Tíminn - 18.01.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.01.1966, Blaðsíða 2
2 TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 18. janwar 1966 FLUGVÉLIN STAÐNÆMD- IST Á KLETTASNÖSINNI NTB-Frankfurt, Vestur-Þýzka- landi, mánudag. Flugstjóri bandaríska Da- kota-herflugvélarinnar, sem lenti í fjalllendi í Grikklandi á fimmtudaginn var, skýrði í gær fréttamönnum frá hörm- ungum þeirra, sem lifðu af lendinguna, en þeir höfðust við á fjallinu í 40 langa klukku- tíma í hríðarveðri og miklum kulda. Sex þeirra níu, sem voru um borð í vélinni, komust lífs af, þegar flugvélin rakst á Helmos- fjallið á leið sinni til ítaliu fi'á Tyrklandi, en tveir þeirra létust síðar vegna kuldans. Flugntjórinn, Thomas D. Smith frá Dallas, og hinir þrír, sem komust lifandi til byggða, komu til Franfurt frá Wheelus flugvellinum í Libyu. Flugstjór inn, sem er 34 ára gamall, bar merki hrakninganna, og hann var klæddur í sömu blóðugu fötin, og þegar hann nauð- lenti. Flugstjórinn kastaðist út úr flugvélinni um leið og hún kom við jörðina, í gegnum rifu á hlið vélarinnar. Flugvélin þaut eftir jörðinni og stað- næmdist yzt á klettabrún, en djúpt gil var fyrir neðan. Smith og þeir, sem minnst höfðu meiðst við nauðlending- una, reyndu að snúa vélinni þannig, að hún sner; stefninu upp í vindinn — og varð þann ig minni hætta á, að hún fyki fram af klettabrúninni. Smith skar fallhlífarnar í sundur og notaði sumar þeirra til þess að binda flugvélina nið ur en hinar til þess að verja þá, sem lifandi voru, fyrir kuld anum. Frostið var 18 stig, vind ur mikill og snjókoma. Þarna urðu þeir að hafast við um nóttina, og reyndu eft- ir fremsta megni að sofna ekki. Einn þeirra sofnaði þó, meðan Smith reyndi að ná sambandi við umheiminn með aðstoð neyðarsenditækisins. Snemma næsta morgun gat einungis Smith hreyft sig, og hann yfirgaf flugvélina og gekk niður fjallshlíðina til þens að leita hjálpar. Þoka hvíldi þá yfir staðnum, þar sem flugvél- in hafði lent, Hann kom auga á litla flug- vél, sem síðar reyndist vera að leita að áhöfn flugvélarinn- ar — og veifaði leifunum af fallhlíf sinni og skaut upp neyð arblysum. Það tók hann tvo tíma að komast upp til Dakotaflugvél- arinnar að nýju, og var þá einn látinn í viðbót. Grískir björgunarmenn fundu fjórmenningana síðdegis á föstudag, og flutti þá á stað, þar sem þyrla frá flugvélamóð- urskipinu „Forrestaw" gat náð í þá. Smith flugstjóri, sem er kvæntur á og fimm börn, tók þátt í skotkeppninni á Olym- píuleikjunum í Tókyó fyrir hönd Bandaríkjanna. FALLAST Á VOPNAHLÉ í TILFFNI NÝÁRSHÁTlÐAR NTB-Saigon, mánudag. William Westmoreland, höfðingi, yfirmaður herliðs Banda- hers- ríkjanna í Suður-Víetnam, skipa- UMFBiskupstungna sýnir ErámeSan er STJAS-Vorsabæ, mánudag. Ungmennafélag Biskupstungna hefur síðustu þrjá mánuði verið að æfa ameríska gamanleikinn, Er á meðan er, eftir höfundana Moss Hart og George Kaufmann. Frum sýningin var í Aratungu