Vísir - 18.12.1973, Síða 7
Vísir. Þriðjudagur >8. desember 1973.
7
riiMNl
| SIÐ A l\S J
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Það er svo sannar-
lega farið að styttast i
jólin, en það er vist
áreiðanlegt, að ekki
nærri þvi allir hafa
lokið við jólagjafainn-
kaupin. Sumir hafa
vart tima til þess að
verzla fyrr en rétt á
siðustu dögunum áður
en hátiðin gengur i
garð.
Svo eru aftur aðrir, sem vilja
helzt losna við að kaupa mikið
inn af gjöfum og kjósa að búa
gjafirnar til sjálfir. Liklega
hefðu þeir og flestallir gaman af
að búa til jafnstóra tuskudúkku
og sjá má hér á
meðfylgjandi mynd. Svo ekki sé
nú talað um hve ánægt það barn
yrði.sem fengi eina slíka i jóla-
pakkanum.
Ein dúkka er 80 cm löng, sem
samsvarar hæð á 3ja til fjögurra
ára gömlu barni. Ekki amaleg-
ur leikfélagi það fyrir þann ald-
ur.
Dúkkuna má sauma til dæmis
ur bómullarefni eða frotté-efni,
sem getur verið skemmtilegt
lika. Ef efnið er 90 sm breitt,
þarf 1.80 m í dúkkuna. Klippt er
fram- og afturstykki og þau
saumuö saman þannig, að
réttan á stykkjunum snýr
saman. Dúkkan er siðan fyllt,
með svampi, t.d. ^f dúkkan er
saumuð úr dúnheldu efni þá er
ágætt að fylla hana með dún úr
gömlum kodda.
1. Teiknið upp snið eins og sýnt
er á meðfylgjandi mynd hér á
siðunni. Hver rúða er 10 x 10 cm
stór, þegar búið er að teikna
DÚKKA SEM ER JAFNSTÓR
BARNINU SJÁLFUl
— og það er auðvelt að
sauma hana, þó hún
sé 80 sm. há
Hver rúða er 10 x 10 cm að stærð. Sundbolur er teiknaður á
dúkkuna á sniðinu á þessari mynd meö feitum linum vinstra
megin. Hægra megin er dregið upp snið af svuntu. Auðvitað er
þó ekki nauðsynlegt aö teikna þaö með, og dúkkan er öll í heilu
lagi.
upp sniðið. Dúkkan er síðan
teiknuð á rúðu-pappirinn.
Dúkkan er ca. 80 sm löng, og þá
er að klippa út sniðið.
2. Klippið fram- og afturstykki
dúkkunnar úr efninu, sem hún á
að vera gerð úr. Klippið siðan
andlit. Gert er ráð fyrir saum-
um i sniðinu.
3. Saumið augu, nef og munn á
andlitið, eða málið það á.
Saumið siðan andlitið fast á
framstykki dúkkunnar. 1
sniðinu er gert ráð fyrir, að
dúkkan sé i sundbol, en að sjálf-
sögðu er það undir hverjum og
einum komið, i hvað hún
klæðist. Ef hún klæðist sundbol,
er hann saumaður fastur við
stykkin, áður en þau eru
saumuð saman.
4. Nú má sauma fram- og altur-
stykki saman, og það er gert
með þvi að leggja saman réttu
stykkjanna og siðan saumað.
Skiljið eftir ca. 12 sm slórt gat á
höfðinu.
5. Snúið dúkkunni við, og fyllið
hana með tilheyrandi efni, vatti,
dún , svampi eða öðru.
6. Þá er það hárið, sem ekki má
vanta. Það getur verið sitt eða
stutt og i hvaða lit, sem mönn-
um deitur i hug.Það er saumað
á með stoppunál og er úr garni.
Bezt er að hafa garnið gróft.
7. Siðan er tilvalið að sauma föt
á dúkkuná.
1 sniðinu hér á myndinni er
gert ráð fyrir sundbol og svo
litilli svuntu á hægri hlið.
Annars er mjög auðvelt að
sauma föl á slika dúkku, og svo
passa gömul barnaföt, sem
hætt er að nota, afbragðsvel.
ORT Á ÖXI
Ingimar Erlendur Sigurðsson er
nafn, sem ekki hefur borið ýkja
mikið á undanfarin ár á bóka-
markaði. Hér kemur ljóðakver
frá hans hendi, myndskreytt af
honum sjálfum, ef frá er talin
höfuðskreyting bókarinnar, for-
siðumyndin eftir Gunnar S.
Magnússon. Bókin er 85 siður i
iitlu broti.
PÉTUR OG
ÚLFURINN
Bókaútgáfan Saga gefur hér út
laglega barnabók. Bókina þýddi
Alda Ægis, en prentun fór fram i
Austur-Þýzkalandi. Sagan er
byggð á tónlist Sergei Prokofief
um Pétur og úlfinn, sem alkunna
er.
AliLT TIL
SICÍilAlflKiM
ingar
KÉÉ bind
PACHSTEIN
ÞRJÁR
Æ VINTÝ RABÆKUR
Þrjá litlar og ódýrar ævintýra-
bækur hafa komið á jólabóka-
markað barnanna, Ævintýrið um
músabörnin i dýragarðinum,
Ævintýrið um fiskinn og perlurn-
ar og Ævintýrið um Klöru og
hvitu gæsirnar.
SKÍÐAVIÐGERÐIR - SKATA Sekin af /Ijálparsi'eil tkála Reykja vik
i ASETNINGAR A BINDINGUM BViÞIN
^^)RUGG ÞJONUSTA.FRAMKVÆMD AF FAGMANNI BANKASTRÆTI 4. - SlMI 12048. SNORRABRAUT 58. - SlMI 12045.