Vísir - 22.06.1974, Blaðsíða 3
Vísir. Laugai'dagur 22. júni 1974
3
Álafossmálið til saksóknara
laun
„Ég veit ekki, hver
verölaunin eru fyrir Eldeyna,
þó held ég, aö þaö sé einhvers
konar skjöldur. Nei, það eru
ekki peningar,” sagöi Asgeir
Long i viðtali viö VIsi I gær.
Sem kunnugt er hlaut
kvikmyndin „Eldeyjan” sem
þeir Ernst Kettler, Ásgeir
Long og Páll Steingrimsson
geröu, gullverölaun I Atlanta i
sept.'sl. Kom þá boð frá Holly-
wood um að senda myndina á
kvikmyndahátið sem ber
nafnið „The 9th Hollywood
Festival of World Television”.
Þar eru aðeins sýndar
myndir, sem hlotið hafa verð-
laun á öðrum hátiðum. Alls
var boðið þátttöku 68
verölaunamyndum og fengu
26 verðlaun. „Eldeyjan” var
kjörin bezta frétta- og
heimildarmynd hátiðarinnar.
Asgeir sagði, að þó að það
heföi auðvitað komið sér vel
að fá peninga, þá væru svona
verölaun ákaflega mikils
viröi. Þetta væri I raun fri
auglýsing og allir vita, hversu
dýrt það er að auglýsa, ekki
sizt I Bandarikjunum.
, Ég vona bara, að einhver
oKkar hafi tækifæri til að fara
til Hollywood til þess að taka á
móti verðlaununum. Þaii
verða afhent, þegar 10. kvik-
myndahátiðin verður opnuð i
október eða nóvember. Eftir
sýninguna i Atlanta veit
maður lika betur hvernig á að
standa að þessu. Menn nota
alls konar sölubrellur til þess
að koma sinni myndsemmest
á framfæri. Annars er myndin
I dreifingu bæði austan haf<= og
vestan.”
Þeir félagar höfðu ágætis
fulltrúa á sýningunni I fyrra,
þau hjónin Höllu og Hal
Linker. Sú hátið fór fram i
nóv. og höfðu þeir félagar ekk-
ert frétt hvernig hefði gengið.
„Við vorum hreinlega búnir
aö afskrifa að við fengjum
nokkur verðlaun, svo að þetta
kemur okkur svo sannarlega
skemmtilega á óvart” sagði
Asgeir að lokum.
-EVI-
Rétta skýrslan verður ekki birt
— nema eigendur vilji
„Viö komum til meö aö velta
þvl fyrir okkur, hvort hér sé um
opinbert refsimál aö ræöa”,
sagöi Þóröur Björnsson, sak-
sóknari rlkisins, I viötali við VIsi
I gær.
hefur því engin ákvörðun verið
tekin um málshöfðun á hendur
Ásbirni Sigurjónssyni af hendi
fyrirtækisins.
Pétur Eirlksson hefur fyrir
nokkru lokið við gerð skýrslu
sinnar til stjórnar Álafoss.
Þessa skýrslu afhenti hann
bæjarfógetanum I Hafnarfirði
sem málsgagn, gegn þvi að
fariö yrði með skýrsluna sem
trúnaðarmál.
Vlsir spurði Pétur, hvort hin
rétta skýrsla forstjóra til
stjórnar yrði birt. Pétur kvað
það mjög óliklegt, enda hefði
slikt ekki tiðkazt. Það yrði þá
eigenda Álafoss að ákveða slikt.
Framkvæmdasjóður á öll
hlutabréf I Alafossi, keypti þau
siöustu fyrir þremur árum af
Ásbirni Sigurjónssyni og fjöl-
skyldu hans. Umsjá Fram-
kvæmdasjóðs hefur Fram-
kvæmdastofnun rikisins.
Vegna umsagna Asbjörns
Sigurjónssonar um Vestmanna-
eyjaferðir á vegum Alafoss, og
að þær væru á allra vitorði, vildi
Pétur Eirfksson forstjóri taka
það skýrt fram, að engar slikar
ferðir hefðu verið farnar. -OH
Rannsókn Álafossmálsins er
að mestu lokið og á leið til sak-
sóknara. Þórður Björnsson
sagði, að reynt yrði að hraða af-
greiðslu málsins eftir föngum
hjá embætti sinu.
Stjórn Álafoss hefur ekki
komið saman til fundar siðan
falsskýrslan var birt. Að sögn
Péturs Eirikssonar forstjóra,
Fann ekki leikritaskóld og
samdi leikritið þá sjálfur"
— leikrit eftir skólastjóra Skógaskóla frumflutt við Merkjá um helgina
„Okkur þótti tilhlýöilegt aö
vitna lltilsháttar I Njálu á
þjóöhátiöarskemmtun okkar aö
Hliöarendakoti. Þess vegna
auglýstum viö eftir leikrita-
höfundi I vetur, en þegar enginn
gaf sig fram til aö setja saman
stutt leikrit úr Njálu, settist ég
Undanfarin árhafa tjaldvagnar
vlöa rutt sér til rúms erlendis, og
nú eru þeir fyrir nokkru komnir
fram I dagsljósiö hér á landi.
Þessir vagnar, sem eru litið
stærrien miðlungsjeppakerra eru
þannig útbúnir, að með tveim
Taska sölu-
mannsins kom
í leitirnar
Sölumaðurinn, sem sagt var frá I
fréttum I fyrradag, hefur endur-
heimt töskuna sina. Taskan haföi
aö geyma um 30 þúsund krónur og
tvær bankabækur auk ýmiss
konar skjala.
