Vísir - 13.11.1973, Side 7
Visir. Þriðjudagur 13. nóvember 1973.
7
mimimMGAR frostið bítur
í:- jHvað fastasl...
--l. - —— — Húfur sem hver og einn getur prjónað og heklað sjálfur
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Veturinn hefur svo
sannarlega heilsað með til-
heyrandi veðráttu hér uppi
á íslandi. Menn hafa dregið
fram þykku vetrarfrakkana
og kápurnar, treflarnir
liggja ekki lengur uppi i
skáp, og kuldaskórnir hafa
verið dregnir fram i dags-
ljósið á ný.
Vetrarfatnaður er auglýstur og
verzlanir fylla nú sinar hillur af fatn-
aði sem hæfir frosti og snjó. Nú dugir
litið sú tizka, sem vinsælust var
i sumar á meðan bezt lét. Það er galla-
buxnatizkan svokallaða. Ekki nema
þá innan undir þykku kápunum og
frökkunum.
En ekki nægja þykkir sokkar, og
skór og yfirfatnaður, við þurfum eitt-
hvað á kollinn lika. Það er orðið
nokkuð um liðið siðan kollhúfurnar
komu fyrst á markaðinn, bæði hér á
landi og erlendis.
En þessar húfur halda svo sannar-
lega velli, eins og bezt sést nú i vetur.
Enn einu sinni er komiö fram með alls
kyns gerðir af þessum þægilegu og
skemmtilegu húfum, sem hver og einn
getur prjónað eða heklað sér sjálfur.
Svo er úrvalið nóg i verzlunum.
En það sparar að vera iðinn sjálfur.
Enda tekur það ekki langan tima að
veröa sér úti um garn, jafnvel af-
ganga, draga fram prjónana og byrja.
Enda er á þann hátt hægt að velja um
miklu meira úrval heldur en nokkurn
tima i verzlun, þó aö sá mátinn sé
kannski þægilegri.
Hér á meðfylgjandi myndum sjáum
við skemmtilegar hugmyndir um
slikar húfur. Nokkrar þeirra ganga
ekki siður á karlmenn, og þá kannski
helzt stráka. Og nú er ekki seinna
vænna, áður en eyrnaverkur og isköld
eyru fara að hrjá okkur i nepjunni að
taka i sig dug og hefjast handa.
Mynd númer eitt:
Þar sjáum við mosagrænan hatt
með bleikri og ljósgrænni rönd.
Garnið, sem notað er i þennan hatt, er
tvöfalt hjartagarn, en hatturinn er
heklaöur. 1 þennan hatt þarf fjórar
hnotur af garni, en ein hnota er 40 g.
Ekki þarf nema örlitið af garni i rend-
urnar tvær.
Mynd númer tvö:
Hérerhekluðbarnahúfa fbláumlit.
Garnið, sem þessi húfa er hekluð úr,
heitir Patons Piccadilly og inniheldur
50 g hnotan. Gul rönd er fremst i
húfunni, en hún og berin og blómin á
hliðinni eru hekluð úr afgöngum. í stað
berjanna má alveg eins hafa eina
stóra rós eða annað slikt á hliðinni.
Mynd númer þrjú:
Húfa með bróderuðum blómum.
Þessi húfa er skemmtileg og sérstök.
Hún er prjónuö úr brúnu ullargarni og
með sléttu prjóni. Brotið er upp á húf-
una, eins og sés.t á myndinni og á upp-
brotið eru bróderuð blóm og fjlöð.
Munstrið er bróderað með flatsaumi
og kontorsting, og i skrautið eru notað-
ir garnafgangar.
Mynd númer fjögur:
Þykk húfa með uppbroti. Agætt er að
prjóna húfu þessa á hringprjón, þann-
ig að hægt sé að losna viö sauminn aft-
an á. Tvær 50 g hnotur þarf af marin-
bláu garni og eina hnotu af rústrauðu.
Húfan er öll blá, en rendurnar, sem
gefa henni mjög skemmtilegan svip,
eru rústrauðar.
Mynd númer fimm:
Gul og rauðröndótt húfa. Þessi húfa
er einnig með uppbroti og kemur það
út eins og stroff. Húfan er prjónuð með
sléttu og brugðnu.
Mynd númer sex:
Húfa, sem gengur jafnt á pilt og
stúlku. Þessi húfa er sérkennileg og
skemmtileg. Hún er prjónuð úr 100 g af
ljósbrúnu garni og 50 g af dökkbrúnu
garni. Á þessari húfu er einnig uppbrot
og það er munstrað. Takið eftir koll-
inum á húfunni.
Og þá er ekki eftir neinu að biða....
—EA