s. 1. laug ardagskvöld. Leikstjóri er hinn kunni útvarpsmaður Jónas Jónas- son, þýðandi er Sverrir Thorodd- sen. Leiktjöld gerði Jón Dalman og Eiríkur Sveinsson, Ijósameist ari og leiksviðsstjórí er Þorfinnur Þórarínsson. Fjölmenni var á frumsýning- unni, og undirtektir áhorfenda af- bragðsgóðar. Leikstjóra og aðal- leíkendum bárust blómvendir að lokinni sýningu. Alls eru hlutverk í leiknum 19, og hafa Því allt að 30 manns unnið að þessari leik sýningu. Hér verður ekki lagður dómur á frammistöðu eínstakra leikenda, yfirleitt skiluðu allir hlutverkum sínum með mestu prýði, enda mabgir allvanir lelk sviði, í heild var þessi leiksýning mikill sigur fyrir Ungmennafélag Biskupstungna og alla, sem að TALIÐ ER AD TILLAGAN UM AFNÁM KON- UNGDÆMIS I SVÍÞJÓÐ VERÐI SAMÞYKKT NTB-Stokkhólmi, mánudag. Miklar umræður hafa orðið í Svíþjóð að undanförnu um það, livort afncma skuli konungsdæm- ið og taka upp lýðveldi, eftir að 34 þingmenn jafnaðarmanna lögðu fram fyrir nokkrum dögum til- lögu í sænska þinginu um, að mál- ið skyldi athugað. Talið er, að þessi tillaga sé mun þýðingar- meiri, að aðrar aðgerðir til þessa af hálfu lýðveldissinna, en ríkis- Happdrætti Há- r skóla Islands Laugardaginn 15. janúar var dregið í 1. fl. Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 1,400 vinn ingar að fjárhæð 4,300,000 krónur. Hæsti vinningurinn, 500,000 kr. kom á heilmiða númer 39,050. Ann ar heilmiðinn var seldur i umboði Guðrúnar Ólafsdóttur. Austur- stræti 18 en hinn heilmiðínn í umboðinu á Þórshöfn 100.000 kr. vinningur kom á heil miða númer 32,158. Voru báðir heílmiðar seldir í umboði Arndís ar Þorvaldsdóttur. Vesturgötu 10. 10.000 krónur: 1781 — 11708 — 12145 — 16446 20597 — 25851 — 26825 — 29931 29987 - 31400 — 33016 - 34759 35708 — 36712 — 36801 — 39049 39051 — 41294 — 43128 — 45317 46236 — 46799 — 47092 — 47650 47989 - 49831 — 50243 — 50578 51279 -< 51755 — 52098 — 59420. Birt án ábyrgðar) stjórn landsins hefur ekki ennþá látið álit sitt í ljósi. Tage Erlander, forsætisráðherra, sem hefur, sem formaður þing- flokks jafnaðarmanna, gefið leyfi til þess að tillagan verði lögð fram í þinginu, hefur lýst því yfir, að það sé ekki hið sama og að hann styðji kröfuna um lýðveldi. Talið er, að allir þingmenn jafnað- armanna og kommúnista muni greiða atkvæði með tillögunni, og nokkrir lýðveldissinnar frá Þjóð- arflokknum og Miðflokknum. Er því talið, að tillagan verði sam- þykkt. Mjög róttæk og frjálslynd blöð hafa lýst yfir stuðningi við þetta frumkvæði jafnaðarmanna, og bent á, að hvað sem öðru líður, þá sé það mikils virði að fá greina Framhald a t>Ls 14 henni unnu. Efalaust er hlutur leikstjórans þó stærstur. Honum hefur tekizt, að byggja upp undra góða heildarmynd úr þeim efni við, sem ekki er á allra meðfæri að fága svo vel, sem hér var gert. Án fórnfýsi fólksins, áhuga þess og félagsþroska hefði honum þó ekki tekizt, að byggja upp jafn eftirminnilega sýningu og raun varð