Tíminn - 02.03.1966, Side 14
14
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 2. marz 1966
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreíðsla.
Sertdum gegr póst-
<<röfu.
GUÐM ÞORSl EINSSON
gullsmiður
Bankastræh 12.
EYJAFLUG
MEÐ HELGAFELLI NJÓTIÐ ÞÉR
ÚTSÝNIS, FLJÓTRA
OG ÁNÆGJUIEGRA FLUGFERÐA.
AFGREIDSLURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
V/G-
SIMAR; ____
VESTMANNAEYJUM 1202
REYKJAVÍKURFLUGVELLI 22120
Bílaleigan
VAKUR
Sundlaugaveg 12
Sími 35135 ng eftir lokun
símar 34936 og 36217
Daggjald ö 300,00
og kr 3,00 pr km
BJARNI BEINTEINSSON
LÖGFRÆÐINGUR
AUSTURSTRÆTI 17 (SILLI Oi VALDII
SlMI 13S36
FÍ
Framhald af bls. 1
liggur ljóst fyrir enn sem
komið er hvort þessi grein
samningsins gildir, elgFlug
félagi íslands yrði veitt
leyfi til þess að fljúga milli
Kaupmannahafnar og Fær
eyja.
Forstöðumenn Faroe Air
ways hafa lýst því yfir, að
þeir muni leggja mál sitt
fyrir hinn svokallaða um-
boðsmann (Ombudsmann)
ef Flugfélagið fái flugleyf-
ið. Landsstjórnin í Færeyj
um hefur lagt til, að Flug-
félagið fái flugleyfið.
ÞINGVALLAVATN
Framhald af bls. 1.
væri, eða lægra en vitað hefur
verið um nokkru sinni fyrr.
Þá sagði Ingólfur Ágústsson, að
virkjanirnar hefðu getað annað
öllum sínum verkefnum frarn að
þessu, en síðan í september eða
október hefði áburðarverksmiðjan
í Gufunesi ekki fengið neina af-
gangsorku eins og fyrr.
Að lokum sagðist Ingólfur vona
að úrkoman, sem nú virðist vera
að koma, myndi hjálpa til, svo að
virkjunarmálin við Sogið kæmust
í sitt gamla horf.
SIGRAÐI GYLFA
Framhald af bls. 1.
lega hafa beitt geiri sínum í þessu
mál gegn viðskipta- og verðlags-
málaráðherranum, Gylfa Þ. Gísla-
syni.
' Sagt er að ágreiningurinn í Al-
þýðuflokknum um þetta mál hafi
fljótt komizt á það stig, að stjórn
slit eða mannaskipti í ríkisstjórn-
inni hafi svifið í loftinu milli
ágreiningsaðila í Alþýðuflokknum
Hafi Gylfi einkum orðið fyrir slík
um hótunum, og haft á orði að
Jón Sigurðsson kæmi í ríkisstjórn-
ina í> hans stað. Aldrei slíku vant,
mun Gylfi hafa verið tregur til
að skipta um skoðun.
Meðan á þessari rimmu stóð
innan Alþýðuflokksins, gekk mál-
ið sinn gang samkvæmt ákvörðun
ríkisstj órnarinnar. Verðlagsstj óri
var látinn reikna út hið nýja verð
á fiski og smjörlíki. Viðs^iptamála
ráðuneytið var látið -sémja tii-
kynningar og greinargérðir fra
ríkisstjórninni til blaða og útvarps
um þessar ákvarðanir. Verðlags-
nefnd var boðið á fund til að
taka ákvörðun um hið nýja verð
á fiski og smjörlíki. Allt skyldi í
lagi í þessu efni, viðreisnarlega
séð, áður en 28. febrúar liði að
kveldi.
Eftir hádegi 28. febrúar tókst
loks að ná sam^n miðstjórnar-
fundi í Alþýðuflokknum til að
gera út um deiluna milli Jóns Sig-
urðssonar og Gylfa. Fundinum
lauk með sigri Jóns. Á meðan beið
Verðlagsnefnd á sínum fundi
Verðlagsn. á sínum fundi. Loks
kom tilkynning frá ríkisstjórn-
inni til Verðlagsnefndar. Var hún
efnislega á þá leið, að sigur Jóns
á miðstjórnarfundi Alþýðuflokks-
ins þýddi, að ríkisstjórnin í heild
teldi sig neydda til að falla frá
fyrri ákvörðun í málinu, og myndi
því niðurgreiðsla á smjörlíki og
fiski halda áfram í bili.
