Vísir


Vísir - 16.02.1974, Qupperneq 9

Vísir - 16.02.1974, Qupperneq 9
Visir. Laugardagur 16. febrúar 1974. 9 LÁTTU GANGA UÓDASKRÁ Þættinum barst bréf um daginn, sem er þvi miður nafnlaust. Mér finnst fremur leiðinlegt, að fá skemmtileg bréf, sem ekkert nafn fylgir. Það er hér um bil eins leiðin- legt og að fá bréf ritað undir dulnefni eingöngu. Ég ætla samt að birta áðurnefnt bréf, en það byrjar á visu, sem ort var út af máli British Petroleum á sl. sumri. önsi kærum kastar i klögumála-lalla. Mæðist titt við máva gný Mammons veiðibjalla. Segir bréfritari, að með orðinu klögu- mála-lallar sé sennilega átt við löggur eða lögmenn. Siðan segir hann að visa þessi minni á aðra alkunna eftir Valdimar K. Benónýsson um Svein frá Elivogum. Sveinki freyðir lastalút létt um skeið og hjalia. Margeirs hreiður migur út mannorðsveiðibjalla. Aðurnefnd visa varð aftur á móti til vegna annarrar, sem Sveinn hafði ort út af söfnun Margeirs Jónss. i bækurnar Stuðlamál á þriðja tug aldarinnar. Margeirs sálin mærðargrút mæðist ekki að safna. Stuðlamálin unga út eggjum flestra hrafna. Það hafa trúlega margir gaman af nið- og skammarvisum, og er sá skáldskapur merkilegur kapituli i islenzkri visnagerð. Hitt væri svo kannski skemmtilegt rannsóknarefni, hve mikið af slikum vis- um er ort i alvöru og hve mikið i gamni. Þeim mun t.d. hafa verið vel til vina, Sveini og Valdimar. Sigurður Breiðfjörð og Bólu-Hjálmar gistu eitt sinn á sama bæ i Hrútafirði. Ortu þeir að skilnaði þessar visur. Sigurður byrjaði. Sú er bónin eftir ein, ei skal henni leyna, ofan yfir Breiðfjörðs bcin breiddu stöku eina. Hjálmar kvað. Ef ég stend á eyri vaðs ofar fjörs á línu, skal ég kögglum kaplataðs kasta að leiði þinu. t kvæðinu Erfiljóð um prest eru næstu visur. Það kvæði orti Bólu-Hjálmar i gamni við séra Jón Benediktsson i Goð- dölum. Þarna liggur letragrér, lýðir engir sýta. Komi nú allir hrafnar hér hans á leiði að skita. Guði og Mammon særi sór sanna skyldu rækja, sem bóndi og djákn i búri og kór beggja rétt að sækja. Upp um stigann sá mun seinn, er svimar á sléttu stræti. í himnariki hefur ei neinn lioppað á öðrum fæti. Hjálmar orti töluvert um presta, og virðast þeir ekki hafa verið i sérlega miklu uppáhaldi hjá honum. Eitt sinn er hann kom að kirkju kvað hann. Ber mjög litið brúðarskraut bærinn Krists á þessum stað. Andlegt drynur inni naut. Ætli drottinn heyri það? Næsta visa er úr kvæðinu Hjónaskál. Var það ort af þvi tilefni, að sextugur prestur kvæntist tvitugri stúlku. Ég fer þá að yrkja um prest, um sem náði beiða. Vakrari aldrei vissi ég hest vitis traðir skeiða. Næsta visa er úr þakkarkvæði, sem Hjálmar orti til Péturs Péturssonar biskups. Hafði biskup sent Hjálmari peningagjöf án þess að láta nafns getið. Visa þessi misritaðist i siðasta þætti. Viða til þess vott ég fann, þótt venjist oftar hinu, að guð á margan gimstein þann, sem glóir i mannsorpinu. Þegar Hjálmari virtist einn af sveitung- um hans ekki taka undir kveðju hans kvað hann. Er hér sálin inni svelt, andinn þessu veldur tíðar, hættir eru að geta geit gamlir seppar Blönduhliðar. Iðrun skáldsins nefnast siðustu visur Hjálmars i þessum þætti. Oft hef ég sáran illa kveðið, svo út af réttum vegi ber, l'ær mig blindað funageðið, — fyrirgef þú, drottinn mér. Mitt er hjarta kviða kafið, kvæðin ill ég fyrirlit, pund i jörðu guðs hef grafið, grimman standa dóm ég hlýt. Trúlega er lif margra svipað og Aron Guðbrandsson lýsir i næstu visu, sem er jafnframt siðasta visa þessa þáttar. Yfir lifsins leggjabrjót leið er mörgum gangan. Stundum fékk ég storm i mót, en stundum sól á vangann. Ben. Ax. Restin rann upp eins og púsluspil Að sex umferðum loknum 1 sveitakeppni Bridgefélags Reykjavikur er staða efstu sveit anna þessi: stig 114 93 93 90 84 60 55 50 1. Sv. Hjalta Eliassonar 2. Sv. Harðar Arnþórss. 