Tíminn - 02.03.1966, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGKE 2. marz 1966
PINGFRETTIR
TÍMINN
ÞINGFRETTÍR
Frumvarp um listalaunasjóð
Karl Kristjánsson fylgdi í gær
úr hlaði frumvarpi um Listalauna-
sjóð íslands. í
upphafi ræðu
sinnar vitnaði
hann í Shake-
speare, sem
sagði: „Valdið
setur tunguhaft
á listina." Hann
sagði að allt frá
því er 'Alþingi hóf að veita laun
fyrir listsköpun og listtúlkun hefðu
deilur um veitingu þeirra haf-
izt. Fyrirkomulagið væri þannig.
að þeir, sem sæti eiga í úthlut-
unarnefnd listamannalauna, væru
í álögum pólitíkinnar. Það væri í
hæsta máta óviturlegt að kjósa
menn eftir sjótnmálafiokkum í
nefndina. Listin vœri frjáls og
listamenn ættu ekki að vera mála-
lið.
Nefndi hann sem dæmi, er Matt
hías Jochumson varð að segja af
sér prestsembætti til þess að
hljóta skáldastyrk að upphæð 2000
krónur í stað 800 króna sem hann
hefði ella hlotið.
Stjórnarmeirihlutinn í úthlutun
arnefndinni væri pólitískur eins og
á Alþingi. Hann hefði fellt tillögu
um að úthluta launum til Jóhann-
esar Helga fyrir bókina Svört
messa og einnig til Ingimars Er-
lends fyrir Borgarlíf vegna þess
að þar væri veitzt að stjórnar-
völdunum á ýmsan hátt. Þetta
ætti ekki að viðgangast. Þrátt fyr-
ir lög eða reglur sem sett væru,
væru þau ekki einhlít, lifandi
skilningur og pólitískt hlutleysi
væru grundvöllur fyrir viðunandi
úthlutun. Eiginleikar nefndar-
manna þyrftu að vera — áhugi,
þekking og næmur smekkur.
Síðan vék Karl að frumvarpinu
sjálfu. Verkefni Listalaunasjóðsins
Fyrirspurn
Fyrirspurn var lögð fram á Al-
þingi í gær frá Jóni Skaftasyni.
Hún hljóðar:
Hvað líður undirbúningi löggjaf
ar um almennan lífeyrissjóð sam-
kvæmt þingsályktunartillögu sarn-
þykktri 13. maí 1964?
FLUTT AF KARLI
væru að veita viðtöku fé, sem Al-
þingi ákveður á fjárlögum að var-
ið skuli úr ríkissjóði til listalauna
og öðru því fé er honum kann
að áskotnast, svo sem gjafafé.
Einnig væri það hlutverk sjóðsins
að greiða laun til listamanna ár
hvert og ávaxta listlaunafé. sem
bíður úthlutunar, með því að
geyma það í banka.
Þá er gert ráð fyrir að á fjár-
lögum skuli árlega veitt til Lista-
launasjóðs íslands eigi minni fjár-
hæð í heild en 5 milljónir króna.
Fjárveitingin sundurliðast í fjár-
lögunvjm sem hér segir:
a. Trl skálda og rithöfunda.
b. — myndlistarmanna.
c. — tónlistarmanna.
d. — leiklistarmanna.
Þá fannst Karli flokkarnir of
margir eins og né er, þetta líkt-
ist einkunnargjöf og virtist sem
honum þætti ekki úthlutunarnefnd
armennirnir nógu dómbærir.
í frumvarpi Karls er gert ráð
fyrir þrem flokkum.
í fyrsta fllokknum skulu vera
menn, sem sjóðurinn greiðir ár-
lega laun jöfn hálfum hámarks-
launum í 20. launaflokki starfs-
manna ríkisins.
í öðrum flokki skulu vera menn
er fá árlega laun, nema þeir hætti
um 5 ára skeið eða lengur að
stunda list sína. Laun ílþessum
flokki skulu vera eins og þriðj-
ungur hámarkslauna í 20. launa-
flokki starfsmanna ríkisins.
f þriðja flokki skulu laun vera
greidd mönnum í viðurkenningar
skyni fyrir einstök unnin verk
eða vegna viðfangsefna, sem þeir
hafa með höndum og ástæða þyk-
ir til að veita þeim fjárhagsleg-
an stuðning til að fást við. Laun
í þessum flokki eru ekki fyrirskip-
aðar fjárhæðir og ekki skylt að
veita sama manni þau ár eftir ár.
