Vísir - 29.09.1973, Blaðsíða 20
VÍSIR
Laugardagur 29. september 1973
Fatlaðir fó að
aka
Austurstrœti
ökutæki meö merki lamaöra og
fatiaöra eiga aö fá aö aka um
Austurstræti, en þó eingöngu á
þeim sérstöku tlmum dags, þegar
bifreiöar mega aka þar um til
vöruflutninga fyrir verzlanir þar.
Borgarráö hefur samþykkt
beiöni Sjáifsbjargar, félags
lamaöra og fatlaöra, um þetta.
— HH.
Dr. Bjarni
fagnar
samstöðu
Hannibals
og Alþýðu-
flokks
,,Ég fagna þvi, aö
Alþýöuflokksmenn og stuönings-
menn Hannibals hafa i hyggju aö
bjóöa fram sameiginiegan lista I
borgarstjórnarkosningunum”,
scgir dr. Bjarni Guönason,
höfuösmaöur uppreisnarmanna i
„samtökunum”. „Sækjast sér um
likir”, segir Bjarni. „Þeir eiga
bezt saman”.
Bjarni Guönason, segir þaö
skoðun sina, aö sá armur „sam-
takanna”, sem nú muni ganga til
samstarfs viö Alþýöuflokkinn, sé
aö meginhluta gamla „málfunda-
félag jafnaöarmanna”, er klauf
sig út úr Alþýðuflokknum 1956.
Forystumenn þess hóps voru þá
Hannibal og Alfreð Gislason
læknir.
Hins vegar var Björn Jónsson
þá i Sósialistaflokknum og
Magnús Torfi ólafsson var helzt
talinn I þeim rööum.
— HH.
Gervigeysir
fyrír útlenda
ferðamenn?
Feröamálasérfræöingarnir
erlendu, sem unniö hafa aö
áætlunargerö um feröamál, lita
I sumum atriöum öörum augum
á málin en hinn venjulegi ís-
lendingur.
Þeir stinga upp á, aö gcrö
veröi eftirliking af goshver hér I
Reykjavik. Af lýsingu þeirra á
fyrirbrigöinu má ráöa, aö gos-
hverinn'gæti veriö hvar sem er
á höfuöborgarsvæöinu. Ekki
sakaði þó, að umhverfiö væri
gert sem likast þvi sem er á
raunverulegu hverasvæöi.
Með þessu vilja sér-
fræðingarr.ir koma i veg fyrir
„mikil vonbrigöi flestra feröa-
manna, sem heimsækja tsland”
og flengjast austur aö Geysi til
þess að sjá okkar fræga Gcysi
ekki gjósa i flestum tilfellum.
Goshverinn i Reykjavik
mundi gjósa á hálftima fresti,
eina minútu i hvert skipti. Sér-
fræöingarnir benda á, að ekki
þyrfti að starfrækja fyrirbrigðið
nema hluta úr ári, vor og
sumar, þegar ferðamenn eru
hér í einhverjum mæli.
Goshverinn er hugsaður sem
hluti mikillar menningarmið-
stöövar, sem koma ætti á fót. 1
menningarmiðstöðinni yrðu
meðal annars vlsindasöfn af
ýmsu tagi, ásamt mörgu öðru.
-ÓG.
„ Þeir lœkka ekki launin
sín ef aflabrestur verður"
— segja farmenn og fiskimenn um opinbera starfsmenn og mótmaáa
hugmyndum iðnaðarráðherra um verðjöfnunarsjóð
—Opinberir starfs-
menn hafa ekki lækkað
laun sin, þegar afla-
brestur hefur orðið, þó
formaður samtaka
þeirra telji nú
hækkandi fiskverð for-
sendu fyrir bættum
iaunum opinberra
starfsmanna—.
Þetta kemur fram i ályktun
stjórnar Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, sem
samþykkt var i dag.
Ummæli Magnúsar Kjartans-
sonar iðnaðarráþherra um að
vikka ætti starfsemi jöfnunar-
sjóðs sjávarútvegsins og fisk-
iðnaðarins, og hann ætti að vera
sameign þjóðarinnar allrar,
hafa fengið óblfðar móttökur
hjá talsmönnum sjávarútvegs-
ins.
1 ályktun stjórnar Farmanna-
og fiskimannasambandsins er
bent á, að tilgangur sjóðsins
hafi verið að koma i veg fyrir
stórfellda kaupskeröingu hjá
sjómönnum og erfiðleika hjá
fiskiðnaöi, þegar illa áraöi.
Einnig er visað til þess, að
framlög i sjóðinn eru tekin af ó-
skiptum afla og séu þvi eign
þeirra, sem þar að standa, þaö
er sjómanna, útgerðarmanna
og fiskverkenda. Iönaðarráð-
herra telur, að nota'eigi verð-
jöfnunarsjóð meira en gert hef-
ur verið til að forðast sveiflur I
efnahagslifinu.