1 fyrstu taldi hann sig hafa
gleymt henni I sjoppu við Baróns-
stig 27. Þar fannst hún ekki og var
þá álitið, að henni hafi verið stolið
á þeim tuttugu minútum, sem liðu
frá þvi, að sölumaðurinn var þar
að verzla og þar til hann kom að
vitja hennar.
Á endanum fannst taskan i skó
verzlun skammt frá sjoppunni, en
þar hafði sölumaðurinn gleymt
henni og hún lent þar i óskilum.
En nú ætti sölumaðurinn að
geta haldið áfram sinni sölu-
mennsku eftir að hafa fengið öll
gögn i hendur á nýjan leik.
-ÞJM
bara niöur og samdi þaö sjálfur.”
Það var Jón R. Hjálmarsson,
skólastjóri Skógaskóla, sem
þannig komst að orði i viðtali við
VIsi I gær, en Jón er forstöðu-
maður hátiðahaldanna að Hlíðar-
endakoti I Fljótshlið, sem fram
eiga að fara á morgun.
handtökum er hægt að breyta
þeim I stórt hústjald með svefn-
plássi fyrir fullorðna og þrjú til
fjögur börn, auk ýmissa annarra
þæginda.
Þessir tjaldvagnar sem hér eru
komnir á göturnar, eru af
hollenzkri gerð og hefur fyrir-
tækiö Búsport að Rofabæ 27 með
sölu þeirra að gera hér á landi.
Einar Guðnason, golfmaðurinn
góðkunni, er einn eiganda þessa
fyrirtækis, og sagði hann okkur
að verð vagnanna hér væri 260 til
275 þúsund krónur, og væri eftir-
spurnin mjög mikil og fjöldi fólks
komið að skoða þetta furðutjald á
hjólum hjá sér.
Meö tveim handtökum má breyta
þessum vagni I tjald meö öllum
þægindum, þar sem lofthæöin er
190 sm og svefnpláss er fyrir
fjölda fólks.
„Hátiðarsvæðið er við Merkjá i
Fljótshlið, skammt frá Hliðar-
endakoti,” sagði Jón ennfremur.
„Þar höfum við sett upp sæmi-
íega stórt svið, en verðum
einnig með stórt tjald á hátiðar-
svæöinu, tjald, sem ungtemplar-
ar hafa lánað okkur og getur
bjargað okkur ef veðrið leyfir
ekki útiskemmtun.”
„Björn að baki Kára” heitir
leikrit skólastjórans og er það I
fjórum þáttum. Flytjendur eru
austan undan Eyjafjöllum.
Auk leikritsins verður ýmislegt
fleira á dagskrá hátfðarinnar á
Ætli nokkur feröamannahópur
hafi hlotiö jafn höföinglegar mót-
tökur viö komu hingaö og 120
Austurrikismenn hlutu í gær-
kvöldi?
Austurrikismennirnir, sem eru
starfsmenn útvarps- og sjón-
varpsverksmiðja, voru ekki fyrr
stignir út úr islenzku Boeing
leieubotunni á Keflavikurflug-
velli, en heil lúðrasveit birtist og
lék nokkur lög til heiðurs þeim.
Hér var Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar á ferð, undir stjórn þeirra
Hans Ploder og Páls Pampichlers
Pálssonar.
Astæðan fyrir þessari pomp og
pragt var sú, að einn fararstjóra
hópsins hafði samband við Hans
Ploder og stakk að honum þeirri
sunnudaginn, og má þar m.a.
nefna lúðrablástur, fánahyllingu,
guðsþjónustu, ávarp fjallkonunn-
ar, kórsöng, þjóðdansa og glimu-
sýningu.
Skemmtuninni lýkur svo með
barnatima, sem sniðinn er sér-
staklega fyrir yngstu hátiðar-
gestina. Dansleikjahald verður
hins vegar ekkert á vegum
þjóðhátiðarnefndar. „Það eru
dansleikir út um allar sveitir
allan ársins hring, svo það ætti
að vera óhætt að láta dansinn eiga
sig að þessu sinni,” sagði skóla-
stjórinn að lokum.
-ÞJM
hugmynd, að lúðrasveitin léki við
komu Austurrikismannanna, þar
sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar er
að fara i tónleikaferðalag til
Austurrikis seinna i sumar.
Fararstjóri þessi er vararæðis-
maður tslands I Austurriki og for-
stjóri skrifstofu Loftleiða þar.
Og það þarf varla að geta þess,
að Austurrikismennirnir voru
geysilega hrifnir yfir móttökun-
um.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar fer i
þriggja vikna hljómleikaferð til
Sviss, Þýzkalands og Austurrikis
þann 9. ágúst nk. Meðal annars
ætlar sveitin að endurgjalda
heimsókn lúðrasveitar frá Frei-
burg, sem kom hingað i fyrra.
— ÓH
Furðutjald á hjólum
Ferðamennina rak í rogastanz:
LÚÐRASVEIT í
MÓTTÖKUNNI
verð-
Myndin er tekin ofan af þaki húss Ásbjörns Sigurjónssonar og sýnir glöggt hversu stutt er á milli þess og skrifstofu Álafoss, sem er
dökka húsiö. Fjær stendur Álafossverksmiöjan. Ásbjörn kvartaöi undan rusii frá Álafossi I garöi slnum, og sýna tvær Iögreglu-
skýrslur, aö bréfarusl og ullartjásur hafa fokiö frá Álafossi yfir I garö Ásbjörns. Ljósm. VIsis: BG.