Laun úr Listlaunasjóði skulu vera
skattfrjáls.
Úthlutun launa samkvæmt 3. gr.
skulu hafa á hendi fjórar nefnd-
ir, sem úthluta hver fyrir sína list-
grein.
Úthlutunarnefnd skálda- og rit-
höfundalauna skal þannig skipuð:
' Menntamálaráð kýs einn mann,
KRISTJÁNSSYNI Á
og er hann formaður nefndarinn-
ar. Heimspekideild háskólas til-
nefnir tvo menn og Rithöfunda-
samband íslands tvo menn.
Úthlutunarnefnd myndlistar-
launa skal þannig skipuð:
Menntamálaráð kýs einn mann,
og er hann formaður nefndarinn-
ar. Félag íslenzkra myndlistar-
manna tilnefnir einn mann og
Myndlistafélagið annan.
Úthlutunarnefnd tónlistarlauna
skal þannig skipuð:
Menntamálaráð kýs einn mann.
og er hann formaður nefndarinn-
ar. Tónlistarfélag íslands, Ein-
söngvarafélag íslands og Félag ís-
lenzkra tónslistarmanna skulu öll
í félagi tilnefna tvo menn.
Úthlutunarnefnd leiklistarlauna
skal þannig skipuð
Menntamálaráð kýs einn mann,
og er hann formaður nefndarin-
ar. Bandalag íslenzkra leikara til-
nefnir einn mann og Félag ís-
lenzkra leikdómenda einn mann.
Jafnmargir varamenn skulu
kosnir eða tilnefndir af sömu að-
ilum og aðalmenn.
Menntamálaráðherra skal til-
kynna hlutaðeigandi hverju
sinni, hvenær þeim ber að hafa
Aðalfundur Sam-
bandsráðs S. U. F.
Svo sem áður hefir verið auglýst
verður aðalfundur Sambandsráðs
S.U.F. haldinn dagana 9. og 10.
marz n. k. að Tjarnargötu 26 i
Reykjavík, og hefst kl. 5 e. h. fyrri
daginn. Dagskrá fundarins er sem
liér segir:
Fyrri dagur:
1. Fundurinn settur af Örlygi
Hálfdanarsyni formanni S. U. F.
2. Skýrslur:
a) formanns,
b) gjaldkera,
c) erindreka.
3. Umræður.
Seinni dagur:
1. Nefndarstörf fyrir hádegi.
2. Eftir hádegi flytur Eysteinn
Jónsson, formaður Framsóknar-
flokksins, ræðu, en síðan. hefjast
umræður að loknum skýrslum
nefnda.
3. Kvöldverður í boð S.U.F.
Sambandsráðsmenn eru hvattir
til að mæta tímanlega til fundarins
og tilkynna varamönnum sínum,
geti þeir ekki mætt.
IÞROTTIR
Framhald af bls. 13.
fór fram verðlaunaafhending fyr-
ir allar greinar, sem lokið er
keppni í á Reykjavíkurmótinu
1966.
Úrslit í A-flokki karla.
Reykjavíkurmeistari:
Sigurður Einarsson ÍR 107.3
Bjarni Einarsson Árm. 109.3
Þorbergur Eysteinsson ÍR 111.4
Bogi Nilsson KR 111.4
Úrslit í kvennaflokki. Svig.
Reykjavíkurmeistari:
Marta B .Guðmundsd. KR 68.7
Hrafnhildur Helgad. Árm. 69.3
Jakobína Jakobsdóttir ÍR 78.4
Úrslit í Sveitakeppni svigi karla
A flokkur.
1. Sveit ÍR Sigurður Einarsson,
Þorbergur Eysteinsson, Har. Páls-
son. 335.1
2. Sveit KR, Bogi Nilsson, Ásgeir
ALÞINGI í GÆR
lokið kosningu eða tilnefningu af
sinni hálfu á manni eða mönnum
í úthlutuarnefd.
