Tíminn - 03.03.1966, Síða 3

Tíminn - 03.03.1966, Síða 3
FIMMTUDAGUR 3. marz 1966 iTÍIWfMN IGNATIUS LOYOLA - MÓTAÐI KA- ÞÓLSKA KIRKJU ÖÐRUM FREMUR Frægasti íslenzki Jesúitinn og jafnframt einn frægasti ís- lenzki rithöfundurinn var Pat- er Jón Svdinsson. Hann tók ungur kaþólska trú og gerðist reglubróðir í þeirri reglu, sem Ignatius Loyola stafnaði til styrktar kaþólskri kirkju á erf- iðum tímum. Hann er einn þeirra, sem mótað hafa og styrkt kaþólska kirkju fram ar öðrum. Hann hét fullu nafni Inigo Lopez de Loyola, fæddist í kastala Loyola ættarinnar í Baskahéruðunum á Spáni um 1491. Hann var yngstur sinna systkina, foreldrar hans voru ættgöfugir og auðugir. 1506 verður hann þénari frænda síns, sem var gjaldkeri konungsins í Kastilíu. 1517 gengur hann í þjónustu ann- ars frænda síns, hertogans af Najera, sem var einnig undir- konungur í Navarra. Hann var 1 sendiferðum fyrir hertogann og tók þátt í vörn Pamploma gegna Frökkum og særðist í þeim átöfeum 1521. Hann var fluttur heim og um tíma var honum vart hguað líf. Það var gerður uppskurður á fætinum og hann var lengi rúmfastur. í þessari legu tók hann að ihuga sitt fyrra líf, sem hann segir sjálfur í ævisögu sinni, að hafi hingað til „stjórnast af frægðarlöngun og eftirsókn eftir einskisverðum hlutum.“ í legunni las hann þær bækur, sem til voru í kastala feðra hans, en bókasafnið þar var ekki fjölskrúðugt, aðeins tvær bækur, önnur ævi Krists og hin æviþættir dýrlinganna. Hann segist einnig hafa hugs- að mikið um frægar hetjudáð- ir og nokkuð um konu eina, sem hann dáði mjög um þetta leyti. Dýrlingaævir höfðu þau áhrif á hann að hann ákvað að taka þá sér til fyrirmyndar og afplána syndir sínar með riddaralegri baráttu fyrir kirkju og kristni. Þegar hann komst á fætur fór hann til Montserrat, en þangað sóttu pílagrímar mjög til aflausnar. Þar hóf hann að skrifta, og tóku skriftir hans þrjá daga, síðan hengdi hann sverð sitt og rýting upp á vegg til hliðar við Maríulíkneskju, til merkis um, að hann hefði niðurlagt hermennsku. Síðan skipti hann klæðum við betlara nokkurn og hóf síðan oæna hald, sem stóð einn sólarhring. Síðan hélt hann til Manresa, borgar skammt frá Barselóna, dvaldi þar tæpt ár og lifði á betli, stundaði sjálfhirtingar, sótti messu hvern dag og hafð ist við í helli þess a milli utan borgarmúranna. Manresa dvöl- in varð honum til mikils þroska, hann segir sjálfur að dag nokkurn, þá hann sat á bakka árinnar Cardoner, hafi honum skyndilega skilizt margí sem til þessa hafi verið hon- um hulið, án þess að hann yrði fyrir ofsjónum. Hann rit- aði drögin að bók sinni „And- leg æfing“ um þetta leyti. Eft- ir dvölina þarna leggur hann af stað í pílagrímsferð til Jerú- salem. Hann kemur þangað í september 1523. Hann óskaði þess að fá að setjast þar að en var talinn ofan af því. Hann kemur aftur til Barselóna 1524 og þá ákveður hann að setjast á skólabekk til þess að undir- búa sig sem bezt til sálnahirð- isstarfa. Þá er hann á fertugs aldri. Hann hóf fyrst latínu- nám, en latínan var undirstað- an. Hann dvaldi í Barselóna næstu tvö árin. Á þessum árum eignast hann sína fyrstu læri- sveina, en kirkjuyfirvöldunum leizt ekki meira en svo á hóp- inn og honum var bannað að kenna þar til hann hefði öðlazt vígslu. Meðan mál har.s voru rannsökuð var hann hnepptur í dyblissu ásamt læri- sveinum sínum. 