Vísir - 28.11.1973, Blaðsíða 2

Vísir - 28.11.1973, Blaðsíða 2
2 Visir. Miðvikudagur 28. nóvember 1973. visi&sm: Stundið þér vetrariþróttir? Vigíús Helgason, verzlunar- tnaður: — Nei, engar. Ég hef reyndar litið gert að þvi alla mina tiö. Það er helzt, að maöur reyni að fara i gönguferðir, en það er varla hægt fyrr en seinni hluta vetrar vegna annrikis. Ragnar Páll, listmálari:— Já, ég fer mikið á skiði. Aö visu ekki eins oft núna og áður fyrr, en ég er frá Siglufirði, og þar gerir maður ekkert nema stunda skiði frá barnæsku. Annars finnst mér of mikil áherzla lögð á alpagrein- arnar hérna fyrir sunnan. Nor- rænu skiðaiþróttirnar, eins og ganga og stökk, eru ekki siðri. Maria Baldursdóttir, afgreiðslu- stúlka: — Nei, ekki geri ég það. Þaðer svosem nóguráhugi.og ég á bæði skauta og skiði. En það er svo margt annað, sem þarf að gera, aðallega að vinna. En ef ég fengi ofsalegan áhuga, þá færi ég sjálfsagt sem oftast. Margrét Þorsteinsdóttir, ncm- andi: — Já, ég fer á skauta. Ég fer alltaf á Tjörnina, þegar tæki- færi gefst til þess. Margrét Hallgeirsdóttir, tækni- teiknari: — Nei, engar vetrar- iþróttir, enda á ég engar græjur til þess. Það má svo sem vera, að ég fái mér skiði einhvern tima. Agúst Einarsson, viðskiptafræð- ingur:— Nei, engar núna. Ég var talsvert á skiðum fyrir nokkrum árum, en hef ekki snert þau und- anfarið. Ég held það sé tima- skorturinn, sem veldur þvi fyrst og fremst. LESENDUR HAFA ORDIÐ Lúðraþeytarar í fullu formi Guðjón Einarsson hafði sam- band við dálkinn: „Það er mikill misskilningur, sem kom fram i iþróttadálkum Visis á mánudag, að lúðrasveit- irnar, þ.e. Lúðrasveit Reykja- vikur og Svanurinn, væru ekki i æfingu og gætu þar af leiðandi ekki leikiö við landsleiki i Laugardalshöll. Þvert á móti. Hljómsveitirnar hafa æft af kappi að undanförnu, meira að segja haft samæfingar fyrir væntanlegan konsert um miðjan desember. Ég varð var við hálf- gerð leiðindi margra félaganna vegna þessarar klausu i Visi og vildi gjarnan, að sannleikurinn kæmi i ljós. Báðar hafa lúðra- sveitirnar verið fúsar til að leika, þegar landsleikir hafa verið háðir hér, og sett hefur veriðupp fyrir þetta algjört lág- marksgjald, þ.e. rétt fyrir flutn- ingi á hljóðfærum milli staða.” Fimmtíu milljón króna árangur ,,Ég heyrði þvi fleygt, að eftir aö Söiustofnun lagmetisiðnaðar- ins var sett á stofn, hafi menn gert sér vonir um, að nú væru markaðsmál niðursuðu iðnaðarins komin á traustan grundvöll og á eina hönd, sem undantekningarlaust áað vera til hagsbóta og sparnaðar, en raunin mun vist vera önnur. Eins og allir vita, sem fylgjast með framkvæmdum og afskipt- um rikisvaldsins, þá verður að vera vel byggt yfir fint nafn og vel hlúð að þvi fjárhagslega, enda mun svo vera með S.l. Eitt stykki hús i Garðastrætinu i næsta ná- grenni félaganna úr austri, vel búið að vanda með öllum þeim titlum, sem fint þykir og árlegur sjóður, er mun nema nálægt bú.000.000 FIMMTIU MILLJÓN- UM króna og ætlaður er til að standa straum af rekstri um- rædds húss, markaðsleitun, sem mér skilst að fari að miklu leyti fram á ferðalögum út um heim og laun til starfsfólks og kannski eitthvað fleira, sem ég veit ekki um. Allt þetta væri afsakanlegt að vissu marki, ef árangur væri af störfum umræddrar stofnunar, en frá þvi hún var stofnuð, hefur sala farið stigminnkandi á milli ára á þeim vörutegundum, sem svo mikið er lagt upp úr, sem á framantöldu má sjá. Virðingarfyllst, E.” JONAS