Vísir - 08.02.1974, Síða 3
Vísir. Föstudagur 8. febrúar 1974.
3
Eins og aörir flugmenn þurftu flugstjórarnir á Concorde aö athuga meö
veöurútlit á leiðinni tii Alaska. Hér eru þeir staddir uppi i veöurstofunni
á Kefiavikurflugvelli.
viðskiptafræðinemarnir liklega
komið sem fulltrúar tilvonandi
farþega vélarinnar.
Blaðamenn fengu ekki að fara
um borð. Þótti mörgum það súrt,
sérstaklega þeim, sem vildu
fullvissa sig um, hvort gluggarnir
á þotunni væru stærri eða minni
en skráargöt.
Þótt engir væru farþegarnir um
borð, var flugfreyja meðferðis.
Hún setti upp angistarsvip er hún
steig út i kuldann, en bráðnaði
fljótlega aftur þegar hún var
komin innan um lopann og heklið
i Icemart.
Apspurð sagði hún, að allt gengi
mjög fljótt fyrir sig um borð i
þotunni. Væri þó hraðinn á fram-
reiðslunni nógur fyrir á ,,hæg-
fara” þotunum.
t viðtali við Visi sagði einn hinn
franski kafteinn þotunnar, að
ferðinni væri heitið til Alaska til
að gera ýmsar tilraunir með
þotuna i köldu loftslagi. Var
hann alveg a þvi, að það væri
alveg nóg að koma til- tslands til
að finna kalt loftslag.
-ÓH.
Kafteinninn og flugfreyjan. Þau voru bæöi eilitið þreytuieg, þótt flugiö
liefði reyndar ekki tekiö langan tíma.
Ef einhver hefur fengiö
staöfestan grun sinn um það, aö
hér á landi byggju bara
Eskimóar, þá var þaö flugáhöfn
Concorde þotunnar, sem lenti á
Keflavikurflugvclli i gær.
Það sem blasti við þegar
dyrnar voru opnaðar á þotunni,
var hópur fólks, og mikill
meirihluti hulinn stórum og þykk-
um Eskimóaúlpum. Á ytra byrði
voru þetta kannski Eskimóar, en
innani voru áhugasamir ts-
lendingar um flug, sem klæddu
nistingskuldann svo rækilega af
sér.
Eflaust hefur mörgum brugðið,
sem héldu alltaf að Concorde væri
einhver risaþota. Hún er langtum
minni en DC-8 þotur Loftleiða, og
tekur raunar ekki nema um
hundrað farþega. Það eru hin háu
hjól hennar sem gera hana svo
vigalega á myndum.
Móttökunefndin á flugvellinum
samanstóð af samgönguráð-
herra, forstjórum flugfélaganna,
flugmálastjóra og svo nokkrum
viðskiptafræðinemum. Hafa
Með sigið nef og miklum hávaða
skellti Concorde vélin sér niður
á eina flugbrautina á Kefla-
víkurflugvclli. Concorde er út-
lits lik og risastór hræfugl, til-
búinn að liremma bráðina.
►
173.000 tonn komin á land
— Börkur enn með 800 tonn á austurleið
Nú eru 173.000 tonn af
loðnu komin á land. Afl-
inn i gærdag var 11.920
og voru það 54 bátar,
sem tilkynntu sig til
lands með þann afla. í
nótt frá miðnætti til-
kynntu 13 bátar afla,
samtals 3.160 tonn.
Þessi afli fékkst á fjórum veiði-
svæðum, 2., 3., 4. og fimmta.
P.eyndar var aðeins einn bátur á
2. veiðisvæði, sem er frá Ingólfs-
höfða að Dyrhólaey. Hinir
bátarnir voru vestar með Suður-
ströndinni og allt vestur fyrir
Grindavik. A þessum slóðum var
gott veður i nótt. en nú er bræla og
bylur fyrir austan.