Ekki er vitað, hvort Gylfi vík-
ur úr ríkisstjórninni fyrir Jóni
Sigurðssyni út af þessu máli, en
slíkt mun væntanlega koma í ljós
á næstu dögum.
Hjartans þakkir tll allra þeirra sem, sýndu okkur vináttu og
samúð vlð andlát og jarðarför konu minnar
Maríu Ólafsdóttur
Akurgerði 8, Akraneesl
Guðjón Hallgrimsson, hörn, rengda-
börn og systkini hinnar látnu.
Móðurbróðir minn,
Sveinn Jónsson
frá Skáleyjum,
andaðist mánudaginn 28. febrúar að Elliheimllimi Gruml Kvoðju-
athöfn fer fram I Fossvogskapellu, laugardaginn S. marz kl 10.30
árdegis. Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðmundur Guðmundsson.
UNDIR SNJÓ
Framhald af 16. síðu.
ofan á honum. Var snjó-
hrúgan ofan á drengnum
um mannhæðarhá.
Af tilviljun voru nærstadd
ir þeir Jón og Ingimar
Sveinssynir og brugðu þeir
tiart við og tóku að grafa
ofan af Þorvarði.. Urðu þeir
að grafa á tveimur stöðum
áður en þeim tókst að finna
drenginn, og að sögn þeirra
tók gröfturinn 10—15 mín
útur.
Þegar loks hafði tekizt að
ná Þorvarði upp, var farið
með hann til læknis, sem
úrskurðaði, að honum hefði
ekki orðið meint af að öðru
leyti en því, að hann væri
nokkuð dasaður. Má telja
mestu mildi, að hér skyldi
ekki hljótast stórslys af.
MÓTMÆLA
Framhald af bls. 2.
þann hátt, að hver flugliði bæri
á sér litla kvittanabók. sem toll-
verðir bókuðu í.
Nokkrar flugáhafnir Loftleiða eru
nú í þjálfun í Kanada og geta því
ekki ritað hér undir, en við álít-
um, að okkar orð séu einnig |
þeirra.“
ÓFÆRÐ 1
Framliald af 16. síðu.
mjög að bændum, og víðast hvar
er vatnið frosið í vatnsleiðslun-
um. Sýnt er, að ef ekki hlánar
mjög fljótlega, skapast hreint
vandræðaástand i þessum efnum.
Vatnsskortur hefur og gert vart
við sig víðar, svo sem á Ólafs-
firði og nokkuð á Húsavík.
VENUS
Framhald af bls. 1.
hægt að sjá hana með berum aug-
um um hábjartan dag. En vegna
skýjaþykknis, sem umlvkur plánet
una, er ekki hægt að athuga yfir
borð hennar frá jörðinni. Það er
því lítið, seim vísindamenn vita
með vissu um Venus. Þeir vita
t. d. ekki hversu langur dagurinn
er Venus, né heldur hvort það
er súrefni eða gufa í skýjum þeim
sem umlykja plánetuna. Þeir telja
þó að árstíðaskipti séu á Venusi.
Vísindamenn telja, að hitastigið
við miðbaug Venusar sé um 400
gráður á Celcíus. í kvöld lágu ekki
fyrir neinar nákvæmar upplýsingar
um hvað Venusar-geimförin tvö
höfðu gefið sovézkum vísinda-
mönnum vitneskju um, en þeir eru
nú að rannsaka þær upplýsingar,
sem borizt hafa til jarðar.
Sovézka fréttastofan TASS tlL-
kynnti í dag, að geimfarið gæfi
vísindamönnum tækifæri til þess
að leysa fjölmörg vandamál í
sambandi við ferðir milli pláneta.
Einn helzti geimvísindamaður
Sovétríkjanna, Nikolaj Barabasjov,
sagði í viðtali við TASS, að 4f
hitastigið á Venusi væri lægra en
vísindamenn telja nú, gæti hugs
ast að líf væri þar í einhverri
mynd. En hann lagði áherzlu á,
að upplýsingarnar um Venus
væru það ófullkomnar, að ekkert
væri hægt að segja með vissu um
slíkt. Hann sagði, að hugsast gæti,
að Venus líktist jörðinni að mörgu
leyti, en loftslag væri þar mjög
heitt. Vísindamenn við rannsóknar
stöðina á Krím hafa fundið litróf
Venusar, og hugsanlegt er, að súr
efni finnist einnig undir skýja-
þyklkninu — það veit enginn.
