Tíminn - 23.03.1966, Blaðsíða 1
STÚRHRÍÐ GEISAR
A NORÐURLANDI
KT-Reykjavík, þriðjudag.
f dag geisar stórhrið um
alit Norðurland og sér víða ekld
úr augum fyrir veðurofsanum. Á
Sauðárkróki mældist skyggni t.d.
0 metrar og skýjahæð 0 metrar.
Viða á Norðurlandi hefur veður-
hæðin komizt í 10 vindstig og
snjó hefur kyngt niður um
allt norðanvert landið. í Skaga
firði mældist í dag 19 mm úr-
koma í miðri sæluviku. Tíu stiga
frost mældist á norðanverðum
Vestfjörðum í dag, en snjó-
koma minni en á Norðurlandi en
talsverð þó. Snjókoma var alla
leið suður í Borgarfjörð og á
Hveravelli og austur á Austfirði.
Veður var miklu betra sunnan
lands, snjólítið, en víða hvasst,
t.d. mældust tíu vindstig á Stór
höfða í Vestmannaeyjum.
Tíminn hafði í dag samband
rið nokkra fréttaritarar sina
á Norðurlandi til þess að kanna
ástandið.
f V-Húnavatnssýslu var kom-
in blindhríð og var skyggni talið
10-20 metrar. Hafði kyngt nið-
ur snjó á þessum slóðum, en snjó
létt hefur verið þar í vetur.
Á Skagaströnd var versta veð
ur í dag, en það hafði versnað
mjög eftir hádegið. Alger stöðv-
un var orðin á umferð vegna
dimmviðris.
Afleitt veður er í dag á Sauðár
króki, eins og getið hefur verið
um. Geisar þar norðanstormur
með hörkustórhríð, og komst eng
inn bíll til staðarins í dag. Nærri
má geta, að veðurofsinn kemur á
slæmum tíma, því að sæluvika
Skagfirðinga stendur nú sem
hæst. Karlakórinn Feykir átti að
Lltvarpsumræður
um vantraustið
IGÞ-Reykjavík, þriðjudag.
Útvarpsumræður um van
traustið hafa verið ákveðn-
ar á föstudag. Umræðurnar
hefjast klukfkan 8 og er
þeim skipt í þrjár umferð
ir. Þeir sem tala af hálfu
Framsóknarflokiksins eru
Eysteinn Jónsson, Ólafur Jó
hannesson og Helgi Bergs
og eru þeir fyrstir í röðinni.
Framhald á bls. 15.
skemmta í dag á Sauðárkróki, en
komst ekki til staðarins, svo af
lýsa varð söngnum, svo og öllum
öðrum skemmtunum í sambandi
við sæluvikuna. Þetta er eitt
versta veður, sem komið hefur
i Skagafirði í vetur, en ekki er
talið stætt úti við.
Akureyringar hafa ekki farið
varhluta af veðrinu í dag, en þar
hefur verið afleitt veður. Þó mun
óveðrið ekki hafa skollið á fyrr
en um kl. 15. Drangur, sem átti
að fara á Ólafsfjörð, Siglufjörð og
Sauðárkrók, varð að snúa við fyr
ir utan Ólafsfjörð, og þykir það
bera vott um, hve veðrið hefur
verið ofsafengið.
Aftakaveður var í Hrísey í dag,
stórhríð og rok, 10 metra skyggni.
Drangur kom til Hríseyjar í morg
un, en þá var veðrið orðið mjög
slæmt, en orðið glórulaust eftir
hádegið. Bátar voru að vitja
Framhald á bls. 15.
Urho Kekkonen, forseti iFinnlands, sést hér greiSa atkvæði. Vlð hllð hans er frú Sylvi Kekkonen.
Finnar verða að mynda
stjórn í sátt við Moskvu
NTB;Helsingfors, þriðjudag. — Finnsku þingkosningarnar leiddu til valdabreytingar í finnska þing-
inu, eins og flestir höfðu búizt við, en þó hafði engan dreymt um, að sigur jafnaðarmanna yrði svo mik-
ill, sem raun varð á, en sigur þcirra er sá mcsti, sem finnskur flokkur hefur unnið í þingkosningum.
Mjög er óvíst um, hvaða flokkar myndi stjóm í Finnlandi, en þó er talið, að jafnaðarmcnn verði með
í nýju stjórninni. Er talið, að Urho Kekkonen, forseti Finnlands, muni fyrst fara þess á leit við jafn-
aðarmenn, að þeir beiti sér fyrir stjórnarmyndun.
Jafnaðarmenn fengu sam-
kvæmt bráðabirgðatölunum —
en þá er eftir að telja póst-
send atkvæði — 56 þingsæti, og
juku því þingsætatölu sína um
tæp 50%. Virðist því svo, sem
flokkurinn hafi náð sér aftur
eftir margra ára klofning, sem
bæði hefur einkennt flokkinn
og verkalýðshreyfinguna í Finn
landi, en sá klofningur leiddi m.
a. til þess, að árið 1962 fékk
flokkur jafnaðarmanna aðeins
38 þingsæti.
