Vísir - 28.11.1973, Qupperneq 5
Vísir. Miövikudagur 28. nóvember 1972.
5
ND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND O í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Lýsir stefnu
sinni í kvöld
9 fórnarlömb hennar fundust eftir helgina
Nýi forsœtisróðherrann
kemur fram í sjónvarpi og útvarpi
Leiðir byltingin til auk-
ins lýðræðis í Grikklandi
eða mun herinn herða tök
sín á þjóðinni? — Það er
spurningin, sem jafnvel
Grikkir sjálfir telja sig
ekki getað séð fyrir.
Því biða menn með
nokkurri ef tirvæntingu
þess, að hinn nýi forsætis-
ráðherra, Adamantios
Androutsopoulos, flytji
ávarp sitt í útvarpi og sjón-
varpi í kvöld, þar sem hann
ætlar að lýsa stefi}U. stjórn-
ar sinnar.
Stjórnin og bakhjarlar hennar i
hernum hafa verið á stöðugum
fundum siðustu sólarhringa, þar
sem legð hafa verið drög að hinni
nýju stjórnarstefnu.
Flestir Grikkir lita vonaraug-
um til þessarar stjórnar, og þó
efa blandnir. Eins og Evangelos
Averoff, l'yrrum utanrikisráð-
herra Grikklands, lýsti þvi:
„Timinn mun leiða i ljós, hvort að
baki (byltingunni) liggur einlæg-
ur vilji til bættra þjóðfélags-
hátta".
Rikisstjórnin þykir nú þegar
hafa tryggt sig svo vel i sessi, að
hún muni jafnvel telja óhætt að
aflétta herlögunum, sem i gildi
eru i landinu.
Hinir sjálfskipuðu
refsendur Brasiliu
„Dauða-sveitin" hafa látið
til skarar skríða, eftir að
hafa haldið að sér höndum
i nokkra mánuði. Almenn-
ingur var farinn að halda,
að þessi útlægi félagsskap-
ur lögreglumanna, sem
ekki eru að störfum, hefði
lognazt út af.
En nú er honum kennd hópaf-
taka niu glæpamanna, eftir að lik
þeirra fundust sundurskotin
liggjandi utan vega i útjöðrum
Rio de Janeiro um helgina sið-
ustu.
Það er álitið, að þessi sveit lög-
reglumanna, sem ýmist eru hætt-
ir störfum eða gegna þessu utan
vakta, hafi á samvizkunni lif 2000
afbrotamanna, siðan hún hófst
handa 1958. Hún er einnig sökuð
um að hafa myrt saklausa borg-
ara og leigt þjónustu sina glæpa-
mönnum.
bað hefur verið hljótt um þessa
sveit frá þvi i ársbyrjun, þegar
yfirvöld hófu rannsókn á lögregl-
unni, sem leiddi til handtöku og
Dauðasveitin enn
á sveimi í Brasilíu
þungra refsidóma yfir nokkrum
mönnum.
Fjöldi Brasiliumanna fylgir þó
morðsveit þessari að málum,
vegna þess að dauðarefsing er
ekki viðhöfð i Brasiliu vegna af-
brota, sem ekki varða öryggi
þjóðarinnar. — Og að minnsta
kosti einn maður, sem játaði fyrir
rétti, að hann væri einn úr sveit-
inni, lét i ljós stolt af þvi.
Handbragð sveitarinnar er
jafnan það sama. Sundurskotnum
likamá einhvers afbrotamanns-
ins er fleygt á afvikinn stað og á
honum finnst siðar merkispjald
sem á hefur verið krafsað haus-
kúpa og leggir.
George Papadopoulos, fyrrverandi forscti, situr f stofufangelsi ásamt
konu sinni og hefur enginn fengiö aö heimsækja hann utan bróöur hans.
Myndir af honum liafa nú veriö fjarlægöar af öllum opinberum stööum.
Ætlar herinn aö heröa tökin á þjóöinni meöaöstoö slikra tækja, sem fariö hafa um götur Aþenu aö undan
förnu, eða horfir nú til meira lýöræðis?
4 daga vinnu-
vika til að
spara olíu
Danir velta því nú fyrir
sér að stytta vinnuvikuna
niður í fjóra daga vegna
olíueklunnar, sem nú er
farin að segja til sín hjá
þeim.
Kvaddi Erling Jensen, við-
skiptamálaráðherra, fulltrúa
iðnaðarins, atvinnurekenda og
launþega á sinn fujid i gær til um-
ræðna um möguleika á styttingu
vinnuvikunnar.
Stjórnin hefur neyðzt til þess að
taka upp skömmtun oliu til
iðnaðarins og samgöngutækja á
vegum þess opinbera. Verður
dregið úr oliueyðslu iðnfyrirtækja
um 25% og járnbrauta og
áætlunarvagna um 20%.
Ætlar nú ekki
í framboð
Ariel Sharon, hershöfðingi
israels, sem stýrði árásarsveit-
unum vestur yfir Súezskurðinn
núna i striðinu og náði fótfestu
fyrir israel á vesturbakkanum,
segist nú hættur við að fara i
framboð i þingkosningum næsta
mánaðar.
Sharon, sem lét af störfum i
hernum i júni til þess að helga sig
stjórnmálum, var kvaddur til
þjónustu, þegar striðið brauzt út.
Hann átti öruggt þingsæti i fram-
boði fyrir Likud-flokk sinn, sem
hann hafði átt sjálfur mestan hlut
i að stofna. Hann segist núna ekki
vilja yfirgefa skriðdrekasveitir
sinar á viglinunni Egyptalands-
megin.
Viö atkvæöagreiöslu f rannsóknarnefnd öldungadeildarinnar, sem
fjallar um Watergatemáliö. Meö upprétta hönd efst fyrir miöju
myndarinnar er formaöur nefndarinnar, Sam Erwin.
Fresta
vitna-
leiðslu
um
sinn
Þaö heföi mátt heyra
saumnál detta í dómssal
alrikisdómstólsins í
Washington, meðan réttur-
inn hlýddi á segulspólur
Hvíta hússins í gær. Saum-
nál, já, en hins vegar varla
orðaskil af hljóðrituninni á
spólunni.
Þetta var hljóðritun samtala
Nixons og Ehrlichmans og Halde-
mans ráðgjafa hans þann 20. júni
1972. Það heyrðist litið sem ekk-
ert af þvi, og svo kom 18 minútna
sónninn i stað simtalsins við
Mitchell, þáverandi dómsmála-
ráðherra.
.Jafnframt dómþinginu i gær,
hélt rannsóknarnefnd öldunga-
deildar þingsins fund i gær, og
var þar ákveðið að fresta frekari
yfirheyrslum fram yfir áramót.
En um leið var samþykkt að óska
dómsúrgkurðar til þess að fá nýj-
ar segulspólur og fleiri skjöl frá
Hvita húsinu.