sjólfar
hvort þœr eiga
von ó barni
Predictor nefnist litið
tæki, sem nú er farið að
selja á Norðurlöndum,
og þvi væntanlega ekki
langt að biða þess, að
það komi hingað
einnig.
Þetta tæki gerir
kleift að kanna hvort
kona er vanfær strax 3 -
4 vikum eftir frjóvgun
og getur konan
auðveldlega kannað
þetta sjálf. Strax 9
dögum eftir að tlðir
eiga að hafa byrjað er
þvagprufa sett i litið
glas og eftir tvo
klukkutima kemur
svarið. Einfaldara er
varla hægt að hugsa
sér það. Glasið er sett i
sérstakt ilát. Sé konan
vanfær sést dökkbrúnn
hringur neðst á
glasinu, en það er vökvi
i ilátinu, sem fram-
kallar litinn.Þetta tæki
kostar um 400 krónur
islenzkar á Norður-
löndum.
„Við leggjum
áherzlu á fljótlagaða,
ekki mjög dýra smá-
rét.ti, úr hráefni, sem
fæst hér að staðaldri.
Það þýðir ekki að óska
eftir viðamiklum og
seinlegum máltiðum
nú á dögum, þegar
algengast er að allir
vinni úti”, sagði Davið
Sch. Thorsteinsson
framkvæmdastjóri
Smjörlikis h.f., en
fyrirtækið efnir nú til
sinnar fyrstu
uppskriftasamkeppni.
Skilyrði er að Ljómasmjörliki
sé notað i uppskriftinni, en
nægjanlegt er að steikt sé upp úr
þvi eða jafnvel að þ.að sé aðeins
notað til að smyrja mót með að
innan. Þeir, sem vilja
spreyta sig, og það er ekki sizt
óskað eftir þátttöku karl-
manna, ættu að senda uppskrift
I pósthólf 5133 merkt „Alveg
ljómandi” og hver veit nema 40
þúsund krónur, sem eru fyrstu
189
* / I
verðlaun, falli i hlut
viðkomandi. önnur verðlaun
eru 20 þúsund krónur, þriðju 10
þúsund og að auki tvenn 5
þúsund króna verðlaun.
Formaður dómnefndar er
Haukur Hjaltason, matreiðslu-
maður. Aðrir i dómnefndinni
eru Agla Marta Marteinsdóttir
húsmóöir, Elsa Stefánsdóttir,
húsmóðir, Dröfn Farestveit
húsmæðrakennari, Jón
Asgeirsson fréttamaður og
Skúli Þorvaldsson veitinga-
maður.
Það er kannski rétt að hug-
leiða nánar hvað orðið smá-
réttur þýðir, en að sjálfsögðu
getur verið um að ræöa rétt sem
neytt er með kaffi, ekki siöur en
sjálfstæðan rétt. Þá getur einnig
verið um að ræða fullkomna
máltið, þótt létt sé og fljótleg,
t.d. á móti aðalmáltið dagsins.
Hér mætti t.d. hugsa sér ein-
hvers konar bakstur eða sæt-
meti, þótt trúlega muni flestir
spreyta sig á smáréttum, sem
eru matarmeiri og léttari en
kökurnar. Rétt er að taka fram,
að starfandi húsmæðrakennur-
um, lærðum bökurum og bryt-
:um er ekki heimil þátttaka i
Ikeppninni. Skilafrestur er til 16.
október.
—ÞS
HANDKLÆÐASLOPPUR
Á EINU KVÖLDI
Fátt er notalegra en
að skriða inn i þykkan
og hlýjan frottéslopp,
eftir gott bað. „Hand-
klæðaslopparnir” svo-
kölluðu hafa náð
miklum vinsældum hér
á landi,en þeir eru
gerðir úr velúrhand-
klæðum og dregnir
saman undir
brjóstunum.
Þessir sloppar kosta
3.500 - 4.000 krónur, en þá er
hægt að sauma sjálfur með litilli
fyrirhöfn, og fyrir mun minni
peninga. Hægt er að velja hand-
klæði, sem eru mun ódýrari en
velúrhandklæðin. Handklæöa-
efni, selt i metratali gerir að
sjálfsögðu sama gagn, en þá
þarf að kaupa sérstakt kögur á
sloppinn. Annars eru keypt þrjú
jafnstór handklæði. Tvö þeirra
eru saumuð saman og mynda
fram-og bakstykki. Klaufir eru
hafðar i hliðunum. Þá er klippt
gat fyrir höfuðið i 3ja stykkið
og ef vill klippt niður fyrir
rennilás. Þetta stykki er svo fest
ofan á hii. tvö og gengið frá
hálsmálinu eins og sést á
myndinni. Siðan er settur borði
innan á samskeytin undir
brjóstunum og þar i dreginn
snúra, sem hnýtt er að framan.
Það er jafnvel ennþá þægi-
legra að hafa rennilás alveg
niður að framan frá hálsmálinu,
svo að ekki þurfi að setja
sloppinn yfir höfuðið. Ef
sloppurinn er gerður úr frotté-
efni sem keypt er i metratali er
bezt að hafa eitt heilt stykki að
framan og aftan og fá svo lit-
sterkt bómullarkögur, sem fer
vel við efnið.
Kvenfélag Bústaðasóknar heldur sína órlegu
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
að Hótel Sögv,
SUNNUDAGINN 30. september n.k.
Kl. 15.00: Stórkostlegar veitingar
Fjölbreytt skemmtiatriði
Kl. 20.30: Kvöldskemmtun með skemmtiatriðum
6 spennandi bingóumferðir
Hver hreppir utanlandsferðina með Sunnu?
Dansað til kl. 1
Skemmtinefndin