Vísir - 18.12.1973, Page 5
yisir. Þriðjudagur 18. desember 1973.
5-
AP/NTB í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
Myrtu farþegano á báðar hendur
Hótuðu að fleygja síðustu gislum úr flugvélinni
á flugi og láta hana hrapa niður i Aþenu miðja
Lufthansa-flugvélin, sem
Palestinuskæruliðar höfðu á
valdi sinu, hóf sig á loft af
flugvellinum við Aþenu i
morgun kl. hálf átta og tók
stefnuna til óþekkts ákvörð-
unarstaðar.
Skæruliðarnir, sem hafa
siðasta sólarhringinn skilið
eftir sig blóð og lík á báöa
bóga, fyrst á Rómarflug-
vellinum og síðan i Aþenu,
slepptu tveim gísla sinna á
siðustu stundu, áður en f lug-
vélin lagði upp. — Það voru
tvær flugfreyjur.
Kyrr i morgun höfðu skærulið-
arnir hótað að fljúga af stað yfir
Aþenuborg, varpa gislunum
bundnum saman i eitt búnt fyrir
borð og láta vélina hrapa niður i
miðja höfuðborg Grikklands. En
með slikum hótunum höfðu þeir
gefið griskum yfirvöldum frest á
frest ofan i nótt til þess að færa til
flugvélarinnar tvo Palestinuaraba,
sem sitja þar i haldi.
Orðum sinum til frekari áherzlu
höfðu morðingjarnir tekið þrjá
gisla sinna af lifi i gær, einn af
öðrum með nokkurra minútna
millibili. Undir morguninn myrtu
þeir cinnig aðstoðarflugmanninn.
Flugstjórinn sárbændi i tal-
stöðinni vfirvöld Grikklands að
vepða við kröfum ræningjanna og
sagði gislana alla i bráðum háska.
— Voru Palestinuarabarnir tveir,
sem morðingjarnir kröföust
lausnar á. hafðir á flugvellinum,
meðan yfirvöld þrefuðu við
ræningjana um öryggi gislanna. —
Þessir tveir Palestinuarabar voru
handteknir, þegar þeir réðust til at-
lögu á flugvellinum i Aþenu i ágúst
siðastliönum.
Uarmleikur þessi byrjaði á flug-
vellinum við Hóm upp úr hádeginu
i gær, þar sem Arabar voru látnir
opna töskur sinar hjá öryggis-
vörðunum. Þrifu þeir upp úr tösk-
unum skotvopn og létu kúlna-
hriðina rigna yfir afgreiðslusalinn,
þar sem þúsundir manna voru.
Huddu þeir sér leið út á flugvöllinn,
vörpuðu handsprengju inn i banda-
riska farþegaþotu. sem þar stóð
með 70 manns innanborös og
kveiktu þannig i henni.
Alls urðu þeir þar 31 manni að
bana, en 18-20 særðusl til viðbótar.
Sumir hinna særðu eru svo illa.
brenndir úr flugvélabrunanum. að
þeim er vart hugað lif.
Kftir þetta blóðbað rændu skæru-
liðarnir I.ufthansaflugvél með 17
manns innanborðs. 2 flugmenn, 2
flugfreyjur, 5 italska öryggisverði
og 7 farþega. Einn gislinn drápu
þeir strax. þcgar hann reyndi að
flvja. en flugstjórann neyddu þeir
til þess að fljúga með þá til Aþenu.
Tókst honum með naumindum að
koma vélinni á loft af Hómarflug-
vellinum. þvi að hún hal'ði
skemmzt i skothrið morðingjanna.
Her og lögrcgla i Aþenu lá i um-
sátri um flugvélina. meðan dipló-
matar scx arabiskra rikja, Italiu
og V-Þýzkalands. auk griskra yfir-
valda, rcyndu að scmja við skæru-
liöana. Þrir skriðdrckar voru
meira að segja til laks, cn það varð
ekki af þvi, að látið væri til skarar
skriða gegn ska'ruliðunum al' ótta
um lif gislanna.