Jafnt sovézkir vísindamenn sem og
vísindamenn frá öðrum löndum
hafa fundið út, að gufa er í
skýjaþykkni Venusar, og talið er,
að verulegur hluti yfirborðs Ven
usar sé þakin vatni.
Að sögn TASS höfðu vísinda-
mennirnir radíósamband við Ven-
us 3 alveg fram til síðasta þáttar
geimferðarinnar, en þá slitnaði
sambandið. Með þessum geimsigri
sínum hafa Sovétríkin framkvæmt
tvö afrek á sviði geimvísinda á
tæpum mánuði, en 3. febrúar lenti
geimfarið „Luna 9“ hægt á tungl-
inu og sendi myndir til jarðar,
eins og kunnugt er.
Hið nákvæma „stefnumót" Ven
usar - 3 og plánetunnar náðist
vegna stefnubreytingar, sem gerð
var 26. desamber í fyrra. Hitt
geimfarið, Venus - 2 fór fram hjá
Venusi í 24.000 km fjarlægð kl.
01.52 á sunnudag. Fyrsta Venusar-
geimfari Sovétríkjanna var skotið
á loft 12. febrúar 1961 og fór fram
hjá plánetunni í 100.000 km fjar
lægð. Bandaríska geimfarið
„Mariner-2“ fór fram hjá Venusi
árið 1963 í 40.000 km fjarlægð.
Venus-3 vó 960 kíló, en Venu
2 var þrem kílóum þyngra.
Yfirmaður Jodrell Bank athugun
arstöðvarinnar í Bretlandi, Sir
Bernard Lovell, ásakaði Sovétrík
in í dag fyrir að hafa eitrað plánet
una Venus með geimfari sínu. Sir
Bernard sagðist harma það, að
Sovétmenn ætluðu, að setja líf-
fræðilegar athuganir á plánetunni
í framtíðinni í hættu á þennan
hátt, þegar vísindamenn vissu ekki
meira um Venus en raun ber
vitni um. Hann sagði, að hér væri
um tæknilegt afrek að ræða, en
bætti því við. að Rússar myndu
vonandi leggja fram frekari sann
anir fyrir því, að Venus-3 hafi
raunverulega lent á plánetunni.
Jodrell Bank náði síðast merkjum
frá geimfarinu 22. nóvember s. 1.
Síðustu fjóra dagana hafa vísinda
menn þar árangurslaust reynt að
ná sambandi við geimfarið.
ÍÞRÓYTIR
Framhald af bls. 13.
stóra sigur gegn Dundee.
Aðalfréttin í ensku knattspyrn-
unni í gær var, að Terry Venables
fyrirliði Chelsea, hefur verið sett-
ur á sölulistann, án þess að óska
þess sjálfur, og mun hann ekki
leika í dag gegn AC Milan í borg-
arkeppni Evrópu. Venables, hinn
22ja ára innherji, sem leikið nef-
ur nokkra landsleiki fyrir Eng-
land, er metinn á 70 þúsund pund,
og þarf ekki að efast um að ríku
félögin munu keppast um, að fá
hann til sín. Þá má geta þess,
að í gær keyptu Úlfarnir fram-
vörðinn Baily frá Charlton fyrir
40 þúsund pund. Baily hefur tví-
vegis leikið í enska landsliðinu.
hsím.
AXELSCHOU
Framhald af 16. síðu.
á Norðurlöndum eftir hundrað
ára starf en á sumri komanda eru
100 ár liðin síðan fyrsta kaupfé-
lagið á Norðurlöndum var stofnað
en það var í Danmörku.
Þá hefur Schou rætt um aukin
kynni og samstarf .starfsfólks
kaupfélaganna á norrænum grund
velli og í því sambandi um hoigs
anleg starfsmannaskipti kaupfé-
laganna á Norðurlöndum á veg-
um KPA, sem er Samband sam-
vinnustarfsmanna á Norðurlönd-
um.
f dag, miðvikudag, fer Schou til
Akureyrar og mætir á fundi í
Starfsmannafélagi KEA á fimmtu
dag.
Ásarnt Axei Schou hefur Páll
H. Jónsson, forstöðum. Fræðslu-
deildai SÍS mætt á fundunum og
fer hann einnig til Akureyrar.
