Vísir - 09.02.1974, Page 5
Visir. Laugardagur 9. febrúar 1974.
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Guðmundur Pétursson
Fljótandi gengi
..gæti hún heitift þessi mynd, sem birtist i einu Parisarblaöanna
skömmu eftir að franska stjórnin ákvað að láta gengi frankans fljóta,
eins og brezka pundið og italska liran. Þessir tveir 100 franka seðlar
fljóta i gosbrunninum á Concorde-torginu.
Lausir eftir verkfall
Þessi bilalest flutti tvær milljónir punda af kjöti (nei, ekki stolnu (!)) frá Council Bluffs i Iowa til
Chicago og austurstrandar Bandaríkjanna. Ástæðan var verkfall sjálfstæðra vörubilstjóra, sem reynt
var með þessu að brjóta. Bilarnir minntu helzt á brynvagna, eins og frá öllu var gengið til þess að
tryggja öryggi bilstjóranna.
Leynilöggon
fann Biggs,
en varð að
flýja land
Þetta er yfirlögregluþjónninn Jack Slipper frá
Scotland Yard, sem hefur um árabil unnið að þvi að
elta Ronald Biggs, en er hér þungur á svip eftir
komuna heim til Englands frá Braziliu tómhentur.
,,fcg var mjög vonsvikinn,” sagði hann, en þeir
tveir félagarnir i Scotland Yard urðu aö yfirgefa
Braziliu i hasti. Stjórnvöld þar brugðust illa við,
þegar þau uppgötvuöu, að Bretar höfðu ætlað að
laumast úr landi með Biggs, án þess aö kveðja
kóng né prest.
f
TRÚARBRAGÐASTRÍÐ
Lögreglumennirnir á mynd-
inni hér fyrir ofan eru á leið inn i
mosku i Brooklyn i New York,
þar sem byssuþófar úr einni
deild „Black Muslims” brutust
inn á dögunum og létu kúlunum
rigna. Kjórir þeirra, sem voru
inni i moskunni, þar á meðal
lciðtogi þeirra eða æðsti
prestur, létu lifið. og einnig
tveir árásarmannanna i skot-
bardaganum, sem brauzt út
milli hinna striðandi svertingja-
flokka. V’ið l'ætur lög-
reglumannsins i dyrunum sést
lik cins fórnarlambanna.