1528 fer hann til Parísar og dvelur þar við nám til 1535. Hann lifði á betli, fer til Flandern og Englands til að leita sér bónbjarga. Hann eignast á þessum árum sína tryggustu vini og þeir hafa með sér lauslegan félagsskap. Laoyola tekur meistara- gráðu við Svartaskóla 1535, og hverfur frá París og til Spánar, síðar til Feneyja, og þangað hverfa einnig vinir hans. Nú skyldi farin pila- grímsferð til landsins helga, en ekkert varð af því sökum ófriðar milli Tyrkjaveldis og Feneyjaríkis. Hann hlýtur nú vígslu á Jónsmessu 1537. Næstu mánuðir liðu við bæna hald og íhuganir og þá verður hann fyrir þeirri reynslu, sem markaði líf hans héðan frá. Hann segir vinum sínum, að hann hafi séð frelsarann og honum hafi verið gefið í skyn, að hann væri hans útvalinn liðsmaður. Á jólum 1538 syng ur Loyola síns fyrstu messu í Rómaborg. Eftir það dvelst hann lengst af í Róm, hann bauð Páli páfa þjónustu sína og 1539 ákváðu hann og fé- lagar hans að stofna til form- legs félagsskapar, heiti voru hlýðni, fátækt, hreinlífi og stuðningur við páfa. 1540 sam- þykkir Páll páfi III stofnun reglu Jesúbræðra. Félagar hans kjósa Loyola fyrsta hers- höfðingja sinn. • Jesúfélagið taldi í fyrstu aðeins tíu félaga en eftir fimmtán ár voru reglubræður taldir 1000, skipt í 12 deildir. Þrjár þessara deilda voru á Ítalíu, þrjár á Spáni, tvær á Þýzkalandi, ein í Frakklandi, ein í Portugal og tvær á Ind- landi og Brasilíu. Kristniboð og fræðsla voru starfsvið regl- unnar. Loyola sendi kristni- boða til Kongo og Abessiníu. Loyola stofnaði skóla í Róm bæði háskóla og prestaskóla fyrir þýzka prestlinga, einnig stofnaði hann hæli fyrir illa komið kvenfólk og Gyðinga, sem höfðu tekið kristni. Áhugi Loyola á fræðslumálum var tak markaður fyrst í stað, en bráð .ega varð honum ljóst, hve geysiþýðingarmikið slíkt starf er og einnig varð honum ljóst, hve sterkt afl skólarnir gátu orðið í baráttunni fyrir páfa- stólmn, á síðari árum sínum vann hann að því að skipu- leggja skólakerfi reglunn- ar. Nú á dögum er reglan fyrst og fremst fræðsluregla og rek- ur beztu skóla víða um Evrópu skóla Jesúíta eru strangir og taka flestum öðrum skólum fram, kennslukraftar eru vald ir og betri skólar í latneskum fræðum og kirkjusögu finn- ast ekki. Loyola lagði mikla áherzlu á undirbúning reglu bræðra undir störf þeirra, þeir urðu að afla sér beztu mennt anar, sem kostur var á í hverri grein. Frægasti skóli þeirra nú á dögum er Greogríanski há skólinn í Róm. Síðari árin vann Loyola að því að semja reglur félagsins. í þessum regl um eru ýmis frávik í siðum frá siðakerfi kirkjunnar, meg- ináherzla var lögð á það, að reglubræður gætu aðlagað sig annarlegum aðstæðum, reglu heitið var ekki algjört, páfinn gat ef honum bauð svo við, að horfa, leyst menn af heitinu. Stjórn reglunnar var frábrugð in stjórn flestra munkareglna í því, að hershöfðinginn var svo til einráður, þurfti ekki að ráðgast við reglubræður um að gjörðir. Hann hefur sér til að stoðar „assistenta," en þeir eru fulltrúar fyrir viss lönd og 1 landsvæði. Yfirmenn regl- § unnar í hinum ýmsu löndum I eru valdir af hershöfðingj anum. Reglubræðrum eru bönnuð afskipti af veraldar- , vafstri, bæði kaupsýslu og stjórnmálum, svið þeirra er ? trúboð, kennsla og mannúðar starfsemi. Reglubræður skulu vera þess viðbúnir að „ferðast | til endimarka jarðarinnar | krefjist þörf heilagrar kirkju og nauðsyn þess, allt starf þeirra á að vera guði til dýrð ar og kirkjunni til styrktar.“. Saga reglunnar skiptist í tvö tímabil, þar fyrra frá 1540- 1773 og það síðara hefst 1814. 1773 bannaði Klemenz XIV regluna, fámennur hópur reglu bræðra lifði þann tíma klaustralífi í Róm. Reglna stundaði mjög trúboðsstarf semi þegar á 16. öld, þegar kemur fram á þá sautjándu, taka reglubræður að starfa aö því fyrir páfa, að freista þess að vinna aftur lönd þau til ka- þólskrar trúar, sem tóku upp sið Lúthers og Kalvíns við siða skiptin. Margir lærðustu guð fræðingar þessara tíma voru Jesúítar, og þeir áttu mikinn þátt að stefnu páfastólsins í trúmálum og stjórnmálum, margir merkustu fræðimenn í heimspeki og málvísindum voru reglubræður og þegar kemur fram á 18. öld, taka bræður að stunda náttúruvís endi. Ofsóknir hefjast gegn reglunni á síðari hluta 18. ald ar í þeim löndum, þar sem hún hafði starfað lengst og var öflugust. Mörgum var styrk- leiki hennar þyrnir í augum, menn nefndu hana ríki í rík- inu og ömuðust við nánum tengslum hennar við páfa stólinn, ýmsir stjórnmála- menn og ráðamenn þessara tíma voru litlir vinir páfastóls, | þótt kaþólskir væru og presta « hatur var tízka. Auk þessa S mátti benda á þessa alþjóð- 6 legu reglu, tortryggja ýmsar H gjörðir hennar og gera hana hættulega einingu ríkisins í augum almennings. Reglan var syndaselur, sem átti að gjalda fyrir lélegt stjórnarfar. Tuttugu og þrír Jesúítar voru teknira f lífi í frönsku stjórn- arbyltingunni. 