Vísir - 26.01.1974, Blaðsíða 9
Visir. Laugardagur 26. janúar 1974.
notuö strengjahljóðfæri auk slag-
verks.
Rauði þráðurinn i þessari
sinfóniu er reyndar allur um
dauðann, sem gengur stöðugt út
og inn. Sjostakóvits samdi verkið
árið 1969 og byggir textann við
verkið eftir fjölmörg ljóðskáld.
Má þarf nefna m.a. Garcia Lorca.
bessi sinfónia er litt þekkt, a.m.k.
hérlendis. Hún var bezt flutt af
verkum þessara tónleika.
Það er óvefengjanleg stað-
reynd, að afburða sólóistar geta
innblásið flestar hljómsveitir,
nema stjórnandinn sé enn betri
listamaður en þeir. Þá innblæs
hannekki einungis hljómsveitina,
heldur einnig þá, sem fara með
einleikshlutverk(-in). Hvað svo
sem tónlistarunnendum finnst um
Sjostakó.vits, þá er samt eitt stað-
reynd: Hann er fagmaður út i
yztu æsar, þó að hann hafi sótt þó
nokkuð i gnægtabrunn Gustavs
Mahlers, eins og lika Britten
sjálfur.
Kim Borg
Sundav Times mótið
hafíð en Hialti oa
w
Asmundur ekki með
10« .10
♦ db • db* 0" T0I 8*
Tveir ásar og kóngur — Belladonna, Garozzo og Shariff spila all-
ir i Sunday Times mótinu.
S.l. fimmtudagskvöld hófst i
London ein eftirsóttasta og
sterkasta bridgekeppni, sem
haldin er, Sunday Times para-
keppnin. Tuttugu pör taka þátt i
mótinu, 4 frá Englandi, 2 frá
Frakklandi, italiu, Sviss og
Bandarikjunum og eitt par frá
irlandi, ísrael Mexico,
iVlarocco, Portúgal, Skotlandi
og Sviþjóð. Par nr. 20 cr svo
Boris Schapiro og Omar Shariff.
Eins og áður hefur verið sagt,
þá var einu pari boðið frá Is-
landi, Ásmundi Pálssyni og
Hjalta Eliassyni, en af einhverj-
um ástæðum gátu þeir ekki
ákveðið þátttöku fyrr en það var
um seinan. Er illt til þess að
vita, þvi sannarlega eiga is-
lenzkir bridgespilarar erindi á
þetta mót. Erfiðlega gekk að út-
vega boð á þetta mót á sinum
tima og ef til vill verður erfitt að
komast inn aftur.
Eins og að likum lætur munu
flestir beztu spilamenn heims-
ins leiða saman hesta sina
þarna og hér er spil frá keppn-
inni fyrir tveimur árum.
LATTU GANGA LJOÐASKRA
Enn eru að berast botnar við
áramóíafyrripartana. Ég ætla
að afgreiða þá fyrst i þættin-
um i dag.
Árið liður, endar senn
i ösku minninganna.
Biessuð stjórnin öslar enn
i átt til grynninganna. — Hafliði —
í liálu spori hart ég renn
á hjarni mistakanna.
Halldór Magnússon.
Aldur færist yfir menn,
eins og bækur sanna.
h.j.þ.
Margir hnjóta um meyjarflærð,
sem mega njóta kvenna.
Aðrir hljóta aö vonum værð,
er veiðispjótum renna.
Halldór Magnússon.
Ef með spjóti sú er særð,
sökin er þrjóti að kenna. h.j.þ.
Og h.j.þ. tekur upp hanskann fyrir
kvenfólkið.
Eg tek hanskann hiklaust upp,
Iheiðurs svo að konur njóti.-
Þrjótinn flengi liart á liupp,
sem hampar sinu deiga spjóti.
Halldór Magnússon svarar auglýsingu,
sem birtist i blaðinu 14. jan.