Enginn vcit með vissu ennþá, hve
marga af þessum 17 gislum skæru-
liðarnir hafa mvrl. Þegar flugvélin
var færð til á Áþcnuflugvellinum i
morgun til þess að taka bensin,
kom i Ijós eitt lik undan hjólunum.
Hæningjarnir höfðu greinilega
fleygt þvi út úr völinni.
Hæningjarnir höfðu boðizt til herrarnir vildu þó ekki gefa kost á
þess að taka l'jóra arabiska sendi- sér, nema skæruliðarnir lofuðu að
herra i skiptum fyrir konur og láta alla gislana lausa. Varð ekki af
börn. sem i flugvélinni voru. Sendi- þvi.
i flugstöðinni á Kiuniicino-flugvelli viö Hóm: Lögreglumaöur
beýgir sig yfir lijón, scin orðiö hafa fyrir skotum. Þau voru flutt á
sjúkrahús og voru ekki talin I hættu. — Sfmamynd AP i morgun.
Kissinger utanrfkisráðherra og Faisal konungur Saudi Arabiu sjást
hér á rökstólum, meðan enn var óráðið, hvort af friðarráðstefnunni
yrði eða ekki. Kissinger hafði tæpast lokið heimsókninni með loforð
allra um þátttöku, þegar blóðbaðið varð i Róm.
Skœruliðarnir for-
dœmdir af Egyptum
Egypzkir fjölmiðlar for-
dæmdu í morgun hryðju
verkiná flugvellinum í Róm
i gær, og skrifuðu þeir, að
sennilega væri tilgangurinn
að spilla fyrir friðarráð-
stefnunni, sem hef jast skal í
Genf á föstudag.
„Það er erfitt að imynda sér
annan tilgang," skrifaði aðalmál-
gagn stjórnarinnar i Kairó, blaðíð
A1 Ahram. Það lýsir blóðbaðinu
semalgjörubrjálæði og segir að þvi
sé lsraelum rétt upp i hendurnar
tylliástæða til þess að leggja steina
i götu friðarviðleitninnar.
„Það er erfitt að trúa þvi, að
Arabar taki þátt i þcssum
ómannúðlcgu aðgerðum. Þeir, sem
myrða saklausl lólk, æltu heldur að
beita vopnum sinum i baráttunni
gcgn óvininum á hernumdu
svæðunum," skrifar blaðið A1
Akhbar.
Israelar, sem komnir cru til
Genfar til undirbúnings friðarráð-
sfel'nunni, telja, að þetta alvik
muni kynda undir andstöðu
Israelsst jórnar gegn þátltöku
Palestinuaraba i friðarráðstefn-
unni.
Fékk
tauga-
áfall
J. Paul Getty III liggur á sjúkrahúsi
til meðferðar, eftir að ræningjarnir
létu hann lausan fyrir citthvert hæsta
lausnargjald, sem um getur.
ffann hefur hlotið taugaáfall, og
þolir t.d. ekki yfirheyrslur lögregl-
unnar. Brestur hann jafnan i grát, ef
talinu er vikiö að ræningjunum, sem
hótuöu honum og fjölskyldu hans öllu
illu, ef hann gæfi lögreglunni lýsingu á
þeim.
Faðir hans, J. Paul Getty, jr„ mun
hafa tekið loforð af móður hans Gail
Harris, sem einnig hefur orðið að leita
læknishjálpar eftir álagið, að þau flytji
vestur til Bandarikjanna.
A myndinni hér til hliðar, sem tekin
var daginn sem hann kom fram, sést
hægri vangi piltsins, en hann missti
hægra eyrað.
Þaö er engu likara en ljósmyndarinn hafi náð mynd af jólatré
Chicago-búa á þvi augnabliki, sem golan bylgjar það. Svo var þó i
rauninni ckki, heldur hreyföi hann myndavélina til beggja hliða um
leið og hann tók myndina. Hraðinn var 1/10úr sekúndu.