1814 voru kröfurnar um starfsleyfi reglunnar mjög há værar víða, einkum krafan um opnun skóla reglubræðra og Píus VII éndrureisti regluna aftur. Reglan hafði goldið mik að afhroð á bannárunum, en tók nú til starfa af miklum krafti, samkomulag við ríkj- andi ríkisstjórnir var oft erfitt og reglan var bönnuð öðru hverju í sumum löndum. A pess ari öld hefur reglan aukizt að áhrifum og félögum stórlega fjölgað, einkum hefur reglan náð miklum árangri í engil- saxneska heiminum, bæði á Englandi og í Bandaríkjunum. Nasistar ofsóttu Jesúíta, bæði fyrir stríð og á eftirstríðsárun- Framhald á bls. 12. Ignatius Loyola. 3 Á VÍÐAVANGI Tollir enn í rullunni Allt frá því að sparifjárbind- ingin margfræga kom til með „viðreisninni“ fyrir sex árum hafa stjórnarblöðin haldið því hart fram og þrástagazt á því sýknt og heilagt, að þessi spari- fjárbinding væri alveg lífsnauð synleg, og það væri síður en svo, að þetta fé væri „fryst“ eins og stjórnarandstæðingar segðu, heldur væri það í gjald- eyrisvarasjóðinum, og beinlín- is forsenda hans. Nú síðan stjórnarflokkarnir hafa orðið að láta undan síga fyrir gagnrýninni á hraksmán- arlcga framkomu þeirra við undirstöðuatvinnuvegina, sem þeir halda í lánasvelti og vaxta- kreppu, hafa þeir orðið tvísaga í málinu og segja bundna féð nú alls ekki í gjaldeyrisvara- sjóðnum lengur, heldur sé það beinlínis notað til þess að lána það út landbúnaði og sjávarút-' vegi. í gær segir Mbl. t. d.: „Nokkur hluti af sparifé við- skiptabankanna er tekinn ein- mitt í þeim tilgangi að unnt sé að lána til atvinnuveganna, og þá fyrst og fremst með endur- kaupum afurðavíxla“. Morgunblaðið tollir sem sagt enn í nýju rullunni sinni um það, til hvers frysta féð sé not- að, en tvísagan augljósari en nokkru sinni fyrr. 55% og 67% En þá munu menn hugsa með sér, að það sé ekkert smáræði, sem endurkeypt er af afurða- víxlum fyrir atvinnuvegina og vafalaust margfalt á við það, sem var í tíð hinnar illu vinstri stjórnar. Staðreyndirnar um það eru þessar: í tíð vinstri stjórnarinnar var ekkert sparifé bundið frá við- skiptabönkunum, og þeir höfðu allt fé sitt til frjálsra lána, og gátu því leyst þörf atvinnuveg- anna miklu betur, og síðan end urkeypti Seðlabankinn afurða- víxla, sem námu 67% af áætl- uðu verði afurðanna. Nú fryst- ir stjórnin 30% af innstæðu- aukningunni í viðskiptabönk- unum í Seðlabankanum og seg- ist NÚ nota það til að endur- kaupa afurðavíxla, en þau end- urkaup svara ekki nema til 55% afurðanna. Og ekki hefur enn verið unnt að leysa þarfir iðnaðarins í þessu. Þessar stað reyndir blasa nú við. Það er tilgangslaust fyrir Mbl. að nefna hærri tölur end- urkeyptra afurðavíxla, vegna þess hve dýrtíðin hefur marg- faldazt. Fjárlögin hafa t. d. fimmfaldazt, og mættu þvi keyptir afurðavíxlar líka fimm- faldast. En Morgunblaðið reikn ar þetta dæmi ekki þannig, því að útkoman evrður að vera blekking. Hrifning í Mogga Morgunblaðinu finnst svo mikið til um réttlæti dómanna um miskabætur til handa Lár- usi Jóhannessyni í krafti meið- yrðalöggjafarinnar, að hann birtir sérstaka forystugrein til þess að fagna sigri réttlætisins. Þykir blaðinu nú mjög um skipt til hins betra, bjartari tímar framundan og segir: „Fram að þessu hefur meið- yrðalöggjöfin ekki veitt mikla vernd hér á landi, en sýnilegt er nú, að dómstólar skilja betur en áður, að þessi löggjöf á að vernda æru manna“. Þessi dómur finnst ritstj. Mbl. alveg sérstakt tákn um það, þegar vel tekst til um að vernda æru manna. Gott. sem sagt gott.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.