Vísir - 22.06.1974, Page 4
4
Visir. Laugardagur 22. júni 1974
MEÐ
MÍNUM
EYRUM
ORN
PETERSEN
ísland auglýst
ó brezkri plðtu
„Journey to the eenter of the
earth” Rick Wakeman.
IÞetta er önnur sólóplata
Wakemans og öllu betri og létt-
ari en sú fyrri. Tónlistina hefur
Wakeman samiö undir áhrifum
frá samnefndri bók eftir Jules
Verne. A plötuumslaginu má
lesa um einhvern prófessor
Lidinbrook og frænda hans
Axel, sem finna i einhverju
handriti frá tólftu öld, nefnt
„Heimskringla", kafla eftir ein-
hvern Arne Saknussemm, þar
sem aö hann lýsir einhverju
fjalli á tslandi „Sneffels
Yokul”, og aö úr þvi sé hægt að
komast alla leið i miðjan hnött-
inn, (já, skáltískapurinn var
vinsæll i þá tið'í). Siöan kemur
smálýsing á þessu f jalli Snefféls
Yokul, og svo hefst feröin frá
Hamborg til Islands. Þetta er
sum sé ein heljar auglýsíng fyr-
ir tsland, kannski sú bezta á
þessum ellefu hundruð árum.
Þetta albúm var tekið upp á
hljómleikum Wakemans I Royal
Festival Hall i London þann 18.
janúar 1974, og naut hann þar
aðstoöar „The London
Symphony Orchestra" —• og
„The English Chamber Choir”,
stjórnað af David Measham, og
heföi Wakeman örugglega ekki
getað fengiö betri bakhljóm.
Þaö eina, er illa fer á þessari
plötu, er söngurinn, sem stund-
um jaðrar við að vera falskur,
en aö ööru leyti er plata þessi
frábær, (ef miðað er víð aðrar
plötur, sem teknar eru upp i
fullu hiúsi áheyrenda). Plötunni
er skipt i fjðra kafia, The
Journey, Recollection, The
Battle og The Forest, og á milli
eru innskot frá sögumanni, sem
falla vel I kramiö.
A plötunni hefur Wakeman
notfært sér stef úr tónverki
Griegs, „Hall of the Mountain
King” en þaö er sosum „ókey”,
Grieg var lika frábær.
Upptöku annaöist fyrrum
meðlimur Faces, Ronnie Lane,
og á hann lof skilið.
SIADC AMCRÍKU
„School Punks".
Brownsville Station
Slade Ameríku? Flestir
kannast kannski við
Brownsville Station í gegn-
um lagið ,,Smokin' in the
boys Room", en það var
fyrsta lagið, er þeir slógu í
gegn með.
Þetta er önnur Lp-plata þessar-
ar bandarisku grúppu, og inni-
hald hennar er hart rokk. Þetta er
ekki ein af þessum plötum er ein-
göngu kitla tærnar, heldur frekar
ein af þeim er valda sifelldum
simhringingum frá nágrannan-
um, (skiljiði)?.
Sumsé góð plata og furðanlegt
að þriggja manna grúppa skuli
geta skilað svona ágætis rokki frá
sér. Grúppan er annars skipuð
óþekktum náungum, eða þeim
Cub Koda, Michael Lutz og Henry
Weck.
A þessari plötu taka þeir
félagarnir til meöferðar lag Gary
Glitters. I’m the leader of the
gang, og nú er alla vega hlust-
andi á það lag,önnur lög plötunn-
ar eru einnig góð og erfitt að gera
upp á milli þeirra. Og þó?
Beztu lög: I’m the leader of the
gang. Kings of the Party.
„Hamborgara
konsertinn"
„HAMBURGER CON-
CERTO" FOCUS
Þeir eru fjölhæfir
félagarnir í Focus, alla
vega Thijs Van Leer og Jan
Akkerman, sem hafa sam-
ið öll lög þessarar nýju
plötu hljómsveitarinnar.
Platan er einnig prófraun hins
nýja trommara þeirra,Englend-
ingsins Colin Allen, og fæ ég ekki
betur heyrt en hann falli vel i
kramið, með ákveðnum og
rytmatiskum slætti sinum.
Þetta er þung og kannski eilitið
tormelt plata, það er eingöngu
eitt lag, sem maður gripur strax,
eða lagið „Harem Scarem”.
önnur lög plötunnar eru æði
blönduð, byrja kannski á
klassisku stefi, siðan yfir i rokk,
og að lokum deyja þau út með
flautuhljóm ættuðum úr flautu
Van Leer. önnur hlið plötunnar er
helguð Hamborgara (já, Ham-
borgara) og skiptist hún i kafl-
ana: byrjun, hrár, medium 1
medium 2, vel steiktur, og „one
for the road”:.
Beztu lög: Harem Scarem.