Nú kýs eða tilnefnir ekki ein-
hver áðurnefndra aðila mann í
nefnd, og skal þá menntamálaráð-
herra skipa mann í nefndina í
staðinn.
Ekki skal kjósa eða skipa í
nefnd mann, sem líklegt er að
kunni að hafa hagsmuna að gæta
f.vrir sig við úthlutun listlauna í
þeirri listgrein, er nefndin á að
úthluta fyrir.
Kjör í nefndir þessar gildir til
þriggja ára í senn, frá næstu ára-
mótum að telja, áður en kjörið
var
Úthlutunarnefndirnar fá þókn-
un fyrir störf sín. Hver deild sjóðs
ins (2. gr. a—d) greiðir sinni
nefnd. Menntamálaráðherra ákveð
ur þóknunina til hverrar nefndar
hverju sinni.
Úthlutunarnefndir skulu skila til
hvers fjárlagaþings sundurliðaðri
skýrslu um síðustu úthlutun sína
og greinargerð um fjárþörfina í
heild. eins og þær telja hana vera
hver fyrir sína deild vegna næstu
úthlutunar.
Við fyrstu úthlutun listlauna,
Úlfarsson og Einar Þorkelsson
355.9
Skíðamót Reykjavíkur 1966. Svig
Úrslit í stúlknaflokki:
1. Auður Björg Sigurj. ÍR 61.4
2. Lilja Jónsdóttir Árm^ 67.5
3. Áslaug Sigurðardóttir Árm. 73.9
Úrslit í drengjaflokki:
1. Eyþór Haraldsson ÍR _ 49.6
2. Haraldur Haraldsson ÍR 50.9
3. Guðjón Sverrisson Árm. 63.3
Úrslit C-flokkur:
1. Sigfús Guðmundsson KR 72.1
2. Örn Kjærnested Árm. 75.3
3. Bergur Eiríksson Árm. 76.4
Úrslit í B-flokki:
1. Björn Bjarnason^ ÍR 89.1
2. Elías Einarsson ÍR 101.0
3. Georg Guðjónsson Árm. 104.0
Stúlknaflokkur:
1. Sveit Ármanns: Lilja Jónsd.
Áslaug Sigurðard. og Jóna Bjarna-
dóttir 220.1.
Drengjaflokkur:
1. Sveit ÍR: Eyþór Haraldsson,
Har. Haraldsson, Þórarinn Harð-
arson 185.4
2. Sveit Ármanns: Guðjón Sverr-
isson, Jón Ottosson, Tómas Jóns-
Son 193.5.
C-flokkur.
Sveit Ármanns: Örn Kjærnested,
Bergur Eiríksson, Jóhann Jóhanns
son 231.0.
B-flokkur:
Sveit ÍR. Björn Bjarnason, Elías
Einarsson, Ágúst Björnsson 322.5.
Ármann og
KR sigruðu
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
íslandsmótsins í körfuknattleik í
fyrrakvöld. íslandsmeistarar KR
sigruðu Rvíkurmeistara KFR með
90:66 og Ármann sigraði ÍR óvænt
með 55:54 í hörkuspennandi leik.
Staða KR er nú bezt, en KR er
með 6 síig eftir 3 leiki. Árm. hef-
ur jafnmörg stig, en leikið einum
leik fleira. ÍR er með 4 stig, en
KFR og ÍKF hafa ekkert stig hlot-
ið.
í Neðri deild voru á dagskrá í gær tvö mál, bæði til 3ju umræðu.
Var þeim að loknum- umræðum vísað til Efri deildar.
Skúli Guðmundsson sagðist ekki hafa orðið var við miklar breyt-
ingar á iðnfræðslufrumvarpinu hvað snerti fyrirkomulagið. Honum
hefði fundizt réttara að gefa mönnum leyfi til þess að ganga undir
verklegt og munnlegt próf án þess að hafa verið í iðnámi hjá meist-
urum.
Benedikt Gröndal taldi upp sérstakar greinar sem kenna mætti á
einum og sama stað. Kenna mætti þær greinar, t. d. hárgreiðslu, út-
varps- og sjónvarpsvirkjun í verknámsskólum, það væri miklu
hentugra.