Kommúnistar misstu mörg
þingsæti til Símónista, sem
svo eru kallaðir — þ.e. klofnings
flokkur úr jafnaðarmannaflokkn
um en þessir tveir flokkar voru í
kosningabandalagi í öllum kjör-
dæmum landsins. Kommúnist
arnir misstu fimm þingsæti, en
Símonistar unnu fimm. Munu
Kommúnistar ekki hafa búizt
við slíkum árangri kosninga-
bandalagsins. En samanlagt
héldu þessir tveir flokkar þing
sætatölu sinni, og í hinu nýja
þingi verður því meirihluti sósí-
alistisku flokkanna 105 þingsæti
gegn 95 þingsætum borgaralegu
flokkanna. Á síðasta þingi
höfðu borgaralegu flokkarn-
ir 113 þingsæti, en sósíalistar
87. Þingsætaskiptingin er svo
hljóðandi: Jafnaðarmenn 56
(38 síðast), Miðflokkurinn 49
(53), Kommúnistar 42 (47),
íhaldsflokkurinn 25 (32), Sænski
þjóðarflokkurinn 12 (14), Frjáls-
lyndi þjóðarflokkurinn 8 (14), Sí
mónistar 7 (2) og Smábænda-
flokkurinn 1 (0). Hugsanlegt er,
að Kommúnistar fái tvö þing
sæti til viðbótar við endanlega
talningu. Ef svo verður, þá fá
þeir eitt þingsæti frá jafnaðar-
! mönnum og eitt frá Miðflokkn
j um. Eru þessi tvö þingsæti enn
! óviss.
Hið nýja valdahlutfall í þing-
inu mun að því er talið er leiða
til þess, að jafnaðarmenn taki
við stjórnartaumunum í fyrsta
sinn síðan 1958. En flokks-
foringinn, Rafael Paasio, hefur
lýst því yfir, að ekki verði um
neina hreina sósialistliska stjórn
að ræða, og því vaknar sú spurn-
Framhald á 2. síðu.
BIFREIDAGJÖLDIN í VEGAKERFID
AK, Reykjavík, þriðjudag.
Fimm þingmenn Framsóknar-
flokksins í efri deild þeir Helgi
Bergs, Karl Kristjánsson, Páll Þor
steinsson, Ólafur Jóhannesson og
Hermann Jónasson hafa fluct
frumvarp um það, að frá næstu
áramótum renni 135% leyfisgjald
ið, sem nú er innheimt af fob-
verði bifreiða, til nýbyggingar
þjóðvega.
Frumvarpið er svohljóðandi:
1. gr.
Á eftir 86. gr. laganna komi ný
grein, sem orðist svo:
Greiða skal sérstakt gjald af
innfluttum bifreiðum og bifhjól-
um, er nemi 135% af fob-verði
hverrar bifreiðar eða bifhjóls-
Gjald þetta skal innheimt með
öðrum aðflutningsgjöldum.
Ef fob-verð er ekki tiltekið, mið
ast gjaldið við tollmat að frá-
dregnu flutningsgjaldi og vátrygg
ingargjaldi.
Sama gjald skal innheimt af bif
reiðum, sem settar hafa verið
saman innanlands, og skulu slíkar
bifreiðar metnar eftir sömu regl
um og innfluttar, og er óheimilt
að skrásetja þær, fyrr en gjald
þetta hefur verið greitt.
Ríkisstjómin úrskurðar í vafa-
atriðum, hvdlfa bifreiðar skuli
gjaldskyldar.
Tekjum samkvæmt þessari
grein skal varið til nýbyggingar
þjóðvega, sbr. þó 32. gr.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar
1967. Um leið er úr gildi felld
16. gr. laga nr. 4/1960, um efna-
hagsmál. Framhald á bls 7
SPÁÐ DEILU
UM SKIPTIN
Aðils-Kaupmannahöfn,
þriðjudag.
Berlingske Tidende skrif
ar í forystugrein í dag, að
of snemmt sé að gefa iof-
orð um, að hin svokölluðu
skuldaskil íslands og Dan-
rnerkur séu að verða úr sög
unni. Blaðið vísar til orða
Jens Otto Krags á Pressu-
ballinu i Reykjavík um
helgina, þar sem Krag
ræddi handritamálið og
lýsti yfir gleði sinni vegna
þess, að nú væri að vera
lokið viðkvæmasta deilu-
máli landanna-
Berlingske Tidende segir,
að forsætisráðherrann hafi
augsjáanlega gengið út frá
því sem vísu, að ríkisstjórn
in muni sigra í máli því, sem
Árna Magnússonar-stofnun-
in hóf á hendur stjórninni
vegna laganna um afhend
ingu íslenzku handritanna.
Blaðið ræðir þessa af- k
stöðu forsætisráðherrans, og
segir síðan:
— Þótt hæstiréttur stað-
festi lögin, mun það ekki
leiða til lykta óvissuna um
Framhald á bls. 15.
\ v