TROÐ INN, EN MAGNÚS SKAR NIÐUR ,,Til að byrja með vil ég þakka Magnúsi Torfa, menntamálaráðherra, fyrir að skera setuna niður við trog. Þar voru engin vettlingatök á, heldur gengið hreint og klárt til verks, eins og vera bar. Ég hélt nú satt að segja, að hún hefði engum orðið harmdauði, nema e.t.v. einstaka sérvitr- ingi eða skrifborðsspekingi. En viti menn. Á sjálfu Alþingi er upp risinn sjálfskipaður riddari set- unnar. Það á ekki af Alþingi að ganga. Ég taldi, að þeir hefðu þar öðrum hnöppum að hneppa, ekki sist núna, en að vera að vekja upp drauga. Ég man vel, þegar Jónas frá Hriflu tróð setunni inn i is- lenskt mál, svo að ekki varð aftur snúið, a.m.k. i bili. Ég held, að það hafi verið fáir, sem fögnuðu henni. Hún hefur átt sinn þátt i þvi að gera is- lenska stafsetningu að þvi torfi, sem flestir hafa haft andúð á, enda hafa okkar fremstu rithöfundar ekki virt hana viðlits. Þeir sem unna islenskri tungu binda miklar vonir við starf þeirrar nefnd- ar, sem kjörin hefur verið til að athuga og endurskoða islenska stafsetningu, enda hefur hún farið vel af stað með þvi að bannfæra setuna, sem ekkert erindi átti i islenskt rit- mál. Ég tel mig tala fyrir mik- inn meirihluta, þegar ég segi að þjóðin „vænti þess að Alþingi rifi þetta prjónverk” Sverris Hermannssonar og hans nóta, og hafi þar ekkert hálfkák á. Hafnarfirði 24. nóv. 1973 Garri.” Misjafnir vagnstjórar Þóra Björk skrifar: „Fimmtudaginn 22. nóvember, á 10 ára dánardegi Kennedys, vöktu 2 strætisvagnstjórar at- hygli mina. Annar, vagnstjóri nr. 54, ók á leið nr. 5. Þegar vagninn var á móts við Sundlaugarnar i Laugardal, biðu hans þar 3 börn. Hár þeirra var blautt, svo að likast til voru þau að koma úr sundi. Mjög kalt var og hálka mikil. I stað þess að stöðva vagninn og hleypa börnun- um inn, hægði vagnstjóri nr. 54 ferðina á vagninum. Hann ætlaði börnunum að komast upp i vagninn á ferð. Burtséð frá þvi, hversu erfitt er fyrir börn að komast i vagninn, þegar þau þurfa að hlaupa með honum um leið, þá var þetta mik- ið glæfraspil vegna hálkunnar. Gat börnunum auðveldlega skrik- að fótur við að reyna að stökkva upp i vagninn og þá allt eins runn- ið undir hjólin. Eitt barnanna komst ekki upp i vagninn, sem hafði aukið hrað- ann. Ekki stöðvaði 54 þá vagninn, heldur jók enn hraðann og skildi barnið eftir i kuldanum. Það var tveim ólikum saman að jafna, honum og svo hinum bil- stjóranum, sem sömuleiðis ók vagni nr. 5. Þvi miður náði ég þó ekki númeri hans. Um hádegisbilið (kl. 12) var ég aðganga hjá Tjörninni áleiðis að biðstöð vagns nr. 5. Kom þá vagn- inn, áður en ég náði alla leið. Rétti ég þá út höndina, og vagn- stjóri stöðvaði og hleypti mér með breiðu brosi inn. — Siðar, þegar við komum að sömu biðstöð og börnin höfðu verið fyrr um morguninn, stanzaði hann og hinkraði við eftir manni, sem kom hlaupandi. Ekki lét hann i ljós neina óþolinmæði með illsku- svip, né heldur lét hann hlaupí með vagninum, eins og sumii hafa leikið. Þessi vagnstjóri beii bara rólegur unz maðurinn vai kominn upp i. Þessum vagnstjóra vil ég færé þakkir og óska honum þess, ai hann eigi ekki eftir að falla gryfju geðvonzku og illgirni, liki og sumum starfsfélögum haní hefur orðið á með lengri starfs aldri. Annars mættu farþegar lika hafa hugfast, að sjálfsagt þykir vagnstjórum jafnvænt um að sjí framan i bros svona við og vif hjá farþegunum.”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.