3. Sv. GuðmundarPéturss. 4. Sv. Gylfa Baldurss. 5. Sv. Þóris Sigurðss. 6. Sv. Axels Magnússonar 7. Sv. Braga Jónssonar 8. Sv. Sigurðar Sverriss. Næsta umferð verður spiluð n.k. miðvikudagskvöld kl. 20 i Domus Medica. Skemmtilegt spil kom fyrir I siðustu umferð milli sveita Þóris og Braga, sem sannaði þá staðhæfingu mina síðan um daginn, að oft væri gott að trompa út. Staðan var allir á hættu og vestur gaf. ♦ 3 V K-D-8-5-4 ♦ K-8-6-5-3 4 10-2 4 A-7-4 4 K-G-9-8-6 V A-9-6 V G-10-2 ♦ 4 ♦ A-G-10-2 * K-G-9-8-6-4 4 3 4 D-10-5-2 V 7-3 ♦ D-9-7 4 A-D-7-5 1 opna salnum, þar sem sveit Braga sat a-v, tóku sagnir heldur einhæfa stefnu: Vestur Norður Austur Suður 1« iy U 1G 2* P 2 ♦ P 3* P P P Varla óskasamningur á spilin, enda fékk hann vonda útreið, tvo niður eftir spaðaútspií norðurs. í lokaða salnum þar sem sveit Þóris sat a-v réði Bláa Laufið ferðinni, en þar gengu sagnir á þessa leið: Vestur Norður 2* P 2 G P 44 P Austur Suður 2 4 P 34 P P P Nokkuð hart meldað, en eftir að austur velur að krefja á spilin, er erfitt að sleppa við út- tektarsögn. Suður spilaði út hjartasjö , litið, drottning og gosi. Noröur trompaði strax til baka, áttan, tian og ásinn. Þá kom tigull á ásinn og laufaþristur. Suður drap á ásinn og ihugaði málið. Að lokum spilaði hann hjartaþrist. Sagnhafi var fljótur að drepa á ásinn og nú rann restin upp eins og púsluspil. Laufakóngur var tekinn, hjarta kastað heima, siðan lauf og tompað. Þá var tigull trompaður, lauf trompað og enn trompaður tigull með siðasta trompinu i borði. Suður á nú aðeins eftir D-5-2 I trompi og sagnhafi spilaði nú hjarta úr borði, kastaði tigulgosa að heimanSuður varð að trompa, en sagnhafi átti siðustu slagina á K-G i trompi. Þegar suður var inni á laufás, þá átti hann skilyrðislaust aö trompa út. Sagnhafi fær þá aldrei nema sex slagi á tromp, laufkónginn og rauðu ásana. Sveit Þórís breikkar bilið Að sex umferðum loknum i sveitakeppni Reykjavikurmóts- ins, sem jafnframt er undan- keppni fyrir islandsmót, hefur bilið breikkað milli efstu sveit- anna og er sveit Þóris Sigurðs- sonar ennþá efst. Röð og stig efstu sveitanna er þessi: 1. Sveit Þóris Sigurðssonar BR.................. 105 stig 2. Sveit Harðar Arnþórssonar BR...................... 87 stig 3. Sveit Hjalta Eliassonar BR...................... 84 stig 4. Sveit Hannesar Jónssonar BR.................. 83 stig 5. Sveit Gylfa Baldurssonar BR.................. 72 stig 6. Sveit Sigtryggs Sigurðss. BR.................. 71 stig 7. Sveit Guðmundar Péturss. BR.................. 66 stig 8. Sveit Tryggva Gislasonar TBK ................ 54 stig Næsta umferð verður spiluð i Domus Medica þriðjudaginn 26. febrúar kl. 20. Hafnfirðingar Æfingar skotfélagsins i Hafnarfirði hefj- ast sunnudaginn 17. febrúar kl. 10 árdegis i iþróttahúsinu við Strandgötu og verða framvegis á fimmtudagskvöldum kl. 8.30 og sunnudagsmorgna kl. 10. Stjórnin. BILAVARA- HLUTIR NOTAÐIR VARAHLUTIR I FLESTAR GÉRÐIR ELDRI BÍLÁ T.d. Vauxhall Victor Commer sendiferðabifreið Fiat 600 og 1100 Taunus 12 M og Moskvitch BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10, simi 11397. Opið frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5 laugardaga. 'Á ** BILLINN 'i: Hverfisgötu 18 % Simi 14411. Fiat 127 '73 Og 128 '73 Fiat 132 ’74 Saab 96 '70, Volksvv. 1302 '71 og ’72 Peugeot 204 ’71 Peugeot 504 ’71 Cortina 1300 '71, Skoda U0L ’73 Opið á kvöldin kl. 6-10 — Laugardag kl. 10-4.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.