Með þvi t.elur hann að koma
megi i veg fyrir óhagstæð áhrif
gengisbreytinga á ýmsar at-
vinnugreinar i landinu, sem
ekki hagnast eða tapa á verð-
sveiflum I sjávarafuröum. —ÓG
Kartafla haustsins:
„ÉG BARA GRÓF
OG GRÓF"
Það verður ekki neitt smá-
ræðisverk að skræla þessar
kartöflur, sem hún Bjarney
Viggósdóttir i Kópavogi tók upp
úr garði móöur sinnar I gær.
,,Ég botnaði bara ekki neitt i
þessu ég gróf og gróf og aldrei
komst ég niður fyrir kartöflurn-
ar,” sagði Bjarney.
Þaö var heldur ekki nein furða
þó litið gengi, þvi undir karlöflu-
grasinu var hátt á þriðja kiló af
kartöflum og þar af var ein rúm-
lega 900 grömm og önnur 500
grömm.
Á myndinni sést hvar Bjarney
heldur á vigt með fimm stærstu
kartöflunum og eins og sjá má
vega þær samtals 2 kiló.
Bragi ljósmyndari, sem tók
myndina, fullyrti, að þetta væri
örugglega nægilega mikið fyrir
meðal veitingahús I hádeginu.
—ÓG
ÞRJÁR ROLLUR
DREGNAR FYRIR
VARÐSTJÓRANN
Þaö er sko engin miskunn hjá
Magnúsi.
Lögrglan i Arbæjarhverfi
handsamaði I gærdag þrjár
kindur, sem eru búnar aö hrjá
lögregluna og Ibúa hverfisins i
allt sumar. Siöan voru kindurn-
ar dregnar inn I lögreglustöö-
ina. Þar tók varöstjórinn viö
þeim. Hann úrskuröaöi þær I
varðhaid. Gæzlumaöur borgar-
landsins kom nokkru sföar og
sótti kindurnar á lögreglustöð-
ina. Þar sem ekki er aöstaöa tii
fjárgeymslu á stöðinni, tók hann
þær i sfnar geymsiur.
Eigandi kindanna var látinn
vita um þær, og átti hann að
sækja þær i gærkvöldi.
Astæöan fyrir þvi aö kindur
þessar voru teknar, er sú, aö
lögreglan var hreint og beint
búin aö fá nóg af þeim. í allt
sumar hafa þær, sérstaklega ein
þeirra, sótt af miklum krafti i
garölönd ibúa I Arbæjarhverfi.
Aösópsmesta ærin hefur veriö
flutt langar leiöir I burtu. Ekk-
ert dugir þó til, og hún snýr allt-
af aftur. Þaö mun vera káliö i
garðlöndunum þarna uppfrá,
sem hrffur hana svo mikiö.
Mikill timi hefur farið I
eltingaleik viö þessa vandræöa-
kind. Segja lögregluþjónar, aö
hún sé alræmd i hverfinu fyrir
ágang sinn.
En sem sagt. Sökudólgurinn
hlaut að veröa lokaður inni fyrr
eöa siðar.
—ÓH
Hattur og Fattur taka
lagið í Goðheimunum
Það var skrýtiö farartæki,
sem blasti viö ibúunum viö Goö-
heimana i gær og enn skýtnari
voru ibúar þess, þeir Hattur og
Fattur. Hattur og Fattur eru
sem sagt tveir furðufuglar, sem
i vetur munu skemmta börnum í
barnatima sjónvarpsins.
t gær var verið að taka upp
fyrsta og annan þátt af fjórum,
sem Ólafur Haukur Simonarson
hefur samið um þá félaga. Þeir
taka lika lagið og eru lög og
textar einnig eftir Ólaf Hauk.
Leikstjóri er Stefán Baldurs-
son, en þá félagana leika
Kjartan Ragnarsson og Arni
Blandon. Auk þess koma fram i
þáttunum 24 börn og stjórnar
Helga Hjörvar þeim.
Það er ekki alltaf sem sjón-
varpsmenn eru jafn heppnir
með veður til útitöku og i gær,
ekki sizt þegar tekið er tillit til
árstimans. Var I gær tekið upp
á barnaleikvelli við Goðheim-
ana, en I dag verður væntanl.
tekið upp i Austurs.trætinu.
Upptökum stjórnar Egill
Eðvaldsson. Ekki hefur verið
ákveðið, hvenær þessir þættir
veröa á dagskrá i vetur. -ÞS.
Kjartan Ragnarsson og Arni Blandon i gervum Hatts og Fatts.