Vísir - 18.12.1973, Side 4
4
Vísir. Þriðjudagur 18. desember 1973.
Umsóknir
um styrk
úr
Finnska
JC-sjóðnum
Finnski JC-sjóðurinn er stofnaður af Junior
Chamber Finnlandi og Junior Chamber Islandi
með fé, sem safnað var í Finnlandi og Svíþjóð
með sölu límmiða með íslenzka fánanum.
Markmið sjóðsins er að styrkja skólanám unglinga
frá Vestmannaeyjum á aldrinum 14—19 ára,
utan Vestmannaeyja. Styrkveiting JC-sjóðsins nær
til hverskonar náms, nema skyldunáms og
háskólanáms.
Umsækjendur geta verið aðstandendur styrkþega
eða styrkþegi sjálfur. Ef styrkþegi nýtur
fjárhagsaðstoðar frá fjölskyldu sinni, er styrkurinn
greiddur til fjölskyldunnar.
Stjóm sjóðsins skipa. Erkki Aho, Kouvola,
Finnlandi, Jón E. Ragnarsson og Ólafur
Stephensen, Reykjavík. Endurskoðendur eru:
Rolf Zachariassen, Heilola, Finnlandi og Reynir
Þorgrímsson, Kópavogi.
Útfyllt umsóknareyðublöð skal senda til: Finnska
JC-sjóðsins, pósthólf 579, Reykjavík.
Eyðublöðin skulu hafa borist fyrir 31. Des. 1973
Skrifstofur bæjarstjórnar Vestmannaeyja í
Vestmannaeyjum og í Hafnarbúðum afhenda
umsóknareyðublöð og gefa jafnframt nánari
upplýsingar.
fFINNSKI JC-SJÓÐURINN
PÓSTHÓLF 579
REYKJAVlK
ORÐSENDING
fró Skattstofu Yestmannaeyja
Skattstofa Vestmannaeyja hefur flutt að-
setur sitt úr Tollstöðinni, Tryggvagötu 19,
að Skúlagötu 57, 4. hæð, i sama hús og
skrifstofur rikisskattstjóra.
Siminn er: 17490.
P.t. Reykjavik 15. desember 1973
Skattstjórinn i
Vestmannaeyjum.
Fyrstur meó
íþróttafréttir
helgariimar
VISIR
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
Sömdu um mörk milli
Kanada og Grœnlands
Samningar hafa tekizt
milli Danmerkurog Kanada
um landamæri á landgrunn-
inu milli Kanada og Græn-
lands, og undirrituðu þeir
það í gær, Mitchell Sharp
utanríkisráðherra og danski
ambassadorinn, Henning
Hjort-Nielsen. — Þetta eru
fyrstu samningar Kanada
af því tagi.
I samningunum eru ákveðin
mörk i gegnum Nares-sund,
Baffinsflóa og David-sund, þannig
að svipuð fjarlægð sé frá Elles-
mereeyju og Baffinseyju Kanada
og svo Grænlandi.
Hvort landið sem er má sam-
kvæmt þessum samningum teygja
yfirráð sin yfir nýtingu auðiinda á
grunninu allt út að mörkunum. en
þó i anda samþykktar Sameinuðu
þjóðanna frá árinu 1958. Su
samþykkt gerir ráð fyrir rétti
strandrikja til þess að nýta auð-
lindir hafsbotnsins á landgrunninu
út að ákveönu dýpi. — Á álunum
milli Grænlands og Kanada er
hvergi náð þessu ákveðna dýpi.
fif® BBH Sjp-Wi i ml bkííBI mjmasm '
fr|H i lá 11
Þjóðverjar hafa tekið þarfasta þjóninn aftur i þjónustu sina, þegar ökubannið stendur yfir. Hefur mátt
sjá hesta á sunnudögum bundna á bilastæðum við kaffihúsin, eins og þessi mynd frá Dusseldorf ber með
scr.
Öðruvísi ökubann
Vestur-þýzka stjórnin
hugleiðir nú að hætta við
bannið á sunnudagaakstrin-
um og taka upp heldur
annars konar bensinsparn-
aðaraðgerðir, þar sem Þjóð-
verjum yröi bannað að
snerta bila sína þrjá daga i
mánuði.
Þessi tillaga verður borin upp i
rikisráðinu á morgun. en gert er
ráð fyrir, að þetta nýju ökubann
tæki gildi i febrúar. Þessi tillaga
gerir ekki ráð fyrir, að allir bileig
endur leggi bilum sinum i einu,
heldur skiptist þeir á við það. Til
þess að hafa reglu á þvi, væri mið-
að við, að siðasta tala á skrásetn-
ingarnúmeri bileigenda stjórnaði
þvi, hvenær hann legði bilnum,
Skrásetningarnúmer, sem endar á
6, á þá að vera látið óhreyft 6., 16.
og 26. hvers mánaðar.
I stjórn með yfir-
gnœfandi minnihluta
Flokkur Paul Hartling
tapaði 8 þingsætum i
kosningunum i Dan-
mörku 4. des., en þó
verður það hann, sem
leysa mun stjórn Anker
Jörgensens af hólmi.
Með sin 22 þingsæti
verður Hartling og flokk-
ur hans, Vinstri, likt og
blaktandi strá i ráðherra-
sætunum og kemur til
með að eiga allt sitt undir
velvilja hinna 159 full-
trúanna á þjóðþingi
Dana.
Margrét drottning fól Hartling að
mynda minnihlutastjórn aö tillögu
frammámanna.Hartlinghefur ekki
gert kunnugt um ráöherralista
sinn, en- þangað til mun Jörgenscr,
fara áfram með forsætisráðherra-
embættið.
Hartling skýrði blaðamönnum
frá þvi, að i viðræðum sinum við
fulltrúa hinna fjögurra eldri flokk-
anna, ihaldsflokksins, Sósial-
Rœningjarnir slepptu
Fíatforstjóranum
Starfsmannastjóra Fiat-
verksmiöjanna i Torino,
Ettore Amerio, var sleppt úr
haldi ræningja i morgun.
Fimm dagar eru liðnir,
siðan pólitískir skæruliðar
rændu honum.
Ræningjarnir slepptu honum um
kl. 4 i morgun i nágrenni við heimili
hans, að þvi er lögreglan i Torino
segir.
Hvorki Fiatverksmiðjurnar né
heldur fjölskylda Amerio hefur
viljað upplýsa, hvort greitt var
nokkurt lausnarfé fyrir starfs-
mannastjórann. Lögreglan hefur
hins vegar áður sagt. að hugsan-
lega stæði ránið i sambandi við
vinnudeilur i Fiatverksmiðjunum i
Torino.
frjálslynda. Kristilega og Mió-
demókrata. heföi hann fengi loforð
fyrir því, að þeir mundu ekki
standa gegn frjálslyndri eins flokks
stjórn.
Þessir flokkar ráða þó aðeins yfir
79 þingsætum, sem hrekkur engan
veginn til meirihluta. Jörgensen
hefur lýst þvi yfir, að flokkur hans,
sóslal-demókratar muni að visu
ekki styðja stjórnina, en á hinn
bóginn þó leitast við að fylgja
ábyrgri stefnu i stjórnarandstöð-
unni.
Paul Hartling