Tíminn - 11.01.1966, Page 2
I»IRIÐJUDAGUR 11. janúar 196«
2
TÍMINN
SMYGLMÁL SEND YFIRSAKA-
DÓMARA TIL AFGREIÐSLU
SHASTRIOG AYUB KHAN SÖMDU FRID í TASJKENT:
ÆTLA AD LEYSA ÖLL DEILU-
MÁL Á FRIÐSAMLEGAN HÁTT
NTBTaisjkent, raánudag.
Indland og Pakistan undirrit
uðu í dag loforð um að hefja
ekki styrjöld hvort gegn öðru,
og með þessu samkomulagi sjnu
krýndu þau Sovétríkin sem sátta-
semjara í Asíu. Þessi tvö ríki,
sem áttu í styrjöld í september sl.,
náðu samkomulagi einmitt á þeim
tima, þegar svo virtist, sem hinn
vikulangi fundur æðstu manna
ríkjanna væri dæmdur til að mis-
heppnast. Forseti Pakistans, Mo-
hammed Ayub Khan, og forsætis-
ráðherra Indlands, Lal Bahadur
Shastri, undirrituðu sáttmálann í
nærvem Aleksei Kosygins, forsæt
isráðherra Sovétrikjanna, sem
vann að því sleitulaust um helg-
lna, að koma á samkomulagi.
Aðalatriðin í þeirri óvæntu yf-
irlýsingu, sem birt var á ensku
og rússnesku í dag, eru þessi:
1. Shastri og Ayub Khan ákváðu
að taka upp að nýju eðlileg og
friðsamleg samskipti milli land-
anna, og að auka skilning miHi
þeirra 600 milljón manna, sem í
ríkjunum búa.
2. Þeir staðfestu skyldu sína,
samkvæmt sáttmála Sameinuðu
þjóðanna um að grípa ekki til
vopna, og að leysa deilur sínar
á friðsamlegan hátt.
3. Herlið landanna tveggja eiga
fyrir 25. febrúar n.k. að fara til
þeirra stöðva, sem þau voru stað
sett í áður en Kashmírbardagarn-
ir hófust 5. ágúst.
4. Báðir aðilar munu hætta
fjandsamlegum áróðri hvor gegn
öðrum og munu styrkja vinsam
an áróður.
5. Taka skal upp eðlileg diplóm
atísk samlbönd milli rikjanna.
6. Skiptast skal á stríðsföngum.
7. Ræða skal um, að herteknum
eignum verði skilað aftur.
8. Athuga skal aðgerðir með
það fyrir augum að endurreisa
samvinnu á svið efnahagsmála,
samgöngumála og menningar-
mála.
9. Aðilarnir skulu halda áfram
að hrttast til þess að ræða þýðing
armikil mál, sem varða bæði rík-
in, og meðal slíkra funda skulu
vera fundir æðstu manna ríkj-
anna beggja.
Eftir að yfirlýsing þessi var und
irrituð, sagði Kosygin við blaða-
menn, að Shastri og Ayub Khan
hafi sýnt mdkla stjórnvizku, en
hann minnti á, að mikið væri und
Gunnar Gunnarsson, Jóhannes Guðmundsson og Harold Flater (talið frá vinstri) virða fyrir sér B-414 traktor,
með nýjustu gerð af ámoksturstæki og öryggishúsi. (Tímamynd HZ)
Frestur til lánsumsókna
rennur út 15. janáar nJc.
Nýjungar frá Inter-
national Harvester
HZ-Reykjavík, mánudag.
Á fundi með Gunnari Gunnars-
syni og Jóhannesi Guðmundssyni,
fulltrúum í véladeils SÍS og Ilar-
old Flater, fulltrúa Internation-
al Harvester til Norðurlandanna,
var skýrt frá merkum nýjungum í
dráttarvélaiðnaði og þungavinnu
vélum, sem Véladeild SÍS sér um
innflutning á.
í reglugerð frá Dómsmálaráðu
neytinu segir, að dráttarvélar sem
ihn eru fluttar eftir 1. janúar
1966 verði að hafa öryggisgrind
eða hús. Þetta hefur valdið því,
að margir bændur hafa kappkost-
að að kaupa dráttarvélar á árinu
1965 og fór sala dráttarvéla hjá
Véladeild SÍS langt fram úr áætl-
un þessa árs.
Öryggisgrindurnar kosta um
7000 krónur. Unnt er að setja á
þær ýmsan útbúnað og gera úr
þeim hús og mun verð þeirra
þannig vera um 14.000 krónur.
Taka má efri hluta grindarinn-
ar af sem festur er með 4 boltum,
ef fara þarf inn um lokaðar dyr.
Kleift er að tengja vinnutækin
á dráttarvélin án tillits til grind
arinnar. þannig að ekk. þarf að
taka grindina af þótt sláttuvél,
ámoksturstæki o.fl. sé sett á drátt
arvélina Fluttar verða inn tvær
tii þrjár mismunandi gerðii órygg
isgrinda, þannig að hver bóndi
getur valið grind, sem hæfir hon-
um bezt.
