Tíminn - 18.01.1966, Qupperneq 1
Þessi mynd er aí reykvíska báta
flota|num í heimahöfn. Það sést á
þessari mynd, að ekki vantar bát
ana, og nógur er fiskurinn. Hins
vegar er stjórnarfarinu þannig hátt
að í landinu hér um þessar mundir,
og hefur verið nokkra hríð, að ekki
er hægt að senda þessa báta á
veiðar, öðruvísi atn eiga vist tap
sem nemur 330—350 þúsund krónum
á meðalbát.
(Tímamynd GE)
Útgerðarmenn í Reykjavík segja:
330-350 þús. kr. tap að
gera út á bolfískveiðar
'fi 'i • > » V^ti
ZX.. SCL
30% LEYFISGJALD SETT
Á FOBVERÐ JEPPABlLA
ALLRA ÞJOÐA
FOLK GISTI
I „STEININ-
UM“ í EYJUM
SK-Vestmannaeyjum, mánudag.
Gullfoss kom hér við í gær-
kvöldi á leið sinni til Reykjavíkur
og skildi hér eftir Færeyinga, sem
ráðnir hafa verið til vinnu og svo
tuttugu manna hóp, sem ætlaði að
fá vinnu. Fólkið fór á lögreglu-
stöðina hér í gærkvöldi til að biðj
ast gistingar þar sem það var vega
laust og allslaust og gisti þar um
nóttina. Fólkið bjó um sig bæði í
klefunum og í réttarsalnum. Sumt
var með svefnpoka og annað með
teppi. Þetta var allra þjóða fólk.
Það var frá Nýja-Sjálandi, Ástra-
líu, Kenya, Uganda, Suður-Afríku,
Austurríki, Englandi og Svíþjóð.
Framhald á 14. síðu.
FB-Reykjavík, mánudag.
Fjármálaráðuneytið tilkynnti í
dag innflytjendum jeppabifreiða,
að ákveðið hefði verið að leggja
30% leyfisgjald á þessa tegund
bíla, og er leyfisgjaldið lagt á
fobverð bílanna. Hingað til hefur
ekkert slíkt gjald verið greitt af
jeppum, þar sem þeir hafa verið
taldir til landbúnaðartækja, en
nú hefur það sýnt sig, að því er
segir í tilkynningu ráðuneytisins,
að þeir eru jafnt notaðir af bænd-
um, sem þeim er í kaupstöðum
og bæjum búa, og þar með orðnir
almenningsfarartæki.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Björn Hermannsson deildarstjóri
í fjármálaráðuneytinu veitti blað-
inu í kvöld, gengur hækkunin í
gildi strax, að öðru leyti en því,
að þeir sem búnir eru að panta
bíla, og hafa fengið pöntunina
staðfesta fá þá á því verði, sem
þeir voru á, er bílarnir voru pant-
aðir. Leyfisgjald fyrir foiksbíla er
nú 125%, en leigubílstjórar fá
fólksbíla með aðeins 30% gjaldi.
Hækkunin á jeppabílunum nær
jafnt til bænda sem annarra í
framtíðinni.
Með tilkomu leyfisgjaldsins
hækka jeppabifreiðirnar um 22 til
50 þúsund krónur eftir tegund-
um, og eftir því hvernig þeir eru
Framhald a 14. s»ðu
Elexír-máliö sent
yfirsakadómara
IGÞ-Reykjavík, mánudag.
Eíexír-mál það, sem Tíminn
hefur birt fréttir af a'ð undan-
fömu, hefur nú tekið nýja og
óvænta stefnu. Borgarlæknis-
embættið hefur vísað því til
yfirsakadómara, sem síðan hef
ur falið rannsóknarlögreglunni
það til athugunar. Virðist svo
sem auglýsingamiðar, sem um
boðið iætur fylgja elexírnum
og liunanginu, brjóti í bága við
við frá árinu 1932 og þá vænt-
anlega einnig upptalning á
verkunum þessarar ,allrameina
bótar’, er birtist hér í biað-
inu á sínum tíma og tekið var
upfp úr auglýsingamiðunum.