Birth.
„Sami
grautur í
sðmu skól..."
Wonderworld „Uriah Heep”.
„Sweet Freedom” og svo
þessi sama súpan i sömu
skál. Jæja, ég ætla nú ekki að
dæma þessa plötu alveg svo
hart, Uriah Heep er ágætis
hljómsveit, sem hefur sinn
stil og heldur sig við hann.
Hér er ekkert nýtt á ferð-
inni, þessi sami Heep-hljóm-
ur einokar plötuna, þó að
Mick Box bregði á leik með
gitarinn sinn i laginu „I
won’t mind”. Platan býður
upp á mörg góð ,,stuð”-lög,
svo sem lögin: So Tired, The
Shadows and the Wind, og
Something or Nothing, og
eru þessi lög beztu lög plöt-
unnar.
IOBO
„Just á Singer” LOBO.
Ég verð að reyna að vera ekki
hlutdrægur, þó að ég eigi nú anzi
bágt með það.
A þessari plötu tekur Lobo til
meðferðar uppáhaldslög sin,
siðustu árin, og hefur hann hitt
beint i mark, hvaö minn smekk
snertir. Þarna eru lög eins og
Daydream Beliver, Rings, Uni-
versal Soldier, bitlalagið „I’m
only Sleeping”, og lag John
Fogertys „Lodi”. Meðferð
Lobos á lögum þessum er hreint
frábær, skinandi góður söngur,
rytmatiskt kassagitarspil og
þægilegt strengjaspil i bak-
hljóm. Þessi plata á sér aðeins
einn veikan punkt, en það er
lagið Universal Soldier, sem
mér fannst Donovan syngja af
meiri innlifun Lobo (sem i raun
og veru ekki heitir Lobo, en
hvað kemur þaö mér við?) á um
þessar mundir eitt vinsælasta
lagið á Islandi „Standing at the
end of the line”, og ef þeirri
plötu er snúið við, er jafngott
lag hinum megin, eða lagið
„Stoney”. Þau eru bæði eftir.
hann sjálfan — og gefa góða
hugmynd um tónlistargáfur
hans og sönghæfileika.
Beztu lögin: Rings, Lodi og
Armstrong, (sem fjallar um
fyrstu tunglferö Bandarikja-
manna).
SLY og brúöurin á hljómleika-
pallinum. Stúlkan heitir Kathy
Silva og er 21 árs gömul. Sly er
20 ára.
plötu, (sú fyrri hét „Peper Ros-
es”),og heitir sú „In My little
corner of the world”, og inni-
heldur sú plata aðallega svo-
kallaða „country-músik”. Abba
syngja Waterloo ekki bara á
ensku, nú eru þau búin að spila
lagið inn á sænsku, spönsku,
þýzku og frönsku, (ég skal
veðja, að þau geta það ekki á is-
lenzku). Nýjasta Lp-plata Elton
Johnsheitir CARIBOU.og mun
sú vera þrælgóð, enda kemur
þaö mér sosum ekkert á óvart.
Carlo Santana er um þessar
mundir að hljóðrita hljómplötu
ásamt fyrrum samstarfsmönn-
um slnum i Santana. Harry
Nilson er um þessar mundir að
leika inn á plötu, og upptöku-
stjóri hans er enginn annar en
John Lennon (sá sem var I
Beatles, muniði). WINGS hafa
nú móttekið 14 gull-silfur-
platinu verðlaunaplötur fyrir
góða sölu á plötu þeirra, BAND
ON THE RUN, enda eigi að
furða Eric Clapton er byrjaður
aftur, og David Cassidyer hætt-
ur að koma fram á hljómleik-
um, (og þá var kátt I höllinni,
höllinni HöLLINNI!!!).
SLY syngur I brúðkaupsveizlu sinni I Madison Square Garden.
MEÐ
ÖÐRU
EYRA:
Einn af allra dýrustu
skemmtikröftum verald-
ar, Sly (öllu þekktari sem
Sly and the Family Stone,
en heitir réttu nafni
Sylvester Steward)
heimtar hvorki meira rté
minna en eina milljón
dollara fyrir hverja plötu
sem hann spilar inn á, og
lítið minna fyrir konsert.
Sly gifti sig fyrir stuttu og fór
athöfnin fram i Madison Squere
Garden I New York. Hann sló
tvær flugur I einu höggi, og hélt
konsert um leið, með þeim
árangri, að 23.000 manns komu
til brúðkaupsveizlunnar, (hvaö
gerir maður ekki fyrir pen-
inga?). Leo Sayer sem upphaf-
lega gerði lagið The show must
go on” frægt er kominn meö
annað lag, „One man band”.
Marie Osmonder aftur komin á
kreik, nú með sína aðra Lp-
PAUL og LINDA: „Band on The
Run” malar þeim guIL...