ísland er fjórða land í heimi,
sem lögleitt hefur öryggisgrindur.
Einnig er Véladeild SÍS að
flytja inn nýja gerð af ámoksturs-
tækjum sem ekki er mlkið frá-
brugðin eldri gerðum nema að
einu leyti. Hingað til hafa ámokst
urstækin aðeins hæft einni gerð
dráttarvéla, en nýju tækin, sem
Véladeild SÍS býður til sölu, pass
ar á allar tegundir dráttarvéla í
svipuðum stærðarflokki Bóndi
eða atvinnurekandi sem á t.d.
Ferguson dráttarvél fyrir og kaup
ir síðan International Harvester
dráttarvél getur notað sömu
ámoksturstæki, á báðar dráttar
vélarnar með þvi einu að kaupa
Framhald a bls. 14.
ir því komið, hvernig þessj friðar
yfirlýsing yrði framkvæmd. Tals
menn Indlands og Pakstans voru
sammála um, að yfirlýsingin opn-
■aði leiðir til friðsamlegra lausna á
ýmsum deilumálum.
Kosygin sagði, að Tasjkent-
yfirlýsingin væri þýðingarmik-
ið pólitískt plagg, sem mótaði
nýtt spor í samskiptum Indalnds
Paksitans. Yfirlýsingin stöðvar
hemaðarátök landanna og opnar
leið til þess, að sigrast á þeim
vandamálum, sem hindra eðli-
leg samskipti milli tveggja stórra
Asíuríkja, og, að okkar áliti, Jegg
ur grundvöll að friðsamlegri sam
búð í þessu mjög þýðingarmikla
svæði í Asíu, sagði hann.
Tasjkent-yfirlýsingin er víða
um lönd talin vera mikill sigur
fyrir sovézka diplómata, og er
hún talin hugsanleg'byrjun nýs
tímabils friðar og janfvægis í
Asíu.
FARGJÖLD YFIR
N.ATLANTSHAF
LÆKKAUM12%
EJ—Reykjavík, mánudag.
í NTB-frétt frá Stokk-
hólmi segir, að fargjöldin
yfir Norður-Atlantshafið
lækki frá 1. apríl n. k. um
allt að 12%, og er hér um
að ræða svonefndar 21- dags
ferðir, hópferðir og aðrar
svipaðar ferðir. Á síðasta
fundi IATA var skorað á að
ildarríkin að gera þessa
lækkun, og nú er ljóst, að
viðkomandi ríki munu að
öllum iíkindum verða við
þeirri áskorun.
Blaðið hafði í dag sam
band við Martin Petersen
hjá Loftleiðum, og sagði
hann, að Loftleiðir hefðu
leyfi til þess að vera 10
dollurum lægri en IATA-
félögin, og myndi svo verða
áfram
Yngve Wessman, sölu
stjóri hjá SAS í Stokk-
hólmi, segir, að SAS hafi
barizt mikið fyrir því, að
fá þessa lækkun í gegn.
Reykjavík, mánudag.
Saksóknari ríkisins hefur í dag
sent y^irsakadómargnum í Reykja
fik ,til afgreiðslu og dómsálagning
ar malv u,m áfengis- og tóbaks-
smygí skipverja á m.s. Langjökli,
og m.s. Skógarfossi, er upp komu
á liðnu sumri.
Ellefu skipverja á m.s. Lang-
jökli háfa verið ákærðir fyrir
smygl, til refsingar, greiðslu
sakarkostnaðar og upptöku á sam
tals 4038 flöskum áfengis — aðal
lega genever — og 11.600 stk.
vindlinga og átta þeirra fyrir
skemmdir, sem þeirr unnu á skip
inu til þess að koma smyglvarn-
ingnum fyrir. Málum fjögurra
annarra skipverja á m.s. Lang-
jökli er heimilað að ljúka dóm-
sáttum, enda greiði þeir allar
sektir og sakarkostnað auk þess
sem þeir sæti upptöku á samtals
51 flösku áfengis og 13.800 stk,
vindlinga. Þá er einnig heimilað
að ljúka megi með dómsáttum
málum tveggja aðila í landi fyrii
kaup og sölu á smyglvarningi.
Sex skipverjar á m.s. Vatna-
jökli, sem kom til Reykjavíkur 14.
ágúst sl. eru ákærðir fyrir smygl,
til refsingar, greiðslu sakarkostn-
aðar og upptöku á samtals 475
flöskum áfengis, — aðallega gene
ver — og 51.450 stk. vindlinga.
Þá eru einnig heimilaðar dóm-
sáttir við fimm skipverja á m.s.
Framhaid á bls. 14.
Oryggishúsið sem nú er iögboðið séð afan frá.
(Tímamynd HZ)