í Efri deild mælti Jóhann Hafstein fyrir frumvarpi um umferðarlög,
sem víkur að útgáfu bráðabirgðaökuskírteinis og ýmsum öðrum breyt
ingum. Frumvarpið væri samið með hliðsjón af tillögum og rannsókn-
um umferðalaganefndar og rannsóknarnefndar umferðarslysa.
Næsta mál, frumvarp um framvísun nafnskírteina við kosningar,
var til þriðju umræðu. Enginn kvaddi sér hljóðs og samþykkt var að
senda frumvarpið til Neðri deildar.
Gils Guðmundsson mælti fyrir frumvarpi er hann flytur um Lista-
mannalaun og Listasjóð. Vitnaði hann í ýmsar fornsögur, t. d. Egils-
sögu, þar sem konungar hefðu veit hirðskáldum sínum oi öðrum
bragarlaun. Hann taldi og sívaxandi þörf fyrir menningastofnanir i
strjálbýlinu til eflingar tónlistar og fleiri lista. Nú gæti Alþingi ails
ekki dregið það lengur að setja lög um listamannalaun og lisfasióð.
Hann kvaðst hafa borið frumvarpið undir ýmsa listamenn og þeir
hefðu allir lýst ánægju sinni yfir meginstefnu þess.
eftir að lög þessi öðlast gildi,
skulu þeir listamenn, sem við síð-
ustu úthlutun listamannalauna
voru í hæsta flokki, vera settir í
fyrsta launaflokk.
Að öðru leyti er ekki heimilt
að færa á ári fleiri en tvo í hópi
skálda og rithöfunda upp í fyrsta
launaflokk og einn í hópi hvers
hinna: mynd-, tón- og leiklistar-
manna.
Ekki skal stofna til ineiri launa-
greiðslu í fyrsta flokki en nem-
ur Vi af umráðafé úthlutunar-
nefndar og í öðrum flokki ekki
meiri launagreiðslu en nemur
helmingi af úthlutunarfé úthlut-
unarnefndar. Þó má víkja frá
þessu hlutfalli í skiptingu fjárhœð
arinnar milli launaflokka, ef allir
nefndarmenn í þeirri listgrein sam
þykkja og menntamálaráðherra
felst á það, en ekki gildir sú ráð-
stöfun nema til eins árs í senn.
í þeirri listgrein, sem hefur
ekki átt mann í hæsta flokki, er
ekki skylt að taka upp veitingu
launa samkvæmt ákvæðum þess
flokks, fyrr en hlutaðeigandi
nefnd telur efni standa til. Ekki
er heldur skylt að úthluta árlega
öllu fé sjóðsins. Geyma má fé hans
milli ára, hvort heldur er fé fieiri
eða færri listgreina.
Hver deild hefur sinn fjárhag.
Vatnið í ánum
eðlilegt
KT-Reykjavík, þriðjudag,
Síðustu þrjá sólarhringa hafa
engir jarðskjálftakippir orðið á
Mýrdalsjökulssvœðinu, en eins og
kunnugt er, fundust snarpir kipp-
ir á því svæði fyrir helgina. Að
því er jarðeðlisfræðideild Veður-
stofunnar tjáði blaðinu í dag, hef-
ur aðeins orðið vart við smáhrær-
ingar síðustu þrjá sólarhringa.
Þess má geta í þessu sambandi,
að Guðmundur Sigvaldason, jarð-
fræðingur fór fyrir helgina austur
að Mýrdalsjökli til þess að taka
vatnssýnishorn úr ám á þessu
svæði, en slík sýnishorn hafa ver-
ið tekin með reglulegu millibili.
Sagði Guðmundur í samtali við
Tímann, að efnasamsetning á vatn
inu væri eðlileg og í samræmi við
fyrri mælingar.
NITTO
JAPÖNSKU NITT0
HJÓLBARDARNIR
f Ilostum stærðum (yrirllggiandi
f Tollvðrugeymslu.
FUÓT AFGREIDSLA,
DRANGAFELL H.F.
Skipholfi 35 -Sfmi 30 360