á og halda hinum Þrjú til fjögur hundruð áhorfendum, sem á frumsýningunni voru í vaxandi spennu allt frá því tjaldið var fyrst var dregið frá, og þar til afi gamli talaði við drottin sinn í leikslok, þremur klukkustund um síðar. Ungmennafélag Biskupstungna á þakkir skilið fyrir það framtak að hafa ráðízt í þessa leiksýningu. Sunnlendingar munu ábyggilega fjölmenna á væntanlegar sýningar, ef þeir vilja eiga ánægjulega kvöldstund nú í skammdeginu. For maður Ungmennafélags Biskups tungna er Björn Sigurðsson bóndi í Útihlíð. aði I dag hermönnum sínum að skjóta ekki, nema á þá verði ráð- izt, þá daga, sem Víetnambúar halda nýárshátíð sína, eða frá fimiiitudagsmorgni til sxmnudags að íslenzkum tíma. Hafa þar með allir aðiiar stríðsins í Víetnam fallizt á nýársvopnahlé. Viet Gong bauð upphaflega vopnahlé, og hef- ur gefið fyrirskipun um vopna- hlé, sem er 18 klukkustundum lengra en Bandaríkjamenn og stjórnarherinn hafa fyrirskipað. Þetta er í annað sinn á skömm- um tíma, að slíkt vopnahlé kemst á í Suður-Víetnam. Hitt fyrra var um jólin, og féllust stjómarher- menn og Bandaríkjamenn þá á vopnahlé eftir miliigöngu páfa. Bandaríkjamaður, sem starfar við trúboð Bandaríkjamanna þar var í dag handtekinn af Víet Cong skæruliðum um 56 km norðvestur af Saigon. Maður þessi, Douglas Ramsey að nafni frá Nevada, var á leið til Saigon frá Trung Lap í bifreið, þegar Viet Cong menn stöðvuðu hann. Var hann fluttur á brott. Bílstjórann særðu þeir í lærið, en létu hann vera að öðru leyti. Hann ók til Saigon og sagði frá því, sem gerðist. Barizt var víða í Suður-Víetnam í dag. Söfnuðu fyrir fargjöldum stúlknanna heim um jólin EJ-Reykjavík, mánudag. Blaðinu hefur borizt úr- klippa úr norsku blaði, þar sem sagt er frá því, hvernig nem- endur lýðháskóla i Ringerike í Noregi hjálpuðu tveim ís- lenzkum námsstúlkum þar að komast til íslands um jólin. Hér er um að ræða tvær Reykjavíkurstúlkur, Maríu Ing- ólfsdóttur og Fjólu Gísladótt ur, sem eru við nám i Ringe rike Folkehögskole. Herbergis- félagar þeirra á skólanum kom- ust að raun um, að þær lang- aði mjög til þess að komast til íslands um jólin. en höfðu ekki efni á því. Nemendurnir tóku sig þá saman og fiéldu á fund skóla úiórans Eina- ^ntþi >f f“n?> leyfi hjá honum að reyna að safna saman peningum fyrir flugfarinu. Skólastjóranum þótti þetta mjög góð hugmynd, og hófu nemendur peninga- söfnun, sem stóð yfir í nokk* urn tíma, en var vandlega hald ið leyndri fyrir íslenzku stúlk- unum. Það var fyrst á síðustu laug- ardagsskemmtuninni fyrir jól- in að þeim voru afhentir mið arnir. Nemendurnir eru 90 talsins og höfðu þeir safnað saman 1862 norskum krónum og ís lenzku stúlkurnar gátu haldið upp á jólin með fjölskyldum sínum Hlýtur þetta að teljast gott dæmi um norræna sam v.innu Kynning á fram- leiðniaukandi launakerfum í nútímaatvinnurekstri gegna launagreiðslukerfi mikilvægu hlutverki. Reynsla síðustu ára hér lendis hefur sýnt, að