Unga stúlku virðist vanta
veraldlega munaðinn,
ætli það sé á alla kanta
eða bara framhliðin.
1 framhaldi af þessu er hægt að rifja
upp nokkrar visur eftir Hannes Hafstein.
Liklega kannast flestir við visuna
Hjúpuð fegurð.
Fegurð hrifur hugann meira,
ef hjúpuð er,
svo andann gruni ennþá fleira
en augað sér.
Karl og kona nefnir hann næstu visu.
Karlmanns þrá er, vitum vér,
vefja svanna i fangi.
Kvenmanns þráin einkum er:
að hann til þéss langi.
Lán heitir næsta visa og hafa trúlega
margir farið eftir þessu heilræði Hannes-
ar.
Lifið er dyfí,
dauðinn þess borgun.
Drekkum i kveld,
iðrumst á morgun.
Að lokum visan, Verra en synd.
Að drepa sjálfan sig
er synd gegn lifsins herra.
Að lifa sjálfan sig
er sjöfalt verra.
Þar sem ég er farinn að birta hér visur
um kvenfólk og synd, sem er jafn nátengt
og folaldið merinni, ætla ég að halda þvi
áfram og gef K.N. orðið.
A undan mér hofróðan hraðaði för,
i hálsmálið kjóllinn var fleginn-,
á bakinu öllu var engin spjör-,
en er nokkuð binumegin?
Þannig yrkir hann um pilsalengdina.
Kæru löndur! Hvað veit ég,
karl, um pilsin yðar;
en mér finnst lengdin mátuleg
milli hnés og kviðar.
Þegar stúlka gaf skáldinu vettling kvað
það.
Glaður ég með þökkuin þigg
það sem mér er boðið,
ástúðlega að þvi hygg,
einkum sé það loðið.
Eins og gerist og gengur heitir næsta
vísa.
Meðan aðrir ergja sig,
einn ég sef i húminu,
af þvi fyrir ofan mig
ekkert hef i rúminu.
Og að lokum Ómissandi að hafa hann
ekki.
Ef ég dey, má undan skilja
á mér „kyssarann."
Yngismeyjar okkar vilja
ekki missa hann.
Jónas Hallgrimsson orti nokkrar veður-
vísur og mun visan Molla vera mörgum
kunn.
Veðrið er hvorki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt.
Það er hvorki þurrt né vott,
það er svo scm ekki ncitt.
Um rigninguna kveður hann.
Skuggabaldur úti einn
öli daufu rennir.
Skrugguvaldur, hvergi hreinn
himinraufar glcnnir.
Jónas byrjaði ungur að yrkja. Flest
glataðist af þeim skáldskap. Menn
kannast þó við visuna, Buxur, vesti, brók
og skó, en liklega færri við aðra visu, sem
geymst hefur, Mál er i fjósið.
Mál er i fjósið! Finnst mér langt.
Fæ ég ekkert oní mig?
Æi. lífiö er svo svangt.
— Enginn étur sjálfan sig.
Það er orðið nokkuð langt siðan ég hef
birt sléttubandavisur, en hér koma þrjár,
allar eftir sr. Sigurð Norland.
Sléttubanda háttur hýr,
liróður andans fagur
léttu vanda, djarfur dýr,
drauma landa bragur.
Meðan áttir þekkir þjóð
—þagni sláttur nýrri—
Iléðan láttu óma óð
öllum háttum dýrri.
Sú siðasta er vatnsheld sléttubönd.
Frauður kvikur hendist hátt
heitur skefur grunná,
rauður vikur, endist átt,
eitur kefur runna.
Nú er þorri genginn i garð. Árni~
Stefánsson yrkir Þorra-sigling.
Kargur yglir kólguhrá
kuldamyglu þorri.
Lemur hryggluhóstann þá
hrönn und sigling vorri.
Þátturinn endar i dag á. visu eftir Jón
Pál Ágústsson.