Að vísu var sumt af lesmálinu
á kínversku, en það vefst von-
andi ekki 'fyrir rannsóknarlög
reglunni að ráða fram úr
henni.
í dag barst Tímanum yfirlýs
ing frá Birni Önundarsyni. að
stoðarborgarlækni, þar sem
hann skýrir frá fyrrgreindum
aðgerðum embættisins. Yfirlýs
ing hans fer orðrétt hér á eft
ir: Framnaid 5 ms 14
■
SJ-Reykjavík, mánudag.
Á fundi með stjórn Útvegs-
mahnafélags Reykjavíkur í dag
kom fram hörð gagnrýni á afstöðu
stjómarvalda til útgerðarmanna á
smærri bátum og sýndi stjómin
fram á með rökum, að verðákvörð-
un yfirnefndar á bolfiski leysti
engan vanda og að gmndvöllur
fyrir bolfiskveiðum væri ekki tiL
Sl. laugardag kom Útvegsmanna
félag Reykjavíkur til fundar og
samþykkti eftirfarandi ályktun:
„Fundur Útvegsmannafélags
Reykjavíkur, haldinn 15. janúar
1966, harmar þau sannindi, sem
virðast koma fram við verðákvörð-
un yfimefndar á bolfiski, að gmnd
völlur fyrir þeim veiðum skuli
ekki vera til.
Samkvæmt þeirri áætlun, sem
lögð var fram sem grundvöllur
fyrir línu og netaveiði á vertíð-
inni 1966 og ekki hefur verið hrak
in, sýndi að bátinn vantaði við
óbreyttar aðstæður kr. 548.000.00
til að ná rekstursjöfnuði. Við þær
breytingar á verði, sem yfirnefnd
verðlagsráðs sjávarútvegsins hef-
ur ákveðið, lækkar þessi tala um
ca. 200—220 þús., vantar því kr.
330—350 þús. fyrir bátinn, til að
rekstursgrundvelli verði náð.
Þeirri verðhækkun, sem yfirnefnd
verðlagsráðs sjávarútvegsins
ákvað, var þó aðeins náð með
því að færa frá annnarri grein
sjávarútvegsins, síldveiðunum, yf-
ir til bolfisksveiðanna. Er því
sýnilegt, að enginn grundvöllur er
enn fyrir bolfiskveiðunum.
Til þess að forðast, að hinir al-
varlegustu hlutir geti gerzt, sem
skaða mundu ekki aðeins útgerð-
ina, heldur allt þjóðfélagið, skor-
ar fundurinn á Alþingi og ríkis-
stjórn og sérstaklega hina stjóm-
skipuðu nefnd að fara eftir tillög-
um útvegsmanna með að létta af
þeim hluta fiskiflotans sem bol-
fiskveiði stunda, einhverjum af
þeim álögum, sem á honum hvila
nú.
Telur fundurinn, að þai eð Al-
þingi og ríkisstjórn hefur ekki
tekizt að halda dýrtíðinni það
niðri, að aðal gjaldeyrisöflunin
gæti staðið undir sínum rekstri,
beri þeim að fara þær leiðir, sem
tiltækastar þykja til að tryggja
örugga afkomu þessa lífakkeris
þjóðarinnar“.
í stjóm Útvegsmannafélags
Reykjavíkur eru Andrés Finn-
bogason, formaður, Jóhannes Guð-
jónsson og Halldór Snorrason.
Þeir ræddu á víð og dreif um
vandamál útgerðarinnar og sögðu
í upphafi, að þeir teldu ekki að
afstaða yfirnefndar hafi verið
þægileg, en aftur á móti yrði að
gera eitthvað róttækt til að rétta
við hag báta sem stunda bolfisk-
veiðar, ef unnt ætti að vera að
gera bátana út hallalaust.
Útvegsmenn i Reykjavík gera
nú út 66 báta, 45 eru undir 120
lestum og 21 er 120 lestir og
Framhaid á bls. 14.