LÁRUS
Framhalrt af 16. síðu.
verið nér á laadi frá þvi 264. gr.
hegningarlaganna var sett 1940.
Blaðið hafði í dag samband við
Berg Sigurbjörnsson, og sagði
hann m.a., að dómur þessi væri
óskiljanlgur, — „þegar þess er
gætt, að okkar lögfræðingur og
við vorum hindraðir í því að afla
þeirra gagna og leiða þau vitni í
málinu sem við vildum, til þess
að leiða sannleikann í ljós. í
fyrsta lagi stöðvaði saksóknari
rannsóknina an þess að ljúka
henni, í öðru íagi báðum við Jó-
hann Hafstein, dómsmálaráðherra
um opinbera rannsókn í málinu,
en því var aldrei sinnt, og aldrei
anzað. í þriðja lagi báðum við
Ingólf Jónsson, sem fer með mál-
efni Búnaðarbankans um að mega
leiða vitni úr Búnaðarbankanum,
þ.e. Magnús Jónsson, bankastjóra,
og þvi var synjað. Og með þetta
viðhorf til málsins dæmir svo
dómarinn Einar Braga til þyngstu
miskabóta, sem dæmdar hafa ver.
ið”.
Eins og áður hefur verið sagt,
1 ifðist Lárus Jóhannesson tukthús
efsingar, en þvi hafnaði dómar-
inn. Þá gerði hann kröfur usn 500.
000 krónur í miskabætur, en fékk
75.000, eins og áður segir. Sam-
tals munu kröfur hans í þessu
máli hafa hljóðað up á um 600.
000 krónur.
Mál þetta er mjög viðamikið,
og mun taka um viku að vélrita
up dóminn. Hafa hinir dæmdu
enn ekki fengið eintak af honum.
VATNSLEYSI
Framhald ai 16 síðu.
Ástandið er einna skást í
Grímsnesi, aðeins fáir bæir
munu vera orðnir vatnslausir.
Hafa menn sótt vatn í brúsa
og þess háttar ef vatnslítið hef
ur orðið.
Á Skeiðunum hefur ástandið
verið öllu erfiðara. Hafa menn
sótt vatn langar leiðir. Mikið
hefur verið tekið af vatni hjá
Húsatóftum, og þá helzt heitt
afrennslisvatn, sem hægt er að
flytja án þess að það frjósi.
Vatnsskorturinn er víða jnjög
bagalegur á Skeiðum og éru
margir bæir að verða alger-
lega vatnslausir.
Þá hefur vatnsskortur komið
illa niður á bændum í Hrepp
um. í Hrunamannahreppi eru
20 bæir vatnslitlir eða vatns
lausir og fer ástandið heldur
versnandi. Flytja menn vatn í
tönkum, sem þeir setja á kerr
ur o.fl.
í Gnúpverjahreppi eru ár-
sprænur að þorna upp af frost
um og þurrkum og frýs vatn
jafnvel í leiðslum. Hefur einn
bóndi tekig að sér að sækja
vatn fyrir sveitunga sína nið
ur að Húsatóftum á Skeiðum.
Segja kunnugir, að ekki hafi
verið samfellt frost í jafn lang
an tíma og nú síðan árið 1918.
Um neðanvert Land, Holt
og Ásahrepp er víða alvarlegt
ástand í vatnsmálunum og fer
versnandi. Hins vegar er ekki
erfitt að ná í vatn, þótt brunna
Þrjóti.
í Þykkvabæ eru flestir
brunnar að þorna upp og hafa
tankbílar komið með vatn frá
Selfosi.
Á áðurnefndum svæðum hef
ur verið úrkomulaust eða
mjög lítil úrkoma í dag og eru
menn vonlitlir um að fá lang
þráða úrkomu.
f Vestmannaeyjum var úr-
hellisrigning i dag og austan
rok. Regnið kom að góðum not
um, þar sem vatnsskortur hef
ur verið tilfinnanlegur í Vest
mannaeyjum að undanfömu.
Hefur vatn verig flutt til Eyja
að undanförnu með Herjólfi
en um helgina lágu fyrir á
þriðja hundrað pantanir um
vatn, sem ekki hafði unnizt
tími til að sinna. Svo fast
hafði vatnsleysið sorfið að, að
loka átti fyrir vatn til fiski-
, mjölsverksmiðjunnar og hefði
I rekstui nennar þar með stöðv
azt, en verksmiðjan notar mik
' ið af vatni.