Ráð er gott að gleyma sér
meö gömlu bernsku vori,
þegar vetrar þunginn er
þrándur i hverju spori.
Eins og stundum áður verður enginn
fyrripartur i þessum þætti, en ég vil biðja
menn þess i stað að senda þættinum frum-
ortar visur.
Ben. Ax.
A A-8-4
VA-K-6-5-2
♦ 10-8-3
*A-6
* K-D-G-10-9-3 A 7
V D-10-9 V G-7-4
^ q_7 ^ K-D-9-6-5-4
* 9-2 * 7-5-3
* 6-5-2
V 8-3
* A-2
* K-D-G-10-8-4
Vestur gefur, n-s á liættu.
Sagnirnar voru stuttar en lag-
góðar:
Vestur Norður Austur Suður
3* D p 5*
P P P
Vestur spilaði út spaöakóng
og sagnhafi gerði sér strax
grein fyrir þvi, að eini sanni
vinningsmöguleikinn væri, að
hjörtun væru 3-3 og vestur
kæmist ekki inn, þegar hjarta-
slagur væri gefinn. Þessi mögu-
leiki virtist samt heldur
fjarlægur og sagnhafi ákvað að
reyna smá bragð á austur. Hann
gaf þvi spaðakóng, enda þótt
hann væri viss um að austur ætti
einn eða engan spaða. Vestur
hélt áfram með spaða og nú
drap sagnhafi með ásnum.
Austur var ákafur i að trompa
og hann spilaði siðan tigulkóng
til baka. Nú var sviðið sett.
Sagnhafi drap á ásinn. tók tvö
hæstu i hjarta og trompaði
þriðja. Siðan kom laufakóngur
og laufaás. Nú stóð spiliö bvi
tapslagurinn i tigli hvarf niður i
hjarta. Það var óþarfi hjá
austri að láta taka sig á þessu.
þvi þar eð vestur er búinn að
auglýsa 6-7 spaða, þá er óliklegt
að sagnhafi gefi, nema i
einhverjum annarlegum til-
gangi. Trompi austur ekki
spaðaásinn, þá getur sagnhafi
aldrei unnið spilið.
Sveit Hjalta
efst hjá BR
Þremur umferðum er nú lokið
i sveitakeppni Bridgefélags
Reykjavikur og er staöa efstu
sveitanna þessi:
1. Svéit Hjalta Eliassonar 58
stig.
2. Sveit Harðar Arnþórssonar 46
stig.
3. Sveit Gylfa Baldurssonar 46
stig.
4. Sveit Axels Magnússonar 45
stig.
5. Sveit Guðmundar Pétursson-
ár 42 stig.
6. Sveit Braga Jónssonar 37 stig.
7. Sveit Þóris Sigurðssonar 31
stig.
8. Sveit Helga Jónssonar 31 stig.
Næsta umferð verður spiluð i
Domus Medica n.k. miðviku-
dagskvöld kl. 20.
Undankeppni Islandsmóts.
sem jafnframt er Reykjavikur-
meistaramót i sveitakeppni
verður fram haldið n.k. þriðju-
dagskvöld og er spilað i Domus
Medica. Eru spilaðir tveir 16
spila leikir á kvöldi. Keppikefli
þeirra sem taka þátt i hinum
ýmsu mótum sem haldin eru ár
hvert er að sjálfsögðu að reyna
að hreppa efsta sætið. Er oft um
falleg verðlaun að keppa. jafn-
vel að auki farandgripi, sem
varðveittir eru þar til næsta mót
fer fram. Það er til háborinnar
skammar. að ekki skuli vera
búið að úthluta verðlaununum
fvrir siðasta Reykjavikur-
meistaramót þegar það næsta
er hafið og ættu forráðamenn
Bridgesambands Reykjavikur
að sjá sóma sinn i þvifljð kippa
þessu i lag hið snaraýta.