Þeir 13bátar. sem tilkynntu um
afla i nótt dreifast á allar hafnir
frá Reykjavik og austur á Nes-
kaupstað.
1 fyrrinótt fylltist i Bolungavik,
þannig að enginn fer vestur i bili.
Þeir bátar. sem nú dreifa sér á
hafnirnar. fylla i þau skörð. sem
orðið hafa i þróm verksmiðjanna
á þessum stöðum.
Börkur varð aflahæstur i nótt.
Hann fékk 800 tonn og ætlar aust-
ur með þau. Sigurbjörg frá ólafs-
vik og Viðir NK fengu 270 tonn og
ætla báðir til Neskaupstaðar.
Héðinn kemur með 330 tonn til
Hafnarfjarðar. cn aðrir bátar.
sem afla fengu i nótt. voru með
undir 270 tonnum.
—GG
Snillingarnir sœkja sig
Guðmundur, Friðrik, Ciocaltea og Smyslov unnu í gœrkvöldi.
Friðrik efstur á Reykjavíkurmótinu
„Snillingarnir okkar eru að
sækja sig. Þetta voru skemmti-
legar skákir i gærkvöldi", sagði
sérfræðingur okkar i gærkvöldi.
Friðrik vann Magnús af
öryggi og tók þar með forystu I
mótinu. Guðmuiulur Sigurjóns-
son vann Július, en hins vegar
tapaði Ingvar fyrir Ciocaltea.
„Ciocaltea vann Ingvar með
talsvcrðum glæsibrag. Einkum
var það undir lokin, að Ingvar
fór illa með hrókana sina",
sagði sérfræðingurinn.
Guðmundur Sigurjónsson
Smyslov vann ögaard. Smys-
lov átti ekki i neinum erfiðleik-
um með Norðmanninn, enda
miklu reyndari skákmaður. en
Ogaard var fullkomlega rólegúr
gegn heímsmeistaranum fyrr-
verandi. þótt hann hefði litið
gegn honum að segja. ögaard
stefnir að þvi að ná sér i alþjóð-
lega titilinn. og kannski tekst
það von bráðar. en hann er að-
eins tvitugur að aldri.
Bronstein og Velimirovic
sömdu um jafntefli eftir fáa
leiki.
..Þetta var rakið stór-
meistarajafntefli '. sagði sér-
fræðingurinn. ,,Þeir gera þetta
oft. semja um jafntefli og vilja
þá hvila sig undir átökin gegn
þeim veikari. Þeir viðurkenna
það reyndar seint. að um sam-
komulag sé að ræða — og stund-
um er það nú. að skákirnar hjá
þeim sterku fara i þennan jafn-
teflisfarveg".
Skákir Forintos og Jóns
Kristinssonar. Kristjáns og
Trinkovs fóru i bið, og töldu sér
fræðingar á Kjarvalsstöðum i
gær. að landarnir hefðu tapað
þeim biðskákum fyrirfram.
Forintoser a.m.k. með gjörunn-
ið og Trinkov hlýtur að vinna
Kristján. Kristján fór að herma
eftir Fischer i bvrjun. en tókst
ekki betur en svo. að Trinkov
hefur nú betri stöðu.
Biðskákir verða teíldar i
kvöld að Kjarvalsstöðum. en
fimmta umferð verður tefld á
morgun. laugardag. Þá hefst
tafl klukkan 13.30. og teflír þá
Trinkov við Guðmund. Jón Kr
við Kristján. Magnús við Forin-
tos. ögaard við Friðrik. Frey-
steinn við Smyslov. Ingvar við
Benóný. Velimirovic við Ciocal-
tea og Július við Bronstein.
t gærkvöldi var frestað skák
Benónýs og Freysteins vegna
lasleika þess fyrrnefnda.
Friðrik hefur nú 3 1/2 vinning.
en Bronstein. Smyslov og for-
intos koma fast á hæla honum.
Smyslov á biðskák sem fleytir
hans vinningatöln jafnvel upp i
fjóra i kvöld. —GC>