tilhögun á launagreiðslukerfum getur ráðið miklu um samkeppnishæfni ein- stakra fyrirtækja. í því efni get ur verið um ýmsar leiðir að ræða eftir aðstæðum, og verður að telj ast mikilvægt, að forstöðumenn fyrirtækja hafi öðlazt nokkra yfir sýn yfir það, hvaða leiðir þeim eru færar í þessum efnum, Það hefur orðið að ráði, að Iðn aðarmálastofnun íslands í sam- vinnu við Industrikonsulent A/S boði til kynningar á framleiðni- aukandi launakerfum dagana 3.— 5. febr. n.k. Á dagskrá þessa fund ar verða m.a. tekin fyrir eftirfar- andi atriði: Helztu leiðir til aukningar fram leiðni ' atvinnurekstri. Kynning vinnurannsókna Algengustu launa kerfi, Uppbygging ákvæðiskerfa, Ákvörðun launahlutfalla, Launa- kefi fyrir störf i hjálpardeildum, Launakerfi fyrir verkstjóra, Við- hald launakerfa Dæmi um launa kerfj notkur hérlendis. Fyririesarai verða sérfræðing- ar frá industrikonsulent A/S og Iðnaðarmálastofnun íslands. Þessj kynning er ætluð fyrir forstöðu- menn tyrirtækja og nánustu sam- starfsmenn beirra Alla oanari upplýsingar og uoi sóknareyðublöð er að fá i Iðnað armálastotnun (slands. Skipholti 37 umósknarfrestui er til 24. lanúa, u.k (Frettatilkynmng fra IMSÍ). 36 ár frá opnun Hótel Borgar Þriðjudaginn 18. janúar eru lið in 36 ár frá því Hótel Borg var opnuð. Fyrstu gestirnir voru með limir Nýársklúbbsins, sem höfðu frestað áramótafagnaði sínum, til þess að geta fyrstir notið hinna glæsilegu salarkynna og góðra veitinga nýja gisti- og veitinga- hússins. Daginn eftir voru svo veitinga- salmir opnaðir almenningi. Jó- hannes Jósepsson, eigandi Borg- ar sýndi gestum húsið og Knud Zimsen, borgarstjóri í Reykja vík, þakkaði eiganda þá rausn og framtakssemi að hafa komið upp þessu glæsilega gistihúsi, sem vissulega markaði tímamót í gisti- og veitingahúsamálum höfuð- staðarins. Það er haft á orði, að þegar fyrstu gestirnir komu inn fyrir snælduhurðina á Hótel Borg, hafi einn fyrirmaður Reykjavíkur látið svo um mælt, að „það væri á við siglingu, að koma inn á Borg.“ Árið 1960 urðu eigendaskipti að Hótel Borg. Jóhannes Jósepsson seldi nú- verandi eigendum hótelið og Pét- ur Daníelsson tók við hótels- stjórn. Nýju eigendumir hófust þegar handa um ýmsar breytingar og endurbætur að kröfum nýs tíma og breyttra aðstæðna í veit- ipgamálum. Byrjað var á gistiherbergjum, þá voru innréttuð gistiherbergi á rishæð hússins og öll herbergi og gangar teppalagðir að nýju. Þar næst voru anddyri, fatageymsla og snyrtiherbergi innréttuð að nýju og síðan veitingasalir. Eftir breytingar á vínveitingar- reglugerð, var fyrir nokkrum ár- um opnaður bar að Hótel Borg. Þetta var gert til reynslu, enda var þetta fyrsti bar á veitinga- húsi í Reykjavík. í hádegisverðartíma og kaffi- tíma leika þeir Jónas Dagbjarts son og Guðjón Pálsson, en á kvöld in leikur hljómsveit Guðjóns Páls sonar fyrir dansi. Söngvari með hljómsveitinni er Óðinn Vald- imarsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.